NT - 25.09.1985, Blaðsíða 4

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 25. september 1985 4 Ríkissaksóknari krefst fangelsisdóma yfir tíu starfsmönnum ríkisútvarpsins ■ Tíu starfsmönnum útvarps- og sjónvarps var í gær birt ákæra ríkissaksóknara, í borg- ardómi Reykjavíkur, þar sem- þeim er gefiö að sök að hafa með ólöglegum hætti stöðvað útsendingar útvarps og sjón- varps þann fyrsta október sl. Ríkissaksóknari krefst þess að alls tíu manns sem eru í forsvari starfsmannfélaga út- varps og sjónvarps verði dæmd til refsingar samkvæmt 176. grein, samanber 138. grein almennra hegningarlaga frá 1940. Viðurlögin við broti á þessari grein er allt að þriggja ára fangelsi. Þeir starfsmenn útvarps og sjónvarps sem mættir voru virl- ust þó ekkert bangnir við fang- elsisdóma sem þeir eiga yfir höfði sér og sögðu dómaranum Ármanni Kristinssyni að þeir teldu sig saklausa af ákæru ríkis- saksóknara. Eins og kunnugt er lagði starfsfólk hljóðvarps og sjón- varps niður vinnu fyrsta október á síðastliðnu ári á þeirri for- sendu að þeim hefði ekki verið greidd laun. Þremur dögum seinna kom til boðaðs verkfalls en starfsfólkið taldi engu að síður að fjármálaráðuneytinu bæri skylda til að greiða þeim laun um þessi mánaðamót eins og öll önnur samkvæmt gagn- kvæmum vinnusamningi. „Við gripum til fullkomlega lögmætra aðgerða til að mót- mæla lögleysu,“ sagði Ögmund- ur lónasson fréttamaður í borg- ardómi í gær, en hann er einn hinna ákærðu. Þessi ákæra og máliö allt cr ekKert annað en aðför að frjálsri verkalýðs- hreyfingu í landinui' Það voru Félag frjálshyggju- manna og Fréttaútvarpið svo- kallaða sem kærðu starfsmenn ríkisútvarpsins til saksóknara og undir kærubréfin rituðu þeir Auðunn S. Sigurðsson, Sveinn R. Eyjólfsson, Hörður Einars- son, Jónas Kristjánsson og Ell- ert B. Scliram. Hér er um að ræða forsvarsmenn hinna ólöglegu útvarpsstöðva sem komið var upp í verkfallinu síðastliðið haust. Ríkissaksókn- ari varð við kærubeiðni þeirra og hófust yfirheyrslur yfir starfs- mönnum ríkisútvarpsins í nóv- ember á síðastliðnu ári. Starfsfólk ríkisútvarpsins sem telur sig saklaust af ákæru ríkis- saksóknara, bendir á að hér hafi ekki verið um verkfall að ræða. heldur hafi vinna verið lögð niður vegna þess að laun hafi. ekki verið greidd á umsömdum tíma. Það bendir einnig á að hluti starfsmanna hafi allan tímann verið á vakt þannig að útsendingar hefði mátt hefja fyrirvaralaust ef nauðsyn krefðist. „Með því að greiða okkur ekki laun á umsömdum tíma þó svo að boöað verkfall ætti að koma til framkvæmda þrem dögum seinna er ekkert annað en kúgun af hálfu ríkisvaldsins og við munum því leita réttar okkar í málinu," eins og einn fréttamannanna komst að orði. ■ Starfsmenn sjónvarps og hljóðvarps bíða þess að vera kallaðir einn í einu inn til dómarans þar sem ákæran var birt. ■ „Við gripum til fullkomlega lögmætra aðgerða og teljum okkur ekki sek af ákæru ríkissaksoknara," sagði Ögmundur Jónasson þegar honum hafði verið birt kæran. NT-mvndir: Róhcrt. Akureyri: Blettaryksuga og eldmunni meðal fiska á skrautfiskasýningu í Vín