Tíminn - 31.10.1974, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 31. október 1974.
Okkur hlýnaði talsvert i garranum sem rlkir þessa dagana viö aö sjá þessar broshýru stúlkur utan viö Loftleiöahóteliö, og geislandi yndis-
þokki þessara farfugla sunnan úr heimi hefur oröið fleiri ánægjuauki, en þær eru staddar hér á vegum Viceroy og keppa um titilinn „Ungfrú
Viceroy 1974”. 1 tilefni af þessu er ýmislegt um aö vera, samkeppni, scm staöið hefur yfir um skeið með dýrölegum verðlaunum, og lýkur
henni með hófi aö Hótel Loftleiöum, þar sem sú fegursta veröur krýnd og vinningshafa afhentur vinningur. Timamynd: GE.
Slátrað
í tveim
húsum
GÓ—Sauðárkróki — Sauöfjár-
slátrun hófst hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga 12. september og
lauk 21. október. Alls var slátrað
63.139 kindum i tveim sláturhús-
um á vegum félagsins. Fór aðal-
slátrunin að sjálfsögðu fram i
hinu nýja og fullkomna sláturhúsi
félagsins á Sauðárkróki, en þar
var slátrað 57.087 kindum. í
sláturhúsinu i Haganesvik var
slátrað fyrir Fljótahreppana og
Sléttuhlið alls 6052 kindum.
Sann-
leikurinn
um Krist
— nýútgefin
bók KSF
KRISTILEGT stúdentafélag hef-
ur nýlega gefið út bók,sem á is-
lenzku nefnist: Sannleikurinn um
Krist. Bók þessi er eftir enskan
prest, John R. W. Scott, og nefnist
hún á frummálinu Basic Christi-
anity. Höfundurinn er þekktur
fyrirlesari og hefur skrifað fjölda
bóka. Hann hefur einnig tekið
virkan þátt i brezku kristilegu
stúdentahreyfingunni I.V.F. Um
bókina segir höfundur, að Um
bókina segir höfundur, að hún sé
ætluð öllum þeim, sem lifa i hinni
vestrænu menningu, sem ekki er
lengur kristin, þar sem flestir
hafa komizt i kynni við kristni i
einhverri mynd, en hafnað henni
siðan. Bókin býður lesendum að
endurmeta hin kristnu grundvall-
aratriði, sem hafnað var á
röngum forsendum.
Bók þessi, Sannleikurinn um
Krist, hefur verið þýdd á fjölmörg
tungumál og nálgast fjöldi seldra
eintaka nú eina milljón. Islenzka
þýðingu bókarinnar annaðist sira
Jónas Gislason lektor. Bókin er
pappirskilja 176 bls. að stærð og
prentuð I ísafoldarprentsmiðju
hf. Káputeikningu gerði Þröstur
Magnússon.
(Fréttatilkynning)
Línubátar
afla
sæmilega
ÞRIR bátar hafa stundað linu-
róðra frá Höfn i Hornafirði og
aflað sæmilega eða frá 5 og upp i
tiu lestir i róðri.
Þessir bátar eru Gissur SF,
sem hefur aflað einna bezt,
Skinney SF og Skógey SF.
Þá hafa nokkrir trollbátar hafið
veiðar eftir klössun. Þeir bátar,
sem eru á trolli, eru Havney,
Þinganes, Sigurður Olafsson og
Haukafell, sem nú er að fiska i
siglingu.
Hlaðgerðarkot
— samskipti heilbrigðisróðuneytisins og
Samhjdlpar Hvítasunnumanna vegna
fyrirhugaðrar starfrækslu heimilis
fyrir drykkjusjúka að Hlaðgerðarkoti
VEGNA viöskipta Filadelfiusafn-
aöarins við heilbrigðisráöuneytiö
i sambandi viö fyrirhugaðan
rekstur dvalarheimilis fyrir
drykkjusjúka að Hlaðgerðarkoti
og einkum vegna greinar Georgs
Viöars Björnssonar i Timanum
hinn 18. október sl., telur ráöu-
neytið nauösynlegt að upplýsa
eftirfarandi:
i malmánuði si, átti Einar J.
