Lesbók Morgunblaðsins - 01.06.2002, Qupperneq 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. JÚNÍ 2002 15
MYNDLIST
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Tryggvi
Ólafsson, Olga Pálsdóttir og Emil
Þór Sigurðsson. Til 9.6.
Gallerí@hlemmur.is: Heimir Björg-
úlfsson. Til 23. júní.
Gallerí i8, Klapparstíg 33: Ólafur
Elíasson. Huginn Þór Arason. Til
22.6.
Gallerí Kambur, Rangárvallasýslu:
Helgi Þorgils.Til 2.6.
Gallerí Skuggi: My name is Þorri,
but they call me Elvis. Til 2.6.
Gallerí Sævars Karls: Olga Soffía
Bergmann. Til 20.6.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Til 28.7.
Hafnarborg: Loftur Guðmundsson
ljósmyndir. Elías B. Halldórsson. Til
3.6.
Hallgrímskirkja: Húbert Nói. Til
29.8.
Listamiðstöðin Straumur: Ljós-
myndasýning hjá Fókusi. Til 2.6.
Listasafn Akureyrar: Akureyri í
myndlist II. Til 21.7.
Listasafn ASÍ: Guðbjörg Lind Jóns-
dóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og
Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá.
Til 30.6.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið
laugardaga og sunnudag kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Rússnesk mynd-
list, 1880-1930. Til 16.6.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar-
safn: Listin meðal fólksins. Til 31.
des.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Íslensk samtímalist. Til 11.8.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir: Mary Ellen Mark. Kínversk
samtímalist. Til 2.6. Jóhannes S.
Kjarval. Til 31.5.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Ljóða- og höggmyndasýning. Til 30.6.
Listasalurinn Man, Skólavörðustíg:
Dröfn Guðmundsdóttir og Hrönn Vil-
helmsdóttir. Til 4.6.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Blaða-
ljósmyndir 1965–75. Til 1.9.
Mokkakaffi: Aaron Mitchell. Til 9.7.
Norræna húsið: Siri Derkert. Til
11.8.
Nýlistasafnið: Hollenski listamaður-
inn Aernout Mik. Til 30.6.
Sjóminjasafn Íslands: Jón Gunnars-
son. Til 1.7.
Skálholtsskóli: Kristín Geirsdóttir.
Til 1.7.
Slunkaríki, Ísafirði: Joris Radema-
ker. Til 16.6.
Stöðlakot: Hulda Jósefsdóttir. Til 9.6.
Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á
verkum Halldórs Laxness. Til 31.
des.
Þjóðmenningarhúsið: Landafundir
og ragnarök.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Neskirkja: Drengjakór Neskirkju.
Kl. 16.
Þriðjudagur
Salurinn: Martial Nardeau, Guðrún
Birgisdóttir, Hildur Þórðardóttir og
Rakel Jensdóttir. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Með fulla vasa af
grjóti, fös. Strompleikurinn, lau. Jón
Oddur og Jón Bjarni, sun. Veislan,
lau., sun., mið., fim. Trílógía, 3 dans-
verk, lau.
Borgarleikhúsið: Kryddlegin hjörtu,
lau., fös. Boðorðin 9, sun. Með vífið í
lúkunum, lau. And Björk of course,
lau. Nemendaleikhúsið: Sumargestir,
lau., sun.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Skáld leitar
harms, sun. Sellófon, lau., mið., fim.
Leikfélag Akureyrar: Saga um Pan-
dabirni, lau., fim.
Tjarnarbíó: Leikfélag Hveragerðis.
Dýrin í Hálsaskógi, lau.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega
eða í tölvupósti fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum merktar: Morgunblaðið,
menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvík. Myndsendir: 5691222. Netfang:
menning@mbl.is.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Í TILEFNI af aldarafmæli Hall-
dórs Kiljans Laxness var haldið
málþing um verk Halldórs og sam-
tímamanna hans við háskólann í Er-
langen-Nürnberg í Bæjaralandi á
dögunum og bar þingið titilinn „Von
der Neuromantik zum Dokument-
arroman. Grosse Nordische Er-
zähler des 20. Jahrhunderts. Sym-
posium aus Anlass des 100.
