Tíminn - 06.01.1976, Side 1
Leiguf lug—Neyðarf lug
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN HF
4
3. tbl. —Þriðjudagur 6. janúar 1976 —60. árgangur
Fluavél eyðileaast
í nauðlendinau
— Flugmaðurinn slapp ómeiddur
J.K.-Egilsstöðum. Nýleg eins
hreyfils flugvél af gerðinni „ „„ K"tx’
Cessna J80 eyðilagðist á Borgar-
firði eystra i gær. Véiin var á leið
með varning frá Egilsstöðum til
Borgarfjarðar, en vegna élja-
gangs gat hún ekki lent á Borgar-
firði, og sneri þvi aftur áleiðis til
Egilsstaða. Rétt þegar flugmað-
urinn hafði snúið við, missti hann
skyggnið og nauðlenti innst i
Borgarfirði hjá bænum Hvann-
stóði. Var hann einn I vélinni og
slapp ómeiddur, en vélin er talin
ónýt.
Flugvélin var i eigu flugfélags
Austurlands og hefur verið notuð
til áætlunar-, sjúkra- og leigu-
flugs. Þegar óhappið varð, var
Útgerðarmenn loðnuveiðiskipa:
Hóta stöðvun
loðnuveiði 18. jan.
— verði ekki búiðað
ákveða loðnuverð þá
hið fyrsta. Þá var samþykkt að
verði ekki búið að ákveða loðnu-
verð 18. janúar verði loðnu-
veiðarnar stöðvaðar.
Tvö eða þrjú loðnuveiðiskip eru
þegar farin til veiða og næstu
daga munu fjölmörg skipanna
fara að tinast út. Allt útlit er á að
mikið verði gert út á loðnu á þess-
arri verti'ð en það fer eftir verði
loðnunnar og fleiru. En þess ber
einnig að gæta, að nótaskipin hafa
varla önnur verkefni en loðnu-
veiði. fslenzk' skip munu ekki
stunda sfldveiðar i Norðursjó i ár,
þar sem sjávarútvegsráðuneytið
hefur bannað þær veiðar og sókn-
in i þorskinn er svo ásetin, að
stóru nótaskipunum er þar ofauk-
ið.
Hafrannsóknaskipið Árni
Friðriksson er farið norður til ao
rannsaka loðnugöngurnar suður
með Austurströnd.inni.
Leiðangursstjöri er Hjálmar
Vilhjálmsson.
OÓ-Reykjavik. A fundi útgerðar-
manna loðnuveiðiskipa, sem
haldinn var i gær, var samþykkt
að fara þess á leit við Verðlagsráð
sjávarútvegsins, að loðnuverð
fyrir janúarmánuð verði ákveðið
ASI skorar á
aðildarfélög
að afla verk-
fallsheimildar
hið fyrsta
gengið vel i hinum fyrri tveimur.
Ungir vegfarendur i Breið-
holti reyndu að aðstoða
leigubilstjóra þar efra í gær-
kvöld og gekk litt þrátt fyrir
góðan vilja. Fjöldi bila var
skilinn eftir mannlaus fyrir
utan veginn upp i Breiðholt,
en fólkið flutt uppeftir i bil-
um hjálparsveitanna. Snjó-
bill var i gærkvöld útbúinn
sem sjúkrabill til að vera til
taks, ef óhöpp hentu. Slikt
mun ekki áður hafa verið
gert i höfuðborginni.
Timamynd: Gunnar.
Mikil ófærð í Reykjavík og
hjálparsveitir önnum kafnar
Snjóbíll útbúinn sem sjúkrabíll og hafður til taks í nótt
MÓ-Reykjavik. Vonzkuveður var
á höfuðborgarsvæðinu i gærkvöld
og urðu miklar tafir á umferð. A
timabili lokaðist leiðin upp i
Breiðholt og ófært varð til Hafn-
arfjarðar. Viða um borgina voru
bilar fastir og lögregla og Hjálp-
arsveit skáta og Björgunarsveit
Ingólfs voru á ferðinni til að
reyna að hjálpa vegfarendum.
Seint i gærkvöldi var snjóbill
skátanna útbúinn sem alhliða
sjúkrabill og var hafður upp við
Artúnshöfða i nótt til að vera til
taks ef slys eða óhöpp ættu sér
stað. Veður þetta náði upp i Borg-
arfjörð og um Suðurland allt
austur i Mýrdal.
Sem dæmi um ófærðina i
Reykjavik má nefna, að kl. 19.30 i
gærkvöldi var sjúkrabill sendur i
Breiðholtshverfi og kom hann
ekki úr þeirri ferð aftur fyrr en kl.
