24 stundir - 19.07.2008, Side 14
14 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 24stundir
Upplýsingar í símum 845-1425 / 899-1295
www.kgbtours.is
Ástralía
frá 12. til 29. okt. 2008.
Heillandi ferð, ósnortin náttúra, kóralrif með öllu sínu
lífríki, hvítar strendur og þjóðgarðar.
Heimsókn á vínbúgarð og Australian Zoo, heimili hins
fræga Crocodile Hunter o.m.fl. Verð kr. 468.575 á
mann í tvíbýli.
Allra síðasti séns að komast með í þessa mögnuðu ferð.
Í aðdraganda kosninga í maí
2007 sagði formaður Samfylking-
arinnar að: „Með þessari stefnu-
mótun um hið Fagra Ísland hefur
Samfylkingin tekið þá skýru stefnu
að sú stóriðjustefna sem ríkis-
stjórnin hefur fylgt á umliðnum ár-
um og boðar á komandi kjörtíma-
bili eigi ekkert erindi við
framtíðina. Hún á ekkert erindi við
framtíðina, nú er tímabært að
stokka upp spilin, gefa upp á nýtt
og gefa náttúrunni betri spil á
hendi en hún hefur haft hingað til.
Samfylkingin mun fylgja þessu
máli fast eftir, þetta verður vega-
nesti hennar inn í nýja ríkisstjórn.“
(Umræður um stefnuræðu for-
sætisráðherra 3. október 2006)
Hvað fékk Samfylkingin?
Því miður verður að segjast að
Samfylkingin hefur ekki fylgt þessu
máli fast eftir. Nú hefur formaður
hennar, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, gefið þá skýringu að Sam-
fylkingin hafi fallist á málamiðlun
um áframhaldandi stóriðjuupp-
byggingu – tvö ný álver – 24 stund-
ir 15. júlí. Er það trúverðug skýring
á því hvers vegna Samfylkingin gaf
eftir þá skuldbindingu við kjósend-
ur að stóriðjustefnan ætti ekkert
erindi við framtíðina. Eða, hvað
fékk Samfylkingin – kjósendur
hennar – í staðinn fyrir að falla frá
kröfunni um stóriðjuhlé? Hver var
eftirgjöf Sjálfstæðisflokksins í
stjórnarmyndunarviðræðum?
Hvaða markmið Fagra Íslands hafa
náð fram að ganga með því að fall-
ast á stefnu sem – samkvæmt for-
manni hennar – á ekkert erindi á
við framtíðina? Af hverju greinir
formaðurinn frá þessari eftirgjöf
núna?
Skýring eftir á
„Núna,“ sagði Ingibjörg Sólrún
við 24 stundir: „stöndum við
frammi fyrir allt öðrum hlutum“,
og vísar til breytts efnahagsástands.
Engir slíkar fyrirvarar voru gefnir
við þau markmið sem sett voru
fram í Fagra Íslandi. Á hinn bóginn
leiðir þessi eftir-á-skýring Ingi-
bjargar Sólrúnar hugann að því lof-
orði hennar „að stokka upp spilin,
gefa upp á nýtt og gefa náttúrunni
betri spil á hendi en hún hefur haft
hingað til“. Ef slík uppstokkun –
New Deal Samfylkingarinnar í
náttúruverndarmálum er háð efna-
hagsástandinu, hvers er þá að
vænta af Rammaáætlun?
Í viðtalinu við 24 stundir sagði
formaður Samfylkingarinnar að
grunnhugsunin að baki Fagra Ís-
landi snúist ekki um „hvort það
eigi að byggja álver eða ekki“. Les-
endur Alþingistíðinda munu eiga
erfitt með að trúa því. Sagði ekki
Ingibjörg Sólrún skýrum stöfum
að Fagra Ísland gengi þvert gegn
stóriðjustefnu fyrri ríkisstjórnar?
Loforð formanns Samfylkingar-
innar voru ekki gefin í hita leiksins
heldur var um að ræða vel und-
irbúna ræðu, yfirfarna af helstu
forustumönnum flokksins, sem
mótvægi við stefnuræðu forsætis-
ráðherra í upphafi kosningavetrar
2006/2007. Orð Ingibjargar Sól-
rúnar voru því skýr skilaboð til
kjósenda um að Samfylkingin væri
algerlega andvíg stóriðjustefnu
fyrri ríkisstjórnar.
Rýr trúverðugleiki
Nú lætur formaður Samfylking-
arinnar í veðri vaka að Fagra Ísland
hafi öðru fremur snúist um að-
ferðafræði en ekki stóriðjuhlé, auk
þess sem unnið sé að „öllum meg-
inmarkmiðum Fagra Íslands“.
