Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.2002, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. JÚNÍ 2002 5
Þá leigðum við, ég og Henry vinur minn og
starfsfélagi, herbergi hjá frú Kirby, Fortland
Place 45 í Sunderland. Það var um kl. 11 að
kvöldi 1. apríl 1916. Við sátum inni í stofu við
arineld áður en við fórum að sofa. Þá heyrð-
um við tvisvar einhvern hávaða, sem við ekki
gátum greint hvaðan kæmi. Okkur grunaði
þó hvað væri á seyði og slökktum öll ljós, þótt
húsið væri annars vel myrkvað, svo að ekkert
ljós sæist utan frá. Við fórum út á hlað og
horfðum upp í dimman heiðskíran en stjörnu-
bjartan himininn. Allt var kyrrt, enginn sagði
neitt, þar til við sáum skugga bera fyrir hluta
af stjörnum himinsins, og við heyrðum hávað-
ann frá vélum loftskipsins. Það var skrokkur
þessa stóra Zeppelin-loftfars, sem skyggði á
hluta stjörnuhiminsins fyrir sjónum okkar.
Við sáum fljótlega að loftskipið stefndi beint
á okkur. Mínútu síðar sáum við loftskipið
greinilega beint yfir höfði okkar. Við áætl-
uðum lengd þess um 240 metra, og að það hafi
verið um 5 mínútur á leiðinni fram hjá okkur.
Sennilega hefur það þó aðeins verið 5 sek-
úndur yfir höfði okkar. Allir íbúar hússins
stóðu utan dyra í næturkyrrðinni og horfðu
beint upp í loftið.
Við sáum þegar sprengju var varpað úr
loftskipinu, en til allrar hamingju fyrir okkur
féll sprengjan til jarðar um 180 metra frá
vegna hraða loftskipsins. Síðan féll sprengja
eftir sprengju og miklar drunur rufu kyrrð
næturinnar. Okkur var ljóst hvað hafði gerst.
Á fimm mínútum var fjöldamorðunum lokið í
þetta sinn, og loftskipið á heimleið til Þýska-
lands.
Um kl. 12 á miðnætti gengum við Henry
inn í bæinn. Þar var mun færra fólk en við
áttum von á, líklega vegna þess að ekkert var
hægt að sjá. Allar göturnar þar sem sprengj-
urnar höfðu komið niður voru lokaðar og eng-
um var hleypt þangað nema lögreglu og
sjúkrabílum. Daginn eftir var sunnudagur og
nú gat fólk komist nær sprengjusvæðunum
og komist að raun um hvað hafði skeð nóttina
áður. Loftskipið hafði flogið yfir þéttbýlasta
hluta Sunderland-bæjar og kastað sprengj-
unum á íbúðarhús langt í burtu frá öllum
hernaðarlega mikilvægum stöðum. Árangur-
inn var 20 manns drepnir og um 100 særðir,
allt óbreyttir borgarar. Það var langt síðan
Sunderland hafði verið heimsótt af svo mörgu
utanbæjarfólki og þennan sunnudag.“
Þannig lýkur frásögn Bárðar G. Tómasson-
ar af þýskri loftskipsárás á Sunderland 1.
apríl 1916. Í heimsstyrjöldinni 1914–1918
fóru Þjóðverjar 107 loftárásaferðir til Eng-
lands. Flestar þessar loftárásir voru með loft-
skipum því að þau gátu borið miklu fleiri og
þyngri sprengjur en þær gerðir flugvéla, sem
þá voru til. Loftskipin sem smíðuð voru í
Þýskalandi árið 1916 voru um 200 m löng og
24 m í þvermál. Vélarorka þeirra var 1.440
hestöfl, hraðinn aðeins um 100 km/klst, en
þau gátu borið rúm 30 tonn. Með þróun flug-
véla og loftvarna reyndust loftskipin hins
vegar svo auðveld skotmörk, að eftir að um 80
loftskipum Þjóðverja hafði verið grandað
hættu þeir eins og fyrr segir algjörlega að
nota loftskip í landhernaði árið 1917.
Grunaðir um njósnir
fyrir Þjóðverja
Annan fróðlegan viðburð nefnir Bárður í
dagbókarbroti frá árinu 1916 en þar segir frá
hvernig öll hús í Sunderland voru myrkvuð,
þannig að ekki sæjust úr lofti. Þeir Bárður og
þrír danskir vinir hans störfuðu þar þá. En
auk Henry E.L. Sørensen skipaverkfræð-
ings, sem áður var getið, voru þar tveir aðrir
Danir þeir Jacob Bindesböll skipaverkfræð-
ingur, sem starfaði á annarri skipasmíðastöð,
og Chr. Wilhjelm sem var stöðvarstjóri raf-
veitu við pappírsverksmiðju í Sunderland.
