Tíminn - 06.01.1976, Side 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 6. janúar 1976.
— konur á Húsavík buðu börnum
af skjálftasvæðinu á jólatrésfagnað
Mó-Reykjavik. — bað hefur verið
mjög ömurlegt hjá okkur i Keldu-
hverfi um jól og áramót, sagði
Ingibjörg Indriðadóttir á Höfða-
brekku i viðtali við blaðið. 1 raun
fá engin orð lýst þvi, hve ömur-
legt ástandið hefur verið, og
fyrstu fjóra sólarhringana eftir
að jarðskjálftarnir byrjuðu, var
hér enginn svefnfriður. Það er i
raun kraftaverk, að engar
sprungur hafa komið undir húsin,
en fólkið var allan timann tilbúið
að fiýja burt, og skepnur voru ..
mjög hræddar. Hundar létu mjög
illa, og fé þjappaði sér saman i
húsum. Hins vegar var undra-
vert, hve fólkiö hélt sinni ró, og á
það mikið hól skilið fyrir rósem-
Allt samkomuhald hefur legið
niðri hér í Kelduhverfi, en konur á
Húsavik buðu börnum héðan á
jólatrésfagnað i félagsheimilinu á
Húsavik á laugardaginn var. Var
þar ljómandi skemmtun, og
viljum við koma kæru þakklæti á
framfæri fyrir þessa hugulsemi.
Þetta var mjög kærkomið fyrir
börnin, sem mörg voru orðin
þreytt á langvarandi jarðhrær-
ingum og litilli skemmtan um jól
og nýár. Mikill fjöldi sótti þessa
jólatrésskemmtun, og skemmtu
sér allir hið bezta.
Stjórnunarbók
á íslenzku
NÝLEGA kom út hjá Almenna
bókafélaginu bókin Nútima-
stjórnun eftir Peter Gorpe. Bókin,
sem er gefin út að frumkvæði
Stjórnunarfélags tslands, var
fyrst prentuð i Sviþjóð 1969 og
hefurverið prentuð fimm sinnum
á sænsku og þrisvar á dönsku.
Hún er þvi ein útbreiddasta
stjórnunarbók á Noröurlöndum
um þessar mundir. Höf.,
Peter Gorpe, hefur i mörg ár
starfaðvið kennslu og rannsókn-
ir á stjórnunarfræðum og vinnur
nú sem sérfræðingur hjá hag-
sýslustofnun sænska rikisins. t
bókinni leggur hann áherzlu á að
lýsa starfsemi skipulagsheilda,
þ.e. fyrirtækja og stofnana, og
dregur hann sameiginleg ein-
kenni stjórnunar og þá þætti, sem
stjórnendur þurfa að kunna skil á.
Hjá höfundi koma fram ný við-
horf innan stjórnunar, þar sem
aflað er fanga frá öðrum grein-
um, ekki einungis rekstrarhag-
fræði, heldur einnig kerfisfræði,
sálarfræði, félagsfræði og félags-
sálarfræði.
Þýðingu bókarinnar önnuðust
Hörður Sigurgestsson, Július Sæ-
beig Ólafsson, Sigurður Haralds-
son, Sigurður Helgason og Þórir
Einarsson, sem jafnframt sam-
ræmdi handritið og vann að frá-
gangi þess.
Nútimastjórnun er prentuð i
Prentsmiðjunni Eddu. Kápu-
teikningu gerði Katrin Óskars-
dóttir.
Formenn Bilgreinasambandsins og Félags islenzkra bifreiðaeigenda undirrita samninginn i gær. Frá
vinstri: Geir Þorsteinsson, Eggert Steinsen og Sveinn Oddgeirsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Timamynd: Gunnar.
Afrýjunarnefnd á vegum FIB
og Bílgremasambandsins
BH-Reykjavik. — Félag fslenzkra
bifreiðaeigenda og Bilgreinasam-
bandið hafa undirritað samning
um stofnun og starfrækslu nefnd-
ar, sem hafi þaðhlutverk að leysa
deilur, er upp kunna að koma
milli félagsmanna FtB og ann-
arra bifreiðaeigenda annars veg-
ar og íslenzkra bifreiðasala og
bifreiðaverkstæða hins vegar. Er
hér um að ræða viðgerðir s.s.
framkvæmdir viðgerða og verð,
ábyrgðarþjónustu s.s. hvort
viðgerð cða galli falli undir um-
samda eða tilheyrandi ábyrgð, og
loks söluskilmála, s.s. galla á bif-
reið.
Samningar þessir voru undir-
ritaðir i gær af þeim Geir Þor-
steinssyni, formanni Bilgreina-
sambandsins, og Eggerti Stein-
sen, formanni FtB.
