Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.2002, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. JÚNÍ 2002 9
Rosenberg (1) hafði Nightingale mikil áhrif á
skipulag sjúkrahúsa á nítjándu öldinni. Telur
hann jafnvel að með hugmyndum sínum um
skipulag og stjórnun sjúkrahúa hafi Night-
ingale skapað þær forsendur sem voru nauðsyn-
legar til að nútíma læknisfræði næði að eflast á
þann hátt sem varð á tuttugustu öldinni.
Um hjúkrun á sjúkrahúsum
Þegar kom að skipulagi hjúkrunar innan spít-
alanna lagði Nightingale áherslu á sjálfstæði
hjúkrunar í öllum málum er hana vörðuðu. Hún
taldi eðlilegt að allt starfslið, sem tengdist
hjúkrun og umhverfisþáttum sjúkrahússins,
heyrði undir forstöðukonu sem í öllum tilvikum
væri lærð hjúkrunarkona. Í skrifum hennar um
hjúkrunarstarfið kemur einnig skýrt fram að
hún taldi sig vera að skilgreina og útfæra sjálf-
stætt starfssvið, þar sem hjúkrun var inntakið
sem forstöðukonan stýrði og bar ábyrgð á. For-
stöðukonan hafði síðasta orðið í öllum málefnum
sem snertu hjúkrunina beint.
Nightingale hvatti til þess að hjúkrunarnem-
um væri kennt að rækta vissa eiginleika sem
áttu vel við hjúkrunarstarfið. Þetta voru einmitt
þeir eiginleikar sem þóttu prýða góða konu:
sjálfstjórn og sjálfsögun, skyldurækni, vinnu-
semi og sjálfsafneitun. Í hjúkrunarstarfinu taldi
hún að kvenlegir eiginleikar fengju notið sín og
að þar nýttist hin sérstaka reynsla og þekking
kvenna á heimilisstörfum einkar vel. Fyrir
henni var hjúkrunarstarfið að stórum hluta sið-
ferðilegt, það byggðist á köllun til að hjálpa
meðbræðrum og systrum. Í því sameinuðust
hinir mikilvægu kvenlegu eiginleikar þekkingu
á helstu lögmálum heilsufræðinnar og tækni-
legri færni. Hjúkrunarstarfið byggðist á hæfi-
leikanum til að setja sig í spor sjúklinga, skilja
líðan þeirra og átta sig á þörfum þeirra, sem og
á þekkingu á líffærafræði eða færni við fram-
kvæmd ákveðinna verka. Hin lærða hjúkrunar-
kona sameinaði skipulagshæfileika góðrar hús-
móður, umhyggju góðrar móður og sjálfsögun
hins góða hermanns. Gott skipulag og reglu-
festa var grundvöllur árangursríkrar hjúkrun-
ar, en þó var þjálfuð athyglisgáfa og nákvæmt
eftirlit með líðan sjúklings mikilvægasti eigin-
leiki hjúkrunarkonunnar. Á námstímanum væri
henni leiðbeint í að beita skynfærum sínum,
sjón, heyrn, lyktarskyni, snertingu og jafnvel
bragðskyni til að meta ástand sjúklinga. Í hug-
myndum Nightingale um hjúkrun var það alltaf
sjúklingurinn sem athyglin beindist að, ekki
sjúkdómurinn.
Lokaorð
Ljóst er að Florence Nightingale hafði mikil
áhrif á heilbrigðismál og hjúkrun á Vesturlönd-
um á 19. öldinni og fram á 20. öldina. Hug-
myndir hennar endurspegla vissulega heimssýn
þess tíma en eru engu að síður áhugaverðar um
margt, enda hefur að undanförnu orðið vakning
í þeim efnum að gera verk hennar aðgengileg.
Verið er að undirbúa heildarútgáfu á ritum
hennar. Verður fróðlegt að fylgjast með þeim
málum og sjá hvort nýir drættir bætast í mynd
þessarar áhugaverðu konu. Víst er að margt í
hugmyndum hennar kemur fram í skilningi
okkar nú á mikilvægi hollra lifnaðarhátta og
áhrifum umhverfisins á heilbrigði. Hins vegar
njóta aðrar hugmyndir minni vinsælda, s.s. hinn
viktoríanski skilningur á eiginleikum kvenna
sem fyrirmynd að hjúkrunarstrafinu. Telja
flestir að þær hafi takmarkað eflingu hjúkrun-
arfræðinnar og takmarkað þá möguleika sem
felast í hjúkrunarstarfinu.