Geburtstages von Halldór Laxness.“
Við háskólann í Erlangen-Nürn-
berg hefur um langa hríð verið
starfandi öflug norrænudeild og þar
geta þýskir stúdentar m.a. lært ís-
lensku undir leiðsögn dr. Huberts
Seelow prófessors og konu hans,
Kolbrúnar Haraldsdóttur handrita-
fræðings, sem gegnir þar stöðu
sendikennara. Þau hjón skipulögðu
þingið af miklum myndarskap og
fengu fjölda þekktra fræðimanna
frá Íslandi, Skandinavíu og Þýska-
landi til þess að halda fyrirlestra,
aðallega um verk Halldórs Laxness,
en einnig um Sigrid Undset, Eyvind
Johnson og Karen Blixen. Knut
Hamsun kom einnig mikið við sögu
eins og vænta má í þessu samhengi.
Þingið hlaut fjárstuðning bæði frá
íslenskum, norrænum og þýskum
aðilum.
Ræðismaður Íslands í Bæjara-
landi, Friedrich N. Schwarz, setti þingið og
að ávörpum og opnunarfyrirlestri loknum
voru haldnir ljóðatónleikar í hátíðarsal há-
skólans. Þar söng Elísabet F. Eiríksdóttir
sópransöngkona lög íslenskra tónskálda við
ljóð Halldórs Laxness og lög eftir Edvard
Grieg við ljóð norrænna skálda. Undirleik
annaðist Anna Áslaug Ragnarsdóttir. Sal-
urinn var þétt skipaður gestum og var lista-
konunum tekið vel. Var það mál manna að
tónleikarnir hefðu hæft tilefninu einkar vel
og mikill fengur að fá að heyra þennan
flutning.
Fyrirlestrar stóðu síðan yfir í tvo daga og
var þar mikill fróðleikur á borð borinn. Með-
al fyrirlesara voru íslensku fræðimennirnir
Vésteinn Ólason, Helga Kress, Halldór Guð-
mundsson, Þórir Óskarsson og Kristinn Óla-
son. Fjallað var um verk Halldórs Laxness
frá ýmsum sjónarhornum, ekki einungis frá
bókmenntalegu, heldur einnig guðfræðilegu
og frásagnartæknilegu sjónarhorni og kom
margt forvitnilegt í ljós. Fyrirlestr-
ar þessir munu koma út á bók síðar
á þessu ári í ritröðinni „Erlanger
Forschungen“ sem háskólinn í Er-
langen-Nürnberg gefur út.
Þess má geta að í sýningarsal há-
skólabókasafnsins í Erlangen stend-
ur nú yfir yfirlitssýning um Halldór
Kiljan Laxness og verk hans og
gafst þinggestum kostur á að skoða
hana. Sýningin var opnuð á afmæl-
isdegi skáldsins, 23. apríl sl., og við
það tækifæri las Patricia Litten,
leikkona við leikhúsið í Erlangen,
Söguna af brauðinu dýra. Fyrir ut-
an veggspjöld, sem Bókmennta-
kynningarsjóður lét í té, gefur
þarna að líta frumútgáfur á verkum
Laxness svo og myndskreytingar
eftir danska myndlistarmanninn As-
ger Jorn, sem hann gerði við Sög-
una af brauðinu dýra í samvinnu við
Halldór. Þarna eru ennfremur sýnd-
ar vatnslitamyndir eftir þýsku
skáldkonuna Sarah Kirsch, sem hún
gerði einnig við þessa ágætu sögu
fyrir sérstaka útgáfu sögunnar, sem
kom út í tilefni af hundrað ára af-
mæli skáldsins.
Verk Halldórs Kiljans Laxness
eru enn lesin í Þýskalandi og skiptir
það sköpum um útbreiðslu þeirra,
að Hubert Seelow prófessor hefur
sjálfur þýtt mörg verka Halldórs, endur-
skoðað sumar eldri þýðingar annarra verka
hans og annast útgáfu verkanna í ritröð á
vegum Steidl-forlagsins í Göttingen. Fyrir
þetta framlag sitt var Hubert Seelow sæmd-
ur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu í
heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra til Berlínar nú á dögunum.