Gerir samkomulagið ráð fyrir,
að sérstakur viðgerðasérfræðing-
ur starfi á vegum aðilanna, og
geta menn skotið ágreinings-
atriðum til hans. Mun hann eftir-
leiðis verða til viðtals tvisvar i
viku á skrifstofu FtB og hefur
Pétur Maack Thorsteinsson bif-
vélavirkjameistari verið ráðinn
til þessa starfa.
Uni menn ekki mati hans, má
skjóta ágreiningi til sérstakrar
áfrýjunarnefndar, sem þegar
hefur verið skipuð og eiga sæti i
henniþeir Páll Sigurðsson dósent,
sem er formaður nefndarinnar,
Jón Bergsson verkfræðingur,
skipaður i nefndina af hálfu Bil-
greinasambandsins, og Jón
Björnsson verkfræðingur, skipað-
ur i nefndina af hálfu FIB.
Framkvæmdastjóri Bilgreina-
sambandsins og FtB, þeir Július
Oddsson og Sveinn Oddgeirsson,
kynntu blaðamanni Timans hina
nýju samninga i gær og er ljóst,
að hér er um merka nýjung að
ræða, sem vafalaust á eftir að
koma sér vel fyrir margan bif-
reiðaeigandann, sem hingað til
hefur helzt getað náð rétti sinum
með löngu málavafstri og dóm-
stólaþrefi, oft á tiðum kostnaðar-
sömu með vafasömum eftirtekj-
um. Með þessu fyrirkomulagi eru
málin einlölduð mjög rækilega,
og þar sem slikt fyrirkomulag
viðgengst, svo sem i Danmörku,
þykir einsdæmi, ef mál gengur
það langt, að það fari fyrir dóm-
stóla.
Eins og fyrr segir stendur þessi
þjónusta öllum bifreiðaeigendum
til boða, en að sjálfsögðu verður
hún kostnaðarminni þeim, sem
meðlimir eru i FÍB.
Vöruflutningabátur
strandaði við Holt
Ingibjörg Indriðadóttir á Höfðabrekku:
„Omurlegra
en orð fái lýst"
Tvö innbrot
í Vogaskóla
Oó-Reykjavlk. Vogaskóli hefur
rétteinu sinni orðið fyrir barðinu
á innbrotsþjófum. Aðfaranótt
laugardags var brotizt inn i skól-
ann og rótað til og aftur var brot-
iztinn isama skóla i fyrrinótt, og
þá stolið þaðan seguibandstæki,
sem ennvarekkikomið i leitirnar
i gær.
Innbrotstilraunir voru gerðar á
nokkrum öðrum stöðum i höfuð-
borginni, en þær ferðir voru ekki
til fjár.
Gafst ekki
ráðrúm til
að stela
Oó-Reyk javik . Aðfaranótt
laugardags var brotizt inn i Ofna-
smiðjuna við Þverholt. Sjálft
innbrotið gekk vel, og var fram-
kvæmdamaðurinn alsæll að virða
fyrir sér varninginn og gera upp
við sig, hverju hann ætti helzt að
stela, þegar lögreglumenn voru
allt i einu komnir i selskapinn, og
var innbrotsmaður fluttur venju-
lega leiö.
Það sem maöurinn varaðist
ekki, var að i húsakynnum
Ofnasmiðjunnar er búið að
koma fyrir fullkomnu þjófa-
varnakerfi, sem strax gerði
viðvart um mannaferðir i húsinu.
Lögreglumenn voru þvi’ fljótir á
staðinn og voru komnir inn i
húsið, áður en viðkomandi hafði
gert uppvið sig.hvaðhann ætti að
hafa á brott með sér.
Engum sykri bætt í Tropicana
SJ-Reykjavík. — 1 Tropicana-
appelsinusafa eru u.þ.b. 10% af
ýmsum sykurefnum, en það er
náttúrlegur sykur, engum sykri
er bætt i ávaxtasafann, og raunar
engum öðrum efnum. Samkvæmt
upplýsingum frá Rannsókna-
stofnun iðnaðarins eru þessi
sykurefni i ávaxtasafanum i
þessum hlutföllum, reyrsykur
(sucrose) 54%, ávaxtasykur
(fructose) 17% og drúfusykur eða
þrúgusykur (glucose) 29%. Svo
fórust forráðamönnum fyrir-'
tækisins Sólar h.f., sem selur
Tropicana appeláinusafa hér á
landi, orð i viðtali við Timann i
gær, en á sunnudaginn birtist
frétt i Timanum um sykurinni-
hald gosdrykkja og öls, og var þar
jafnframt tiltekið sykurinnihald
Tropicanasafa.
Fréttin i Timanum hafði þau á-
hrif, að fyrirspurnir bárust til
fyrirtækisins um hvort sykri væri
bætt i ávaxtasafann, og hefur
slikur kvittur raunar komið upp
áður. Vildu forráðamenn fyrir-
tækisins leggja áherzlu á sann-
leikann i þessu máli, að engum
sykri er bætt i safann. Hins vegar
er fréttin um sykurinnihald
Tropicana rétt, en hvorki i Tim-
anum á sunnudaginn, né heimild-
inni, nýju hefti af Jafnvægi, riti
sykursjúkra, er þess getið, að hér
er um náttúrleg sykurefni að
ræða.
