Fréttablaðið - 15.09.2004, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 15. september 2004 23
Fáðu flott
munnstykki
Klikkhausinn
klikkaði ekki
Beinar útsendingar frá ítölsku A-deildinni
hófust á Sýn á sunnudaginn og það var
kunnuglegt andlit sem varpaði mestri
birtu á skjáinn í
fyrsta leiknum. Pa-
olo Di Canio var
að leika á ný í
Serie A eftir 8 ára
útlegð og „endur-
debúteraði“ fyrir
Lazio 16 árum eft-
ir að hann lék
sinn fyrsta leik
með félaginu.
Hann var keyptur til félagsins í sumar til
að friða aðdáendur eftir að margar hel-
stu stjörnur þess hurfu á braut. Di Canio
er Lazio-maður heilt í gegn, alinn upp
hjá félaginu en var seldur fyrir stórfé til
Juventus 1990 og átti öll sín bestu ár í
boltanum í burtu frá sínu heittelskaða
Lazio. Di Canio var ætlað að vera sam-
einingartákn aðdáenda Lazio á þessum
þrengingartímum og hann tekur hlutverk
sitt greinilega mjög alvarlega. Hann hefur
átt í meiðslum í sumar og lítið spilað í
æfingaleikjum og voru menn jafnvel á
því að hann yrði meira til skrauts í vetur.
Kostulegt vítadrama
En kappinn var mættur í fremstu víglínu í
fyrsta deildarleiknum og hélt upp á það
með pompi og prakt, skoraði sigurmark-
ið í annars heldur tilþrifalitlum 1-0 sigri
Lazio á Sampdoria í Genúa. Markið skor-
aði hann úr vítaspyrnu og voru aðdrag-
andinn og eftirmálinn mjög í stíl Di
Canio og tryggðu honum feitustu fyrir-
sagnirnar í ítölsku dagblöðunum. Di
Canio átti sniðuga sendingu inn fyrir
vörn Sampdoria á Simone Inzaghi, sem
skeiðaði í átt að marki Doria en mark-
vörðurinn Francesco Antonioli óð á móti
og felldi hann. Dómarinn vísaði Antonioli
af velli og dæmdi vítaspyrnu. Hófst þó
leikþáttur Di Canio. Hann gekk fram fyrir
skjöldu og krafðist þess að fá að taka
vítaspyrnuna þrátt fyrir að Simone Inzag-
hi sé vítaskytta liðsins og hefði í þokka-
bót fiskað vítið! Di Canio lét tilmæli sam-
herja sinna sem vind um eyru þjóta og
engu breytti þótt þjálfarinn Mimmo Caso
léti öllum illum látum á hliðarlínunni og
galaði inn á völlinn að Inzaghi ætti að
taka spyrnuna.
Móðgaði litla Inzaghi
Fór þetta mjög fyrir brjóstið á Simone
Inzaghi, sem brást barnalega við og varð
sármóðgaður. Sýndi hann enn einu sinni af
hverju hann mun aldrei losna við viður-
nefnið ìBaby Inzaghiî enda stendur hann
Filippo stóra bróður langt að baki í helstu
einkennisþáttum Inzaghi-ættarinnar;
markaskorun og að láta sig detta fagmann-
lega! Stóri bróðir hefði örugglega krækt í
tvö víti í viðbót hið minnsta gegn klaufsk-
um varnarmönnum Sampdoria, sem voru
sínartandi í hæla litla Inzaghi. Di Canio
hafði sitt fram, skoraði örugglega úr spyrn-
unni og fagnaði eins og hann hefði orðið
Ítalíumeistari. Æstu óhófleg fagnaðarlæti
hans mjög aðdáendur Sampdoria og fyl-
gdu minniháttar óeirðir á pöllunum í kjöl-
farið. En þegar aðdáendur Sampdoria
verða búnir að jafna sig ættu þeir að gleðj-
ast eins og aðrir aðdáendur ítalska boltans
yfir að vera búnir að endurheimta týnda
klikkaða soninn heim sem óneitanlega lífg-
ar upp á tilveruna með öfgafullum ærslum
sínum og stundum leiftrandi snilldartökt-
um.
Einar Logi Vignisson skrifar um
fótboltann á Ítalíu og Spáni.
EINAR LOGI
VIGNISSON
Úrvalsdeild karla í handbolta hófst í gærkvöld:
Góð byrjun Framara
HANDBOLTI Úrvalsdeild karla í hand-
knattleik hófst í gærkvöld með
fimm leikjum. Athyglisverðasta
viðureign kvöldsins var leikur
Fram og KA í Safamýri en þessi
lið mættust í úrslitum bikarsins á
síðustu leiktíð og þar hafði KA
betur.
Framarar náðu fram hefndum
að þessu sinni og það ansi veg-
legum því þeir pökkuðu KA
saman og sigruðu, 35–26. KA
hefur misst marga leikmenn í
sumar og ljóst að það mun taka
einhvern tíma að púsla saman
nýju liði hjá KA.
Grótta/KR hóf leiktíðina einnig
vel með öruggum sigri, 32–20, á
mikið breyttu liði Stjörnunnar og
ljóst að það er langur og erfiður
vetur fram undan hjá Stjörnunni.
Valsmenn sýndu mátt sinn
þegar þeir tóku á móti Selfossi að
Hlíðarenda. Gestirnir áttu aldrei
möguleika gegn Valsmönnum sem
unnu að lokum stórsigur, 41–28,
þrátt fyrir að vera án lykilmanna.
Selfoss átti lélegt tímabil í fyrra
og liðið virðist vera lítið betra í ár.
Mest spennandi leikur
kvöldsins fór fram á Akureyri þar
sem Þór tók á móti FH. Leikurinn
var í járnum allan tímann og það
var kannski sanngjarnt að
leiknum skyldi lykta með jafn-
tefli, 27–27.
ÍBV tók síðan á móti ÍR í
Eyjum og þar urðu lokatölur,
38–40, fyrir ÍR. ■
HVERT ÞYKIST ÞÚ VERA AÐ FARA?
Daninn Michael Bladt komst lítt áleiðis
gegn sterkum Frömurum í gær.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is