Tíminn - 31.10.1974, Blaðsíða 12
12
TíMlNtf
Fimmtudagur 31. október 1974.
hvorki fyrr né síðar, orðið eftir öðru eins. Seffer gamli
sagði nábúunum, að ,,þessi kvenmaður þarna úr Austur-
botnum" ætti engan sinn líka. ,,Hún skipti meira að
segja um hálm í rúmunum".
Nábúarnir hlóu og depluðu augunum hver framan í
annan. Það var nef nilega á allra vitorði, að Sef fersfólkið
notaði sama hálminn heilt misseri, þótt það væri siður
annarra að skipta í rúnunum á hverjum laugardegi.
Katrin komst fljótt á snoðir um, að Seffersfólkið var
jafn raunagott fólk og það var óþrifalegt. Hún hafði
aldrei fyrr eignazt önnur eins firni af góðum mat, bæði
kjötmeti og kökum. Margar vikur eftir brúðkaupið komu
dætur Seffers nær daglega upp að Klifi með mjólk eða
ábrystir. Og Katrín fann, að þessar gjaf ir voru ekki látn-
ar af höndum rakna í þvi skyni, að þær yrðu goldnar með
ókeypis vinnu eða ævilöngu þakklæti. Þær voru aðeins
gefnar af löngun til þess að láta aðra njóta að nokkru
þeirra gæða, sem gefendurnir höfðu undir höndum.
I aprílmánuði um vorið ól nýja húsf reyjan son. Þá kom
Seffer gamli sjálfur arkandi upp eftir, ósegjanlega
hreykinn yf ir því að vera orðinn af i, og gaf syni Katrínar
vænstu ána sína. Hann lagði mjög ríka áherzlu á það, að
kindin væri kvaðalaus eign Einars, og krafðist þess, að
ullin af henni yrði notuð á hann. Ærin átti að fá að ganga
í eyjum með fé Seffers um sumarið.
Drengurinn varð tveggja ára gamall í þessum mánuði,
og um svipað leyti sannfærðist Katrín um, að hún var
með barni. Hún sætti sig f ullkomlega við það og var for-
sjóninni þakklát fyrir, að drengurinn skyldi þó að*
minnsta kosti hafa fengið að njóta umönnunar hennar
einn fram til þessa. En sumarið varð henni mjög erfitt,
og henni veittist vinnan örðugri heldur en nokkurn tíma
fyrr.
Heimilið þyngist
Uppskeruvinnan hóf st undir eins og slátturinn var úti.
Katrinu gafst engin hvíld. Hún varð að arka út á akrana
með þunga sigðina, þótt hana verkjaði í handleggina af
þreytu. Norðkvist hafði einum kaupamanni of fátt þetta
sumar, og þar eð engin vinnukonan kunni að beita sigð,
var Betu skipað að fylla skarðið. En Katrín gat ekki
horft á hana, brjóstveika og farna, bogra með sigðina,
unz beinabert andlitið var orðið sótrautt og hóstinn
neyddi hana til þess að rétta úr sér og hrækja blóði. Hún
tók sigðina af Betu og lét hana gera það, sem hægara
var: binda kornskrýfin. En hún kveiknaði sér sáran,
þegar henni varð hugsað til ófædda barnsins sins.
Katrin veiktist snögglega kvöld eitt í lok ágústmánað-
ar, er hún var nýkomin heim f rá akurvinnunni, og barnið
fæddist áður en tími ynnist til að sækja yf irsetukonuna.
Beta kom á vettvang og hjúkraði henni. Það var eins og
eðlisávisun hefði knúð hana til þess að heimsækja grann-
konu sína þetta kvöld. Barnið var drengur, haria
óburðugur, enda fæddur sex vikum fyrir tímann. Katrín
grét beisklega, þegar hún virti þessa litlu veru f yrir sér.
Hrukkótt, blárautt andlitið var minna heldur en hrepptur
hnefi hennar.
„Ó, að hann mætti deyja", andvarpaði hún.
Og svipað flaug Betu í hug, en samt reyndi hún af
móðurlegri umhyggju að halda lífinu í snáðanum.
Presturinn kom samdægurs til þess að skíra barnið, og
þegar Beta spurði, hvað það ætti að heita, hvíslaði
móðirin: „Eirikur".
Þær sex vikur, sem liðu, unz sá tími kom, að barnið
hefði átt að fæðast, var ekki annað sýnt en hver dagurinn
myndi verða þess síðasti. Aldrei hafði Katrín tárfellt
eins mikið og nú. Hún var sjálf mjög máttfarin eftir
barnsburðinn, og í hvert skipti, sem hún lyfti drengnum
upp, herptist hjarta hennar saman af meðaumkun og
tárin hrundu niður á litla kollinn hans.
„Hvað verður um þig í þessari miskunnarlausu ver-
öld?" mundraði hún.
