24 stundir - 19.07.2008, Side 31
24stundir LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 31
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
„Það er ég sem er forsetinn og hana
nú.“ Þetta á Cristina Fernández de
Kirchner, forseti Argentínu, að
hafa hrópað til eiginmanns síns og
fyrrverandi forseta landsins, Né-
stors Kirchner, fyrir rúmri viku
þegar þau rifust um hvort þeirra
bæri ábyrgðina á uppreisn bænda
sem kostað hefur Argentínu átta
milljarða dollara frá því að hún
hófst fyrir fjórum mánuðum.
Samkvæmt fréttavefnum e24.no,
sem vitnar í argentínska blaðið
Perfil, trúðu nágrannar forseta-
hjónanna í bænum El Calafate í
Patagóníu varla sínum eigin eyrum
þegar þeir heyrðu rifrildið um
bændurna sem í mars síðastliðnum
hófu mótmæli gegn útflutnings-
skatti á sojabaunum. Néstor, sem
er leiðtogi Perónistaflokksins, mun
hafa viljað sýna bændum enn meiri
hörku heldur en Cristina sem út-
skýrði hækkunina á þann hátt að
fátækir borgarbúar ættu að fá sinn
hlut af batnandi efnahag landsins.
Cristina sagði reyndar bændur
hafa hagnast gríðarlega á ákvörðun
stjórnvalda um að halda gengi pes-
ósins lágu og að mótmæli þeirra
væru velmegunarmótmæli.
Sauma peningana í dýnurnar
Ráðgjafarfyrirtækið Estudio
Bein hefur reiknað út að óróinn
hafi kostað Argentínu 8 milljarða
dollara. Talið er að tap þjóðfélags-
ins hafi verið um 3 milljarðar frá
því að mótmælin hófust auk þess
sem sparifjáreigendur hafi tekið út
5 milljarða dollara af reikningum
sínum. Peningana hafa þeir ann-
aðhvort lagt inn á erlenda banka
eða saumað þá inn í dýnur sínar,
samkvæmt frásögn e24.no.
Nú segja sumir stjórnmálaskýr-
endur í Argentínu að vilji Cristina,
sem um þessar mundir nýtur
stuðnings tæpra 25 prósenta kjós-
enda miðað við 60 prósenta stuðn-
ing í desember, bæta ímynd sína
megi eiginmaður hennar ekki leng-
ur stjórna á bak við tjöldin.
Þótt algengt sé í Suður-Ameríku
að draga taum ættmenna við
stöðuveitingar og ættarveldin séu
mörg kom það á óvart þegar Né-
stor Kirchner skýrði frá því í fyrra
að að eiginkona hans ætlaði að
bjóða sig fram í forsetakosningun-
um síðastliðið haust. Flestir höfðu
spáð Nestor sigri í kosningunum.
Landsmenn töldu það nefnilega
honum að þakka að þeir komust
upp úr efnahagslægðinni sem skall
á 2001 en þá missti millistéttin
sparifé sitt á nokkrum dögum og
atvinnuleysið meðal verkamanna
varð rosalegt.
Sumir kváðust aldrei hafa haft
það jafngott eftir að Nestor var
kjörinn forseti. Hagfræðingar sök-
uðu hins vegar forsetann um að
breyta tölum sér í hag og starfs-
menn hagstofu Argentínu efndu
reglulega til mótmæla í fyrra vegna
meintra afskipta yfirvalda.
Aftur sætaskipti
Nokkrir fréttaskýrendur eru
þeirrar skoðunar að með framboði
Cristinu hafi hjónin ætlað sér að
reyna að byggja upp eigið ættar-
veldi með því að skipta aftur um
sæti í næstu forsetakosningum í
Argentínu sem haldnar verða árið
2011, að því er greint var frá á
fréttavef International Herald Trib-
une. Forsetar í Argentínu geta ekki
setið lengur en í tvö fjögurra ára
kjörtímabil samfleytt. Eftir að hafa
verið á hliðarlínunni í eitt kjör-
tímabil geta þeir boðið sig fram á
ný. Ákvörðun Nestors og Cristinu
þótti í stíl við þá hefð perónista að
koma eiginkonum valdamikilla
leiðtoga til valda.
Í kosningabaráttunni hegðaði
Cristina, sem var öldungadeildar-
þingmaður, sér eins og hún væri
þegar forseti og þykir það hafa ver-
ið skynsamlegt herbragð. Á meðan
aðrir frambjóðendur voru á at-
kvæðaveiðum heima í Argentínu
heimsótti Cristina háttsetta erlenda
stjórnmálaleiðtoga og fór meðal
annars til Spánar, Austurríkis,
Þýskalands og Mexíkó auk þess
sem hún var viðstödd allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna.
Bótox-Evita
Áður en Néstor var kjörinn for-
seti Argentínu 2003 lét Cristina
ekki mikið á sér bera. Í argentínsk-
um fjölmiðlum var hún sögð
þekktust fyrir dýru tískuflíkurnar
sem hún klæddist, skósafnið sitt og
fegrunaraðgerðirnir sem fullyrt er
að hún hafi gengist undir. Sumir
fjölmiðlar hafa kallað forsetafrúna
Cristinu drottningu en aðrir hafa
kallað hana Evitu og vísa þá til
Evitu Perón. Þessir sömu fjöl-
miðlar hafa hins vegar bætt við
viðurnefninu bótox vegna meintr-
ar fegurðaraðgerðar forsetans.
