Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 35

Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 35 ✝ Sigríður Frið-riksdóttir fæddist á Blönduósi 18. febr- úar 1949. Hún lést á Landspítalanum 13. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þórunn Sigur- jónsdóttir frá Blönduósi, f. 1.9. 1915, d. 10.2. 2000, og Friðrik Gunnar Indr- iðason frá Blönduósi, f. 20.6. 1916, d. 20.11. 1993. Börn Þórunnar og Friðriks voru auk Sigríðar Brynhildur Bára Berg- man, f. 27.12. 1940, Guðrún Berg- man, f. 3.6. 1942, Indíana Margrét, f. 28.4. 1945, Sigurlaug Jónína, f. 20.12. 1950, og Björn, f. 14.7. 1953. Auk þess áttu þau systkinin einn hálfbróður, Hermann Valdimar Sigfússon, f. 29.7. 1937. Hinn 18. ágúst 1973 giftist Sig- ríður Steindóri Jónssyni, f. 27.2. 1955 á Akureyri. Foreldrar hans eru Sigríður Steindórsdóttir, f. 9.12. 1928, og Jón Þorsteins Hjalta- son, f. 16.5. 1929. Sigríður og Stein- dór eignuðust tvö börn, Þórunni, f. Austur-Húnvetninga á Blönduósi. Sigríður hélt síðan aftur til Reykja- víkur þar sem hún starfaði hjá Síld og fisk í um fimm ár. Eftir að hún eignaðist börnin var hún heima- vinnandi um nokkurra ára skeið. Þau hjónin fluttu síðan á Blönduós 1979, þar sem þau bjuggu allt fram til 1991. Á þessum tíma gegndi Sig- ríður ýmsum störfum. Hún sat með- al annars í bæjarstjórn Blönduós- bæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í átta ár og var formaður Verkalýðs- félags Austur-Húnvetninga í nokk- ur ár. Samhliða setu í bæjarstjórn og formennsku í Verkalýðsfélaginu annaðist Sigríður rekstur Blöndu- skálans ásamt Steindóri eigin- manni sínum. Sigríður vann síðan í mötuneyti Fossvirkis við Blöndu- virkjun meðan á virkjunartíma stóð. Eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavíkur 1991 starfaði Sigríður við mötuneyti Norðurljósa og fjár- málaráðuneytisins. Við upphaf vinnu við Hvalfjarðargöng hóf Sig- ríður störf sem matráðskona hjá Ís- taki og annaðist mötuneyti á þeirra helstu starfsstöðum, m.a. Sultar- tangavirkjun, Smáralind, varnar- stöðinni í Keflavík og síðast við mötuneyti Ístaks á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Útför Sigríðar fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. 14.4. 1974, og Jón Elv- ar, f. 1.9. 1976, bæði fædd í Reykjavík. Þór- unn er gift Sveinbirni S. Hilmarssyni, f. 11.2. 1973, og eiga þau tvo drengi, Júlíus Hafstein, f. 7.12. 1994, og Jón Kristján, f. 28.8. 1997. Sambýliskona Jóns Elvars er Anna Guð- mundsdóttir, f. 29.5. 1978, og eiga þau eina dóttur, Tinnu Marínu, f. 7.7. 2001. Sigríður og Steindór bjuggu fyrstu búskaparárin í Reykjavík, síðan tvö ár á Selfossi, en eftir það bjuggu þau á Blönduósi til ársins 1991 er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt systkinum á Blönduósi. Þar gekk hún í grunnskóla og lauk þaðan landsprófi vorið 1965. Starfs- ferill Sigríðar hefur verið fjölbreytt- ur í gegnum árin. Eftir landspróf hóf Sigríður störf í Skálatúni í Mos- fellsbæ, og þar starfaði hún um nokkurt skeið. Síðar starfaði hún á Hótel Blönduósi og á Héraðshæli „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.“ Með þessum orðum vil ég byrja á því að minnast hennar tengdamóður minnar, Siggu. Þessi orð lýsa best, að því er mér finnst, hvernig hún tók á móti sjúkdómi sín- um. Hún treysti á trúna sem hjálpaði henni mikið. Hún stóð sterk eins og klettur í hafi þrátt fyrir veikindin en sjúkdómur hennar var eins og ólgu- sjór sem lamdi á klettinn af miklu afli. Hún varð svo loks að láta undan eftir hetjulega frammistöðu. Loka- baráttan stóð ekki lengi yfir en að- dragandinn var eflaust búinn að vera lengri en vitað var. Ég minnist Siggu sem drífandi manneskju sem vildi láta hlutina ganga. Hún var búin að vinna við matseld til fjölda ára á ýmsum stöð- um á landinu, allt