Morgunblaðið - 27.09.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SVEINN Andri Sveinsson, hrl. og
verjandi manns, sem dæmdur var í
Héraðsdómi Reykjaness í febrúar sl.
fyrir að valda af gáleysi dauða níu
mánaða gamals drengs, hefur lagt
fram í Hæstarétti álitsgerðir erlendra
sérfræðinga, þar sem því er haldið
fram að ekki hafi verið sannað með
læknisfræðilegum hætti að dánaror-
sök drengsins hafi verið sú sem ákært
var fyrir og dómurinn byggðist á.
Maðurinn var dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir að valda af gáleysi
dauða drengsins með því að hrista
hann harkalega þannig að hann lést af
völdum áverka sem höfðu einkenni
þess sem nefnt hefur verið „shaken
baby syndrome“. Maðurinn hefur
ávallt neitað sök og var dómnum
áfrýjað til Hæstaréttar.
Telja að skort hafi ýmsar
mælingar og rannsóknir
Verjandi mannsins hefur m.a. aflað
álitsgerða fjögurra erlendra sérfræð-
inga á sviði læknisfræði, sem fengu
sendar enskar þýðingar á niðurstöð-
um krufningarskýrslu réttarmeina-
fræðings.
Fram kemur á álitsgerðum sér-
fræðinganna til verjandans að þeir
eru þeirrar skoðunar að ekki sé hægt
að útiloka aðrar orsakir en „shaken
baby syndrome“. Telja þeir eftir að
hafa farið yfir niðurstöður krufningar
að ýmsar mælingar og rannsóknir
hafi ekki verið gerðar, sem skipt geti
sköpum og hefðu getað útilokað aðrar
dánarorsakir. Dr. Alan Clemetson,
fyrrv. prófessor við Tulane-læknahá-
skólann í New Orleans, gagnrýnir
krufningarskýrsluna og spyr m.a.
hvers vegna ekki hafi farið fram blóð-
rannsóknir á magni C-vítamíns og
histamíns, sem hann telur mjög þýð-
ingarmiklar varðandi dánarorsök.
Ekkert sé heldur minnst á mögulegan
ungbarnaskyrbjúg þrátt fyrir að fram
hafi komið merki um blæðingar undir
beinhimnu og gróið brot sem sé
dæmigert fyrir ungbarnaskyrbjúg.
Dr. Michael D. Innis, blóðsjúkdóma-
læknir við Princess Alexandra-
sjúkrahúsið í Brisbane í Ástralíu,
kemst að þeirri niðurstöðu í umsögn
sinni að náttúruleg dánarorsök
drengsins hafi ekki verið útilokuð.
Innis gerir m.a. athugasemdir við að
ekki var gerð vefjafræðileg rannsókn
á útbrotum sem bendi til æðabólgu-
sjúkdóma er valdið geti blæðingum.
Segir hann ýmsa galla vera á rann-
sókninni á dauðsfallinu og leggur
áherslu á það í álitsgerð sinni að það
gangi ekki upp að komist sé að þeirri
niðurstöðu í krufningu að um sé að
ræða „shaken baby syndrome“ án
þess að útiloka fyrst að um æðabólgu
eða galla í blóðstorkukerfi hafi verið
að ræða. Einnig hefði átt að rannsaka
mögulegt lyfjaofnæmi og möguleika á
lifrarbilun er valdið geti göllum í
storkukerfi. Þá telur hann einnig
mögulegt að ungbarnaskyrbjúgur
gæti verið dánarorsökin. Innis segir
að réttarmeinafræðingar eigi að vita
að krufningarniðurstöður ungbarna-
skyrbjúgs og „shaken baby synd-
rome“ séu óaðgreinanlegar.
Náttúruleg dánarorsök
útilokuð of snemma
Dr. Archie Kalokerinos, læknir frá
Ástralíu, sem er m.a. þekktur fyrir
rannsóknir sínar á ungbarnadauða
meðal frumbyggja, gagnrýnir í álits-
gerð sinni að allt of snemma hafi
möguleikinn á náttúrulegri dánaror-
sök verið útilokaður. Gerir hann at-
hugasemdir við marga liði í skýrsl-
unni og bendir m.a. á að lýsingar á
sjónhimnublæðingum, beingerðar-
breytingum og meltingarfærasýk-
ingu séu í samræmi við greiningu á
ungbarnaskyrbjúgi. Undanfari hans
sé aukin upptaka C-vítamíns. ,,Skyr-
bjúgsbreytingar sem inneitur [endo-
toxín] og sýkingar leiða til, er eina
rökræna skýringin á því sem fannst,“
segir Kalokerinos í álitsgerð sinni.
