24 stundir - 19.07.2008, Page 46
46 LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 2008 24stundir
Þankastrik eru fjölbreytt tómstundablöð fyrir alla þá
sem hafa gaman af þrautum. Krossgátur, sudoku og
ratleikir. Tvö glæný tölublöð fyrir sumarið.
Brjóttu heilann í sumar!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skemmtilega
r gátur
heilabrot
og sudoku-þr
autir
Síðumúla 28 • 108 Reykjavík • Sími 522 2000
„Heiðra skaltu föður þinn og
móður, en ekki nota meira en 31
stafabil til verksins. Þannig gætu
skilaboð Þjóðskrár hafa hljómað
þegar ég vildi heiðra móður mína
með því að kenna mig bæði við
hana og föður minn. Ég skyldi
skráð sem Jónu og Helgadóttir en
það má ekki.“
Matthildur Helgadóttir
matthildurh.blog.is
„Í dag las ég að opnaður hafi ver-
ið nýr veitingastaður á Laug-
arásvegi 1 þar sem tilbúnir réttir
eru seldir eftir vigt. Vafalaust
ágæt hugmynd hjá eigandanum
sem sagður er heita Stefán Stef-
ánsson. Eða á frekar að segja Mr.
Stefan? Staðurinn heitir nefnilega
Just Food to go.“
Guðmundur Magnússon
gudmundurmagnusson.blog.is
„Ætla mætti, miðað við þetta lán
(að hitta tvo á tveimur dögum),
að ég hafi átt þrjú þúsund átta
hundruð og fimmtíu elskuhuga
um ævina. En því fer fjarri. Er al-
gjör tepra þó ég gangi ekki í nær-
buxum. Ég enda alltaf í sambúð
með þessum andskotum!“
Heiða Þórðardóttir
heidathord.blog.is
BLOGGARINN
Valdimar tekur þó fram að hann
sé lærður fagmaður og taki öll sín
áhættuatriði alvarlega, annars væri
hann dauður. „Allur undirbún-
ingur miðast af því að koma í veg
fyrir hið óvænta og hafa stjórn á
ástandinu. Varla þarf að taka fram,
að ekki er mælt með að fólk reyni
þetta heima hjá sér.“
Málshátturinn „brennt barn
forðast eldinn“ á ekki við Valdi-
mar. „Nei, alls ekki. Þetta er orðið
hálfgert hobbí hjá mér, sérstaklega
á tímabili þegar ég gerði lítið ann-
að en að prófa ýmsa líkamsparta til
að kveikja í.
Vill keyra í gegnum eldgöng
„Annað heimsmet sem mig
langar að slá er akstur á bíl í gegn-
um logandi eldgöng. Það er þó öllu
meiri framkvæmd og dýrari enda
að mörgu að huga. Ég er ekki viss
um hvert metið er núna en ég held
að það sé í kringum 300 metrar,“
segir Valdimar, sem er lærðasti Ís-
lendingurinn á sviði áhættuleiks,
með margar stórmyndir undir
beltinu, á borð við Die Another
Day, Gangs of New York og flestar
íslenskar kvikmyndir síðustu ára,
sem krafist hafa áhættuleiks.
Valdimar Jóhannsson er sannkallaður eldhugi
Ætlar að kveikja
í sjálfum sér
Áhættuleikari Íslands,
Valdimar Jóhannsson,
hyggst slá tvö heimsmet
á næsta ári. Annars vegar
í sjálfsíkveikju og hins
vegar í akstri gegnum
300 metra eldgöng.
Eldhuginn Valdimar er hvergi banginn.
Alelda Valdimar verður
eflaust bálreiður fari
eitthvað úrskeiðis, í það
minnsta öskuvondur.
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
„Ég brenni mig eða svíð af einhver
líkamshár í hvert skipti sem ég leik
mér að eldinum,“ segir ofurhuginn
og áhættuleikarinn Valdimar Jó-
hannsson, en hann stefnir á að
setja tvö heimsmet á næsta ári;
annars vegar í sjálfsíkveikju og hins
vegar í akstri gegnum eldgöng.
Setur öryggið á oddinn
„Metið í sjálfsíkveikju er tvær
mínútur og sex sekúndur en ég
stefni á að slá það. Ég er búinn að
ganga með metið í maganum lengi
en stefni á að gera þetta einhvern-
tímann á næsta ári,“ segir Valdi-
mar sem notast við sérstakan hlífð-
arfatnað, sem smurður er með
eldvarnargeli og settur í kæli sólar-
hring áður en sjálfur bruninn fer
fram. Þannig helst Valdimar kaldur
lengst af, þó svo að hann sé alelda,
einsog Nýdönsk söng forðum.