Forsetahjónum Argentínu, sem
kynntust í laganámi, hefur ekki
bara verið líkt við Evu og Juan Pe-
rón, fyrrverandi forsetahjón Arg-
entínu, heldur einnig Hillary og
Bill Clinton. Og eins og Hillary
þurfti Cristina auðvitað fé til þess
að komast til valda.
Dularfull ferðataska
Lagt var hald á dularfulla ferða-
tösku sem var full af grænum pen-
ingaseðlum, samtals 800 þúsund-
um dollara, á flugvellinum í
Buenos Aires. Þessi taska olli
Cristinu höfuðverk og milliríkja-
deilum milli Argentínu og Banda-
ríkjanna.
Í ágúst í fyrra var kaupsýslumað-
urinn Guido Antonini Wilson, sem
er með bæði bandarískt og venesú-
elskt vegabréf, stöðvaður á flugvell-
inum í Buenos Aires þangað sem
hann kom í einkaþotu í fylgd emb-
ættismanna frá Venesúela og yfir-
manna í olíufélaginu PDVSA sem
er í eigu venesúelska ríkisins.
Bandarísk yfirvöld fullyrtu að pen-
ingarnir hefðu verið ólöglegt fram-
lag forseta Venesúela, Hugo Chá-
ves, til kosningabaráttu Cristinu.
Cristina sagði hins vegar að um
rógsherferð Bandaríkjanna væri að
ræða í þeim tilgangi að skaða sam-
bandið milli Argentínu og Venú-
sela sem hefur orðið náið á und-
anförnum árum.
Antonini, sem átti ekki ferða-
töskuna sem hann bar, sneri aftur
til Bandaríkjanna, þar sem hann er
búsettur, og gekk til liðs við banda-
rísku alríkislögregluna. Með hler-
unarbúnaði sem hann bar á sér á
fundum og með símahlerunum
kveðst lögreglan hafa komist að því
dollaraseðlarnir í ferðatöskunni
voru framlag frá Venúsela til kosn-
ingabaráttu Cristinu.
Peningapoki falinn á salerni
Suður-Ameríkumenn eru vanir
spillingu. Þegar poki með rúmlega
30 þúsundum dollara fannst í
fyrrasumar í skáp á salerni flokks-
systur Cristinu, Felisu Miceli sem
þá var efnahagsmálaráðherra Arg-
entínu, veltu menn því reyndar fyr-
ir sér hvort fundurinn myndi ógna
forsetaframboði forsetafrúarinnar.
Felisa, sem neyddist til að segja af
sér, kvaðst hafa geymt féð fyrir
bróður sinn sem ætlaði að kaupa
sér fasteign. Almenningur taldi
hins vegar að um mútur væri að
ræða eða jafnvel peningaþvætti.
Cristina var kjörin forseti þrátt fyr-
ir hneykslismálin en stundum þarf
hún að minna eiginmann sinn á
það hvort þeirra er forsetinn.
Rifrildi forsetahjóna og full
ferðataska af dollurum
Stjórnmálamenn í Suður-Ameríku skara eld að eigin köku og ættingjanna Hneykslismál á færibandi
➤ Cristina Elisabet Fernándesde Kirchner og Néstor Carlos
Kirchner Ostoic kynntust
þegar þau voru bæði í laga-
námi.
➤ Cristina og Néstor, sem eru ásextugsaldri, hófu stjórn-
málaferil sinn á áttunda ára-
tug síðustu aldar.
FORSETAHJÓNIN
Néstor og Cristina Talið er að þau ætli að hafa sætaskipti á ný árið 2011. Nordic Photos/AFP
Keiko Fujimori Hún er sögð ætla að
náða föður sinn, Alberto Fujimori, sem á
yfir höfði sér 30 ára fangelsisdóm, verði
hún forseti Perú 2011. Hingað til hefur
hún neitað því að hún ætli í framboð en
stuðningsmenn föður hennar hafa stofn-
að nýjan flokk.
Marta Sahagún Háværar raddir voru
uppi í Mexíkó fyrir tveimur árum um að
forseti landsins, Vicente Fox, myndi til-
kynna að eiginkona sín, Marta Sahagún,
tæki við forsetaembættinu af honum.
Synir Mörtu af fyrra hjónabandi eru
sagðir hafa hagnast á ferli hennar.
Martín Torrijos Martín, forseti Panama,
sonur fyrrverandi einræðisherra landsins,
Omars Torrijos, hrifsaði til sín völdin fyrir
fjórum áratugum og stjórnaði Panama til
ársins 1981. Martín var kjörinn forseti
2004 en hafði áður gegnt ráðherraemb-
ættum.
Hillary Clinton Forsetjahjón Argentínu
eru lögfræðingar eins og Hillary og Bill
Clinton. Andstæðingar Clinton-hjónanna
kváðust ekki vilja nýtt kjörtímabil með Bill
Clinton þegar Hillary sóttist eftir að verða
útnefnd forsetaframbjóðandi demó-
krataflokksins.
Raúl Castro Það kom fáum á óvart að
litli bróðir Fidels Castro Kúbuforseta
skyldi verða kjörinn forseti Kúbu á þingi
landsins í febrúar síðastliðnum. Nýr for-
seti Kúbu lagði til að allar stórar ákvarð-
anir yfirvalda yrðu bornar undir Fidel
stóra bróður.
RÝNIR
frettir@24stundir.is a
Það er ég sem er forsetinn
og hana nú.