Þessir fjórir ungu menn héldu hópinn og hitt-
ust til skiptis í húsakynnum þar sem þeir
bjuggu. Það var að kvöldi dags 16. apríl 1916,
að þeir félagar voru samankomnir í húsi því,
þar sem Bárður og Henry höfðu leigt her-
bergi hjá frú Kirby, ekkju með son og dóttur
á táningsaldri.
Í frásögn þeirra félaganna segir eitthvað á
þessa leið: „Það var þétt þoka og dimmt utan
dyra enda klukkan um 8 að kvöldi. Eins og
venjulaga var frú Kirby að bera á borð hjá
okkur kvöldsnarl í borðstofunni, en til hátíða-
brigða höfðum við aflað okkur til hressingar
skosks viskís og sódavatns.
Allt í einu var barið harkalega að dyrum.
Frú Kirby fór til dyra og inn ruddist ungur
liðsforingi og hópur vopnaðra hermanna.
Liðsforinginn tilkynnti að hann væri kominn
til að gera húsleit og handtaka menn sem
höfðu verið staðnir að því að senda ljósmerki
til þýsku árása-loftskipanna. Okkur var tjáð
að við værum handteknir og skipað að sitja
kyrrir á meðan þeir gerðu leit í öllu húsinu.
Þessi leit tók töluverðan tíma en ekkert grun-
samlegt fannst. Á meðan stóð viskíflaskan og
lystugur kvöldmatur húsfrúarinnar á borð-
inu. Liðsforinginn stóð hálfvandræðalegur á
svipinn í hálfopnum dyrunum á milli borð-
stofunnar og anddyrisgangsins, og greinilega
í vafa um hvað gera skyldi við okkur félagana.
Þá hrópaði flokkur hermanna, sem stóðu vörð
utan dyra til þeirra, sem inni voru, að ennþá
kæmu ljósmerkin greinilega upp í loftið frá
húsinu. Nú fórum við allir að kanna málið og í
ljós kom að gluggi í forstofunni hafði ekki
verið byrgður, því að ekkert ljósstæði var í
forstofunni, og því hafði enginn talið nauð-
synlegt að byrgja forstofugluggann. Hins
vegar voru dyr fram í forstofuna bæði frá eld-
húsinu og frá borðstofunni. Þegar þessar dyr
voru opnaðar og þeim lokað barst ljósglampi
stutta stund út í forstofuna og út í myrkrið
gegn um óbyrgða gluggann. Utan frá gat
þetta litið út eins og merkjasendingar, þegar
ljósið kom og hvarf meðan gengið var frá eld-
húsinu í borðstofuna. Þar með var fundin
ástæðan fyrir þessum grunuðu ljósmerkjum.
Húsið sem þeir Bárður og Henry áttu
heima í var í miðri húsaröð og beint á móti
handan götunnar var opin grasflöt, sem börn
notuðu sem knattspyrnuleikvöll. Þarna mun
fólk hafa verið á gangi þetta kvöld að skima
eftir loftskipum, og þá tekið eftir ljósglömp-
um sem komu við og við frá húsinu og lýstu
upp þokuloftið. Þar eð vitað var að erlendir
menn bjuggu í húsinu hafði einhver talið sér
skylt að tilkynna þessar ætluðu ljósmerkja-
sendingar til yfirvalda, enda var almenningur
eðlilega vegna loftárásanna orðinn tortrygg-
inn í garð útlendinga.
Liðsforinginn var ákaflega almennilegur.
Hann afsakaði ónæðið og sagði að sér væri
ljóst að við værum alsaklausir. Hins vegar
gæti hann ekki komið þeirri vitneskju til
mannfjöldans, sem safnast hefði saman utan
við húsið. Hann ráðlagði okkur því að dveljast
allir um nóttina í húsinu. Síðan kvaddi liðsfor-
inginn og allir hermennirnir hurfu á brott.
Við settust því næst við borðstofuborðið og
nutum góðgerðanna meðan við ræddum það
sem gerst hafði, en þá var aftur barið að dyr-
um. Húsfreyjan var hrædd og þorði ekki að
opna dyrnar, en það gerði sonur hennar.
Þetta var þá sendill með símskeyti til Bárðar
frá Íslandi. Bárður hafði boðist til að reyna að
komast heim og reisa skipasmíðastöð á Ísa-
firði og skeytið var frá bæjarstjórn Ísafjarðar
sem samþykkti tillögu hans og bað um stað-
festingu í fyrirfram greiddu svarskeyti um að
hann myndi reyna að komast heim.“
Eftir þetta viðburðaríka kvöld dreifðist
vinahópurinn í Sunderland. Þeir Bárður og
Henry sóttu um heimild til að hætta störfum
á skipasmíðastöðinni og að fá fararleyfi og
vegabréfsáritun til útlanda. Hinn 1. maí 1916
sigldu þeir frá Newcastle til Danmerkur, og
komu 13. maí 1916 til Kaupmannhafnar. Það-
an sendu þeir skeyti til frú Kirby í Sunder-
land: „Arrived Copenhagen, Tomasson,
Sörensen“, enda hefur þessi sjóferð í stríðinu
ekki verið hættulaus. Síðan fór Bárður til
Bergen. Þar rakst hann á íslenskan fiskibát
og fékk far með honum til Hafnarfjarðar.