Meðal þess sem fram kemur í um-
sögn dr. Harolds E. Buttrams, læknis
við Woodlands Healing Research
Center í Pennsylvaníu í Bandaríkjun-
um, er að þrátt fyrir fagleg vinnu-
brögð réttarmeinafræðingsins hafi
verið litið framhjá möguleikum á
sjálfsónæmisheilabólgu af völdum
bólusetninga eða Barlow’s-sjúkdómn-
um.
Verjandinn leggur einnig fyrir
Hæstarétt mikinn fjölda erlendra
fræðigreina og rannsóknarniður-
staðna um einkenni „shaken baby
syndrome“ og ýmsa þætti sem geta
valdið skyndilegri blæðingu undir ytri
heilahimnu. Heldur hann því fram í
greinargerð ákærða fyrir réttinum að
álitsgerðir sérfræðinga sýni að dán-
arorsökin hafi verið önnur en sú að
drengurinn hafi verið hristur með
þeim hætti að blæðingar hafi orðið í
heila. Ekki sé unnt að slá neinu föstu
þar sem aðrar mögulegar orsakir hafi
ekki verið kannaðar til fulls.
Telja dánarorsök
ekki vera sannaða
Erlend sérfræðiálit lögð fyrir Hæstarétt í máli manns sem var dæmdur vegna dauðsfalls barns
HALLDÓR Blöndal, forseti Al-
þingis, opnar Skálann, nýja þjón-
ustubyggingu við Alþingishúsið,
klukkan 15 í dag. Í Skálanum er
aðalinngangur í Alþingishúsið og
í honum er margháttuð þjónusta
fyrir þingmenn, starfsmenn Al-
þingis og gesti. Alþingi og Skál-
inn verða opin almenningi á
morgun frá kl. 10 árdegis til
klukkan 16.
Morgunblaðið/Júlíus
Skáli Al-
þingis tek-
inn í notkun
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir umræðuna um hvort
hagsmunum Íslands væri betur
borgið í Evrópusambandinu (ESB)
en á grundvelli EES-samningsins
óhjákvæmilega. Spurningin um Evr-
ópuaðild Íslands sé ekki aðeins á
dagskrá, heldur hljóti að vera kosn-
ingamál eins og allar aðrar spurn-
ingar sem snerta lífskjör og aðstöðu
þjóðarinnar til lengri tíma litið.
Þetta kom fram í máli Halldórs á
ráðstefnu Alþýðusambands Íslands
(ASÍ) um Evrópumál í gær. „Þetta
er ein stærsta spurning sem íslenska
þjóðin mun standa frammi fyrir á
næstunni, umræða um hana verður
ekki umflúin og henni verður að
svara að lokum,“ sagði ráðherra.
Halldór sagði áhrif sjávarútvegs-
stefnu og landbúnaðarstefnu ESB á
landsbyggðina án efa verða umtals-
verð. „Ef við höfum ekki yfirráð yfir
nýtingu auðlinda sjávar innan okkar
lögsögu er ljóst að við eigum ekki er-
indi inn í Evrópusambandið. […]
Auðvitað er aldrei hægt að fullyrða
fyrirfram um niðurstöðu samninga-
viðræðna, en ljóst er að Evrópusam-
bandið hefur í aðildarviðræðum við
ný aðildarríki sýnt grundvallarhags-
munum þjóða mikinn skilning.“
Mikilvægt að skýra kosti
og galla aðildar
Halldór sagði mikilvægt að kostir
og gallar aðildar að ESB fyrir land-
búnaðinn yrðu skýrðir til fulls. Aðild
hefði í för með sér breytingar á um-
hverfi innflutnings landbúnaðar-
afurða. Matvöruverð yrði lægra fyrir
neytendur og samkeppni við inn-
lenda framleiðslu ykist. Í aðild felist
ekki bara hættur fyrir landbúnaðinn,
heldur líka sóknartækifæri með
auknum markaðsaðgangi og stuðn-
ingi við búháttarbreytingar.
Hann sagði vísaði í þá umræðu
sem nú á sér stað innan Heimsvið-
skiptastofnunarinnar um að fella
niður innflutningstolla á landbúnað-
arafurðir. Sagði að það hljóti að kalla
á umræðu um það hvort auðveldara
væri að verja þann stuðning sem ís-
lenskur landbúnaður þurfi á að
halda, þróa hann til betri vegar og
hugsanlega efla hann, ef Ísland væri
aðili að ESB.
Rúmlega 75% af útflutningi Ís-
lands fari á markað ESB og þeirra
ríkja sem eru í aðildarviðræðum við
sambandið. Þetta hlutfall hafi vaxið
um 7,6% á síðustu þremur árum og
megi gera ráð fyrir enn meiri aukn-
ingu eftir stækkun sambandsins til
austurs. Ekki sé ólíklegt að á þessum
markaði verði innan fárra ára einn
gjaldmiðill sem afkoma Íslands muni
í verulegum mæli byggja á
Ekki hægt að gefa sér
niðurstöðuna fyrirfram
Halldór sagði nauðsynlegt að Evr-
ópuumræðan falli ekki í hinn gamla
kaldastríðsfarveg þegar menn
ræddu mál með upphrópunum og
einföldunum og gáfu sér niðurstöð-
una fyrirfram. Fagnaðarefni sé að
ASÍ kalli saman færustu sérfræð-
inga til að ræða málin fordómalaust.
