Tíminn - 06.01.1976, Page 9
Þriðjudagur 6. janúar 1976.
TÍMINN
9
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Hit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargötu,
simar 18S00 — 18306. Skrifstofur I Aðals,træti 7, simi 26500
— afgreiðslusimi 12323 — auglýsingaslmi, 19523. Verð I
lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuði.
Blaðaprenth.f'
Mestu kreppuár um
40 ára skeið
Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunarinn-
ar hefur þjóðin orðið fyrir meira fjárhagslegu áfalli
á siðasta ári en um 40 ára skeið, þegar hún varð fyr-
ir mestum búsifjum af völdum heimskreppunnar
miklu og hruni saltfiskmarkaðarins. Þjóðar-
tekjurnar rýrnuðu hvorki meira né minna en um 9%
á mann á árinu 1975. Meginorsakirnar voru stór-
versnandi viðskiptakjör. Af þessu hlaut að leiða, að
lifskjörin rýrnuðu, en þó ekki meira en það, að
kaupmáttur dagvinnukaups verkamanna varð
svipaður 1975 og á fyrsta stjórnarári vinstri
stjórnarinnar, 1972, þegar þjóðin bjó við batnandi
fjárhagslega aðstöðu. Þá var kaupmáttur dag-
vinnukaupsins hvorki meira né minna en 14% meiri
en á árinu 1971, þegar þjóðartekjur á mann voru
svipaðar og 1975. Þetta er vissulega árangur, sem
vert er að meta og viðurkenna, þar sem jaf nhliða
tókst að tryggja næga atvinnu.
Til eru þeir, sem halda þvi fram, að lifskjara-
rýrnun hefði þurft að verða meiri og að rikisstjórnin
hafi ekki verið nógu sterk stjórn. Hún hafi ekki grip-
ið til nógu strangra og harkalegra aðgerða eins og
gert var á árunum 1968-’70. Þessu er þvi fyrst að
svara, að reynslan frá þeim tima er til viðvörunar.
Þá kom hér til stórfellds atvinnuleysis og mikils
landflótta af völdum þess. Þá urðu hér stórfelldari
verkföll en nokkru sinni fyrr og siðar.
Núverandi rikisstjórn hefur ekki viljað eiga sinn
þátt i þvi, að slikt ástand skapaðist aftur. Hún hefur
þvi reynt að fara vægilega i sakirnar og að stilla
óhjákvæmilegri kjaraskerðingu sem mest i hóf.
Hún hefur jafnframt leitað eftir sem beztu sam-
starfi við verkalýðshreyfinguna. Forustumenn
verkalýðshreyfingarinnar mega lika eiga það, að
þeir tóku mjög skynsamlega á málum 1975. Júni-
samningarnir munu lengi verða taldir til fyrir-
myndar um skynsamlega samningagerð, enda eiga
þeir drjúgan þátt i þvi, að kjaraskerðingin varð ekki
meiri og að hægt var að tryggja næga atvinnu i
landinu. Þetta var að visu ekki vel séð af ýmsum
forustumönnum stjórnarandstöðunnar, sem létu
það t.d. óspart uppi i Þjóðviljanum, að nota ætti
kjarasamningana til að gera rikisstjórninni óhægt
fyrir og helzt ætti að reyna að fella hana. Þessar
raddir heyrast nú aftur i Þjóðviljanum. En vonandi
hafa þær ekki meiri áhrif nú á forystumenn verka-
lýðssamtakanna en á siðastliðnu ári.
Stjórnarandstaðan
Þáttur stjórnarandstöðunnar i stjórnmálasögu
siðasta árs verður þvi miður að teljast hörmulegur.
Hjá Alþýðubandalaginu hefur þeim forustumönn-
um, sem stóðu að ábyrgri afstöðu vinstri stjórnar-
innar, verið alveg þokað til hliðar. Þar hefur ný for-
usta tekið völdin. Stefna hennar hefur verið lýð-
skrum af versta tagi. Krafizt er stórfelldra fram-
fara á öllum sviðum, en jafnframt hamast gegn öll-
um óhjákvæmilegum skattaálögum. Afleiðing
slikrar stefnu yrði ringulreið, skipulagsleysi og
hrun, efiylgt væri. Furðulegt er, að flokkur, sem
telur sig fylgjandi skipulagshyggju, skuli bjóða upp
á slikt. Alþýðuflokkurinn fylgist hálfur með i þessu
kapphlaupi, og hefur enn ekki náð að marka neina
sjálfstæða stefnu eftir hrun hans sökun stefnunnar,
sem hann fylgdi á árunum 1968-1970.
Vonandi bætir stjórnarandstaðan ráð sitt á hinu
nýbyrjaða ári. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
AAerkileg dlyktun
Bandaríkjaþings
Hún getur leitt til friðar í Angola
SENNILEGA hefur álvktun.
sem samþykkt var i öldunga-
deild Bandarikjaþings 19.
desember siðastliðinn haft
mjög heppileg áhrif á gang
mála i Angola. Alyktun þessi,
sem var samþykkt með 54 at-
kvæðum gegn 22, fól i sér, að
rikisst jórnin fengi ekki frekari
fjárveitingu til hernaðarlegr-
ar ihlutunar i Angola eða til að
styrkja annan aðilann i
borgarastyrjöldinni þar. Bæði
Ford forseti og Kissinger
höfðu farið þess á leit, að
stjórnin mætti veita öðrum
aðilanum frekari fjárhagsleg-
an stuðning til herbúnaðar.
