NT - 25.09.1985, Blaðsíða 14

NT - 25.09.1985, Blaðsíða 14
Blönduósingar - Blönduósingar Almennur borgarafundur um sjávarútvegsmál og hafnaraö- stööu á Blönduósi veröur haldinn á Hótel Blönduósi þriöjudag- inn 1. október kl. 20.30. Dagskrá: 1. Hver er framtíð útgeröar frá Blönduósi. Halldór Ásgrims- son, sjávarútvegsráöherra. 2. Hver er afstaða þingmanna Framsóknarflokksins á Noröur- landi vestra til útgerðar og hafnarframkvæmda á Blönduósi. Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson alþingismenn svara þvi. Dagskrá nánar auglýst síöar. FUF A-Húnavatnssýslu. Alexander Stefánsson félagsmálaráöherra og Davíð Aðal- steinsson alþingismaöur, halda almenna stjórnmálafundi sem hér segir: Miðvikudag 25. seþt. kl. 21 Lionshúsinu Stykkishólmi Fimmtudag 26. sept. kl. 21 Safnaöarheimilinu Grundarfirði Föstudag 27. sept.kl. 21 Mettubúö Ólafsvík Fundur á öörum stöðum í kjördæminu auglýstir síðar. Framsóknarflokkurinn Kópavogur Félag ungra framsóknarmanna i Kópavogi heldur aðalfund sinn aö Hamraborg 5, miðvikudaginn 25. september kl. 20.30. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Erindrekstur Sambands ungra framsóknarmanna. 3. Önnur mál. FUF hvetur alla framsóknarmenn til aö mæta. Stjórnin. Reykjanes Aöalfundur launþegaráðsins veröur haldinn aö Hverfisgötu 25 í Hafnarfirði, fimmtudaginn 26. september 1985, kl. 20.30. Fulltrúar í launþegaráðinu eru hvattir til þess aö mæta stundvíslega. Stjórnin. Til sölu Mæðradagsplattar frá Bing & Gröndal árg. 1970-1979 til sölu. Upplýsingar í síma 24193 eftir kl. 19. Dráttarvél til sölu Belarus árg. 1982, fjórhjóladrifs með tvívirk- um ámoksturstækjum. Upplýsingar í síma 96-44113. t Hjartans þakkir til allra nær og fjær, sem vottuðu okkur hluttekningu sína vegna andláts eiginkonu minnar og móöur okkar Ragnhildar Kristófersdóttur Bugðulæk 8 Sérstakar þakkir til þeirra sem hjúkruðu henni á heimili hennar' og starfsfólks hjúkrunardeildar á Heilsuverndarstööinni. Jón Ágústsson og börn. Miðvikudagur 25. september 1985 14 Ingólfur Davíðsson: Eiturjurtir og lækningajurtir ■ Skörp takmörk eru naum- ast þar á milli aö jafnaöi. Það fer mest eftir stærð skammt- anna hvort áhrifin veröa lækn- andi eöa valda eitrun. Ýmsar jurtir eru í senn eiturjurtir og læ k n i nga j u r t i r. Grasdrjólar (Claviceps) sem hér sjást oft á grastegundum, stærstir á mel- grasi. cru t.d. mjög eitraöir, en úr þeim eru líka unnin lyf, oftast úr rúgdrjólum. Er þá rúgurinn smitaöurog ræktaður til þess. En hættulegt er ef drjólarnir lenda í rúgmjöli, en á því bar talsvert fyrr á tí.mum. Fingurbjargarblóm er annað dæmi um eitur- og lækninga- jurt. Þaö er eiturjurt, en lyf eru unnin úr henni til hjarta- lækninga. Rætt veröur hér á eftir um íslenskar eiturjurtir, eða ræktaðar hér á landi, og í annarri grein um íslenskar lækningajurtir. Eiturjurtir Eina verulega eitraða ís- lenska blómjurtin er ferlaufa- smári (Paris Quadrifolia). Þetta er enginn smári, þrátt fyrir nafnið, en liljuættar. Og ekki vex hann átúnum. heldur í kjarri og hraungjótum hér og hvar um landiö. Ferlaufasmári er auöþekktur á fjórum stórum. breiöum blöðum sem sitja í kransi á stöngulendanum (sjá mynd). Upp úr blaðkrans- inum vex síðan grannur blóm- leggur, sem ber lítilfjörlegt gulgrænt blóm. Seinna þrosk- ast