NT - 25.09.1985, Blaðsíða 8

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 8
Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi; Nútíminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Ritstjórnarfulltr.: Níels Árni Lund Framkvstj.: Guömundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gislason Innblaösstj.: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, rilstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknidelld NT. Prentun: Ðlaðaprent h.t. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Áskrift 360 kr. Varnir gegn slysum ■ Á síöasta ári var að frumkvæöi landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins kallaður saman fundur áhuga- manna um varnir gegn slysum. Á þann fund kom einnig fulltrúi alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar í Kaupmanna- höfn. Niðurstaða þessa fundar var sú að kosin var sérstök nefnd til að vinna frekar að málinu. í nefndinni eiga sæti Salome Þorkelsdóttir alþingismaður sem er formaður nefndarinnar, Ólafur Ólafsson landlæknir Gunnar Þór Jónsson yfirlæknirslysadeildar Borgarspítalans, Vilhjálm- ur Rafnsson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins og Haraldur Henrýsson frá Slysavarnafélagi íslands. Þessi nefnd hefur síðan komið saman og rætt um leiðir hvernig megi fá sem flesta til að íhuga þessi mál og aðgerðir til að fækka slysum. Markmið nefndarinnar er þríþætt. í fyrsta lagi að fá aukna fræðslu í skólum um slysavarnir og þá ekki síst tengt umferðinni. í öðru lagi að lögleiða viss atriði og í þriðja lagi að vinna að fyrirbyggjandi aögeröum. Allt eru þetta atriöi sem kosta eflaust nokkurn pening en sá pcningur er ekki nema lítið brot af þeim kostnaði sem slysin valda. Það er staðreynd að fræðsla skilar árangri. Marktæk fækkun varð á slysum í umferðinni á árinu 1983 þegar sérstakt átak var gert í áróðri og fræðslu tengdu umferðaröryggisárinu. Þá hefur það sýnt sig að boð og bönn eru nauðsynleg til varnar. Þar skal minnst á notkun bílbelta og öryggishjálma scm sannað hafa gildi sitt. Þá eru hraðatakmarkanir á fjölförnum verslunargötum og í íbúðarhverfum nauðsyn- legur hlutur og sjálfsagður. Slysagildrur eru margar og þeim þarf að fækka og þannig mætti lengi telja. í greinargerð sem Ólafur Ólafsson landlæknir hefur tekið saman um slys á börnum og unglingum koma hrikalegar staðreyndir í ljós. í greinargerð sinni vísar landlæknir m.a til fylgirits landlæknisembættisins „Umferðarslysin og afleiðing þejrra“ eftir Bjarna Torfason lækni. I þeirri skýrslu kemur það fram að rúmur helmingur þeirra sem slösuðust í umt'erð á höfuðborgarsvæðinu árið 1979 voru ungmenni undir 20 ára aldri, og að unglingum á aldrinum 15-19 ára er 4-5 sinnum hættara við slysi en fólki sem komið er yfir 25 ára aldur. Þá segir landlæknir í skýrslu sinni: „í framhaldsskóla með 500 pilta og 500 stúlkur má búast við því að á hverju ári slasist 20-25 piltar og 10-12 stúlkur, sum lífshættulega. Rúmlega 80% þeirra er lentu í vélhjólaslysum í Reykjavík voru í aldurshópnum 15-19 ára. Langflestir þeirra er slösuðust á reiðhjólum voru 5-14 ára og tíðni slysa á gangandi vegfarendum var hæst meðal barna og unglinga, hámarkið var í 5-9 ára aldurshópnum. Hvað snertir manntjón má að nokkru leyti líkja umferðar- slysum við berklafaraldurinn er gekk hér t’yrr á öldinni." „f 90% tilfella umferðarslysa hjá unglingum má kenna um óvarkárni eða æfingaleysi. Allflestir ungir ökumenn nota ekki bílbelti, og 50% slysa á gangandi börnum 14 ára og yngri verða vegna þess að þau hlaupa skyndilega út á akbraut í veg fyrir ökutæki.