Sjálf fæddi hún ekki barnið, og ef ekki hefði notið við
linnulausrar umhyggju Betu, hefði bæði kornbarnið og
eldri drengurinn orðið að svelta. Beta sendi telpurnar
sinar til Eriksson og Sefers og könnu til þess að sníkja
mjólk handa börnum Katrínar, þangaðtil kona Eriksson
fór að hafa orð á því, hvort ekki væru f leiri bændabýli í
byggðinni.
Þetta haust gat Katrín ekki unnið að þreskingu, og af-
leiðing þess var sú, að hún fékk ekkert korn til vetrarins.
Hún var meira að segja ekki orðin nógu frísk til þess að
taka upp kartöflur, þegar þar að kom. Auk þess komst
hún varla brott f rá börnunum. En hún átti eitt beð í garði
Norðkvists og annað hjá Svensson og varð þess vegna að
hjálpa til í görðunum, ef hún átti ekki að eiga það á hættu
að verða af kartöf lunum sínum. Hún vann hálfan dag, en
neyddist svotil þess að hætta. En Beta sá um, að Katrín
fengi kartöf lurnar sinar. Hún reifst við húsbændurna og
vinnumennina þeirra milli hóstakviðanna og ógnaði
þeim með kartöf lugref inu, unz þeir féllu frá því að ræna
beð Katrínar. Á kvöldin fékk hún svo einhverja stúlku í
lið meðsértil þessaðtaka upp úr beðunum og fór jafnan
ill
liill
Fimmtudagur
3l.október
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55. Morgunstund barn-
anna kl. 9.15: Rósa B.
Blöndals heldur áfram að
lesa „Flökkusveininn” eftir
Hector Malot (16). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
liða. Við sjóinn kl. 10.25:
Ingólfur Stefánsson talar við
Jón Janus Ólafsson deildar-
stjóra um ferskfiskmat o.fl.
Hljómplötusafnið kl. 11.00:
(endurtekinn þáttur G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frlvaktinni Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Frá getnaði til fæðingar
Guðrún Guðlaugsdóttir
fjallá'r um meðgöngu-
timann: fyrstiþáttur.
15.00 Miðdegistónleikar
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leikur „Ást til
þriggja glóaldina”, svltu
eftir Prokofjeff: Antal
Dorati stj. Emmy Loose,
Helen Donath, Yvonne
Minton, Manfred Jung-
wirth, Régine Crespin, Otto
Wiener og Filharmóniu-
sveitin i Vin flytja atriði úr
„Rósariddaranum” eftir
Richard Strauss: Georg
Solti stj. Hollywood Bowl
hljómsveitin leikur „Tico,
Tico” eftir Aberu og Taran-
tellu eftir Rossini: Carmen
Dragon stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.40 Barnatimi: Ágústa
Björnsdóttir stjórnar. Vetur
gengur i garð M.a. les
Knuiur R. Magnússon kafla
úr „Heiðarbýlinu” eftir Jón
Trausta og „Rökkuróper-
unni” eftir Þórberg
Þórðarson, og Helga Step-
hensen les ljóð eftir Jó-
hannes úr Kötlum.
17.30 Framburðarkennsla i
ensku á vegum Bréfaskóla
SÍS og ASl.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Mælt mál. Bjarni
Einarsson flytur þáttinn.
17.40 Gestir I útvarpssal:
Manfred Scherzer og
Jurgen Schröder leika
saman á fiðlu og pianó.
20.10 Flokkur islenskra
leikrita V: „Galdra-Loftur”
eftir Jóhann Sigurjónsson.
Aður útvarpað fyrir 27
árum. Leikstjóri: Haraldur
Björnsson. Njörður P.
Njarðvfk lektor flytur inn-
gangsorð. Persónur og
leikendur: Biskupinn á
Hólum ... Gestur Pálsson,
Biskupsfrúin ... Ingibjörg
Steinsdóttir, Disa, dóttir
þeirra ... Bryndis
Pétursdóttir, Ráös-
maðurinn á Hólum...
Þorteinn 0. Stephensen,
Loftur, sonur hans.Lárus
Pálsson, Ólafur,
vinnumaður ... Róbert Arn-
finnsson, Steinunn, vinnu-
kona ... Soffia Guð-
laugsdóttir, Blindur
ölmusumaður ... Haraldur
Björnsson. Aðrir leikendur:
Friðfinnur Guðjónsson,
Valdemar Helgason, Þor-
grimur Einarsson, Steindór
Hjörleifsson, Fanney
Vilhjálmsdóttir og Ingi-
björg Stephensen.
22.00 Fréttir
22.15 V e ð u r f r e g n i r .
Kvöldsagan: „1 verum”
sjálfsævisaga Theódórs
F r i ö r i k s s o n a r Gils
Guðmundsson les (2).
22.35 Frá alþjóðlegu kóra-
keppninni „Let the Peoples
Sing” — fjóröi þáttur
Guðmundur Gilsson kynnir.
23.10 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.