Heimild:
Rosenberg, C.E. (1987). The care of strangers: The rise of
American hospital system. New York: Basic Books.
ce Nightingale - konan með lampann sem líknaði særðum hermönnum í Krímstríðinu.
Höfundur er dósent í hjúkrunarfræði
við Háskóla Íslands.
ma lífsins og komin á efri ár.
U
NDANFARIN ár
hefur Siglufjörður
getið sér orð fyrir
að vilja veg ís-
lenska þjóðlagsins
sem mestan. Upp-
hafið má rekja til
sr. Bjarna Þor-
steinssonar þjóðlagasafnara sem
starfaði um áratugaskeið á Siglufirði
og gaf út þjóðlagasafn sitt fyrir tæp-
um hundrað árum. Hafin er endur-
gerð hússins sem sr. Bjarni bjó í
lengst af meðan hann safnaði þjóðlög-
unum og þar mun rísa Þjóðlagasetur
sr. Bjarna Þorsteinssonar. Síðustu
tvö sumur hefur verið haldin viðamik-
il þjóðlagahátíð í bænum þar sem inn-
lendir og erlendir listamenn koma
fram á daglegum tónleikum og nám-
skeiðum fyrir börn og fullorðna. Nú stendur
þriðja þjóðlagahátíðin á Siglufirði fyrir dyrum.
Tónlistarmenn frá
fjölmörgum löndum
Þjóðlagahátíðin verður haldin dagana 1.–7.
júlí. Setningartónleikar hátíðarinnar verða
haldnir í Siglufjarðarkirkju mánudaginn 1. júlí.
Kammerkór Kópavogs frumflytur útsetningar á
íslenskum og portúgölskum þjóðlögum eftir tvö
ung tónskáld, Þorkel Atlason og Nuno Côrte-
Real. Stjórnandi kórs og hljóðfæraflokks er
Paulo Lourenço frá Portúgal.
Tónlistarmenn frá ólíkum löndum sameina
krafta sína á fleiri tónleikum þjóðlagahátíðar.
Bára Grímsdóttir, tónskáld og þjóðlagasöng-
kona, kemur fram á tónleikum ásamt enska
þjóðlagasöngvaranum Chris Foster og saman
munu þau flytja ensk og íslensk þjóðlög. Dag-
skrá sem nefnist Þjóðlög, spuni og ljóðleikur er í
umsjá þriggja listkvenna. Tvær þeirra eru ís-
lenskar en búsettar erlendis, þær Nína Björk
Elíasson söngkona og Kristín Bjarnadóttur,
ljóðskáld og leikkona. Þeim til halds og trausts
verður Minna Raskinen, einn kunnasti kantele-
leikari Finna. Á tónleikunum fléttast saman
söngur, kanteleleikur og ljóðlist.
Alþjóðlegt þjóðlaganámskeið
Von er á öðrum góðum gesti frá Finnlandi.
Þjóðdansameistarinn og fiðluleikarinn Antti Ko-
iranen kemur á hátíðina og heldur alþjóðlegt
námskeið ásamt Minnu Raskinen og Báru
Grímsdóttur í útsetningum og meðferð þjóð-
laga, en bæði eru Koiranen og Raskinen kunnir
kennarar á þessu sviði í heimalandi sínu. Fjöl-
margir tónlistarnemendur frá Íslandi og öðrum
Norðurlöndum hafa skráð sig á þetta námskeið.
Enn er tveggja þjóðlagahópa ógetið sem
koma fram á hátíðinni. Enska þjóðlagasöngkon-
an Julie Murphy kemur til landsins ásamt
hljómsveit sinni og norska tríóið Sturm und
Drang heldur tvenna tónleika. Eþos-strengja-
kvartettinn íslenski mun frumflytja þrjá
strengjakvartetta eftir Jón Ásgeirsson og
Marta G. Halldórsdóttir söngkona og Örn
Magnússon píanóleikari flytja lög úr safni sr.
Bjarna Þorsteinssonar í útsetningu Hildigunnar
Rúnarsdóttur sem ekki hafa áður heyrst á tón-
leikum.