“ Allt þetta eru ógnvekjandi staðreyndir og fullyrða má að langflestir hafa ekki gert sér grein fyrir þeim. En hvað er til ráða? Líf hvers einstaklings er mikilsvert og það dýrmætasta sem hann á. Hjá ungu fólki blasir lífið framundan og það hugsar ekki of mikið um það hvers virði það er að vera heilbrigður eða hvernig það á að gæta heilsu sinnar. Slysin gera ekki boð á undan sér og fyrr en varir getur ógæfan dunið vfir með svo miklum harmleik að aldrei verður um bætt. Ábyrgð fullorðinna er mikil. Þeir eru uppalendurnir, þeirra er að setja reglur og þeirra er að l'inna leiðir til úrbóta - jafnvel þótt það kosti fjármuni. Flest slysin verða á kvöldin og um helgar og það kostar verulega fjármuni að kalla út aukavaktir til að sinna þeim. Betra væri að verja þeim fjármunum í varnir gegn slysunum. Nefnd sú er að framan greinir hefur kallað saman forsvarsmenn í æskulýðsstarfi og vill með því hvctja þá aðila til að kynna sér þessi mál og fá þá til að kynna ungu fólki þá hættu sem yfir þeim vofir. Á ári æskunnar ættu æskulýðsfélög landsins að taka sig saman og vinna að kynningu og úrbótum á þessum málum, hvert innan sinna raða á þann máta sem þau telja að bestum árangri skili. Miðvikudagur 25. september 1985 8 Vettvangur Sunnudagsleiðari og kjötsala ■ Sunnudagsleiðari Alþýðu- blaðsins 7. þ.m. er með þeim ósköpum að ekki má þegja við honum. Enda þótt vera megi að fáir lesi blaðið eru tilburðir þess hvorki betri né verri vegna þess. Leiðari þessi nefnist: Sjálf- stæði búvörudeildar og virðist saminn undir áhrifum frá stofnfundi félags sauðfjár- bænda á Hvanneyri. Þess var von að forstöðumenn þess fundar birtu einhverja athuga- semd við leiðarann. Það hefur ekki sést en vera má að fáir þeirra hafi séð blaðið. Alþýðublaðið segir frá því að á fundinum hafi þeir dr. Sigurgeir Þorgrímsson og Gunnar Páll Ingólfsson gert „grein fyrir könnunarferð sinni til Bandaríkjanna vegna hug- sanlegs markaðar þar fyrir ís- lenskt lambakjöt". Tekið er fram að „auðvitað tæki það nokkur ár að auglýsa vöruna upp“. Samkvæmt því hafa þeir hvorki boðað skjóta né örugga lausn í markaðsmálum enda þótt eina vonin um þolanlegt verð einhverntíma síðar meir væri að þeirra dómi bundin við Bandaríkin. Að þessari frásögn lokinni segir blaðið að forstöðumaður Búvörudeildar SÍS hafi gert lítið úr „ferð þeirra félaga“ og meðal annars fullyrt að þeir hefðu lofað bændum 200% hærra verði en þeir fengju nú fyrir útflutning og hafi þar vísvitandi farið rangt með. Sannleikurinn er þó sá að for- stöðumaðurinn benti á að til þess að gera útflutningsbætur óþarfar þyrfti 200% hækkun og virðist enginn ágreiningur um það. Hins vegar segir Al- þýðublaðið að „aldrei vartalað um ákveðið verð heldur um það rætt að auglýsa íslensku vöruna sem lúxusvöru á háu verði og sjá til hvernig til tækist". Nú er það að sjálfsögðu misjafnt hversu bjartsýnir menn eru í þessu sambandi. En Alþýðublaðið segir að „ein- okunarhringurinn SÍS“ hafi engan áhuga að selja kjöt á góðu verði „af því það skipti engu máli hvað fengist fyrir vöruna, geymslugjaldið og sölulaunin voru alltaf gulltrygg". í framhaldi af því segir blaðið að forstöðumaður búvörudeildar „mun gera allt sem í hans valdi stendur til þess að markaðsöflun í Banda- ríkjunum mistakist". Með því sé hann „að verja eigin æru“. Þetta eru óvenjulega sví- virðilegar ásakanir. Búast mátti við brigslum