Gislason viötal við ráðuneytis-
stjóra heilbrigöisráðuneytisins og
spurðist fyrir um gildandi reglur
um starfsemi og rekstur heimila
fyrir drykkjusjúka, og I fram-
haldi af þvi viötali sendi hann
bréf til ráðuneytisins hinn 24.
mai, þar sem skýrt var frá þvi, að
Hvitasunnusöfnuðurinn heföi
mikinn áhuga á, að hasla sér viö-
ari völl meö starfsemi sinni en
áöur var með svokallaðri Sam-
hjálp Hvltasunnumanna og
hyggðist I þvi skyni kaupa Hlaö-
geröarkot I Mosfellssveit og koma
þar á stofn heimili fyrir drykkju-
sjúka.
Tveim spurningum var sér-
staklega beint til ráðuneytisins i
þessu sambandi:
1. Mundi heimili fyrir drykkju-
sjúka rekið i Hlaðgerðarkoti falla
undir sjúkrahúslög?
2. Má reikna með fjárveitingu
úr Gæzluvistarsjóði til starf-
seminnar i Hlaðgerðarkoti?
Fyrrgreint bréf barst ráðu-
neytinu 28. mai og þvi var svarað
30. mai, þar sem skýrt var frá
þvi, að ráðuneytið mundi óska
eftir umsögn héraðslæknisins I
Alafosshéraði og landlæknis, um
rekstur heimilis fyrir drykkju-
sjúka að Hlaðgerðarkoti i Mos-
fellssveit og að á álitsgerð þeirra
mundi byggjast umsögn ráðu-
neytisins og svar við þeirri spurn-
ingu, hvort heimili fyrir drykkju-
sjúka að Hlaðgerðarkoti mundi
falla undir sjúkrahúslög.
Um hitt atriðið, hvort reikna
mætti með fjárveitingu úr Gæzlu-
vistarsjóði, var bent á að gert er
ráö fyrir að fé Gæzluvistarsjóðs
sé varið til fjárfestingar vegna
stofnana fyrir drykkjusjúka, en
ekki til reksturs, og jafnframt
skýrt frá þvi, að ekki hafi verið
gert ráð fyrir fé úr Gæzluvistar-
sjóði til þessara framkvæmda á
árinu.
Ráðuneytið lofaði hins vegar að
taka málið upp við gerð næstu
fjárlaga.
I samræmi við þetta skrifaði
ráðuneytið samdægurs héraðs-
lækninum i Alafosslæknishéraði,
992 lausnir í samkeppni
um hringveginn
í sumarblaöi Æskunnar var efnt
til verölaunasa mkeppni fjöl-
skyldunnar um hinn nýja hring-
veg um landiö á vegum Æskunnar
og Landssamtaka Klúbbanna
öruggur akstur. Alls bárust 992
lausnir, og af þeim voru 272 rétt-
ar. Dregiö var úr þeim svörum,
Styrkur
til íslenzku-
rannsókna
Stjórn sjóðsins Norðmannsgjafar
samþykkti á fundi sinum fyrir
skömmu að veita Halldóri Hall-
dórssyni prófessor rannsókna-
styrk að upphæð kr. 200 þús., sem
viðurkenningu fyrir störf að Is-
lenzkri málrækt um þriggja ára-
tuga skeið og til áframhaldandi
rannsókna á Islenzkum orða-
forða.
sem bárust, á skrifstofu
Umferðarráös.
Fyrstu verðlaun, viku dvöl fyrir
fjölskylduna á hóteli við Mývatn
eöa Laugarvatni næsta sumar,
hlaut Ragnheiður Hergeirsdóttir,
Birkivöllum 24, Selfossi.
