NT - 25.09.1985, Blaðsíða 12

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 25. september 1985 12 Alþjóðleg tækniþróun: Bæði ógnun og möguleiki fyrir norrænan iðnað Nágranni heyrði í reykskynjara ■ Slöjckvilið var kallað að Keiluf^lli fimm í fyrrakvöld. Pottur hafði gleymst á eldavél í manþlausri íbúð. Það vildi til happs að kona í næstu íbúð heyrði í reykskynjara og fór hún til þess að kanna málið og sá þá hvar reyk lagði frá íbúð- inni. Hún kallaði á slökkviliðið og kom það í tæka tíð. Reyk- kafari fór inn í íbúðina og fjarlægði pott og slökkt var á eldavélinni. Að sögn varð- stjóra hjá slökkviliðinu, sem NT ræddi við í gærkvöldi, sannaðist þarna hversu gagn- legt öryggistæki reykskynjarar eru. ■ Sýningin á verkum Errós mun standa til 29. þessa mánaðar. Meðal verka á sýningunni er þessi mynd sem Erró málaði af Halldóri Laxness, og færði borgarstjóm Reykjavíkur að gjöf, en á myndinni standa listmálarinn og Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, við afhendingu myndarinnar. NT-mynd: Árni Bjarna.. ’85-nefndin: Sýning á störfum og vinnuframlagi kvenna - undirbúningsf undur 26.9. að Hótei Hof i ■ 24. október sýndu íslenskar konur með eftirminnilegum hætti fram á mikilvægi vinnu- framlags síns þegar þær lögðu niður vinnu. Og þegar akkúrat 10 ár eru liðin frá þessum við- burði verður opnuð sýning á störfum kvenna í nýju Seðla- bankabyggingunni við Arnar- hól. Sýningin stendur frá 24.-31. október og er liður í aðgerðum ’85-nefndarinnar vegna loka kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna og tekur við strax og listahátíð kvenna sleppir. Sýningin á að verða einhvers konar þverskurður af þeim störfum og starfsgreinum sem konur sinna og þar verða einnig veittar upplýsingar um launa- kjör starfsaðstöðu, og kröfur sem gerðar eru til náms eða starfsreynslu í viðkomandi greinum. Sýningin mun því væntanlega nýtast til starfs- og námsvals, jafnt ungum konum sem eldri sem eru að leita út á vinnumarkaðinn á ný. Þá verða einnig veittar upplýsingar um störf viðkomandi fagfélaga og verkalýðsfélaga, hver dagur verður helgaður ákveðinni starfsgrein og margt verður til skemmtunar og fróðleiks. Þegar hafa 20-30 stéttar- félög tilkynnt þátttöku í sýning- unni og nk. fimmtudagskvöld 26. september verður haldinn fundur undirbúningsnefndar og hönnuða að Hótel Hofi og hefst hann kl. 20.30. Þau félög sem ekki hafa enn tilkynnt þátttöku eða ekki fengið kynningarbréf frá undirbúningsnefnd eru einnig hvött til að senda fulltrúa á fundinn. skortur á tæknimenntuðu starf sfólki vandamál; ályktun stjórnar norrænu iðnrekendaf élaganna ■ Einar Sindrason háls-, nef- og eyrnalækir ásamt öðrum sér- fræðingum Heyrnar- og tal- meinastöðvar íslands verða á Dalvík 4. okt. n.k. Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð heyrnartæki. Tekið á móti tímapöntunum á Heilsugæslu Dalvíkur og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst. (Fréttatilkynning) ■ „Alþjóðleg efnahags- og tækniþróun er bæði ógnun og möguleiki fyrir norrænan iðnað. Iðnaðurinn verður að taka þátt í harðnandi samkeppni á al- þjóðamarkaði með því að auka framleiðni sína og bæta fram- leiðsluvörurnar. Þetta er mögu-1 legt með aukinni tæknivæðingu í framleiðslunni og með betri vörugæðum. Á Norðurlöndum, þar sem grunnmenntun er góð og atvinnulífið getur aðlagað sig breyttum aðstæðum, eru miklir möguleikar á að standast samkcppnina.