frá því að vera við hafið og lengst uppi á fjöllum. Sem amma var hún vinsæl hjá barnabörn- unum, en strákarnir okkar þáðu það oft þegar færi gafst að gista hjá ömmu og afa í Grafarvogi. Var þá ýmislegt leyfilegt hjá ömmu sem ekki var alltaf leyfilegt annars stað- ar. Ótal margar minningar frá jólum, ferðalögum, afmælum, giftingunni okkar, skírnum og mörgu fleiru koma upp í hugann við aðstæður sem þessar, en þetta eru góðar minning- ar sem verða geymdar vel og haldið á lofti fyrir barnabörnin þegar fram líða stundir. Ljósið hennar Siggu mun lýsa áfram í hjörtum okkar og barnanna. Með þakklæti í huga fyrir allt sem Sigga veitti okkur og strákunum í gegnum árin kveð ég hana með sökn- uði og bið Guð að styrkja tengda- pabba, fjölskyldu hennar og vini í sorginni. Þinn tengdasonur Sveinbjörn. Elsku Sigga frænka. Þessi orð er erfitt og sárt að skrifa því enn erum við að átta okkur á því að þú sért dá- in. Barátta þín við þennan óútreikn- anlega sjúkdóm stóð í raun svo stutt en þú alltaf svo æðrulaus og dugleg. Sannkölluð hetja eins og fólkið sem stóð við bakið á þér í baráttunni. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsin blóm er verður að hlíta þeim lögum, að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu gengin á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Elsku Steindór, Þórunn, Jón Elv- ar, Sveinbjörn, Anna, Júlíus Haf- steinn, Jón Kristján og Tinna Marín, missir ykkar er mikill og biðjum við góðan guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Viljum við votta ykkur og öðrum aðstandendum dýpstu samúð okkar. Að lokum viljum við systkinin þakka þér, elsku Sigga, fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman á Blönduósi í „gamla daga“. Með kærri þökk fyrir allt. Tryggvi, Þórdís Erla og Inda Hrönn. Þegar fréttir berast af andláti góðrar vinkonu og félaga hvarflar hugurinn ósjálfrátt til baka, til æsku- áranna og góðra minninga tengdra þeim. Sigríður Friðriksdóttur eða Sigga Frigga eins og hún var kölluð af vin- um og félögum lést þriðjudaginn 13. apríl sl. eftir stutta en snarpa bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Hún var ári yngri en undirritaður og áttum við því samleið í barnaskóla og fylgd- umst að í gegnum skólaárin. Sigga var góður félagi og tók þátt í gleði og starfi okkar krakkanna á Blönduósi. Samfélagið var lítið og allir voru samtaka um að gera sitt besta til að bæta það og hafa gaman af lífinu. Eftir að skólagöngu lauk heima fyrir vorum við samtíma í Reykjavík um nokkurt skeið. Var þá skemmtanalífið stundað af miklum dugnaði eins og gerist hjá ungu fólki, t.d. létum við það ekki aftra okkur þótt langt væri sótt til að komast á dansleiki með uppáhaldshljómsveit okkar, sem þá var Hljómar úr Kefla- vík. Seinna þegar við höfðum bæði stofnað heimili á Blönduósi lágu leið- ir okkar saman í félagsmálum og vorum við m.a. um átta ára skeið saman í sveitarstjórn. Fyrir það samstarf vil ég þakka sérstaklega. Þann tíma sem við tókum þátt í bæjarmálunum vorum við fulltrúar hvort síns listans, en það skyggði ekki á samstarfið. Allir voru sam- mála um markmiðin og undantekn- ing var, ef okkur greindi á um leiðir að þeim. Sigga var á þeim tíma formaður Verkalýðsfélags A-Húnvetninga. Þar hélt hún af festu og myndarskap um hagsmuni félagsmanna, en var jafnframt réttsýn í samskiptum við fulltrúa fyrirtækja og stofnana. Í bæjarstjórninni lagði hún áheyrslu á félagslegt jafnrétti, at- vinnu- og velferðarmál. Hún átti sæti í fyrsta bæjarráði Blönduóss og vann að undirbúningi að þeim breytingum sem fylgdu því að Blönduós varð bær. Fjölmargt mætti rifja upp í því sambandi, m.a. fundi og ferðalög þar sem tekist var á um hagsmuni bæj- arbúa. Þar lá Sigga ekki á liði sínu, flutti mál sitt af festu og lagði sitt af mörkum til