Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Guðmundur Þór Gíslason, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ✝ RögnvaldurÓlafsson fæddist í Stykkishólmi 4. febrúar 1923 og ólst upp í Elliðaey í Breiðafirði og á Stykkishólmi. Hann lést á Landakoti 12. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson, vita- vörður í Elliðaey í Breiðafirði og rak hann þar einnig refa- bú, og Theodóra Daðadóttir fædd á Dröngum á Skógar- strönd. Ólafur var bróðir Jóns Auð- uns Jónssonar, alþingismanns og hreppstjóra á Garðsstöðum, föður Jóns Auðuns dómskirkjuprests og Auðar Auðuns, borgarstjóra og ráðherra. Ólafur var sonur Jóns, b. á Garðarsstöðum Einarssonar, b. á Garðsstöðum Magnússonar, b. á Arngerðareyri Þórðarsonar. Móðir Ólafs var Sigríður, systir Baldvins, föður Jóns, alþingismanns, for- manns Alþýðuflokksins og forseta ASÍ. Baldvin var einnig langafi Níelsar P. Sigurðssonar sendi- herra. Sigríður var dóttir Jóns. b. á Eyri í Ísafirði Auðunssonar, pr. á Stóruvöllum Jónssonar, bróður Arnórs, langafa Hannibals, fyrr- verandi ráðherra, föður Jóns sendi- herra. Meðal systkina Theodóru má nefna Guðmund sem er hundrað og fjögurra ára og Ingibjörgu sem lést hundrað og þriggja ára. Theodóra er dóttir Daða, b. á Setbergi Daní- elssonar, b. í Litla-Langadal á Skógarströnd Sigurðssonar, b. í Litla-Langadal Sigurðssonar, hreppstjóra og skálds í Litla- Langadal Daðasonar, b. á Leiti á Skógarströnd Hannessonar. Móðir hann Emil og Dagbjört Una. d) Ólafur Björn. Sambýliskona hans er Ingibjörg Huldarsdóttir. Dóttir Gunnars og fyrrverandi sambýlis- konu hans, Ólu Friðmeyjar Kjart- ansdóttur, er Ingunn Helga. Börn Jórunnar og Rögnvaldar eru: a) Anna Theodóra, f. 15.4. 1953, kvikmyndagerðarmaður og á hún soninn Úlf Chaka, f. 5.4. 1976 með Charles Dalton. b) Ólafur, f. 5.9. 1958, kvikmyndagerðarmaður og á hann soninn Arnar Stein, f. 7.10. 1986, með Svanhildi Gunnars- dóttur íslenskufræðingi og Ragnar Árna, f. 14.5. 1991, með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Guðnýju Ragn- arsdóttur, leikkonu og bókasafns- fræðingi. Rögnvaldur og Jórunn slitu samvistum 1974. Rögnvaldur kvæntist 11.3. 1978 Vigdísi Ragnheiði Garðarsdóttur, f. 24.1. 1936, dóttur Garðars S. Gísla- sonar kaupmanns í Hafnarfirði og Reykjavík og eiginkonu hans Matt- hildar Guðmundsdóttur. Börn hennar eru: a) Sigríður Vala Har- aldsdóttir, f. 1.8. 1958. Hennar börn eru Katla Rós, Síta Björk, Una og Sigtryggur Ómi Freyr. b) Ingólfur Örn Arnarsson, f. 21.4. 1962, kvæntur Kristínu Guðmundsdótt- ur, f. 19.1. 1963. Þeirra börn eru Rakel, Heiðrún og Arnar. c) Hildur Embla Ragnheiðardóttir, f. 26.5. 1972, gift Davíð Magnússyni, f, 20.6. 