Fréttablaðið - 15.09.2004, Page 2
2 15. september 2004 MIÐVIKUDAGUR
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Vélar og
þjónusta sem seldi landbúnaðar-
vélar er gjaldþrota. Allir 39
starfsmenn fyrirtækisins hafa
fengið vinnu hjá nýstofnuðu fyr-
irtæki í eigu sömu fjölskyldu;
Vélar og þjónusta ehf. KB banki
vildi ráða starfsmennina til sín til
að hámarka rekstrarvirði félags-
ins fyrir uppgjör þess. Stefán
Bjarnason, fjármálastjóri og eig-
andi Véla og þjónustu, segir
starfsmennina hafa hafnað boði
bankans. Eftir á að auglýsa eftir
kröfum í þrotabúið en talið er að
þær nemi um einum milljarði
króna.
Stefán er ósáttur við vinnu-
brögð KB banka. Hann segir
reksturinn hafa verið að rétta sig
við eftir gríðarlegt tap í kjölfar
lágs gengis krónunnar. Útlit hafi
verið fyrir rúmlega þrjátíu millj-
óna króna hagnað á árinu. Eig-
endur fyrirtækisins hafi óskað
eftir fresti til 25. september til að
leita endurfjármögnunar og
bregðast þannig við innheimtu
allra krafna bankans, sem séu 65-
70 prósent af heildarkröfum fyr-
irtækisins. Það hafi ekki gengið
eftir né fimmtán daga frestur
sem skilyrtur sé í greiðsluáskor-
unni. „Fimm dögum eftir fund
með bankanum var hann búinn að
loka öllum tékkareikningum fé-
lagsins. Frysta allar birgðir og
útistandandi kröfur,“ segir Stef-
án.
Stefán óttast að KB banki sé
að reyna að sölsa undir sig ábata-
saman rekstur. Bankinn hafi leit-
að eftir að endurráða starfsfólkið
og halda rekstrinum áfram: „Frá
okkar bæjardyrum séð lítur út
fyrir að þeir hafi hreinlega ætlað
að bola okkur út úr fyrirtækinu
og njóta hagnaðarins sem loksins
náðist eftir margra ára baráttu.“
Helgi Sigurðsson, yfirlögfræð-
ingur KB banka, segist aðeins
óska eftir gjaldþrotaskiptum fyr-
irtækja telji hann aðrar leiðir
ófærar: „Þeir gátu ekki sýnt fram
á að félagið gæti staðið við fjár-
hagslegar skuldbindingar sínar.“
Helgi segir það í höndum
skiptastjóra hvernig eignir fé-
lagsins verði hámarkaðar til að
greiða kröfur þess upp. „Þegar
félag verður gjaldþrota skiptir
miklu máli að reyna að tryggja
rekstrarvirði þess. Það er gert til
hagsbóta fyrir þá sem eiga kröfu
í fyrirtækinu en ekki til þess að
einstakir hluthafar stofni nýjar
kennitölur og hirði út eignir þess.
Það er hin almenna regla gjald-
þrotalaga.“
gag@frettabladid.is
Á SKEIÐAVEGI
Steypubíllinn valt þegar hundur hljóp í veg
fyrir hann.
Umferðarslys:
Hundur olli
óhappi
SLYS Steypubíll frá Steypustöðinni
valt á Skeiðavegi við Brautarholt
um tvöleytið í gær. Bílstjórinn
missti vald á bílnum með þessum
afleiðingum eftir að hundur hljóp
í veg fyrir bílinn. Ökumaðurinn
var fluttur til skoðunar á heilsu-
gæsluna á Selfossi, en hann slapp
nær ómeiddur. Aðra sögu er að
segja af hundinum, en hann
drapst. Bíllinn skemmdist tals-
vert. Slökkvilið hreinsaði upp
steypu og olíu sem runnu frá bíln-
um. ■
Það er samvinnuverkefni.
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi R-listans, hefur
sagt að Sundabraut verði sett í forgang fram yfir
framkvæmd mislægra gatnamóta Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar.
SPURNING DAGSINS
Árni Þór, hver ræður forgangsröðun-
inni á þínu heimili?
