NT - 25.09.1985, Blaðsíða 15

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 15
Midvikudagur 25. september 1985 15 Umsjón: Þorsteinn G. Gunnarsson ■ Hvar var allt fólkið? Ég átti von á fullu húsi en sú var ekki raunin, bíósalurinn var rétt tæplega hálfsetinn. Furðulegt, jazzunnendur fagna 10 ára starfsafmæli Jazzvakningar, það er boðað til tónleika helstu merkisbera íslenskrar tónlistar á erlendri grund, en landinn sýndi ekki áhuga. Eru strákarnir í Mezzoforte kannski búnir að fullmetta markaðinn hér heima? Sumir halda því reyndar fram, en þeir sem það gera hefðu að skað- lausu getað sest í sal Háskóla- bíós laugardaginn 14. sept- ember síðastliðinn, því þar lék jazzhljómsveitin Mezzoforte. Góð byrjun Strákarnir geta gert meira en spila fjúsjon. Bróðurpartur hljómsveitarinnar sannaði það á ófétisplötu Tómasar R. Éin- arssonar að þeir leika sér að jazzinum og tónleikarnir urðu ekki til að má þann stimpil af þeim. Það var farið að nálgast hlé þegar tónleikarnir loksins hóf- ust og byrjunin lofaði góðu. Lagið var Fiona eftir Friðrik Karlsson, hressilegt lag sem finna má á plötunni Rising. t>á kom lag Eyþórs, This Is Not The Night, stórgott lag, krydd- að skemmtilegum sólóum og skemmtilegum samleik þeirra á milli. Síðan leyfðu þeir okkur að heyra brot af efnisskrá hljóm- sveitarinnar Steps Ahead, en Mezzoforte hefur einmitt leik- ið á tónleikum og jazzhátíðum þar sem sú hljómsveit var einn- ig á dagskrá. Lagið var Pools og fór Friðrik á kostum. Það er makalaust að fylgjast með drengnum á sviði. Hann nær ólíklegustu hljóðum úr galdra- gítarnum, sólóin eru stórgóð og það sem meira er, hann virðist ekkert hafa fyrir þessu, sólóin bara koma. Pools var eina útlenda lagið sem flutt var fyrir hlé. Næst kom E.G. blúsinn hans Eyþórs og síðan var slappað af undir ljúfum tónum í laginu Rising. Gestirnir Þegar áhorfendurnir tíndust í salinn eftir hlé, stóð hljóm- sveitin á sviðinu og beið. Það var allt í lagi, við biðum svo lengi eftir því að tónleikarnir hæfust. Lögin eftir hlé voru flest erlend. Fyrst var lag eftir aðal- gest tónleikanna, ástralska saxafónleikarann Dave Barlow. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem leiðir Barlows og Mezzoforte lágu saman, því það var hann og enginn annar sem blés í saxafóna á Rising plötunni. Barlow byrjaði rólega, en hlutur hans óx eftir því sem leið á tónleikana og hann varð betri og betri. í sannleika sagt þá var hann alveg frábær, hvort sem um var að ræða sóló eða samleik með strákunum. Það fór lítið fyrir honum á sviðinu, þegar aðrir stóðu í stórræðum gekk hann til hliðar og fékk sér sæti, svo hann yrði ekki fyrir á annars stóru sviði Háskóla- bíós. Kurteis maður hann Barlow. Hinn gestur tónleikanna er einhver bjartasta vonin í dönsku djasslífi, trompet- leikarinn Jens Winter. Hann var kallaður á sviðið til að blása með strákunum í síðustu þremur lögunum og sá danski kann svo sannarlega að blása, eins og hann sannaði réttilega á tónleikunum. Hann aðlagað- ist Mezzoforte og Dave Barlow fljótt, þó þeir væru allir orðnir NT-mvndir - Árni Bjarna ■ Já, það er ekki tekið út með sældinni að þurfa að standa undir nafni, en það tókst Dave Barlow á tónleikunum. ingar stóðu þeir líka vel. Jóhann var með allra besta móti. Sólóin hans voru skemmtileg og vel útfærð. Ey- þór fór á kostum, lék jöfnum höndum á rafmagnstæki sín og flygil, hann sannaði það að hann er einn af okkar bestu jazzpíanistum. Gunnlaugur átti góðan leik á trommunum og teknískur er hann og sólóið hans var gott. Friðrik ný galdragítarinn vel og í góc hófi. Ég held að þessum tónlei um verði best lýst með orðu sessunautar míns í lok tónlei anna. „Mikið andsk. er þet góð jazzhljómsveit Mezzoforte." Fríðrik Karlsson í einu af hans ágætu sólóum. heitir og komnir í gott form þegar hann gekk á sviðið. Þetta small allt saman og það var sérlega skemmtilegt að hlusta á samleik blásaranna tveggja, sérstaklega í lokalaginu, Take A Walk, sem var góður endir á góðum tónleikum. Jazzhljómsveit Liðsmenn Mezzolórte eru góðir hljóðfæraleikarar og samleikur þeirra var með ágæt- um, eins og ætla má eftir áralangt samstarf. Sem einstakl-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.