1977. Börn þeirra eru Sigríð- ur Vigdís Sigurbjarnadóttir og Ragnheiður Dís Davíðsdóttir. Rögnvaldur lærði skipasmíðar í Iðnskólanum í Reykjavík og síðan skipaverkfræði í Köbenhavn Tekn- ikum. Hann var yfirteiknari á teiknistofu Landssímans 1952-60, starfrækti sælgætisgerðina Völu 1960-74, ásamt fyrri konu sinni. Eftir það starfaði hann sem teikn- ari hjá Bandaríkjaher á Keflavík- urflugvelli og lét af störfum þar í ársbyrjun 2001. Útför Rögnvalds verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Daníels ar Ingibjörg Daðadóttir, systir Sig- urðar skálds. Móðir Theodóru var María, er varð hundrað og sex ára. María var systir skáldkvennanna Her- dísar og Ólínu. María var dóttir Andrésar, í Flatey Andréssonar, í Flatey Björnssonar. Móðir Andrésar Andr- éssonar var Guðrún, systir Þóru, móður Matthíasar skálds Jochumssonar. Bróðir Guðrúnar var Guð- mundur Einarsson, pr. á Kvenna- brekku í Miðdölum. Guðrún var dóttir Einars, b. í Skáleyjum Ólafs- sonar og Ástríðar Guðmundsdótt- ur. Móðir Ástríðar var Guðrún Eggertsdóttir, b. í Hergilsey Ólafs- sonar. Móðir Maríu var Sesselja Jónsdóttir frá Djúpadal, systir Sig- ríður, móður Björn Jónssonar, ráð- herra og ritstjóra, föður Sveins for- seta. Fyrri kona Rögnvalds var Jór- unn Steinunn Jónsdóttir, f. 25.8. 1920, d. 1987, dóttir Jóns Árnason- ar, læknis á Kópaskeri, frá Garði í Mývatnssveit, og eiginkonu hans, Valgerðar Sveinsdóttur frá Sléttu- hlíð í Skagafirði. Sonur Jórunnar af fyrra hjónabandi er Gunnar Ægir Sverrisson, f. 14.6. 1943 og var hann kvæntur Kristínu Ólafsdótt- ur. Börn þeirra eru: a) Sverrir Óm- ar, látinn. b) Victor sem á tvö börn með fyrri konu sinni Huldu Ingva- dóttur, þá Ingva Hrafn og Gunnar Ægi og tvö börn með núverandi eiginkonu, Sólveigu Guðjónsdóttur, tvíburana Andreu Vigdísi og Sverri Ómar. c) Selma Rut gift Bjarna Þór Lúðvíkssyni. Þeirra börn eru Jó- Komið er að kveðjustund með okk- ar ástkæra mági, Rögnvaldi Ólafs- syni. Oft hefur verið kvatt en þá jafn- an heilsast á ný, því til margra ára höfum við systur og makar okkar, þeir Ríkarður og Skúli, meðan þeirra naut við, haft þann góða sið að hittast á sunnudögum, snæða saman og fá okkur hressingargöngu á eftir. Gott var að hafa Rögnvald að fylgdar- manni því fróður var hann um marga hluti. Ekki voru samverustundirnar ein- göngu bundnar við Ísland, heldur farið víða um Evrópu, og héldu þau hjón til dæmis okkur og fleirum veg- lega veislu í Lúxemborg er Rögn- valdur varð sjötíu ára. Nú ellefu ár- um síðar eru þeir allir þrír horfnir héðan; kannski ganga þeir saman og líta niður til þriggja systra sem á göngu sinni hugsa til þeirra og sakna. Rögnvaldur var ljúfur maður og góður og aldrei fundum við að okkur væri ofaukið eftir að hann stóð uppi með okkur allar þrjár. Þökkum kærlega samfylgdina og óskum góðrar ferðar. Valdís og Vildís. Mig langar til að þakka Rögnvaldi Ólafssyni, fyrrverandi tengdaföður mínum, fyrir samfylgdina með örfá- um orðum. Hann tók mér einstak- lega hlýlega þegar ég kom í fjölskyld- una og það var þessi hlýja og ró sem einkenndi allt hans fas og samskipti við aðra. Á heimili þeirra Rögnu og var manni ávallt tekið opnum örmum og þar var notalegt að vera. Rögn- valdur var listrænn og hagur þótt verk hans færu ekki hátt. Eftir að við Ólafur slitum samvist- um hitti ég Rögnvald sjaldnar en þegar við hittumst þá fann maður að tengslin voru þau sömu, hlýjan sú sama. Rögnvaldur var ekki orðmarg- ur maður en það sem hann sagði