Þyrlur Varnarliðsins:
Sóttu slasaðan
sjómann
SLYS Þyrlur bandaríska hersins á
Keflavíkurvelli sóttu slasaðan
mann um borð í rússneska herskip-
ið Admiral Chabanenko rúmar tvö-
hundruð sjómílur suður af landinu
í gær.
Það var skömmu upp úr hádegi
sem stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar barst ósk um aðstoð. Læknir
um borð í skipinu hafði gert aðgerð
á hinum slasaða en nauðsynlegt var
talið að flytja hann á sjúkrahús.
Tvær þyrlur varnarliðsins fóru
af stað en óskað var eftir fylgdar-
flugvél frá Landhelgisgæslunni
þar sem um langan veg var að fara.
Þyrlurnar lentu með manninn
við Landspítala Háskólasjúkrahús í
Fossvogi skömmu fyrir klukkan
sex.klukkan sex. ■
FYRIRTÆKIÐ VÉLAR OG ÞJÓNUSTA
Eigendur fyrirtækisins Vélar og þjónusta ætla að starfrækja nýtt fyrirtæki í sama rekstri
áfram undir sama nafni. Þeir leita endurfjármögnunar hjá öðrum bönkum eftir að KB
banki krafðist greiðslu allra krafna hans.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Vélar og þjónusta
var keyrt í þrot
Barist er um innviði fyrirtækisins Vélar og þjónusta sem er gjaldþrota.
Allir 39 starfsmenn fyrirtækisins hafa fengið vinnu hjá sömu eigendum,
sem segja KB banka hafa reynt að sölsa undir sig reksturinn.
BORGARMÁL Tillaga sjálfstæðis-
manna í samgöngunefnd Reykja-
víkur um að ráðast í gerð mislægra
gatnamóta við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut svo fljótt sem
auðið er var felld af meirihluta R-
listans.
R-listinn samþykkti aftur á móti
eigin tillögu um að vinna áfram að
því að bæta umferðaröryggi á
gatnamótunum. R-listinn hyggst
ekki ráðast í gerð mislægra gatna-
móta á næstu árum heldur fjölga
akreinum og bæta skipulag gatna-
mótanna eins og þau eru. Árni Þór
Sigurðsson, borgarfulltrúi R-list-
ans, hefur lýst því yfir að Sunda-
brautin verði sett í forgang.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, seg-
ir ekki nægjanlegt að bæta gatna-
mótin með þeim hætti sem R-list-
inn hyggist gera. Hann segir það
vissulega vonbrigði að R-listinn
skyldi hafa fellt tillögu sjálfstæð-
ismanna því afar brýnt sé að gera
mislæg gatnamót á staðnum sem
allra fyrst enda slysatíðni þar
mikil.
„Sú tíu ára töf sem orðið hefur
á hönnunar- og skipulagsvinnu
borgaryfirvalda vegna gatna-
mótanna er stórlega ámælis-
verð,“ segir Kjartan. „Á þessari
töf bera fulltrúar R-listans fulla
ábyrgð.“
Kjartan segir að sjálfstæðis-
menn séu alls ekki mótfallnir því
að framkvæmdum við Sunda-
braut verði hraðað. Þeir vilji ein-
faldlega ekki að það verði gert á
kostnað mislægra gatnamóta við
Miklubraut og Kringlumýrar-
braut. ■
MISLÆG GATNAMÓT
Talið er að kostnaður við mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar verði
tæpir þrír milljarðar króna.