framdráttar fyrir sitt fólk. Í störfum sínum naut hún stuðn- ings Steindórs eiginmanns síns, en þau hjón voru samhent í lífi sínu. Þau stóðu fyrir rekstri Blönduskálans á Blönduósi í mörg ár og eftir að þau fluttust til Reykjavíkur ráku þau um margra ára skeið mötuneyti fyrir Landsvirkjun, nú síðast í Kröflu og við Kárahnjúka. Þar eins og annars staðar var atlæti og myndarskapur í öllum viðgjörningi. Því miður gefst undirrituðum ekki færi á að vera við útför Siggu og vil ég því nota tækifærið til að votta Steindóri, börnum þeirra og fjöl- skyldu dýpstu samúð á sorgarstundu og biðja þess að minningarnar um ástkæra eiginkonu og móður muni milda sársaukann sem þau bera nú í brjósti. Hilmar Kristjánsson. Við viljum með örfáum orðum minnast ágætrar samstarfskonu okkar til margra ára, Sigríðar Frið- riksdóttur. Sigríður hefur lengi starfað sem ráðskona á vinnustöðum okkar og ævinlega á okkar stærstu vinnustöðum. Það er erfitt og eril- samt verk að stjórna og bera ábyrgð á matseld ofan í fjölda útivinnandi manna, en oft var um að ræða nokk- ur hundruð manns á stærri vinnu- stöðum. Sigríður leysti þetta af hendi af stakri prýði og samvisku- semi. Henni var annt um að góður matur væri á boðstólum hverju sinni, með öllu tilheyrandi. Þeir eru fjöl- margir af okkar starfsmönnum sem kynntust Sigríði og minnast hennar nú með söknuði. Við sendum fjölskyldu hennar og vinum innilegustu samúðarkveðjur okkar, um leið og við kveðjum Sigríði með þökk fyrir samstarfið á liðnum árum. Fyrir hönd samstarfsfólks hjá Ístaki, Loftur Árnason framkvæmdastjóri. SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúp- faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORLEIFUR BJÖRNSSON, Safamýri 48, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 21. apríl kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Félag hjartasjúklinga. Jóhanna Antonsdóttir, Sigurbjörn Þorleifsson, Hulda Fríða Ingadóttir, Garðar Þorleifsson, Ásta María Þórarinsdóttir, Sveinn Valgeir Kristinsson, Svanhildur Guðbjartsdóttir, Anton Einarsson, Haukur Harðarson, Guðrún María Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, Víðilundi 24, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 21. apríl kl. 13.30. Stefán Jónsson, Heiðrún Björgvinsdóttir, Eiríkur Jónsson, Sigríður Jóhannesdóttir, Teitur Jónsson, Valgerður Magnúsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, HINRIK JÓN MAGNÚSSON, Sólheimum 25, Reykjavík, var jarðsunginn föstudaginn 16. apríl. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Kraft, félag ungs fólks með krabbamein. Matthildur Hafsteinsdóttir, Magnús Hafsteinn Hinriksson, Sonja Sigurðardóttir, Sigríður Hinriksdóttir, Árni Björnsson, Svanbjörg Gróa Hinriksdóttir, Bergur Hólm Aðalsteinsson og barnabörn, Kristín Ragnheiður Magnúsdóttir og börn. ÍSAK ÁRNI ÁRNASON húsasmíðameistari, áður á Hólavegi 12, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki þann 15. apríl. Útför hans verður gerð frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 24. apríl kl. 14:00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeir, sem vilja minnast hans, láti Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki njóta þess. Systkini hins látna og aðrir vandamenn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA JÚLÍANA SIGURÐARDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést mánudaginn 19. apríl. Hún verður jarð- sungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 23. apríl kl. 15:00. Örn Arason, Sigríður Árnadóttir, Erla Aradóttir, Jón Níels Gíslason, Vildís Halldórsdóttir, Kristjana Aradóttir, Þorgeir Ingi Njálsson, Kristján Arason, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Arndís Aradóttir, Stefán Þorri Stefánsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.