um sinnu- leysi og sljóleika en hér verður rógurinn svo ofstækisfullur að fáir munu trúa. Víst gætu Magnúsi Friðgeirssyni verið mislagðar hendur þó að honum væri ekki kappsmál að salan gengi sem verst. Dr. Sigurgeir fær væntan- Þetta eru óvenjulega svívirðilegar ásakanir. Búast mátti við brigslum um sinnuleysi og sljóleika en hér verður rógurinn svo ofstækisfullur að fáir munu trúa. rSUNNUDAGSLEIÐARI- Sjálfstæði Búvörudeildar Ovenjumikið hetur verið rætt og ritaö um landbúnaðarmál i sumar. í fyrsta lagi varð mikil umræða um hin nýju framleiðsluráöslög sem samþykkt voru sfðastliöiö vor og I ööru lagi vakti athygli hin nýju félög sauöfjár- og kúa- bænda, sem stofnuö hafaveriö aö undanförnu. Á stoínfundi JSambands sauöfjárbænda, sem haldinn var á Hvanneyri 17. og 18. ágúst sl. geröu þeirdr. Sigurgeir Þorgrlmsson og Gunn- ar Páll Ingólfsson greln fyrir könnunarferð sinni til Bandarikjanna vegna hugsanlegs markaöar þar fyrir Islenskt lambakjðt. Tðldu þeir félagar bandarlska markaðinn vera þann eina sem kæmi til greina aö þvl er varöaöi auk- inn útflutning þessarar vöru á þolanlegu veröi. Auövltaö tæki þaö nokkur ár aö auglýsa vöruna uþþ og hún þyrftl aö vera samkvæmt óskum kaupenda en ekki eins og seljendum þóknaö- ist. Þaö var þvl samdóma álit manna aö kanna þetta mál til hlltar áöur en fariö yröi I stórkost- legan niöurskurð sauðfjár og þar meö fækkun bænda um nokkur hundruð. Þaö hefur hlns vegar ekki staöiö á þvl, aö for- stöóumaóur Búvörudeildar S.Í.S., þeirrar deild- ar sem á aö fara meö markaös- og sölumál, hef- ur gert eins lltlö úr ferö þeirra félaga eins og unnt erbæði I ræðu og rltl. M.a. fullyrti hann aö tvlmenningarnir heföu lofaö bændum 200% hærra veröi fyrir afuróir slnar en þelr fengju nú fyrir útflutninginn og útflutningsþætur yröu því óþarfar með öllu. Þarna var fariö vlsvitandi rangt með þvl aö aldrei var talaö um ákveöiö veró heldur um þaö rætt að auglýsa Islensku vöruna sem lúxusvöru á háu verði og sjá til hvernig til tækist. Svo sem haldiö hefur veriö fram hér á þess- um vettvangi er þaö mál manna, aö einokunar- hringurinn S.i.S. hafi brugöist I kjötsölu ti, Bandarlkjanna. Áhugl hefur ekki veriö fyrir hendi, af þvl aö þaö skiptl engu máll hvað feng- ist fyrlr vöruna, geymslugjaldiö og sölulaunin vorualltaf gulltrygg. Þaöer þvl ofureölilegt, aö framkvæmdastjóri Búvörudeildar geri gys aó þeim, sem állta aö Islenskt lambakjöt sé ein- hvers virðl. Hann er aö verja eigin æru og mun þvl geraallt sem I hans valdl stendur til þess aö markaðsöflun I Bandarfkjunum mlstaklst. Þaö er þvl I hæsta máta varhugavert, aó sauðfjár- bændur fell afurðasöluna I hendur þeim aðil- um, sem hafaengatrú áþvl aö starf þeirra þeri nokkurn árangur og vinna jafnvel gegn þvl. Á Hvanneyrarfundinum var mjog um þaö rætt hvernig lækka mætti kostnaö ínnaniands. Meöal annars var þaö upplýst, aö sláturkostn- aöur hjá Kaupfélagi Þingeyinga, Húsavlk haustió 1983 heföi veriö kr. 22,5 milljónir, þar af voru 5,5 millj. króna vinnulaun og 0,5 milljónir umbúðir. Eftir standa 16,5 millj. kr. sem eitt- hvaö var óljóst hvernlg til væru komnar. Áriö 1983—84 fékk sama félag tæplega 10,5 millj- ónir kr. I geymslugjald og um 6 milljónir urðu bænduraógreiöatil búvörudeildar. Þaöerkall- aö kostnaöarhlutdeild og jafngilti árslaunum 35 bænda. Einn bóndinn upplýsti og bauö framkvæmdastjóra Búvörudeildar aö leiörétta, ef rangt væri farið meö, aö 12—15 manns væru álaunum hjádeildinni, en samt stæði hún und- ir