var sagt af yfirvegun, ró og einstakri væntumþykju. Hann kunni vel að meta það sem vel var gert og var þá ófeiminn við að hrósa. Þegar hann gladdist vissi maður alltaf að það kom beint frá hjartanu, þar var aldr- ei neitt fals eða yfirborðsmennska. Vegna þess hve orðvar hann var er minningin um hrós og hlýleg orð frá honum þeim mun sterkari og mik- ilvægari. Minningin um Rögnvald er minning um mann sem var heill í gegn, traustur og hlýr. Guðný Ragnarsdóttir. Góður vinur minn og félagi, Rögn- valdur Ólafsson, er látinn rúmlega 80 ára að aldri. Ég átti því láni að fagna að kynnast sérstaklega vel foreldrum hans sem bjuggu í Stykkishólmi og þau urðu mér dýrmætir vinir og hélst sú vinátta alla tíð. Ólafur frá Elliða- ey, eins og hann var í daglegu tali nefndur, var Vestfirðingur að upp- runa, en kom á miðjum aldri í Elliða- ey og kenndi sig við hana alla tíð. Kona hans Theódóra Daðadóttir var sérstæð og virðuleg. Hún var dóttir Maríu Andrésdóttur systur Herdísar og Ólínu. Um þau hefi ég ritað í Mbl. áður, en Rögnvaldur var einkabarn þeirra. Hann var snemma sérstak- lega hneigður fyrir dráttlist og lærði þá iðn, einnig var hann mjög verklag- inn. Hann starfaði hér í Hólminum við skipasmíði en snemma lá leiðin til Reykjavíkur og þar reisti hann sér heimili, og ég heimsótti oft þau Jór- unni, fyrri konu hans. Þau áttu mjög gott og fallegt heimili og voru marg- ar ferðirnar þangað. Alltaf hélst þessi góða vinátta með okkur Rögn- valdi og stend ég í mikilli þakkar- skuld við þau. Og eins eftir að hann kynntist seinni konu sinni Ragnheiði Garðarsdóttur. Þau voru líka miklir vinir mínir og minnar fjölskyldu. Ég kom oft á heimili þeirra sem var á Kleppsvegi í Reykjavík, og þær voru ekki fáar ferðir mínar til þeirra og ætíð sama viðmótið. Mér þykir mjög vænt um þann tíma sem við áttum saman. Rögnvaldur hafði alltaf hlýjar taugar heim í Hólminn og kom þang- að stundum til að minnast gamalla daga og æskustöðva sinna og hvað hann fylgdist með þeim sem voru samtíðarfólk hans og samverustund- irnar þegar ég kom í heimsókn fóru mikið í upprifjanir bernskustu- ndanna. Um hver jól og áramót heyrðum við hvor í öðrum og skiptumst á jóla- kveðjum. Þótt Rögnvaldur mæti grín og gaman mikils, var hann einnig mikill alvörumaður og stundaði starf sitt af kostgæfni. Hann mat tryggð og vináttu mikils og rækti vel. Ég við að loknum með þessum fátæklegu línum þakka honum fyrir sérstaka samleið gegnum árin og allt sem hann var mér og mínum og minnist tryggðar hans sem ég naut svo ríku- lega. Ég bið honum allrar blessunar og fólki hans sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð blessi góðan félaga og vin. Árni Helgason, Stykkishólmi. RÖGNVALDUR ÓLAFSSON ✝ Jón Teitssonfæddist á Böð- móðsstöðum í Laug- ardal 26. apríl 1923. Þriggja vikna gamall fluttist hann að Ey- vindartungu í sömu sveit og ólst þar upp. Hann lést á Dvalar- heimilinu Lundi á skírdagskvöld 8. