Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 13 w w w .c lin iq ue .c om www.lyfja.is 100% ilmefnalaust GÓÐ GJÖF Lyfju Lágmúla í dag kl. 13-17 Lyfju Smáratorgi á morgun kl. 13-17 Lyfju Spöng á morgun kl. 13-17 Lyfju Laugavegi föstudag kl. 13-17 Lyfju Smáralind laugardag kl. 13-17 Lyfju Smáralind sunnudag kl. 13-16 Lyfju Garðatorgi þriðjudag kl. 13-17 Lyfju Setbergi miðvikudag kl. 13-17 Kaupauki 6 hlutir! Ef þú kaupir tvo hluti eða fleiri frá CLINIQUE er þessi gjöf til þín:* • Dramatically Different Moisturizing Lotion 15 ml. • Moisture Surge Extra 7 ml. • Firming Body Smoother 40 ml. • High Impact augnskuggi South beach • Lash Doubling maskari • Colour Surge varalitur Sassy spice *Meðan birgðir endast Ráðgjafi frá CLINIQUE verður í Lyfju: STJÓRN Special Olympics bauð nýver- ið forseta Íslands, Ólafi Ragnari Gríms- syni, að taka sæti í stjórninni og hefur forsetinn ákveðið að þiggja það boð. Í fréttatilkynningu sem send var út frá höfuð- stöðvum samtakanna í Washington er þessi ákvörðun tilkynnt. Forseti Íslands er fyrsti þjóðhöfðinginn sem boðið er að taka sæti í stjórninni. Öflug starfsemi á vegum Special Olympics fer fram reglulega um allan heim og eru samtökin nú talin með áhrifarík- ustu íþrótta– og mannúðarhreyf- ingum í veröldinni. Special Olympics voru stofnuð að frumkvæði Kennedyfjölskyld- unnar árið 1968 og hafði Eunice Kennedy Shriver, systir Johns F. Kennedys Banda- ríkjaforseta, forystu í þeim efnum. Fjöl- skylda hennar, þar á meðal Maria Shriver og eiginmaður hennar Arnold Schwarzen- egger, ríkisstjóri í Kaliforníu, hafa síðan gert samtökin að öfl- ugri alþjóðlegri hreyf- ingu sem skipuleggur heimsleika þroska- heftra og seinfærra í nafni Special Olymp- ics. Á heimsleikana sem haldnir voru á Írlandi í fyrra komu þúsundir keppenda frá rúmlega 180 löndum. Þátttaka Íslands í heimsleikum þroskaheftra og seinfærra hefur verið skipulögð af Íþróttasam- bandi fatlaðra og fjöldi íslenskra keppenda tók þátt í leikunum á Ír- landi og einnig þeim sem haldnir voru í Bandaríkjunum árið 1999. Forseti Íslands tekur sæti í stjórn Special Olympics LANDSNET sjálfstæðiskvenna efnir til fundar í hádeginu í dag um hvort breytinga sé þörf á jafnréttislöggjöf- inni. Fundurinn verður í gamla Iðnó, 2. hæð, og hefst klukkan 12. Til máls taka Margrét Einarsdótt- ir, lögmaður og varaborgarfulltrúi, Kristinn Már Ársælsson, stjórnar- maður í Heimdalli, og Sigríður Anna Þórðardóttir, alþingismaður og verð- andi ráðherra. Að stuttum framsög- um loknum taka við fyrirspurnir og umræður undir stjórn Helgu Guðrún- ar Jónasdóttur, formanns Landssam- bands sjálfstæðiskvenna. „Eins og kunnugt er hefur stjórn Heimdallar sent frá sér ályktun þess efnis að jafnréttislöggjöfin sé óþörf og að fara verði aðrar leiðir til að tryggja árangur í jafnréttisbaráttu kynjanna. Á fundinum verður krufin umræða undanfarinna daga og vikna um það hvort breytinga sé þörf á jafnréttis- löggjöfinni,“ segir í fréttatilkynningu. Fundur um jafnréttislöggjöfKARLMENN segja nei við nauðg- unum, er yfirskrift átaks sem karlahópur Femínistafélags Ís- lands hleypti af stokkunum í gær og ætlar að standa að þessa vikuna. Átakið er framhald þess sem hófst um verslunarmannahelgina í fyrra og gengur út á að vekja karlmenn til umhugsunar um nauðganir. Með átakinu vill karlahópurinn fá karla til að staldra við og velta fyrir sér því hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Karlahóp- urinn vill með átakinu virkja krafta karla í baráttunni gegn ofbeldi á konum. „Við erum að halda áfram með átak sem við byrjuðum í fyrra. Okkur langaði að byrja sumarið á þessum jákvæðu nótum, að koma þessum boðskap á framfæri við karlmenn og fá þá til að ræða þessa hluti. Það er þessi samábyrgð karl- manna sem við viljum leggja áherslu á,“ segir Hjálmar Sigmars- son í karlahópi Femínistafélagsins. Hann segir það ekki ætlunina að benda á karlmenn sem einhvers konar sökudólga, heldur vilji karla- hópurinn hvetja karlmenn til að standa saman í því