Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Heimsókn úr Danaveldi | Nemendur í 9. og 10. bekk grunnskólans á Þórshöfn fengu gott tækifæri til að æfa sig í danskri tungu þegar jafnaldrar þeirrra frá danska smábænum Assens komu í heimsókn í lið- inni viku ásamt tveimur kennurum. Dan- irnir dvöldu á heimilum íslensku nemend- anna og gengu samskipti mjög vel. Danirnir tóku á móti Íslendingunum í fyrra þar sem dönsk síðsumarsblíða lék við unga fólkið í vikutíma. Þau dönsku voru ekki jafnheppin með veðrið hér en rigning- arslydda eða snjókoma var meirihluta dvalartímans. Þrátt fyrir veðrið var ým- islegt á dagskrá til að gera þessum frænd- um okkar dvölina sem ánægjulegasta. Farið var á smábátum á fiskveiðar og fisk- uðu unglingarnir svo vel að þeir voru drifnir í Hraðfrystistöðina snemma morg- uninn eftir til að gera að aflanum og starf- semi Hraðfrystistöðvarinnar kynnt fyrir þeim. Ekki fylgdi þó sögunni hvort þau hugsuðu sér að leggja þessa atvinnugrein fyrir sig og lyktin í loðnubræðslunni var ekki fyrir stúlkurnar. Íslensku hestarnir voru í hópi gestgjafa og var Dönunum boð- ið í reiðtúr. Út á Langanes var farið á jeppum, allt út í Skála en flestir dagar enduðu í íþróttahús- inu í sundi og heitum pottum og í fé- lagsmiðstöðinni. Einnig var farið í Selárdalslaug í Vopna- firði og að Bustarfelli en ekki var unnt að fara í jeppaferð inn á heiðar vegna veðurs. Danirnir voru kvaddir með fjölskylduferð á sunnudaginn en þá fjölmenntu íslensku gestgjafarnir með hópinn í Hvalasafnið á Húsavík; í Laxárvirkjun og upp í Mývatns- sveit þar sem getgátur voru meðal þeirra dönsku um það hvort „sá vondi“ ætti sama- stað þar í sjóðheitri og rjúkandi jörðu. Vinir kvöddust síðan á Húsavík í ferðarlok, íslensku nemendurnir fóru heim en þau dönsku héldu með kennurum sínum og Stefáni Má Guðmundssyni frá Þórshafn- arskóla til Akureyrar en mánudeginum átti að verja í kynnisferð um þennan höf- uðstað Norðurlands undir leiðsögn Stef- áns. Í dag er heimferð þeirra til Assens. Úr bæjarlífinu ÞÓRSHÖFN EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR FRÉTTARITARA Morgunblaðið/Líney Hafnarstjórn Ísa-fjarðarbæjarhefur fallist á beiðni tæknideildar bæj- arins um aðstöðu til að setja upp malbikunarstöð á hafnarsvæðinu á Ísa- firði vegna fyrirhugaðra malbikunarframkvæmda Ísafjarðarbæjar og Vega- gerðarinnar í sumar, skv. frétt á vef Bæjarins besta. Malbikunarstöðin verð- ur sett upp suðvestur af gámaplaninu við Sunda- höfn og vill hafnarstjórn að hugað verði sér- staklega að staðsetningu stöðvarinnar með tilliti til komu skemmtiferðaskipa og almennra ferðamanna. Þá óskaði hafnarstjórn eftir upplýsingum um það magn jarðefna sem geyma þurfi á svæðinu. Malbikunarstöð Hannes Péturssonsegir svo frá dvölsinni í Tungu- sveit: „Sunnan við húsið á Laugarbóli var garð- blettur með trjáhríslum, lítt eða ekki girtur í þann tíma. Þangað leituðu oft vorið ’68 fjórir hrútar samtímis, gæðalegir og hæglátir í öllum til- tektum, og bitu gras. Aldrei vissi ég hvaðan þeir komu á lausagöng- unni. Ég gaf þeim stund- um auga frá skrifborði mínu við suðurgluggann. Mér varð hlýtt til þeirra og kvað dag nokkurn: Latir, meður hnoð og hnus, hengslast um með góðleg fés hrútar mínir: Mattheus, Markús, Lúkas, Jóhannes.