Þingið í Erlangen var vel sótt bæði af
lærðum og leikum og voru þátttakendur um
hundrað talsins.
MÁLÞING UM LAXNESS
Í BÆJARALANDI
Wiesbaden. Morgunblaðið.
Ljósmynd/Atli Seelow
Hubert Seelow flytur fyrirlestur um viðtökur Laxnessþýðinga í
Þýskalandi á eftirstríðsárunum.
B
ORGARKVARTETTINN heit-
ir fjögurra manna sönghópur
sem hyggst láta til sín taka
bæði í borginni og utan hennar
á næstunni. Kvartettinn er
skipaður þeim feðgum Þor-
valdi Halldórssyni og Þorvaldi
Þorvaldssyni, Ásgeiri Páli
Ágústssyni og Atla Guðlaugssyni. Píanóleik-
ari kvartettsins er Agnar Már Magnússon.
Þorvaldur eldri segist sjálfur vera „gömul
saga byrjuð að endurtaka sig,“ þegar blaða-
maður hringir eftir upplýsingum um hópinn.
„Ég fæ þarna tækifæri til að syngja með syni
mínum, Þorvaldi. Annars höfum við verið að
æfa saman í tvö ár og skemmta víða um borg-
ina í vetur. En nú er komið að því að kvart-
ettinn ætlar að halda tónleika á eigin vegum,
og við byrjum fyrir norðan, syngjum í Lauga-
borg í Eyjafirði í kvöld kl. 20.00 og fyrir sjó-
menn á Akureyri seinna í kvöld. Á morgun kl.
15.00 verðum við á Hvammstanga og syngjum
prógramm tengt sjómannadeginum þar.
Þriðjudagskvöldið 4. júní kl. 20.00 syngjum
við í Njarðvíkurkirkju og svo syngjum við
tvenna tónleika í Laugarneskirkju, miðviku-
dagskvöldið 5. júní og föstudagskvöldið 7.
júní, bæði kvöldin kl. 20.00. Prógrammið okk-
ar er mjög fjölbreytt, við erum með íslensk
kvartettalög, söngleikjalög, barbershoplög og
ýmislegt fleira úr ýmsum áttum. Í kvartettin-
um eru menn sem heimta að fá að syngja ein-
söng, – við syngjum allir einsöng en líka dú-
etta. Rúsínan í pylsuendanum er svo
gestasöngvarinn okkar, Kristjana Thoraren-
sen sem syngur eitt lag með okkur og annað
sóló.“
Söngur, kátína og skemmtan
Þorvaldur segir það sérstaka ánægju að
syngja með syni sínum Þorvaldi.
„Hann minnir um margt á mig þegar ég var
ungur, og það er líka bara svo gaman að
syngja með syni sínum og finna hann vaxa og
þroskast sem söngvara. Hann og Ásgeir Páll
eru báðir í söngnámi í Söngskólanum og eru
að verða hörkusöngvarar. Þorvaldur hefur
líka verið að syngja með Kór Langholtskirkju
og söng lítinn dúett með fyrrverandi kennara
sínum, Bergþóri Pálssyni í Brúðkaupinu eftir
Stravinskíj í gærkvöldi. Atli er líka gamall
kvartetthundur, – var með kvartett þegar
hann bjó norður í Eyjafjarðarsveit. Þar var
meðal annarra Óskar Pétursson tenor, og þeir
kölluðu kvartettinn Galgopana. Galgoparnir
voru þannig að það var aldrei orð að marka af
því sem þeir sögðu og héldu til dæmis jóla-
tónleika á vorin, og það snjóaði yfirleitt á tón-
leikadaginn hjá þeim! Borgarkvartettinn fetar
svolítið í fótspor þeirra, við gerum létt grín að
sjálfum okkur og öðrum um leið og við tökum
hlutina býsna alvarlega. Við leggjum metnað
okkar í sönglegu hliðina, en prógrammið á líka
að vekja kátínu og skemmtan.“
BORGARKVARTETTINN
LEGGUR LAND UNDIR FÓT
Borgarkvartettinn. Þorvaldur Halldórsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Ásgeir Páll Ágústsson og Atli
Guðlaugsson og píanóleikarinn Agnar Már Magnússon.