skyni að koma í veg fyrir nauðganir. Kemur körlum líka við Á föstudag hyggjast meðlimir karlahóps Femínistafélagsins standa fyrir utan nokkrar verslanir ÁTVR og vekja athygli á átakinu. „Við ætlum að vera vel merktir og fá aðra karlmenn til að taka þátt í þessari umræðu. Við erum að reyna að koma því til skila að þetta er ekki endilega kvennamál sem kemur körlum ekki við,“ segir Hjálmar. Styrktaraðilar átaks karlahóps- ins eru auglýsingastofan Hvíta hús- ið, Lýðheilsustöð og Reykjavík- urborg. Borgarstjóri, Þórólfur Árnason, fékk afhentan bol með merki átaksins í ráðhúsinu í gær- dag. Hildur Jónsdóttir, jafnrétt- isráðgjafi Reykjavíkurborgar, sagði við það tækifæri að það væri afar jákvætt að karlar tækju frum- kvæði gegn nauðgunum með þess- um hætti. Að sögn Arnars Gíslasonar, liðs- manns karlahópsins, vilja þeir sem að átakinu standa hvetja karlmenn til að ræða sín á milli um þann glæp sem nauðgun er. „Hugmyndin er að karlmenn tali við karlmenn. Þótt langfæstir karlmenn nauðgi nokkurn tímann þá eru flestar nauðganir þannig að karlmenn nauðga konum. Þetta er svartur blettur sem við þurfum að hreinsa af okkur. Við erum að reyna að gera þetta með því að hvetja karla til að tala við vini sína,“ segir Arn- ar. Karlar gegn nauðgunum Morgunblaðið/Ásdís Arnar Gíslason frá karlahópi Femínistafélagsins afhenti Þórólfi Árnasyni bol með áletruninni NEI sem er merki átaks hópsins gegn nauðgunum. Borgarstjóri fagnaði átakinu og óskaði hópnum velfarnaðar. Arnar hvatti borg- arstjóra, eins og aðra karla, til að ræða um nauðganir í sínum vinahópi. Undirskriftir gegn útlend- ingafrumvarpi afhentar Morgunblaðið/Sverrir Bjarni Benediktsson tekur við listum með undirskriftum. UM þrjú þúsund fimm hundruð og fjörutíu undirskriftir söfnuðust gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum, en aðstandendur undirskriftasöfn- unarinnar afhentu Bjarna Bene- diktssyni, formanni allsherjarnefnd- ar, undirskriftalista í skrifstofum Alþingis í gær. Þess er vænst að þingmenn taki þessa vísbendingu um vilja fólks til greina við meðferð frumvarpsins. Toshiki Toma, prestur innflytj- enda, afhenti undirskriftirnar fyrir hönd hópsins, sem samanstendur af fjölmörgum samtökum, þar á meðal ungliðahreyfingum stjórnmálaflokk- ana, Fjölmenningarráði, Frjáls- hyggjufélaginu og Félagi kvenna af erlendum uppruna. Toshiki segir undirskriftalistann senda mjög skýr skilaboð til stjórnvalda. „Mér finnst þetta skuldbinda Alþingi til að end- urskoða þetta frumvarp og breyta þeim hlutum sem við gerðum at- hugasemdir við. Ef frumvarpið verður að lögum mun það ekki leysa vandamál, heldur valda fleiri vanda- málum í framtíðinni,“ sagði Toshiki. Mikil ánægja með söfnunina Að sögn Bjarna Ólafssonar, eins af aðstandendum umræðuvefsins deiglan.com, ríkir mikil ánægja með fjölda undirskrifta. „Listinn var uppi í rúma viku og fyrstu dagana var páskahelgin, þannig að það fór ekki að telja fyrr en síðasta þriðju- dag. Við vorum himinlifandi yfir undirtektunum og við vonum að þetta hafi áhrif á nefndina,“ segir Bjarni og bendir á að stuðnings- menn frumvarpsins hafi einungis náð að safna tæpum fimm hundruð undirskriftum og þar af hafi margar verið ógildar og á endanum hafi list- anum verið eytt. Gagnlegur fundur Bjarni Benediktsson sagði að loknum fundi allsherjarnefndar að fundað hafi verið með fjölda aðila sem höfðu umsagnir um frumvarpið. Þar á meðal hafi verið fulltrúar þeirra aðila sem gerðu þær athuga- semdir við frumvarpið sem undir- skrifendur studdu við. „Við hlýdd- um á þeirra sjónarmið og ég tel að við höfum átt gagnlegan fund,“ seg- ir Bjarni. „Að hluta til held ég að hann hafi verið gagnlegur fyrir nefndarmenn til að fara dýpra í athugasemdir þessara aðila. Einnig tel ég að fund- urinn hafi verið gagnlegur fyrir þessa aðila til að skilja forsendur þessa máls. Það mun koma í ljós hvort eða að hve miklu leyti þessi sjónarmið koma til með að hafa áhrif til breytinga á frumvarpinu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.