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Eyvind- artungu, f. 8. mars 1894, d. 14. septem- ber 1969, og Teitur Eyjólfsson bóndi í Eyvindartungu, f. 12. júlí 1900, d. 11. júlí 1966. Systkini Jóns eru: Ásbjörg Teitsdóttir, húsfreyja, f. 21. október 1918, d. 15. júní 1994, gift Eiríki Eyvinds- syni rafvirkja, Ásthildur Teits- dóttir, húsfreyja, f. 9. apríl 1921, gift Gunnari Guðbjartssyni bónda og formanni Stéttarsambands bænda, Eyjólfur Teitsson, húsa- smíðameistari, f. 30. júlí 1928, d. 4. september 1993, kvæntur Soffíu Ármannsdóttur talsíma- verði, Baldur Teitsson, deildar- stjóri hjá Pósti og síma, f. 28. ágúst 1930, d. 5. júní 1992, kvænt- ur Sigurveigu Þórarinsdóttur húsfreyju, Ársæll Teitsson, húsa- smíðameistari, f. 25. janúar 1930, kvæntur Guðrúnu Ólafíu Sigur- jónsdóttur, húsfreyju, Hallbjörg Teitsdóttir, húsfreyja, f. 18. mars 1933, d. 30. mars 1998, gift Helga Jónssyni bankastjóra. Jón kvæntist 8. maí 1961 Ing- unni Arnórsdóttur, kennara, f. 16. maí 1930, d. 21. júní 1961. Foreldrar hennar voru Helga Kristjánsdóttir kennari og Arnór Sigurjónsson, skóla- stjóri og rithöfund- ur. Börn hennar sem Jón gekk í föðurstað eru: 1) Sigurður Jónsson, lögmaður og bóndi, f. 13. febr- úar 1956. Fóstur- dóttir Íris Arnlaugs- dóttir, sonur Jón Orri. Sambýliskona Ásdís Viðarsdóttir, börn hennar Hólm- fríður Erna, Viðar Örn, Katrín Arna. 2) Laufey Jónsdóttir kennari, f. 12. ágúst 1957, gift Sigurði Erni Leóssyni kennara. Börn þeirra Jón Trausti, Anna Kristín, Leó Ingi, Ingunn Erla, Elísabet Ýr. 3) Helga Jónsdóttir, bóndi, f. 8. jan- úar 1959, gift Snæbirni Smára Þorkelssyni bónda og húsasmíða- meistara. Synir þeirra: Jón, Arn- ór, Þorkell, Magnús Bjarki, Guð- mundur. Jón gekk í Héraðsskólann á Laugarvatni. Á sínum yngri árum vann hann í Bretavinnu og við sauðfjárveikivarnir, en lengst af vann hann á búi foreldra sinna. Hann tók við búskap í Eyvindar- tungu 1953. Hann starfaði lengi í Ungmennafélagi Laugdæla, var formaður félagsins og síðar heið- ursfélagi. Jón gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, sat m.a. í hreppsnefnd Laugardalshrepps, var fulltrúi í Mjólkurbúi Flóa- manna, Sláturfélagi Suðurlands og Ræktunarsambandinu Ketil- birni. Útför Jóns fer fram frá Skál- holtskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 14. Jarðsett verður á Laugarvatni. Í dag kveðjum við hetju, mann sem hefur aldrei viljað láta á sér bera en full ástæða hefði verið til að sæma heiðursnafnbót. Í dag kveðjum við Jón Teitsson bónda í Eyvindartungu. Hann fæddist inn í vorið, birtu og yl. Hann ólst upp við gott atlæti í stórum, glöðum systkinahópi og fór snemma að vinna og axla ábyrgð. Jón gekk í Héraðskólann á Laugarvatni tvo vetur og fékk þar góða grunn- menntun. Ungmennafélagsandinn sveif yfir vötnum. Hann var sund- maður góður og glímukappi. Hann starfaði lengi í Ungmennafélagi Laugdæla, var m.a. formaður félags- ins og síðar heiðursfélagi. Jón gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, sat m.a. í sveitarstjórn Laugardalshrepps auk annarra trúnaðarstarfa. Ekki sóttist hann eftir kosningu til þessara starfa heldur leit á þau sem þegnskyldu- vinnu. Hann var alltaf talnaglöggur og aðstoðaði marga bændur í