21,30. Stuttu siðar þurfti hann
aftur uppeftir, en þá var færðin
farin að skána og var billinn þá
ekki nema þrjá stundarfjórðunga
i förum. Fjallabilar frá Hjálpar-
sveit skáta og Björgunarsveitinni
Ingólfi fluttu fjölda fólks upp i
Breiðholt, en fólksbilum var
alveg ófært þangað frá klukkan
að ganga sjö i gærkvöldi og langt
fram eftir kvöldi. Þegar Timinn
var að fara i' prentun klukkan að
ganga ellefu var verið að reyna
að opna leiðina uppeftir, en allt
óvist, hvenær það tækist.
Hafnarfjarðarvegur var lokað-
ur milli klukkan niu og tiu i gær-
kvöldi, en þá tókst að opna hann
aftur fyrir umferð. Eitthvað varð
um árekstra og óhöpp, og á
Digranesvegi i Kópavogi var ekið
á dreng, en ekki var vitað um
meiðsli hans.
Hjörleifur Ólafsson vegaeftir-
litsmaður sagði i gærkvöldi, að
veðrið hefði verið verst á höfuð-
borgarsvæðinu og i . næsta ná-
grenni. Ekki hefði nein fyrirstaða
þó verið á vegum austur um
sveitir, nema einhver snjór hefði
verið i Rangárvallasýslu. Hins
vegar var þar ekkert ferðaveður.
Sömu sögu er að segja um Hval-
fjörð og upp Borgarfjörð.
Austur i Mýrdal var einnig
blindhrið og þar er kominn mikill
snjór.
Norður yfir HoltavöVðuheiði
var fært i gær og allt til Akureyr-
ar.
Flugumferð um
Keflavíkurvöll
minnkaðí um
11 % á érinu 75
VERNDARSKIPIN ORÐIN 10
— HAFA ALDREI VERIÐ FLEIRI
OÓ—Reykjavik —■ Landhelgis-
gæzlan telur, að nú séu 32 brezk-
ir togarar að ólöglegum vciðum
á svæöinu frá Glettinganesi
norður aö Melrakkasléltu. Tog-
aranna gæta 10 brezk skip, og
hafa þau aldrci veriö fleiri.
Þarna er um að ræöa fjórar
freigátur, þrjá stóra dráttar-
báta og þrjú aöstoðarskip.
Landhelgisgæzluflugvélin Sýr
flaug yfir svæðið i gær, og var
þá sæmilegt veður á miðunum
og flestir togaranna að veiðum.
Greinilegt er, að Bretum f>yk-
ir mikið við liggja að verja
veiðiþjófana, og herskipum og
öörum aðstoðarskipum togara-
flotans fjölgar á Islandsmiðum.
Lætur nú nærri, að verndarskip
sé fyrir hverja þrjá togara, sem
varla dugir, þvi eins og kunnugt
er, skar varðskipið Ægir á tog-
vira tveggja togara á laugar-
dagskvöld. Heldur betur hvein i
talstöðvum togaranna og vernd-
arskipa þeirra eftir þann at-
burð, og kenndi hver öðrum um,
togaraskfpstjórarnir þóttust
ekki haía næga vernd og her-
skipamenn sendu þeim tóninn
afturog skömmuðu karlana fyr-
ir að veiöa ekki á fyrirfram
ákveðnum verndarsvæðum.
BH-Reykjavik. — í ársyfirliti
flugmálastjórnar segir, að flug-
umferðin um islenzka flugstjórn-
arsvæðið hafi minnkað um 5,2% á
siðasta árí, en verulegur sam-
dráttur varð á árinu i öllu flugi
yfir Norður-Atlantshafið. Um
80% flugumferðarinnar er þotu-
umferð. Um áramótin 1975/76 tók
islenzka flugstjórnarmiðstöðin
við flugumferðarstjórn iefra loft-
rými Grænlandssvæðisins,
þannig að flugstjórnarsvæðið er
nú i reynd orðið þrefalt stærra.
Á Keflavikurflugvelli hefur
lendingum farþegaflugvéla i
millilandaflugi fækkað um 11.0%.
Á Reykjavikurflugvelli er fjöldi
lendinga svo tii hinn sami og varð
árið áður, en hreyfingum. þ.e.
samtals fjölda lencíinga og flug-
taka, hefur fækkað um 16%. eink-
um vegna samdráttar i kennslu-
og æfingaflugi. Um 6,9% aukning
hefur orðið i áætlunarflugi innan-
lands, en reglubundið áætlun-
arflug er nú stundað til 36 flug-
valla utan Reykjavikur.
Flestar lendingar utan
Reykjavikur voru á Akureyri. eða
3.268, og nemur aukningin 16%.
næstflestar lendingar eru i Vest-
mannaevjum 2.744. þá koma
Egilsstaðir með 1.37-1 og loks Isa-
fjörður með 1.109. Á þessum stöð-
um eru lendingar nokkuð færri en
árið áður. og nemur fækkunin
nærri 20%> i Vestmannaeyjum.
Hins vegar hefur lendingum
fjölgað á Höfn. og heldur betur á
Sauðárkróki. þar sem aukningin
nemur 57,4% og voru þar 351
lending á s.l. ári.