Fréttablaðið - 15.09.2004, Síða 19
3MIÐVIKUDAGUR 15. september 2004
80%veðsetningarhlutfallFrjáls íbúðalán, 4,2% verðtryggðir vextirEngin skilyrði um hvar þú ert með þín bankaviðskipti
Fasteignalán, 5,4% til 7,5% verðtryggðir vextir
Ekki gerð krafa um fyrsta veðrétt í fasteign
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
H
im
in
n
o
g
h
a
f
www.frjalsi. is
Lífsleikninámskeið verða æ vin-
sælli hjá Endurmenntun. Kolbrún
Erla Matthíasdóttir, markaðsstjóri
Endurmenntunar, segir að meðvit-
undin sé vaxandi í þjóðfélaginu
um að fólk þjálfi sig áfram, bæði
sem einstaklingar og starfs-
kraftar. „Þar nýtast sjálfshjálpar-
námskeiðin vel. Fyrirtækin gera
stöðugt meiri kröfur um símennt-
un og nú eru víða fastar skorður
þannig að allir starfsmenn eiga
kost á einu til tveimur námskeið-
um á misseri. Að hafa farið á nám-
skeið hjá Endurmenntun HÍ hefur
raunverulegt gildi og við heyrum
frá ráðningarskrifstofum að mörg
fyrirtæki vilji frekar ráða starfs-
menn sem sýna vilja til að efla sig
heldur en hina sem hafa jafnvel
flottari gráður.“ ■
Kolbrún Erla Matthíasdóttir segir að at-
vinnurekendur kunni vel að meta fólk
sem sækir námskeið til að efla sig í
einkalífi og starfi.
Endurmenntun HÍ:
Lífsleikninámskeið æ vinsælli
Þótt ekki standi til að gera ís-
lenskt skólafólk að kenjakrökk-
um þá er heimsókn á sýninguna
Kenjarnar eftir spænska málar-
ann Francisco de Goya meðal
þess sem nemendum er boðið er
upp á nú í byrjun skólaárs. Hún
stendur yfir í Listasafni Reykja-
víkur, Hafnarhúsi, og þar fá
nemendur lifandi leiðsögn um
sali og sérstök verkefni til að
leysa. Þau eru í formi krossgáta,
ratleikja eða annarra skemmti-
legra tiltækja, grunninn að þeim
verkefnum gerði listfræðingur-
inn Yean See Quay fyrir Lista-
safnið á Akureyri og Listasafn
Reykjavíkur. Goya-sýningin
stendur til 3. október í Hafnar-
húsinu og þá bryddar safnið upp
á öðrum skemmtilegum verkefn-
um fyrir skólafólk á öllum aldri.
Til dæmis hefur það gert sér-
stakt námsefni um máttar-
stólpana í safneigninni, þá Ás-
mund, Kjarval og Erró og boðið
er uppá rútuferðir í tengslum við
það.
Listasafn Reykjavíkur hefur
rekið fræðslustarf frá 1991 sem
hefur vaxið jafnt og þétt enda eru
ferðir á söfn fastur liður í starfi
margra skóla á landinu. „Við vilj-
um að nemendur spyrji út í verk-
in og séu virkir, því þannig læra
þeir,“ segir Ólöf Kristín Sigurðar-
dóttir deildarstjóri. Hún segir
sýningu Ólafs Elíassonar í Hafn-
arhúsinu í fyrravetur hafa slegið
öll met í aðsókn því um 8.000 nem-
endur í 340 hópum hafi komið á
hana en að jafnaði taki safnið á
móti 10.000 nemendum á ári. Skól-
arnir á höfuðborgarsvæðinu eru í
meirihluta enda eiga þeir hægast
um vik en einnig koma margir af
landsbyggðinni. „Það eru sömu
skólarnir sem koma ár eftir ár
utan af landi á öll söfnin,“ segir
Ólöf og getur þess að í lokin að al-
mennir safngestir sem komi með
börn með sér á Goya-sýninguna
geti fengið lánuð verkefni fyrir
þau – sem geri heimsóknina enn
skemmtilegri.
gun@frettabladid.is
Lifandi leiðsögn á listasöfnum:
Skólabörn fræðast
um Kenjar Goya
Ólöf Kristín segir nemendur spekúlera í því sem fyrir augu ber á safninu og vera
duglega að spyrja og á Goya-sýningunni í Hafnarhúsinu sé margt skondið að sjá.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Námskeið fyrir konur:
Innri friður –
innri styrkur
Helgarnámskeið fyrir konur
verða haldin að Fögruhlíð í Fljóts-
hlíð haustið 2004. Námskeiðin
verða þann 1.-3. og 22.-24. október
næstkomandi. Leiðbeinandi verð-
ur Bergþóra Reynisdóttir geð-
hjúkrunarfræðingur. Katrín Jóns-
dóttir, svæða- og viðbragðsfræð-
ingur, verður gestafyrirlesari og
mun sjá um slökun. Lögð verður
áhersla á næringarríkan og fersk-
an mat, meðal annars grænmetis-
fæði. Þátttökugjald er 28.000 kr.
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur og fleiri stéttarfélög veita fé-
lagsmönnum styrk til þátttöku á
námskeiðinu. Þátttakendur fá
skjal til staðfestingar á þátttöku
sinni, en alls eru 23 kennslustund-
ir. Nánari upplýsingar eru í síma
863 6669 / 564 6669. Einnig er
hægt að fá nánari upplýsingar í
gegnum netfangið liljan@isl.is.
Skráning er á sama netfangi.
Meðal markmiða námskeiðsins
er að byggja upp undirstöðu í
sjálfsþekkingu, sjálfseflingu og
samskiptahæfni sem leiðir til
innra öryggis og tilfinningalegs
jafnvægis. ■
„Heimilisiðnaðarskólinn hefur ver-
ið rekinn í um 25 ár,“ segir Ásdís
Birgisdóttir, ráðskona Heimilisiðn-
aðarskólans. „Við leggjum áherslu
á að bjóða upp á námskeið þar sem
kennd eru ýmis gömul vinnubrögð
sem margt er svo mjög í tísku
núna.“ Meðal þess sem kennt er í
Heimilisiðnaðarskólanum er þæf-
ing, tóvinna, sjalaprjón og -hekl,
vefnaður, spjaldvefnaður, útsaum-
ur, útskurður, jurtalitun og síðast
en ekki síst þjóðbúningasaumur
(skautbúningur, faldbúningur, upp-
hlutur, peysuföt og herraföt) og er
þá aðeins fátt eitt tínt til. ■
Heimilisiðnaðarskólinn:
Gömul vinnubrögð í tísku
Jurtalitað garn er mjög fallegt.