“ Þetta er úr ályktun stjórnar norrænu iðnrekendafélaganna, en nýlega var í Reykjavík árleg- ur stjórnarfundur félaganna og var eitt helsta umræðuefni fund- arins menntunar-og rannsókn- armál. í ályktun fundarins segir m.a. að þrátt fyrir aukningu í fram- lögum fyrirtækja til rannsókna og tækniþróunar á síðustu árum séu heildarframlög fyrirtækja á Norðurlöndunum, að Svíþjóð undanskilinni, minni en í öðrum OECD ríkjum. „Reiknað er með að tækniþró- un verði örari á næstu árum, en verið hefur. Alþjóðleg þróunar- verkefni svo sem Eureka verk- efnið benda til þessa. Iðnaður- inn getur hins vegar ekki einn séð um að mæta öllum þeim þörfum sem skapast í þcssu sambandi. Opinberir aðilar verða að leysa ákveðna veiga- nrikla þætti þessa vanda.“ Þá segir að skortur á sérhæfðu starfsfólki hamli iðnþróun á námi í verk- og tæknifræði hefur aukist í um og yfir 30% í Danmörku, Finnlandi pg Sví- þjóð og upp í um 50% á íslandi. Hér er þörf skjótra og mark- vissra aðferða. Samtök iðnaðar- ins og iðnfyrirtæki óska eftir samstarfi við yfirvöld við lausn þessa vanda.“ Þá vekur fundurinn athygli á Dalvík: Heyrn og tal rannsakað Norðurlöndunum. „í mennta- kerfinu virðist hins vegar ýmis- legt að sem lýsir sér m.a. í því að hlutfall þeirra sem hætta að Svíþjóð og Finnlandi hefur verið veittur skattaafsláttur vegna rannsókna og þróunar- starfsemi og að slíkur skattaaf- sláttur virðist lofa góðu til að hvetja fyrirtæki til að auka þessa starfsemi - sérstaklega í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. ■ Fyrírtæki á Norðurlöndunum eyða æ meira fé til rannsókna en betur má ef duga skal. Bragi Árnason, prófessor í rannsóknastofu Háskólans. Iceland Review: Árbók um iðnað og útflutning ■ Iceland-Yearbook of Trade & Industry ‘85 er nú komin út hjá Iceland Review. í bókinni, sem er á ensku, er fjallað um allt það helst er varðar fisk- veiðar, fiksvinnslu, út- flutningsiðnað og mark- aðsmál íslendinga á s.l. ári. Útgáfa ritsins Iceland Fisheris Yearbook, sem gefið hefur verið út árlega síðan 1981, hefur að sögn útgefanda gefið mjög góða raun og var þess vegna ákveðið að auka nú útgáf- una, þannig að hún næði einnig yfir aðrar greinar framleiðslu og útflutnings íslendinga. Auk þess sem áfram er fjallað um þá þætti fiskveiða, vinnslu og útflutning sem hingað til hefur verið sinnt í ritinu er nú fjallað á hliðstæðan hátt um aðrar framleiðslu- greinar. Meðal þess sem tekið er fyrir er: Stóriðja, vikurútflutningur, loð- dýra- og fiskirækt, hús- gagna- fata- og sæl- gætisútflutningur. Einnig eru í bókinni töflur yfir: Afla, vinnslu, framleiðslu og útfiutning. Iceland - Yearbook of Trade & Industry er 80 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda mynda. Verð hennar er 315 kr. án sölu- skatts. Ferðagetraun NT: Yf ir þrjú hundruð lausnir bárust ■ Dregið hefur verið í Ferðagetraun NT. Vinningshafar eru: 1. verðlaun, flugfar fyrir tvo í hringferð um landið með Flugleiðum, hlaut Guðlaug Jónsdóttir, Njálsgötu 34, Reykjavík. 2. verðlaun, úttekt á við- leguútbúnaði fyrir 20.000,00 kr. í Mikla- garði eða annarri kaup- félagsverslun Sambands íslenskra samvinnufél- aga, hlaut Einar Sigmars- son, Sauðhúsvöllum, Eyjafjöllum. 3. verðlaun, helgarferð fyrir 2 til Reykjavíkur, hlaut Svava Gunnars- dóttir, Tjarnarbrú 14, Höfn í Hornafirði. NT óskar vinningshöf- um til hamingju og biður þá að hafa samband við blaðið vegna afgreiðslu vinninganna.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.