sveit- inni við gerð skattaskýrslna þeirra, ár eftir ár. Jón tók við búi af föður sínum 1953 og bjó með móður sinni í Eyvindar- tungu. Sumarið 1960 kynntist hann ást- inni í lífi sínu, Ingunni Arnórsdóttur, sem þá var ung ekkja og þriggja barna móðir. Hann hikaði ekki við að taka að sér konu með þrjú lítil börn. Við systkinin vorum fljót að kynnast honum. Hann heillaði okkur strax með alúð sinni og umhyggju og leiftr- andi kímni. Ég man þegar hann kom á Willis- jeppanum sínum með heyvagninn til að sækja okkur og búslóðina. Þegar vagninn var orðinn sneisafullur og búið að binda niður allt dótið stóð litli tréstóllinn minn eftir við hlið vagns- ins. Flestir hefðu ekki tekið eftir neinu og ekið burt. En pabbi sá hvað mér leið, tók stólinn og batt hann upp á þak jeppans. Ég gleymi þessu aldr- ei. Hann var alltaf svo skilningsríkur við menn og málleysingja. Ingunn flutti til hans í Eyvindar- tungu með barnahópinn sinn haustið 1960, þau giftu sig 8. maí 1961 og 21. júní það ár dó hún úr hvítblæði. Yngsta barnið Helgu tóku foreldr- ar Ingunnar að sér en eldri börnin tvö Sigurð og Laufeyju ól Jón upp og naut við það dyggrar aðstoðar móður sinnar Sigríðar sem bjó með syni sín- um þar til hún lést árið 1969. Við systkinin öll kölluðum hann alltaf pabba. Þó mikið væri að gera fyrir einyrkja á stóru búi hafði hann alltaf tíma til að hlusta og spjalla, hann var ákaflega næmur ef eitthvað var að og gerði gott úr öllu. Eftir dauða ömmu annaðist pabbi uppeldi okkar einn. Helga kom oft og var í fríum í Eyvindartungu og flutti alveg þegar hún byrjaði í Mennta- skólanum. Pabbi var sérstaklega gestrisinn, hann var alltaf sanngjarn, sá spaugi- legu hliðarnar á lífinu. Hann var ein- staklega natinn og umhyggjusamur. Hann ól okkur upp í miklu ástríki. Alltaf sýndi hann okkar sanngirni og virðingu. Aldrei hækkaði hann róm- inn – þess þurfti ekki, við virtum hann svo mikils. Hann kom okkur öllum til manns, börnum konunnar sem hann elskaði en naut svo stutt. Við systkinin erum öll innilega þakklát fyrir þann kær- leika sem hann gaf okkur. Seinna áttu líka öll barnabörnin fjársjóð í afa sínum. Hann sagði sög- ur, fór með barnagælur, taldi litlar tær og fingur og átti alltaf eitthvað gott í gogginn. Fyrir sex til átta árum fór að bera á gleymsku hjá pabba. Fyrst hætti hann að muna nöfn og örnefni. Í byrj- un tók maður vart eftir þessu. Síðan hófst langt stríð að rifja upp og reyna að muna. Það voru honum dálítið erf- ið ár, en alltaf hélt hann góðum húm- or og gat séð spaugilegu hliðarnar á málum. Árið 2001 flutti pabbi á Dvalar- heimilið Lund á Hellu. Þar var ákaf- lega vel hugsað um hann. Hann hélt áfram að smala kindunum sínum og telja þær eftir að hann kom á dval- arheimilið. Minnið var bilað en ljúf- mennskan var söm og áður og alltaf stutt í glettnina. Það var eins og hon- um létti þegar hann hætti að gera sér grein fyrir gleymsku sinni. Guð blessi góðan dreng, sanna hvunndagshetju. Laufey Jónsdóttir. JÓN TEITSSON  Fleiri minningargreinar um Jón Teitsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.