önnur verðlaun, sem eru 3
postulinsveggplattar
þjóðhátiðarnefndar 1974 — dansk-
ir frá Bing & Gröndahl, — hlaut
Kjartan F. Adolfsson, Suðurvör 2,
Grindavik. Þriðjuverðlaun,
þjóðhátiðarpening Bárðar Jó-
hannessonar, handunninn úr
silfri, hlaut Steinþór Þórðarson,
Skuggahlið, Norðfirði. 4.5. og 6.
verðlaun, sem eru bækur frá
Æskunni, hlutu: Lisa Kristins-
dóttir, Dynskógum 17, Egilsstöð-
um, Elinborg J. ólafsdóttir,
Öldutúni 8, Hafnarfirði, og Ölafur
Einarsson, Ljósheimum 18,
Reykjavik.
Friðrik Sveinssyni, Reykjalundi,
Mosfellssveit, og landlækni, þar
sem skýrt var frá beiðni Fíladel-
fiusafnaðarins og var óskað eftir
að þessir embættislæknar tækju
málið til athugunar og létu ráðu-
neytinu i té álitsgerð um málið,
einkum um það, hvort húsakynni
og staðsetning mundu herita þess-
ari starfsemi.
7. júni 1974 barst ráðuneytinu
bréf frá Friðrik Sveinssyni,
héraðslækni, þar sem hann skýrði
frá þvi, að hinn 5. júni hefði hann
farið ásamt heilbrigðisfulltrúa
Einari I. Sigurðssyni, að Hlað-
gerðarkoti og skoðað húsakynni
og aðbúnað. Hann taldi að húsa-
kynni litu vel út en ýmislegt þafn-
aðist lagfæringar og benti á, að
viðkomandi aðila bæri að sækja
um starfræksluleyfi til heil-
brigðisnefndar Mosfellshrepps og
mundi nefndin þá taka endanlega
afstöðu til umsóknarinnar.
Svar landlæknis dags. 9. sept.
barst ráðuneytinu hinn 10.
september og i þvi segir, að land-
læknir mæli með þvi að umbeðið
leyfi verði veitt að uppfylltum
skilyrðum, sem greind eru i bréfi
heilbrigðisnefndar Mosfells-
hrepps frá 2. september, sem
fylgdi með i ljósriti, en i þessu
bréfi er skýrt frá þvi, að heil-
brigðisnefnd Mosfellshrepps hafi
mælt með leyfisveitingunni, að
þvi tilskildu, að lagfæringum,
sem tilgreindar eru i bréfinu
Dregiö úr réttuni lausnum á
verði lokið að fullu fyrir 1.
nóvember þ.á.
Þær lagfæringar sem nefndin
taldi að gera þyrfti voru fyrst og
fremst i sambandi við bætta
geymslu á neyzluvörum, lag-
færingu á innréttingum i eldhúsi,
breytingu á loftræstingu I eldhúsi,
og lagfæringu á umbúnaði sorps.
I samræmi við bréf landlæknis
frá 9. sept. skrifaði ráðuneytið
Einari Gislasyni, Filadelfiusöfn-
uðinum, Hátúni 2. Reykjavik,
bréf hinn 11. sept. 1974. þar sem
vitnað er til bréfsins frá 24. mai
og skýrt frá þeim athugunum,
sem ráðuneytið hafði látið gera i
sambandi við umsókn um rekstur
heimilis fyrir drykkjusjúklinga i
Hlaðgerðarkoti i Mosfellssveit.
Ráðuneytið veitti með þessu
bréfi Filadelfiusöfnuðinum leyfi
til að reka hæli fyrir drykkju-
sjúka að Hlaðgerðarkoti i Mos-
fellssveit, með þeim skilyrðum,
sem landlæknir og heilbrigðis-
nefnd höfðu sett og var gert ráð
fyrir að þær lagfæringar, sem til-
greindar voru, yrðu komnar til
framkvæmda fyrir 1. nóvember
næstkomandi og var leyfið veitt
til eins árs til reynslu i samræmi
viðtilmæli þeirra aðila, er leitað
var til.
Afrit af þessu bréfi ráðuneytis-
ins var sent til heilbrigðisnefndar
Mosfellssveitar og skrifstofu
landlæknis.
Ráðuneytið hefur siðan beðið
Framhald á bls. 13
skrifstofu Umferðarráðs.
I