Í gær minnti iðnaðarráðherra,
Össur Skarphéðinsson, á eitt meg-
inmarkmiða Fagra Íslands; að frið-
lýsa Þjórsárver í heild sinni í sam-
ræmi við tillögu
Umhverfisstofnunar. Það markmið
náðist ekki. Þjórsárver voru smætt-
uð niður í „hið sérstaka votlendi
veranna“ líkt og segir í stefnuyfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar; orðalag
sem ekki útlokar Norðlingaöldu-
veitu. Þessu útspili Össurar var
umsvifalaust hafnað af hálfu for-
sætisráðherra sem þó sagði vera í
lagi að Össur hefði þetta áhugamál.
Hvernig hyggst Ingibjörg Sólrún
fylgja eftir þessu meginmarkmiði
Fagra Íslands?
Eins og mál standa nú er trú-
verðugleiki Samfylkingarinnar í
umhverfismálum ákaflega rýr.
Fagra Ísland færist æ fjær og jafn-
lengi og forustumenn flokksins
gefa skýringar út og suður, þvert á
kosningaloforð og fyrirheit um
nýja tíma í náttúruvernd mun
þetta mál elta Samfylkinguna og
veikja trúverðugleika hennar.
Höfundur er formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands
Hvað er Fagra Ísland?
UMRÆÐAN aÁrni Finnsson
Hvaða mark-
mið Fagra Ís-
lands hafa
náð fram að
ganga með
því að fallast
á stefnu sem
– samkvæmt formanni
hennar – á ekkert erindi á
við framtíðina?
Þjórsárver „Eins og mál standa nú
er trúverðugleiki Samfylkingarinnar
í umhverfismálum ákaflega rýr.“
Umræður í tilefni af vangavelt-
um mínum um þann kost, að
semja um evruaðild við Evrópu-
sambandið (ESB) en ekki aðild Ís-
lands að ESB, hafa staðfest rétt-
mæti þeirrar skoðunar að
lögheimildir séu fyrir ráðherraráð
ESB til slíkra samninga og niður-
staðan yrði bindandi fyrir stofnanir
ESB og aðildarríki, án þess að þau
þyrftu að fullgilda samninginn.
Séu lögheimildir fyrir hendi er
unnt að leita leiða til að nýta þær. Í
þessu tilviki ræðst framhaldið af
stjórnmálavilja hér á landi og inn-
an Evrópusambandsins. Stjórn-
málastefna ESB er mótuð í höfuð-
borgum aðildarríkjanna en ekki af
embættismönnum þess. Vegferðin
hefst hjá ríkisstjórnum ESB-landa
en ekki hjá embættismönnum í
Brussel eða sendiráði ESB í Ósló.
Umræðurnar hafa dregið fleira
fram en þetta. Þar ber hæst hve
þeim, sem vilja leiða Ísland inn í
ESB, er ljúft að beygja sig undir
embættisvilja Brusselvaldsins.
Dæmi um það má sjá í grein eftir
Helgu Völu Helgadóttur, dálkahöf-
und 24 stunda, sem blaðið kynnir
til sögunnar sem „áhugakonu um
ábyrga landstjórn“, þegar hún segir
um mig: „Mér finnst það harla óá-
byrgt af Birni Bjarnasyni dóms-
málaráðherra, sem alla jafna vill
láta taka mark á sér, að slengja fram
þessari hugmynd sinni.“
Helgu Völu finnst ekki aðeins
ámælisvert að ég kynni rökstudda
og réttmæta hugmynd, heldur fell-
ur henni jafnvel enn verr að ég hafi
skoðun á ummælum Percys Wes-
terlunds, sendiherra ESB, og telur
hún mig með því hafa svarað hon-
um „af fullum hroka“. Helga Vala
er auk þess miður sín yfir því „að
svona vitleysisumræða íslenskra
ráðamanna berist út fyrir land-
steinana“ eins og hún orðar það.
Ef íslenskur ráðherra lýsir skoð-
un, sem fellur ekki í kramið hjá
Brusselvaldinu, sýnir hann því
hroka og verður þjóðinni til
skammar með vitleysisgangi. Eitt
er að vilja Ísland í Evrópusam-
bandið, annað að því fylgi sá þræls-
ótti við Brusselvaldið sem orð
Helgu Völu endurspegla. Undir-
gefni af þessu tagi er helsta upp-
spretta þess að þjóðir segja nei þeg-
ar spurt er hvort framselja skuli
meira þjóðlegt vald til Brussel. Að
kenna viðhorf Helgu Völu við
„ábyrga landstjórn“ er hreint öf-
ugmæli – þau leiða til þess að
stjórnin flyst á brott úr landinu.
Höfundur er dóms-
og kirkjumálaráðherra.