TE
IK
N
.:
SI
G
U
RÐ
U
R
VA
LU
R
SI
G
U
RÐ
SS
O
N
Tillaga sjálfstæðismanna um mislæg gatnamót felld í samgöngunefnd:
Reykjavíkurlistinn stendur fastur við sitt
Skotið af rifflum við
malargryfjuna í Bolöldu:
Starfsmenn
voru í hættu
LÖGREGLUMÁL Tveir menn skutu af
rifflum innan um starfsmenn mal-
argryfjunnar í Bolöldu, rétt vest-
an við Litlu kaffistofuna, í gær-
morgun. Mennirnir óku gömlum
rauðum Pajero-jeppa. Þeir voru
farnir þegar lögreglan á Selfossi
kom á staðinn. Lögregla lítur mál-
ið alvarlegum augum og biður þá
sem kunna að vita hverjir voru
þarna á ferð að láta vita. ■
DÓMSMÁL Fjórir menn hafa verið
ákærðir af ríkislögreglustjóra fyr-
ir brot á útvarpslögum sem fram-
kvæmdastjórnarmenn Kaplavæð-
ingar ehf. Mennirnir fjórir eru sak-
aðir um að hafa tekið á móti læst-
um útsendingum frá átta erlendum
sjónvarpsstöðvum, opnað þær með
myndlyklum, í þeim tilgangi að
veita einstaklingum sem ekki voru
áskrifendur aðgang að sjónvarps-
útsendingunum.
Efninu eru fjórmenningarnir
sagðir hafa dreift til allt að 1650
manns í Reykjanesbæ gegn end-
urgjaldi og án heimildar. Einn
mannanna er ákærður fyrir að
hafa brotið gegn útvarpslögum
með þessum hætti frá árinu 2000
en hinir frá árinu 2002. Lögreglan
stöðvaði útsendingar félagsins
um miðjan janúar síðastliðinn. Er
þess krafist að mennirnir verði
dæmdir til refsingar. Þá er þess
einnig krafist að einkahlutafélög-
in Kapalvæðing og DVD marg-
miðlun, sem mennirnir eru í for-
svari fyrir, verði dæmd til upp-
töku á átta myndlyklum, mynd-
mótorum og lykilkortum sem lagt
var hald á við rannsókn málsins.
Norðurljós gera þá kröfu að
Kapalvæðingu og mönnunum fjór-
um verði gert að greiða félaginu
rúmar 290 milljónir í bætur. En
Norðurljós voru búin að kaupa sýn-
ingarrétt á efni sem sýnt var í kap-
alkerfinu. ■
Stangveiði:
Búbót fyrir
þjóðfélagið
STANGVEIÐI Stangveiði leggur mun
meira til þjóðarbúsins en áður
hefur verið talið eftir því sem
fram kemur í skýrslu um lax- og
silungsveiði á Íslandi sem hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands og
Veiðimálastofnun unnu sam-
kvæmt beiðni Landssambands
veiðifélaga.
Bein og óbein áhrif stangveiði
innlendra og erlendra veiðimanna
eru talin færa þjóðarbúinu allt að
níu miljörðum króna á ári. Segir í
skýrslunni að þótt stangveiði sé
misjafnlega mikilvæg fyrir héruð
landsins, leiki vart vafi á að sums
staðar sé hún lífsnauðsynleg til að
sveitir landsins megi dafna áram.
Þá styður stangveiðin allt að eitt
þúsund störf á landinu. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
O
FF
ÍA
S
IG
U
RÐ
AR
D
Ó
TT
IR
Ákærður fyrir líkamsárás:
Sló mann
með glerglasi
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
hefur verið ákærður af ríkissak-
sóknara fyrir sérlega hættulega
líkamsárás. Hann er sakaður um
að hafa slegið annan mann í höfuð-
ið með glerglasi þannig að glasið
brotnaði. Málið var þingfest í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær.
Maðurinn sem varð fyrir högg-
inu hlaut djúpt skurðsár hægra
megin við höku. Skurðurinn var
um einum sentímetra frá hálsslag-
æð mannsins auk þess sem hann
hlaut mörg minni sár í andlitið.
Krafist er að árásarmaðurinn
verði dæmdur til refsingar og
greiðslu skaðabóta upp á rúmlega
sex hundruð þúsund króna. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SLASAÐIST MINNIHÁTTAR Öku-
maður vélhjóls slapp með skrám-
ur eftir að lamb hljóp fyrir hjól
hans rétt norðan við Botn í Hval-
firði um klukkan sex í gær. Þegar
lambið hljóp fyrir hjólið missti
ökumaðurinn stjórn á því og rann
ásamt hjólinu eftir malbikinu.
Ákærðir fyrir brot á útvarpslögum:
Um 290 milljóna
krafist í bætur