NT - 25.09.1985, Blaðsíða 24

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 24
 ........................................................................"........................................"................................................. ___________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ A I SIMA 68- Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur íyrirhverja ábendingú sem leið ir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 ~..............................|....b|........| |.............— Bækur, Ijóð, leikrit og fleira spennandi En það er líka ýmislegt fleira á dagskrá í Gerðubergi á vegum Listahátíðar, Ljóðaupplestur, tónleikar og leikdagskrá. „Á fimmtudaginn 26. september klukkan 2I verður þriðji hluti ljóðadagskrárinnar,“ segir Guðrún Bachmann „og þá verða flutt Ijóð sem tengjast trúnni.“ Og bætir því við að Ijóðin tengist ekki endilega kristinni trú. „Til dæmis líka trú á persónulegan bláan guð í steini,“ segir Auður lágum rómi. „Og á laugardag 28. sept- „Þetta er þreifisýning,“ segir Elísabet ákveðin, „það má svo sannarlega konia við bækurnar, fletta þeim og skoða.“ „Og hér eru ekki bara bækur til sýnis,“ bætir Auður við brosandi," því hér eru líka bókaskreytingar og svokölluð bókverk. Um 40 kon- ur eiga myndskreytingar í bók- unr á sýningunni og þar af eru frummyndir eftir 10 konur. Sumar konurnar myndskreyta bækur sínar sjálfar eins og til dæmis Ásta Sigurðardóttir, Gréta Sigfúsdóttir, Nína Tryggvadóttir, Þóra Jónsdóttir og Sigríður Björnsdóttir og eru ■ Á myndinni sjáum við hluta kvennanna sem við spjölluðum við. „Æ, ekki taka mynd af okkur, takiði heldur mynd af verkunum,“ sögðu þær en það var engu tauti komið við hann Áma Bjarna Ijósmyndara. Hann gaf sig ekki. Frá vinstri: Guðrún Bachmann, Þórdís Þorvaldsdóttir og Auður Olafsdóttir. - NT lítur inn í Gerðuberg til að kanna hvað er þar á seyði á vegum Listahátíðar kvenna ■ Þegar Listahátíð kvenna er orðin 5 daga gömul lítum við inn í Gerðuberg. Þar stendur nú yfir sýning á bókum og bóka- skreytingum. Þær taka elsku- lega á móti okkur NT-fólki, þær Auður Ólafsdóttir, listfræðing- ur og Þórdís Þorvaldsdóttir' borgarbókavörður, Guðrún Bachmann sem sér um Ijóða- dagskrá Listahátíðar, Gerla framkvæmdastjóri Listahátíð- ar, Erla Kristín Jónasdóttir safnvörður og Elísabet Þóris- dóttir forstöðumaður Gerðu- bergs og leiða okkur um húsa- kynnin. Sýningin er nefni- lega í öllu húsinu, og í hverjum krók og kima eru bækur og á veggjunum tróna bókaskreyt- ingar. þannig bæði myndlistarkonur ogskáld eða rithöfundar." „Já,“ segir Þórdís. „Þetta er svo lítil þjóð, hvernigfæri fyrirokkuref hver manneskja gegndi bara cinu starfi?,“ spyr hún hlæjandi. „Einmitt," segja allir viðstaddir og hlæja. En bókverk, hvað er nú það? „Jú,“ skýrir Auður út, „bókverk eru hvorki bókmenntir né myndabækur,heldur sjálfstætt Iistform. Átta konur eiga bók- verk á sýningunni og þær velta fyrir sér í verkum sínum hvert eðli og hlutverk bóka sé og vinna með formið. Bókverk geta til dæmis verið bækur sem má rífa eða götótt bók og svo framvegis." ■ Og önnur blaðsíða úr bókverki Guðrúnar Tryggvadóttur Máluð dagblÖð frá New York Og Reykjavík. NT-mynd: Árni Bjarna. Bókverkin heita forvitnileg- um nöfnum. Þarna má til dæmis sjá bókverk eins og „Ég í vasa- brotsútgáfu“ og „Katalóg um stærðir og fæðingarbletti“, eftir Guðrúnu Tryggvadóttur, „Bók handa besta vini mínum, honum Vidda“, „Bók handa