Tíminn - 06.01.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 6. janúar 1976
Emmanuelle gerði
hana fræga
Það er engu likara nú til dags,
en ungar leikkonur verði að
byrja leikferil sinn i einhverri
striplings- og kynlifsmynd ef
nafn þeirra á að verða frægt i
heimi kvikmyndanna. Hér á
myndinni sjáum við Sylviu
Kristel, sem var algjörlega
óþekkt 22 ára stúlka, þangað til
hún lék i myndinni Emmanu-
elle, sem hefur farið eins og logi
yfir akur í Evrópu og er nú verið
að byrja sýningar á i Ameriku.
Gizkað er á, að um 80 millj. sýn-
ingagestir hafi séð kvikmynd-
ina. Hér á landi var hún sýnd i
margar vikur, og var mikið sótt,
en ekki sögðust allir vera jafn-
hrifnir. Einnig bar töluvert á að
kvikmyndagagnrýnendum bæri
ekki saman i dómum sinum. —
Hvað um það, myndin var aug-
lýst mikið og varð fræg, og nú
hefur Sylvia nýlega lokið við að
leika i franskri kvikmynd á móti
Jean-Louis Trintignant. Nefnist
myndin „Leikur að eldi”. Bein
afleiðing af Emmanuelle-frægð-
inni var ■ það, að kvikmynda-
framleiðendur i Hollywood hafa
gert henni góð boð, — þeir eru
stöðugt á höttunum eftir ein-
hverju nýju og spennandi. —
Sylvia Kristel sjálf segist ekki
vera m jög áköf i að þiggja þessi
boð þeirra, og eiginlega viti hún
ekki alveg fyrir vist, hvað þeir
háu herrar eigi við i tilboðinu,
þegar þeir bjóði sér að leika i
kvikmýndum, sem eigi að vera
„soft porno classics”!
Hérna sjáið þið nýjustutizkuna i
barnarúmum. Rúmið er úr
gegnsæju plasti, og sagt er, að
mjög þægilegt sé að halda þvi
hreinu og fallegu. Barnið sér
mun betur allt umhverfi sitt
heldur en úr venjulegu rúmi, og
móðirin á lika miklu auðveldara
með að fylgjast með barninu i
þessu glæra rúmi, heldur en ef
það er lokað niður i rimlarúm,
eða rúm með tréhliðum.
SwhhS
— Brostu, segi ég, brostu..
brostu... BROSTU.
— Nú er nóg komið að þessu —
pabbi gamli —. Ég er á nákvæm-
lcga sama aldriog Dean Martin...
— Get ég fengið hundraðkall,
pabbi, og ég veit að peningar
vaxa ekki á trjánum.
DENNI
DÆMALAUSI
Snjór og sýróp er gott saman, en
hefurðu prófað það með tómat-
sósu?