í blóminu eitt stórt dökk- blátt ber, mjög eitrad. Jarö- síöngullinn er líka eitraóur. og má hvorki ber né jaröstöngull leiula í munni og maga. Eitrið heitir paristypknin. Eiturein- kenni eru ógleði, uppsala og niðurgangur. Einnig verkir í þarma og blöðru. Ber strax að leita læknis ef eitrunar verður vart. Sóleyjar eru ofurlítiö eitrad- ar. Ef blóm sóleyjar liggur lengi við viðkæma húð, t.d. í munni, getur það valdið blöðrum. Betlarar erlendis notuðu sóleyjartegund til að framkalla blöörur a húðina til að vekja meðaumkvun og fá gjafir. Eitraðar skrautjurtir í görðum og innanhúss Lítum fyrst út í garðana. Þar er t.d. Venusvagn, algeng skrautjurt, sem margir þekkja á löngum, stinnum stöngli, sem veröur alþakinn bláum blóm- um seinni hluta sumars og langt fram á haust. Blöðin eru svipuð og á frænku hans sóleyj- unni. / allri þessari jurt eru eitruð efni, Eitrunareinkenni koma fljótt í ljós ef jurtahlutar komast í munn og maga. Fyrst dofnar tilfinning í tungu og munni. en síðar fylgir óglcði og uppköst. Líkamshiti lækkar og slær út hrolli. Það hægir á starfsemi hjartans. Eitrið í Venusvagni var fyrrum notað sem örvaeitur og til að eitra fyrir úlfa. Úlfsbani cr gamalt enskt nafn á jurtinni. Fingurbjargarblóm (Digital- is) er önnur eiturjurt sem rækt- uð er hér í görðum. Hún er hávaxin með stór, heil blöö í hvirfingu við jörð og á stöngl- inum mörg og stór, rauð eöa hvít fingurbjargarlaga blóm. Jurtin er öll eitruð og verkar eitriö á starfsemi hjartans og getur lamað það. En eitrið er og notað til hjartalækninga, en mikla nákvæmni þarf við notk- un þess, ella getur farið illa. Netnd skal þriðja varasama jurtin, en það cr bjarnarkló (Herakleum giganteum). Hún líkist risavaxinni hvönn, cnda sömu ættar. Veröur 2-3 m á hæð með störa hvíta blóm- svcipi og afstór blöð. Ef komið er vió bjarnarkló getur það valdið klæjandi útbrotum og bólgu í húðinni. einkum ef komið er við sár á brotnum stöngli cða blaði - og mest í sólskini, þó einkennilegt sé. Kartöflur eru algeng, holl matvara. En ef sól skír. á þær til lengdar. einkum nýlega uppteknar, verða þær grænar og dálítið eitraðar. í sólarbirtu myndast sem sé í þeim óhollt efni, solanin, einkum út við hýðið. Aldin kartöflugrassins, grænt ber, er talsvert eitrað. Fleiri varasamar jurtir eru til í görðum. Eitt eitrað tré er allvíða ræktað, en það er gullregn, auðþekkt á allstórum, þrífingr- uðum blöðum. Gullregn er aðallega ræktað vegna blórn- anna, en þau sitja mörg saman í löngum, fagurgulum hang- andi skúfum, mjög skrautleg- um. Allt er tréö eitraö, en langhættulegastir eru aldin- belgirnir og frxin í þeim sem líkjast litlum baunum, og mega alls ekki lenda í munni og maga. Eitureinkenni eru þorsti, sviti, brunaverkir í hálsi. svimi. magaverkir og þrálát uppköst. Sjáaldur stækka og andardráttur getur oröið erfiður. Eitrið kallast Cytisin. Þeir sem rækta gull- regn ættu að skera blómskúf- ana af, þegar þeir fara að visna. svo öruggt sé að aldin myndist ekki í þeim. Eitraðir sveppir hér á landi Kunnastur þeirra og frægast- ur mun vera berserkjasvepp- ur (Amanita muscaria). Hann er stór og skrautlegur, hattur- inn rauður með hvítum dílum. Eftirlíkingar berserkjasvepps eru oft á markaði sem jóla- skraut og munu því flestir þekkja hann. Svepptur þessi