Undirgefni og Brusselvald
UMRÆÐAN aBjörn Bjarnason
Eitt er að
vilja Ísland í
Evrópusam-
bandið, ann-
að að því
fylgi sá
þrælsótti við
Brusselvaldið sem orð
Helgu Völu endurspegla.
Percy Westerlund „Ef íslenskur
ráðherra lýsir skoðun sem fellur
ekki í kramið hjá Brusselvaldinu
sýnir hann því hroka.“
Hvers vegna ætti ríkið að taka
lán til þess að hjálpa bönkunum?
Spurninguna þá arna heyri ég dag-
lega. Í vikunni bætti leiðarahöf-
undur 24 stunda um betur og sakar
Framsóknarflokkinn um ábyrgðar-
leysi að kalla eftir skilyrðislausri
eflingu gjaldeyrisforðans.
Í tillögum sem flokkurinn lagði
fram í síðustu viku leggjum við
höfuðáherslu á tafalausa stýri-
vaxtalækkun og umrædda lántöku
ríkissjóðs til stuðnings krónunni og
gjaldeyrisvaraforða landsmanna.
Tillagan er ekki sett fram í
ábyrgðarleysi eins og leiðarahöf-
undurinn heldur fram og ekki af
einskærri umhyggju fyrir auð-
mönnunum sem ráða bönkum
landsins.
Styrkjum hagkerfið
Efling gjaldeyrisvaraforða lands-
manna hefur margþætt hlutverk
sem snertir miklu fleiri en bara þá
sem reka fjármálafyrirtæki í land-
inu. Krafan um að Íslendingar taki
upp annan gjaldmiðil tengist ein-
mitt veikri stöðu krónunnar.
Það er framtíðarverkefni að ræða
um gjaldmiðilinn og peningastefn-
una en verkefni dagsins í dag er að
styrkja stöðu krónunnar. Með
sterkari gjaldeyrisvarasjóði er ríkið
ekki að gefa íslenskum bönkum
peninga enda fengju hvorki þeir né
ríkissjóður umrætt fé til brúks.
Við lánsfjárkreppuna sem ríður
yfir heiminn hefur það gerst að
vextir margra fyrirtækja hafa í
reynd stokkið úr um 5 prósent í
blandaðri skuldasamsetningu
krónu og erlendra gjaldmiðla yfir í
15 prósent okurvexti Seðlabank-
ans. Um leið og við styrkjum gjald-
eyrisvaraforða þjóðarinnar aukum
við líkurnar á að fyrirtækjum
landsmanna bjóðist aftur kostur á
að taka lán í öðru en hávaxtakrón-
um.
Beðið og bloggað …
Ríkisstjórnin hefur margoft við-
urkennt þörfina á þessari lántöku
en nú er að heyra að kjör ríkissjóðs
séu ekki nógu hagstæð. Það að bíða
eftir að þau batni er mikið hættu-
spil. Meðan beðið er blæðir hag-
kerfinu og það aftur er líklegast til
að gera kjörin enn verri. Lánakjör
Íslendinga ráðast af tvennu. Annars
vegar stöðu hagkerfisins og hins
vegar pólitísku áræði og dugnaði
þeirra sem fara með stjórn lands-
ins. Það er ekkert sem segir að við
þurfum að ræða við Evrópumenn
eina um lán. Stærstu peningatank-
ar heimsins eru nú í austrinu, hjá
Kínverjum, Rússum og jafnvel Ind-
verjum og þar getur verið mögu-
leiki að leita hófanna.
Geir H. Haarde hefur nú allt frá
því á aðalfundi Seðlabankans sl.
vetur boðað að til standi að ríkið
taki umrætt lán og væntingar við-
skiptalífsins og erlendra aðila horfa
til efnda á því loforði. Þar eru þegar
orðnar miklar vanefndir enda liðið
hálft ár frá umræddum aðalfundi.
Það er því langsótt hjá fyrr-
nefndum leiðarahöfundi að saka
Framsóknarflokkinn um ábyrgðar-
leysi. Ábyrgðarleysið felst í að
skapa væntingar og lofa aðgerðum
til styrkingar á ímynd hins íslenska
efnahagslífs og standa svo ekki við
það loforð. Já og það er líka
ábyrgðarleysi að leiðarahöfundar
séu að mæla slíkt upp í forsætisráð-
herra sem helst gerir sér nú til
dundurs að halda blaðamanna-
fundi um bloggsíður samráðherra
sinna!
Höfundur er alþingismaður
Ábyrgðarleysi sem
skaðar hagkerfið
UMRÆÐAN aBjarni Harðarson
Ábyrgð-
arleysið felst
í að skapa
væntingar og
lofa aðgerð-
um til styrk-
ingar á
ímynd hins íslenska efna-
hagslífs og standa svo
ekki við það loforð.