Hafa þurfi í huga að með EES-samn-
ingum, Schengen-samningnum og
pólitísku samráði við ESB hafi Ís-
lendingar ákveðið að taka upp yfir
80% af öllum þeim ákvörðunum sem
teknar eru á vettvangi ESB.
Hvort sem Ísland eigi eftir að
ganga í ESB eða ekki verði umræð-
an um kosti aðildar og það val sem
þjóðin standi frammi fyrir í Evrópu-
málum að fara fram.
„Hún á að fara fram á forsendum
fólksins í landinu, þar sem hver ein-
staklingur og hver samtök nálgast
mál út frá sínum forsendum og með
sínu lagi.“ Þá ákvörðun eigi ekki að
taka fyrir luktum dyrum heldur í op-
inni umræðu með þátttöku þjóðar-
innar allrar. „Spurningin um Evr-
ópuaðild okkar er því ekki aðeins á
dagskrá – hún hlýtur að verða kosn-
ingamál eins og allar aðrar spurn-
ingar sem snerta lífskjör og aðstöðu
okkar til lengri tíma litið.“
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á ráðstefnu um Evrópumál
Umræða um aðild Íslands
að ESB er óhjákvæmileg
Fjármálaráðuneytið hyggst ekki til-
nefna mann í starfshóp þann sem
heilbrigðisráðherra skipaði í júlí í
sumar en starfshópurinn átti að
skilgreina hverjir teljist vera
læknar í starfsnámi en hópurinn
hefur ekki komið saman enn. Ráðu-
neytið telur að málið snúist fyrst og
fremst um faglegt mat og komi í
sjálfu sér kjarasamningum ekki við.
Þær upplýsingar fengust í heil-
brigðisráðuneytinu að menn kynnu
ekki skýringar á því hvers vegna
dregist hefði að fjármálaráðuneytið
tilnefndi mann í starfshópinn, fjár-
málaráðuneytið yrði að svara fyrir
það. Í heilbrigðisráðuneytinu teldu
menn þó mikilvægt að fjármála-
ráðuneytið kæmi að málinu.
Þarf að liggja fyrir hverjir
teljist vera í starfsnámi
Gunnar Björnsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, segir
að málið sé tilkomið vegna frum-
varps sem félagsmálaráðherra flutti
á síðasta þingi en í því hafi verið
reynt að setja í lög tilskipun Evr-
ópusambandsins um vinnutíma.
„Unglæknar koma til með að falla
undir þá tilskipun með tíð og tíma
og því þarf að liggja fyrir hverjir
teljist vera læknar í starfsnámi.
Eðlilega var gert ráð fyrir að heil-
brigðisráðuneytið setti fram þá skil-
greiningu. Frumvarpið dagaði hins
vegar uppi á síðasta þingi og þá
varð uppi fótur og fit vegna þess að í
kjarasamningum við lækna höfðum
við gengið út frá því að frumvarpið
yrði að lögum.“
Gunnar segir að vegna þessa hafi
verið kallaður saman óformlegur
fundur og þar hafi menn helst verið
á því að heilbrigðisráðuneytið með
nánustu ráðgjöfum, s.s. læknadeild-
ar, Landspítalans og fagaðila í heil-
brigðisgeiranum, sæi um þessa skil-
greiningu. Engin ákvörðun hafi hins
vegar verið tekin.
„Síðan kom bréf um skipun sér-
staks starfshóps sem ég fékk þegar
ég kom úr sumarfríi. Vegna tafa og
anna dróst það að við tækjum af-
stöðu til þessa máls. Niðurstaðan er
hins vegar sú að við munum ekki
skipa mann í þennan hóp og þá
einkum á þeirri forsendu að þetta
eigi að vera faglegt mat og komi í
sjálfu sér ekki kjarasamningum við
heldur varði fyrst og fremst með
hvaða hætti menn ætli að framfylgja
innleiðingu þessarar tilskipunar.“
Starfshópur vegna
lækna í starfsnámi
Tilnefnir
ekki mann
í hópinn
RÚMLEGA þrítugur ökumað-
ur setti heldur vafasamt met í
gær er hann ók á 163 km hraða
á hringveginum á Mývatns-
öræfum við Biskupsháls.
Lögreglan á Húsavík stöðv-
aði bílinn og má ökumaðurinn
búast við sekt og ökuleyfis-
sviptingu.
Mældist
á 163 km