vex hér allvíða í skóglendi, en sjaldan fer að bera á honum fyrr en á haustin. Sjaldan er banvænt að eta berserkjasvepp, en slæm- um eitrunum getur hann samt valdið. Menn geta fengið æði og leikur grunur á að berserkir til forna liafi neytt sveppsins á undan orrustum til að geta gengið berserksgang um stund, en síðar fylgir magnleysi og djúpur svefn, ef mikils er neytt. Oft fylgja ofsjónir marg- víslegar og í svefni miklir draumar. „Gjaldið” er a.m.k. miklir timburmenn á eftir. Gegn eitrun af sveppnum eru m.a. notuð lyf sem valda bráðri uppsölu og niðurgangi. Berserkjasveppur vex víða um lönd og notuðu frumstæðar þjóðir hann sem fíknilyf og þurrkuðu til geymslu. Þurfti þá að tyggja hann um stund til þess að áhrifin kæmu í ljós og varð mönnum óglatt af. Fengu menn, að sögn, konur sínar eða unnustur til að tyggja sveppinn fyrst og gerðu sér síðar gott af tuggunni! Grasdrjólar, meldrjólar, melskítur! Það er sníkjusvepp- ur í blómaxi grasa, verður hér stærstur og varasamastur í mel- grasi (sjá rnynd). Sveppurinn myndar svarta, harða, oft íbogna keppi sem standa út úr blómöxunum þegar líður á sumarið. Þessir svörtu keppir eða drjólar eru mjög eitraðir og mega ekki lenda í munni og maga. Einkenni eitrunar eru fyrst ógleöi og höfuöverkur og sjón byrjar aö dofna. Þarf því strax að leita læknis. Einkenni geta einnig verið sinateygjur í höndum og fótum, niðurgang- ur, roði og blöðrur á húð, er loks blánar og kólnar, ef um mikla eða langvarandi eitrun er að ræða. Erlendis hefur eitrun af völdum þessa svepps verið illræmd öldum saman, talið að hún gæti m.a. leitt til geðveiki. Sveppurinn sækir mikið á rúg og gat síðar lent í rúgmjöli. Voru talsverð brögð að því áður en mönnum var orsaka- samhengið ljóst. Nú er útsæð- iskorn víða sótthreinsað gegn þessum og fl. sveppum. Oft eru notuð svo sterk sótt- hreinsunarlyf að útsæðiskornið verður hættulega eitrað. alger- lega óhæft til matar og fóðurs. Það er stundum litað rautt í viðvörunarskyni. Hér á landi vaxa ýmsir góðir matarsvepp- ar. en því miður einnig nokkrir eitraðir eða varasamir. Etiö því aldrei svepp nema þiö þekkiö hann og vitiö að hann sé hæfur til matar. Eitraðar jurtir innanhúss Nefnd skulu dæmi um vara- samar gróðurhúsa- og stofu- jurtir, ræktaðar til skrauts. Verður að umgangast þær með varúð og gæta þess vandlega að börn nagi þær ekki né sjúgi. Skal hér fyrst nefnd hin al- kunna Neria (lárviðarrós) sem er sígrænn runni með stór heil biöð og stór skrautleg blóm oftast rauð. ( Neríu er hjarta- lamandi eitur. sem verkar all- svipað eitrinu í fingurbjargar- blómi. Eitrunareinkenni eru þau að hægir á æðaslætti. Seinna verður hjartsláttur ó- regulegur og fylgt getur andar- teppa og krampi. Ljósop víkkar. Dalalilja (Fonvalaris majal- is) er ræktuð á stöku stað og stundum flutt inn til afskurðar og þá höfð í vatni, en það verður fljótt eitrað. Jurtin er auðþekkt á einhliða klasa hvítra, klukkulaga blóma. Dalalilja er eitruð og verkar á hjartað. Veldur einnig ógleði, niðurgangi og svima. Dauða- slys hafa hlotist af því erlendis að drekka vatn, sem dalaliljur hafa staðið í. Safi fleiri stofu- blóma er eitraður þó í minna mæli sé. Má þar til nefna dílarunna (Dieffenbachia) jólastjörnu o.fl.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.