Námskeið í tónlist
og fornu handverki
Að þessu sinni eru sautján námskeið í boði á
Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, þrettán fyrir full-
orðna og fjögur fyrir börn. Að vanda verður
kenndur rímnakveðskapur og hefur Njáll Sig-
urðsson umsjón með því námskeiði. Sigríður
Pálmadóttir og Ása Ketilsdóttir kenna barna-
gælur og þulur sem Ása hefur varðveitt í minni
sér og mæðgurnar Kolfinna Sigurvinsdóttir og
Hulda Sverrisdóttir kenna íslenska og norræna
þjóðdansa. Þá mun enski þjóðlagasöngvarinn
Chris Foster leiðbeina mönnum að leika undir
eigin söng á gítar. Tónmenntakennarar geta
sótt námskeið hjá Elíasi Þorvaldssyni í notkun
tölvu til að örva tónlistarsköpun meðal nemenda
á unglingastigi og þeir sem vilja heldur dvelja
utandyra geta sótt útivistarnámskeið hjá sr.
Sigurði Ægissyni þjóðfræðingi og fuglaáhuga-
manni.
Þá verða á þjóðlagahátíðinni námskeið í silf-
ursmíði íslenska kvenbúningsins, námskeið í
bútasaumi undir stjórn Þórunnar Sveinsdóttur,
Sigrún Helgadóttir gengur til grasa með nem-
endum sínum og kennir þeim jurtalitun og síð-
ast en ekki síst kennir Gerla hvernig skreyta má
fatnað og töskur með hlýraroði.
Áströlsk frumbyggjamenning
Enn er ótalinn merkur gestur sem leggur leið
sína til Siglufjarðar á sumri komanda. Þetta er
ástralski frumbygginn, sagnaþulurinn og mynd-
listarmaðurinn Francis Firebrace. Hann mun
koma fram á sérstöku sagnakvöldi á hátíðinni
og segja sögur úr heimabyggð sinni, auk þess að
halda fjögurra daga námskeið um menningu
frumbyggja Ástralíu. Honum til aðstoðar verð-
ur Buzby Birchall en hann mun kenna nem-
endum að leika á einkennishljóðfæri frum-
byggja Ástralíu, didgiridoo, auk þess að koma
fram á sagnakvöldi með Francis Firebrace.
Guðmundur dúllari í sviðsljósinu
Alla morgna hátíðarinnar verða stuttir fyr-
irlestrar þar sem lista- og fræðimenn reifa
hugðarefni sín. Laugardaginn 6. júlí verður
haldið sérstakt málþing um Guðmund dúllara,
frægan förumann sem þróaði sérstaka aðferð til
söngs sem hann kallaði dúll. Á meðan fullorðnir
sækja fyrirlestra og námskeið verður boðið upp
á ókeypis námskeið fyrir börn þeirra. Yngstu
börnin fara á þjóðdansa- og leikjanámskeið, en
eldri börnunum bjóðast námskeið í leiklist og
notkun tölvu við upptökur og útsetningu tónlist-
ar. Föstudaginn 5. júlí mun Hugleikur sýna
söngleikinn Kolrössu eftir Þórunni Guðmunds-
dóttur, laugardagskvöldið 6. júlí verður haldin
mikil uppskeruhátíð þar sem nemendur á nám-
skeiðum koma fram og á sunnudeginum verður
helgistund í skógræktinni með þátttöku lista-
manna á hátíðinni.
Meðan á hátíðinni stendur verða þrjár mynd-
listarsýningar á Siglufirði. Francis Firebrace
heldur sýningu á myndverkum sínum, Þórunn
Sveinsdóttir sýnir bútasaumsverk og loks held-
ur Halla Haraldsdóttir myndlistarsýningu.
Nánari upplýsingar um Þjóðlagahátíðina á
Siglufirði má lesa á heimasíðu hennar. Slóðin er
siglo.is/festival
FORNIR
SÖNGVAR OG
FRUMBYGGJA-
MENNING
E F T I R G U N N S T E I N Ó L A F S S O N
ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐIN Á SIGLUFIRÐI 1.–7. JÚLÍ
Höfundur er tónlistarmaður.
Tríóið Sturm und Drang leikur á Þjóðlagahátíðinni.