Skömmu eftir að þeir Bárður og Henry fóru
frá Sunderland, fór Jacob Bindesbøll heim til
Danmerkur en Chr. Wilhjelm fór til Banda-
ríkjanna og settist þar að.
Loftskip eftir lok
heimsstyrjaldarinnar 1918
Á árunum frá 1900 til 1919 höfðu Þjóð-
verjar smíðað 115 loftskip (Zeppelin-loft-
skip). Af þeim voru 103 fyrir her og flota. Að
styrjöldinni lokinni voru smíðuð loftskip til
farþegaflutninga. Ein fyrsta langferð loft-
skips að stríðinu loknu var ferð enska loft-
skipsins R 34 yfir Atlantshafið í júlí 1919 með
27 manna áhöfn og farþega um borð. Lagt var
af stað frá Skotlandi og lent nálægt New
York eftir 108 klst. flug í mótvindi, en flugið
til baka tók 75 klst. Þetta var fyrsta ferð loft-
skips yfir Atlantshafið. Við friðarsamningana
eftir fyrri heimsstyrjöldina urðu Þjóðverjar
að afhenda sigurvegurunum þau tvö loftskip,
sem þeir þá áttu. Auk þess smíðuðu Þjóð-
verjar nýtt loftskip LZ 126 og afhentu
Bandaríkjunum sem hluta af stríðsskaðabót-
um. Þetta loftskip, sem Bandaríkjamenn
nefndu „Los Angeles“ flaug yfir Atlantshafið
til New York og var afhent þar 1924. Rúmmál
þessa loftskips var 70.000 rúmmetrar. Það
var með 5 vatnskældar bensín-aflvélar sam-
tals 2.000 hestöfl. Í ferðinni yfir Atlantshafið
þurfti loftskipið að hafa 48.000 lítra af bensíni
í 70 tönkum skipsins.
Eins og kunnugt er byggist burðargeta
loftskipanna á því að bolur þeirra er fylltur
með lofttegund, sem er léttari en andrúms-
loftið og lyftikrafturinn er því mismunurinn á
eðlisþyngd lofttegundarinnar inni í loftskips-
búknum og eðlisþyngd andrúmloftsins utan
við hann. Lofttegundir þær, sem notaðar hafa
verið í loftskipum eru eins og getið var að
framan: vetni (vatnsefni, H), ljósgas og helí-
um. Einn rúmmetri af vetni vegur 0,090 kg.
En einn rúmmetri andrúmslofts vegur 1.293
kg og lyftikrafturinn á hvern rúmmetra vetn-
is í bol loftskipsins er þannig um 1,2 kg. Ljós-
gas er blanda af vetni og fleiri loftegundum
og er því nokkru þyngra en vetni. Vetni er
mjög eldfimt. Helíum brennur hins vegar
ekki, en það er miklu dýrara en vetni og lyfti-
hæfni þess um 9% minni, en vegna öryggis
var það þó notað í auknum mæli við þróun
loftskipanna eftir lok fyrri heimsstyrjaldar-
innar.
Þegar smíði Zeppelin greifa (Graf Zeppel-
in) lauk árið 1928 var það langstærst allra
loftskipa. Lengd þess var 237 m, þvermálið
rúmir 30 m og bolur þess um 105.000 rúm-
metrar. Það gat náð 128 km hraða á klst.,
knúið af 5 aflvélum samtals 2.750 hestöfl. Afl-
vélar flugskipsins voru hengdar í sérstökum
festingum út frá bol þess, því ekki var talið
óhætt að hafa vélarnar inni í bolnum, sem
fylltur var gasrýminu með eldfimu vetninu.
Stjórnstöð, farmrými og vistarverur áhafnar
og farþega voru líka neðst utan á sjálfum bol
loftskipsins. Zeppelin greifi flaug tvisvar yfir
Reykjavík, árin 1930 og 1931. Í síðara skiptið
tók flugskipið fyrsta flugpóst frá Íslandi til
útlanda.
Eftir að Bandaríkin leyfðu útflutning á
helíum gasi, sem ekki er eldfimt, var breytt
gerðum loftskipa, sem smíðuð voru í Þýska-
landi (LZ.129), Bandaríkjunum og víðar. Þá
voru aflvélar skipanna inni í sjálfum bolnum,
og aðeins skrúfubúnaðurinn var utan hans.