einum sjðtta hluta af öllum kostnaöi vegna skrifstofuhalds Sambandsins. Engar athuga- semdir komu fram um þessar upplýsingar. Þaö er þvl brýn nauðsyn, aó ályktun bænda- fundarlns á Hvanneyri um sjálfstæði búvöru- deildarinnar komlst I framkvæmd. Stjórn henn- ar verói skipuö bændum, hún fái sjálfstæóan fjárhag og losni þannig undan forstjóraveldi Sambandsins. B.P. Ríkissjóður auglýsir ■ Nokkur sérstakur auglýs- andi kvað sér hljóðs fyrir nokkrum mánuðum. Sá aug-, lýsandi er ríkissjóður íslands. Ekki var neitt undarlegt við það að ríkissjóður færi að aug- lýsa, þar sem hann tók upp á þeirri nýbreytni að selja eignir sínar og er það í fullu siunræmi við það sem aðrir gera þegar þeir vilja bjóða vöru sína til kaups. Sérstaklega hefur mikil áhersla verið lögð á að auglýsa ríkisskuldabréf og bæði falleg- ar og frumlegar auglýsingar notaðar til að kynna lands- mönnum þá vöru, - eða a.m.k. sumum. Þessar auglýsingar eru ekki ókeypis freicar en aðrar og verður ríkissjóður að verja milljónum í auglýsingar til að standast samkeppni á þessu sviði. Þessar milljónir fá m.a. þeir aðilar sem auglýst er hjá eða a.m.k. sumir. Til að auglýsing nái góðum árangri þarf hún að hafa marga kosti og má þar nefna að hún sé traustvekjandi og að lands- menn taki eftir henni. Til að þessum skilyrðum sé fullnægt eru síðan valdir fjölmiðlar til að koma auglýsingunni á fram- færi. Allir vita að sjónvarpið er< sterkur auglýsingamiðill og lík- lega sá alsterkasti í okkar landi. Enda hefur ríkissjóður auglýst þar mikið í frumlegri uppfærstu á leikriti sem fjallar um hjónakorn nokkur sem kynntust í banka o.s.frv. sem allir þekkja. Þetta er skemmti- leg auglýsing sem nær til flestra og gaman er að fylgjast með. Osjálfrátt bíður maður eftir franrhaldi verksins. Nú má um það deila hvort málefni ríkis- sjóðs séu gamanmál eða ekki og hvort svona auglýsingafarsi hæfi fjármálum iandsins. í rnargra augurn eru þau ekkert annað en skrípaleikur og þá sjálfsagt að útfæra þau á þann máta, en í annarra augum eru þau blákaldur veruleiki sem ekki er vert að gaspra með. Ég er einn þeirra sem bera hag ríkissjóðs fyrir brjósti en ekki þó á þann máta að ég fordæmi auglýsingar sem þær sem birtast okkur á skjánum. Ég tel þær hitta í mark þar, sem ætlunin er að fólk taki eftir þeim og tel ég að það takist. Gullfallegur (slandsfálki Annar þáttur auglýsinga- gerðar ríkissjóðs er hinn gull- fallegi íslandsfálki sem breiðir út vængi sína og verndar ís-, lensku krónuna og eykur verð- gildi hennar. Þessi auglýsing hefur birst í dagblöðum lands- ins - eða a.m.k. sumum og er landsmönnum kunn, þó mis- jafnlega eins og til er ætlast. Þessi auglýsing er mjög falleg og eftirtektarverð, enda ekkert til hennar sparað hvorki í lit né stærð. Að mínu áliti ætti þessi aug- lýsing að höfða vel til þeirra sem vilja ávaxta sitt fé en þó er nokkur ljóður þar á sem ég vil benda á. Birting hennar er með því sniði að menn skilja fyrr en skellur í tönnum til hverra hún á að höfða og til hverra ekki, nema fyrir kurt- eisis sakir, enda nokkuð víst að það eru ekki nálægt því allir sem geta leyft sér þann munað að kaupa ríkisskuldabréf. Flestir þurfa einungis að borga skuldabréf sem er miklu ein- faldari athöfn og þarf ekki auglýsingar við. Morgunbladsþáttur ríka Með fáum undantekning- um eiga dagblöð landsins sér það sameiginlegt að þau gera ekki betur fjárhagslega en að gera í blóð sitt, þ.e. lifa rétt af

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.