“ Fyrir tíu árum sat skáldið á bekk í Lystigarðinum á Akureyri og kvað: Í Lystigarðinum leika dátt litlir fuglar á kvistum – og fjaðurprúðir syngja í sátt við signor Jesúm Kristum. Af guðspjöllum pebl@mbl.is ÓLI G. Jóhannsson listmálari er nýlega kominn heim eftir að hafa opnað sýningu á verkum sínum í Radisson SAS Hotel Amsterdam Airport í Hollandi. Þar sýnir Óli nú 28 málverk og munu þau prýða veggi hótelsins næstu þrjá mánuði. Samfara því fer fram mikil kynning á lista- manninum. „Það er geysilegur fjöldi fólks sem flýtur þarna í gegn,“ sagði Óli, en fyrsta dag- inn voru um 500 manns á sýn- ingunni, m.a. hjartaskurðlækn- ar víðs vegar að úr heiminum sem þarna voru á ráðstefnu. „Þetta er alveg dúndur,“ sagði Óli, en góður rómur var gerður að sýningunni og vakti hún at- hygli gesta. „Ég er strax farinn að fá viðbrögð, m.a. frá öðrum Evrópulöndum og Bandaríkj- unum.“ Þá hefur Óli fengið boð um að taka þátt í fleiri sýn- ingum undir merkjum Radisson SAS sem og frá ýmsum gall- eríuum. Síðustu vikur hafa mál- verk eftir Óla verið til sýnis á Hótel Sögu, en þeirri sýningu fer brátt að ljúka. Óli G. Jóhannsson myndlistarmaður við eitt verka sinna. Þetta er alveg dúndur Myndlist SKRIFAÐ hefur verið undir samninga um gerð nýs aðalskipulags fyrir Ólafsfjörð. Það er verkfræðistofan Hnit hf. í sam- starfi við Arkþing ehf. sem hefur tekið að sér þetta verkefni. Gildandi aðalskipulag var unnið á árunum 1987–1989 er barn síns tíma og löngu kominn tími á endurskoðun þess. Ný lög gera m.a. ráð fyrir að allt land sveitarfélagsins verði skipulagt, ekki aðeins þéttbýlið. Í nýju aðalskipulagi gefst því tækifæri til að skipuleggja sumarbústaða- byggð og nýta þar með betur þá auðlind sem heita vatnið er Ólafsfirðingum og önnur útivistarsvæði fyrir þá sem vilja stunda skíðagöngur og aðra útiveru sem náttúru- fegurð Ólafsfjarðar og Tröllaskagans býður upp á. Vegna vinnu við gerð nýs aðalskipulags hefur verið skrifað undir samninga við Fornleifastofnun Norðurlands um skrán- ingu fornminja í Ólafsfirði og vinna við gerð hættumats vegna ofanflóða er á lokastigi. Samningur um nýtt aðalskipulag fyrir Ólafsfjörð Klárt: Stefanía Traustadóttir bæjarstjóri og Guðmundur Björnsson hjá Hnit. AÐALFUNDUR Ferðamálasamtaka Vestfjarða verður haldinn um næstu helgi á Reykhólum. Kynnt verður mark- aðsáætlun Ferðamálasamtaka Vest- fjarða og AtVest í ferðamálum, samstarf við aðliggjandi ferðamannasvæði, ýmis verkefni í ferðamálum á vegum vest- firskra stofnana og fyrirtækja, auk þess sem ný og endurbætt uppfærsla á ferða- málavefnum www.vestfirdir.is verður kynnt. Á sunnudeginum verður fyrsta nám- skeiðið í „Nature Based Tourism“ sem Dorothee Lubecki, ferðamálafulltrúi Vestfjarða, annast. Á laugardeginum mun Reykhóla- hreppur bjóða fundargestum á hlunn- indasýninguna á Reykhólum. Enn frem- ur verður bílasafnið í Seljanesi heimsótt og endað með kvöldverði í Bjarkalundi. Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða ♦♦♦ Kazuo Igarashi sensei, 7. dan íaikido, var á landinu á dögunum í æf- ingabúðum Aikikai Reykjavík, eina félagsins hér sem býður upp á æf- ingar í japönsku sjálfs- varnaríþróttinni aikido. Birgir Kristmannsson, Marin Ivanov Kardjilov, Pálmi Símonarson, og Sigrún Hjartardóttir tóku shodan-próf, en shodan er fyrsta stigs svart belti (1. dan). Á myndinni eru, í efri röð: Marin, Pálmi, Birgir, Sigrún. Neðri röð: Urban Aldenklint (6. dan), Kazuo Igarashi sen- sei (7. dan), Mitar Filipo- vich (3. dan). Æfingabúðir hjá Aikikai
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.