aðallega fluttir inn frá Bret- landi, Bandaríkjunum. Sví- þjóð og Þýskalandi þar sem skrautfiskarækt þykir góður „bissnes". Sumir fiskarnir koma úr einkasöfnum sern til eru hér á landi og aðrir úr sínu náttúru- lega umhverfi sent einkum er í S-Ameríku á Amasonsvæðinu og víðar. í Vín fá fiskarnir gott pláss til að sýna sig og sjá aðra, stærsta búrið er 1700 lítrar og mun vera stærst sinnar tegund- ar á íslandi og þó víðar væri leitað. Þetta er sölusýning og kosta fiskarnir frá 120-4000 kr. stykkið. Búrin eru á misjöfnu verði eftir stærð, en sýnendur telja að byrjandi fái góðan útbúnað fyrir 25-30.000 kr. Flosi Jónsson gullsmiður og eigandi skrautfiskabúðarinnar á Akureyri sem stendur fyrir sýningunni sagði í samtali við NT að aðsókn hefði verið mjög góð og fólk sýndi skrautfiskabú- skap aukinn áhuga. Akureyri: Frá IIIII á Akurcyri: ■ Núna stendur yfir skraut- fiskasýning í blómakálanum Vín við Hrafnagil í Eyjafirði. Sýningin er önnur í röðinni af slíkum sýningum hérlendis en til muna veglegri cn það sent áður hefur verið gert. Á sýn- ingunni eru 1000-2000 fiskar af uppundir 100 tegundum. Blómaskálinn Vín er nokk- urskonar „Hveragerði" Akur- eyringa. Þar kemur fólk í sunnudagsbíltúrum til að fá sér kaffi, og nú er aukalega hægt að virða fyrir sér fiska í öllum regnbogans litum. Fyrir þá sem þekkja til í faginu eru þar tegundir s.s. blæðandi hjarta, neon-tetra, eldntunni, blettaryksuga, djöfla-cichlid o.fl. o.fl. Fiskar þessir eru Frá skrautfiskasýningunni í blómaskálanum Vín við Hrafnagil. Fyrsti Kanada togarinn kominn „Fleiri járnsmiðir velkomnir,“ segir Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar - frá HIH/Akureyri ■ Fyrsti togarinn af fjórum sem Slippstöðin á Akureyri hefur tekið að sér að breyta fyrir Kanadamenn er kom- inn til bæjarins. í samtali við Gunnar Ragnars forstjóra Slipp- stöðvarinnar kom það fram að breytingarnar felast í því að gera lestarnar hentugar fyrir fiskikassa, en fram til þessa hafa togararnir ísað allan afla upp á gamla mát- ann í lestarnar. Til þess að þær geti tekið sama magn og áður þarf að lengja skipin um 6,4 metra. Lengingin í Cape Sambro hefur verið forsmíðuð og bíður þess nú Togarinn Cape Sambro bíður „andlitslyftingar". tekst okkur líkast til að brúa veturinn," sagði Gunnar enn fremur. „Það er næg vinna og ef við fengjum járnsmiði í viðbót þá væru þeir velkomn- ir“. Útgerðarfyrirtæki togar- anna National Seecerip er stærsta útgerðarfyrirtækið í Kanada og gerir út fimmtíu togara. einungis að verða bætt við skipið. Ymsar aðrar endurbætur verða gerðar á togaranum, hann verður ísstyrktur á þann hátt að numið verður brott þriggja metra breitt belti og þykkara stál sett í staðinn og einnig verða gerð- ar breytingar í vélarrúmi. „Með þessum verkefnum ■ Slippstöðvarmenn skeggræða við yfirmenn togarans. Annar frá vinstri er Harry Kohlor útgerðarstjóri í Kanada og skipstjóri í ferðinni, Gunnar Ragnars forstjóri lengst til hægri. ■ Lengingin á togarann er klár og hægt að byrja tafarlaus verkinu. NT-myndin HIH/Akure

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.