„Ég er ekki klár á því hvert hita-
stigið verður, en manni verður ansi
heitt á skömmum tíma. Þá er mjög
fín lína milli þess að vita hvenær
hitinn nær hámarki og hvenær þú
byrjar að brenna lifandi,“ segir
Valdimar ósköp yfirvegaður, með-
an blaðamaður sýpur hveljur.
HEYRST HEFUR …
Hinn skeleggi ritstjóri Monitor, Atli Fannar Bjarka-
son, skemmti sér konunglega á Hróarskelduhátíð-
inni á dögunum, enda mikið um dýrðir og góðar
hljómsveitir, sem Atli sá kannski lítið af. Atli, sem
jafnan er vinsæll meðal veikara kynsins hér heima,
virðist nefnilega njóta ámóta vinsælda erlendis, því
ein blómarósin tók sig til og stal sjónglerjum Atla,
við dræmar undirtektir ritstjórans. tsk
Og enn af Monitor. Í nýjasta tölublaðinu svarar
Krummi í Mínus spurningum lesenda blaðsins. Í
einni þeirra, er tengist meintri hegðun hans á
djamminu, spyr Krummi á móti hvort viðkomandi
sé sá sami og hafi sent systur sinni háfleyg dónaleg
bréf. Samkvæmt heimildum 24 stunda var hann þó
að grínast, engin slík bréf voru send, hann vildi að-
eins sýna fram á fáránleika spurningarinnar. tsk
Eitt stykki píanó getur verið til margra hluta nyt-
samlegt, háð þeim skilyrðum að hljóðfærið sé í
heilu lagi. Það er þó ekki reyndin hjá ljóta hálfvit-
anum Ármanni Guðmundssyni, sem hirti hörpuna
úr píanói sínu, sem úrskurðað hafði verið látið.
Hvort hljómsveit Ármanns, Ljótu hálfvitarnir, noti
hörpuna til tónlistarsköpunar er óvíst, en harpan er
heil 100 kíló og því erfið til dansleikja. tsk
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
3 2 6 7 1 8 4 5 9
5 4 8 9 6 2 1 7 3
7 9 1 4 3 5 2 6 8
6 3 5 1 8 4 7 9 2
8 1 9 6 2 7 3 4 5
4 7 2 3 5 9 6 8 1
9 5 7 2 4 3 8 1 6
1 8 3 5 7 6 9 2 4
2 6 4 8 9 1 5 3 7
Jæja við verðum að borða í eldhúsinu,
maturinn þinn ilmar ekki vel í stofunni
a
Nei, ætli ég reyni ekki að halda
mig við eitthvað íslenskt, app-
elsín til dæmis.
Jæja Stefán, muntu skipta yfir í Pepsi?
Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæð-
inga, en NATO hefur ráðið sér ímyndarsérfræðing frá
Coca Cola til þess að efla vinsældir sínar.FÓLK
24@24stundir.is fréttir
„Ég get ekki beðið, ég held að
þetta verði ótrúlega gaman. Ég hef
aldrei áður farið í svona tónleika-
ferðalag og ég hef heldur aldrei
komið til Seyðisfjarðar eða Borg-
arfjarðar eystri,“ segir Bryndís Jak-
obsdóttir sem verður á ferð og
flugi um landið á næstu vikum.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í
gærkvöldi í Iðnó en í kvöld spilar
hún á LungA hátíðinni á Seyð-
isfirði. Á þessum tónleikum spilar
hún með hljómsveitinni Mosez
High Tower en hana skipa félagar
Bryndísar, eða Dísu eins og hún er
kölluð, úr FÍH tónlistarskólanum.
Með geggjaðan gítaleikara
Frá Seyðisfirði heldur Dísa til
Akureyrar þar sem hún spilar á
Græna hattinum á fimmtudaginn,
á föstudeginum verður hún í
Gamla bænum í Mývatnssveit og
þaðan heldur hún til Borgarfjarðar
eystri þar sem hún spilar í Bræðsl-
unni á laugardagskvöldið. Hún
lýkur ferðinni svo í Reykjavík hinn
1. ágúst þegar hún kemur fram á
Innipúkanum á NASA. Dísu til
halds og trausts verður ungur og
efnilegur gítarleikari að nafni
Daníel Friðrik en hann er aðeins
19 ára. „Hann er besti gítarleikari
sem ég hef kynnst. Hann er korn-
ungur og ég veit að ég er að setja
smápressu á hann með þessum
orðum, en hann er bara æðislegur
gítarleikari, svo skapandi og frum-
legur,“ segir Dísa en fyrsta plata
hennar, Dísa, hefur fengið góða
dóma frá gagnrýnendum og frá-
bærar viðtökur.
haukurh@24stundir.is
Bryndís Jakobsdóttir söngkona á ferðinni
Á ferð um landið