Gylfa Gísla með auðum síðum fyrir umhugsunarefni“ og „Til að gefa blíðasta smápoppara í heimi“, eftir Gerlu og „Fjalia- hringur Reykjavíkur frá vestri til vesturs“, eftir Sólveigu Aðal- steinsdóttur. En bókverkin sjálf eru ennþá forvitnilegri en nöfn- in og það er mjög auðvelt að gleyma bæði stað og stund þegar maður kemst í tæri við þau. Til dæmis eitt loðið bókverk eftir Gerlu „Dagbók, nóvember 1982“ þar sem hárlokkar af listakonunni eru geymdir. „Þetta sýnir eiginlega hversu oft ég greiddi mér þessa daga og hversu mikið hárlos ég hafði en á þessum tíma var ég með alveg óskaplega sítt hár,“ segir Gerla og hlær. „Bókverkin gefa mörg nýja og persónulega mynd af listakonunum," bætir Auðurvið ákveðin. Og þess má geta að í sýningarskránni er að finna lista yíir allar bækur eftir konur sem komið hafa út á íslandi frá upphafi, bækur eftir um 230 konur en titlarnir eru á áttunda hundrað. Þetta er fyrsta skráin sinnar tegundar sem gerð hefur verið á íslandi. ember verður fjórði hluti Ijóða- dagskrárinnar og þá fjalla ljóðin um lífið,“ segir Guðrún. „Fjöldi skáldkvenna kemur fram á báð- um dagskránum, til dæmis Elísabet Jökulsdóttir, Elísabet Þorgeirsdóttir, Steinunn Sig- urðardóttir, Ingibjörg Haralds- dóttir, Vilborg Dagbjartsdóttir, Hallgerður Hauksdóttir og vinkonur hennar. Skáldkonur frá 17 ára aldri til áttræðs en svo má auðvitað ekki gleyma ljóð- unurn sem verða flutt eftir skáldkonur sem nú eru látnar.“ Sunnudagskvöldið 29. sept- ember verður svo flutningur á leikdagskránni úr verkum Jak- obínu Sigurðardóttur sem er framlag Leikfélags Reykjavíkur til Listahátíðarinnar og sunnu- dag 20. október verða blandaðir tónleikar í hátíðarlok en þá verður flutt úrval af því sem flutt hefur verið á tónlistardag- skrá Listahátíðar kvenna. Og bóka- og bókaskreytingasýning- in stendúr yfir allan þennan tíma og er lengsta sýning hátíð- arinnar. En hversu góð hefur aðsóknin á hátíðina verið svona í upphafi hennar. „Aðsóknin hefur verið mjög góð“ segir Gerla og þær Guðrún og Auður segja að aðsóknin að Ijóðadagskránum og bóka- og bókaskreytinga- sýningunni hafi verið mjög góð. „Og hingað í Gerðuberg ganga strætóleiðir 12 og 13, vagnarnir ■ Ein blaðsíða úr bókverki Guðrúnar Tryggvadóttur Máluð dagblöð frá New York og Reykjavík frá árinu 1982. NT-mynd: Árni Bjama stoppa beint fyrir framan húsið,“ segir Elísabet. „Og það er ekkert langt að koma hingað neðan úr bæ,“ bætir hún við ákveðin og Þórdís og Erla Krist- ín segja okkur frá því að bráð- um muni hefjast sögustundir fyrir börn, þ.e. lesið fyrir börn upp úr bókum en það verði auglýst síðar. Og svo má auðvitað ekki gleyma því að aðgangur á alla dagskrá Listahátíðar kvenna í Gerðubergi (og reyndar víðar) er ókeypis. Og í þann mund sem NT heldur úr hlaði undrast blm. hvað þessi listahátið er óskap- lega viðamikil. Þetta er bara það sem verður um að vera í Gerðubergi á hátíðinni en Lista- hátíð kvenna teygir anga sína í allflestar listgreinar og er bók- staflega út um alla Reykjavík. ■ Og næturdrottningin... Nætur og konur eiga saman því konur hafa sjaldnast haft tíma til skrifta eða myndlistar nema um nætur, þegar heimilisfólk er komið í ró. „En þær konur sem eiga bókaskreytingar á sýningunni hafa ekkert viljað flíka þessum verkum sínum og við höfum þurft að draga sum verkin inn á sýninguna með töngum,“ segir Auður Ólafsdóttir listfræðingur. NT-mynd: Ámi Bjama

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.