Að undanförnu hefur farið fram
rannsókn að beiðni Sólar h.f. á
efnainnihaldi Tropicanasafa og
safa úr ferskum appelsinum af
ýmsum tegundum, keyptum hér i
verzlunum. Þessari rannsókn er
ekki lokið, en komið hefur i ljós,
að i safa úr Jaffa-appelsinum og
Outspanappelsinum eru einnig
um 10% af ýmsum sykurefnum,
en skipting þeirra er mismun-
andi. I ljós kom einnig, að i hverj-
um 100 gr. af Tropicanaappel-
sinusafa eru 40—50 mg. af C-vita-
mini, en 40 mg. i sama magni af
safa' úr Outspan og Jaffa-
appelsinum. Þennan mismun
þakka forráðamenn Sólar h.f.
fullkomnum aðferðum við
geymslu hráefnisins fram til þess
tima, að Tropicanasafinn kemur
hér á markað.
Þess má geta, að finnast kunna
ferskar appelsinur með hærra
vitamininnihaldi en hér var
greint frá áður, en appelsinurnar,
sem safinn var tekinn úr i rann-
sókninni, voru valdar af starfs-
mönnum Rannsóknastofnunar
iðnaðarins. Búast má við að
gamlar appelsinur hafi minna
vitamininnihald.
Brutust inn í kirkju
og lentu í bókasafni
OÓ-Reykjavik. Nokkrir ungir
menn gerður sig heimakomna i
tveim kirkjum i Reykjavik um
helgina utan messutima, jafnvel
utan venjulegs fótaferðartima.
Brotizt var inn i Langholtskirkju
aðfaranótt laugardags, en ekki
er vitað til að neinu hafi verið
stolið. t gær hafðist upp á ungum
mönnum, sem viðurkenndu
innbrotið og sögðust hafa brotizt
þar inn oft áður.
Aðfaranótt mánudags var svo
brotizt inn i Bústaðakirkju. Var
þar farið inn um tvennar dyr á
kjallara hússins. Þegar innbrots-
menn voru komnir inn um siðari
dyrnar eftir talsverð átök við
dyraumbúnaðinn, voru þeir
komnir inn i' útibú Borgarbóka-
safns Reykjavikur. Er þeir stóðu
þarna inni umkringdir bókahill-
um á allar hliðar, virðist sem
þeim hafi fallizt hendur og fannst
vist fátt eigulegt þar inni, þvi
einskis er saknað af bókum. Við
svo búið lölluðu þeir út sömu leið,
og var útgangan sýnu greiðari,
þar sem ekki þurfti að brjóta sér
leið.
Skemmdist lítið og
engan mann
sakaði
KSn. Flateyri. Mótorbáturinn
Engilráð 1S 60, sem er 30 lesta
fiskibátur, strandaði rétt utan við
bryggjuna i Holti um hádegið i
gær. Báturinn er notaður til vöru-
flutninga i stað Djúpbátsins,
sem er bilaður. Strandið varð
með þeim hætti, að varningur féll
fyrir borð, og var verið að reyna
að ná honum innbyrðis aftur, þeg-
ar bátinn rak upp i fjöru. Þarna
er sandfjara, og yar útfail, þegar
bátinn rak upp.
Mótorbáturinn Asgeir Torfason
frá Flateyri reyndi að draga
Engilráð á flot, en tókst ekki,
enda var þá nokkur timi liðinn frá
þvi strandið varð og nær fallið
undan bátnúm. Siðdegis i gær var
beðið eftir flóði, og var talið ör-
uggt, að þá gæti báturinn siglt út
af sjálfsdáðum. Gott veður er á
strandstað og ekki talið, að
skemmdir hafi orðið á bátnum.
Engan mann sakaði.
Guðbjörg IS aflahæsti
Vestfjarðatogarinn
GS-isafirði — Guðbjörg ÍS var
aflahæstur vcstfirzku skuttogar-
anna á sl. ári og færði alls 3798
lestir að landi.
Afli annarra Vestfjarðatogara
var sem hér segir: Bessi Súðavik
3627 lestir, Július Geirmundsson
1S 3539, Guðbjartur tS 3443,
Dagrún Bolungarvik 3199, Fram-
nes Þingeyri 2513. Páll Pálsson tS
2436 og Trausti frá Suðureyri 2145
lestir.
Þess skal getið, að Framnesið
var átta vikur frá veiðum vegna
bilana, og Páll Pálsson lá sömu-
leiðis i höfn um sex vikna skeið af
sömu ástæðum og Guðbjartur um
tvær vikur.
Allir isa Vestfjarðatogararnir
afla sinn i kassa, en slikur fiskur
er úrvals hráefni til vinnslu.