Tvö þilför voru neðst inni í bolnum. Neðst var
lestarrými, eldsneytisgeymar, stjórnstöð,
eldhús og áhafnarrými, en á efra þilfari voru
farþegarými. Miðskipa voru þar farþegaklef-
ar líkt og í stórum farþegaskipum, með öllum
þægindum, baðherbergi og snyrtiklefar með
heitu og köldu vatni. Engir gluggar voru á
þessum farþegaklefum, en til beggja hliða við
þá voru borðsalir, lestrarsalir og reyksalir
með skágluggum neðarlega á bol skipsins,
þannig að farþegar gátu gengið um eða setið í
þilfarsstólum og notið útsýnis niður á jörðina.
Þessi lýsing er ævintýraleg. Hvers vegna
eru svona loftskip ekki til lengur? Þróun loft-
skipanna náði hámarki á árunum áður en
flugvélar gátu flutt fjölda farþega með hraði
yfir Atlantshafið. Stór farþegaskip fluttu far-
þega í þægilegum vistarverum og veislusöl-
um yfir Atlantsála. Flugskipin gátu boðið far-
þegum hliðstæð þægindi og fljótari ferð en
með skipum. Með þróun fullkominna og hrað-
fleygra flugvéla varð flugvélin sjálfsagður
farkostur til að komast fljótt og örugglega á
milli staða, en stór skemmtiferðaskip urðu
valkostur þeirra sem vildu njóta langferða
um borð í fljótandi hótelum.
Þannig gerði tækniþróunin flugskipin
óþörf og óhagkvæm. Þau voru dýr í rekstri og
þau höfðu nokkra augljósa galla, sem fyrir
áratugum hafa stöðvað frekari notkun þeirra.
Stærsti gallinn er stærð þeirra. Þau voru
mjög háð veðri og vindum í flugi og í flug-
höfnum þurfti að vera hægt að koma þeim inn
í feikilega stór flugskýli, sem helst þyrfti að
vera hægt að snúa eftir vindátt. Þá var reynt
að reisa mikla turna til að festa framenda
þeirra við, svo að þau gætu snúist frjálst eftir
vindátt. Síðan var vandinn að koma farþegum
og farmi til jarðar, fyrst úr vistarverum flug-
skipsins í efsta hluta turnsins, og síðan með
lyftum þaðan niður í flughöfnina.
Þessi og fleiri atriði varðandi rekstur flug-
skipa hafa valdið því að þau eru liðin tíð,
sögulegur og áhugaverður þáttur í þróun
flugtækni, en þáttur sem nú er óðum að
gleymast.
Heimildarrit:
Salomonsens Konversations Leksikon, København
1924
Edgar B. Schieldrop: Teknikkens Vidundere. Køben-
havn 1936.
Hjálmar R. Bárðarson: Flugmál Íslands. Reykjavík
1939.
Chr. Wilhjelm: Bréf frá Bandaríkjunum 1970.
Hjálmar R. Bárðarson: Fuglar Íslands.
Reykjavík 1986.
Bárður G. Tómasson: Tólf ára framhaldsnám í skipa-
smíði.
Ársrit Sögufélags Ísfirðinga 1992.
Höfundur er fyrrverandi siglingamálastjóri.
Á teikningunni má sjá vistarverur farþega og farmrúm á stærstu loftskipum, sem smíðuð voru.
Hér eru þessi rými byggð inn í neðsta hluta bols loftskipsins, eftir að farið var að nota helíum,
sem ekki brennur, í stað vetnis, sem er mjög eldfimt. Þarna eru tvær hæðir. Á efra þilfari mið-
skipa eru gluggalausir farþegaklefar, en til beggja hliða eru borðstofur og setustofur með útsýn-
isgluggum. Þar gátu farþegarnir líka rölt um og skoðað útsýnið á jörðu niðri. Á neðri hæðinni
voru vistarverur áhafnar, lestarrými og eldsneytisgeymar.
Mesti gallinn við loftskipin var að þau urðu að vera geysilega stór til að geta borið þungan farm.
Lending á jörðu niðri var töluvert vandamál. Til að geyma þau varð að byggja geysilega stór flug-
skýli og mikið vandaverk var að koma slíku ferlíki inn í flugskýlið ef nokkuð var af vindi. Til
styttri dvalar voru byggðir sérhannaðir turnar eða möstur til að binda flugskipin við með land-
festum. Flugskipið kastar þá landfestum og með stálvírum er það dregið að turninum og fest
þar. Loftskipið getur síðan snúist eftir vindátt. Áhöfn og farþegar loftskipsins urðu að fara út um
lúgu í framenda loftskipsins og yfir í turninn, og þaðan með lyftu niður á jörðina. Á myndum að of-
an er verið að festa loftskip við svona turna.