Jafnframt höfðu þeir þó tekið
fram, að hvorki yrðu sendir
þangað hermenn eða sér-
fræðingar. Meirihluti
öldungadeildar þingmanna
tók þessa skýringu ekki til
greina, heidur taldi hættu á,
að Bandarikin væru að drag-
ast inn i nýja borgarastyrjöld i
fjarlægri heimsálfu, lfkt og i
Vietnam, og þvi yrði að byrgja
brunninn strax. Röksemdir
Fords og Kissingers voru
aðallega þær, að Bandarikin
gætu ekki setið hjá, þegar
Sovétrikin styddu hinn aðil-
ann. Þetta myndi veikja álit
Bandarikjanna og verða þess
valdandi, að Rússar færðu sig
upp á skaftið. Sumir fylgis-
menn þeirra gengu svo langt
að fullyrða, að Rússar myndu
fá mikilvægar bækistöðvar i
Angola, ef sú sjálfstæðishreyf-
ingin sigraði, sem nyti stuðn-
ings þeirra. Af hálfu meiri-
hluta öldungadeildarþing-
manna var gert litið úr þessu.
Þeir bentu á fjölmörg dæmi
þess, að Rússar hefðu stutt
sjálfstæðishreyfingar i Afriku,
en haft litið upp úr krafsinu,
þegar upp var staðið. Hin ný-
frjálsu riki i Afriku hefðu gætt
þess mjög vel, að ánetjast
ekki störveldunum. Sú myndi
einnig verða þróunin i Angola.
Skynsamlegast væri fyrir
Bandarikin að hætta ihlutun
sinni, en hvetja Einingar-
bandalag Afrikurikja til þess
að reyna að miðla málum i
Angola og koma á samstjórn
hinna þriggja sjálfstæðis-
hreyfinga þar. Ford forseti
hefur nú farið inn á þessa
braut og hvatt Amin Uganda-
forseta, sem er jafnframt for-
seti Einingarbandalagsins, til
að beita sér fyrir þessari
lausn. Rússnesk blöð létu i ljós
þá skoðun fyrir siðustu helgi,
að Rússar gætu vel fallizt á
slika lausn. Það yrði lika mjög
illa séð i Afriku, ef Rússar
héldu áfram hernaðarlegri
ihlutun i Angola eftir að
Bandarikin hefðu hætt henni.
Aöurnefnd atkvæðagreiðsla
i öldungadeildinni féll þannig,
að 38 demókratar og 16 repu-
blikanar greiddu atkvæði með
þvi, að stöðva fjárveitinguna,
en á móti greiddu atkvæði sjö
demókratar og 15 republikan-
ar. Meirihluti flokksbræðra
Fords forseta snerust þannig
gegn tilmælum hans um frek-
ari fjárveitingar til hernaðar-
aðgerða i Angola.
FUNDUR einingarsamtaka
Afrikurikja til að ræða
Angolamálið, hefur nú verið
boðaður og mun hann hefjast
næstkomandi laugardag. Þar
mun koma i Ijós, að þau eru
klofin i málinu. Til að skýra
þann klofning frekar, er rétt
að rifja upp aðdraganda máls-
ins i sem stærstum dráttum.
Stjórn Portúgals. lýsti yfir
þvi i byrjun janúar i fyrra, að
hún myndi veita Angola fullt
sjálfstæði i nóvember. Aður
hafði hún hafizt handa um að
sameina hinar þrjár sjálf-
Uppdráttur af Angola, sem sýnir skiptingu landsins milli liinua
þriggja sjálfstæðishreyfinga
stæðishreyfingar, sem fyrir
voru i landinu, eða MPLA,
sem var elzt þeirra og lengst
til vinstri, og notið hefur
stuðnings Rússa frá upphafi,
FNLA, sem var lengst til
hægri og studd hefur verið af
Bandarikjamönnum, Kinverj-
um og stjórn Zaire, og UNITA,
sem hefur verið studd af
Zambiu og Suður-Afriku. Hinn
31. janúar siðastliðinn lýstu
þessar hreyfingar yfir þvi, að
þær hefðu náð samkomulagi
um stjórnarmyndun. Þetta
samkomulag fór þó fljótt út
um þúfur og kom bráðlega til
átaka á milli hreyfinganna.
MPLA átti aðalfylgi sitt i
miðju landinu, en FNLA i
norðurhlutanum og UNITA i
suðurhlutanum. Niðurstaðan
varð sú, að MPLA barðist til
beggja handa. en hörðust urðu
þó átökin i höfuðborginni Lu-
anda, þar sem MPLA tókst að
vinna fullan sigur. Þegar
Portúgalar létu af nýlendu-
stjóminni i Angola um miðjan
nóvember, iýsti MPLA yfir
myndun rikisstjórnar i Lu-
anda og var hún bráðlega
viðurkennd af stjórnum
ýmissa Afrikurikja, þar á
meðal Nigeriu ogTanzaniu. og
allra þeirra rikja, sem áður
voru portúgalskar nýlendur.
Hinar hreyfingarnar tvær.
sem höfðu náð bráðabirgða-
sáttum, settu á laggirnar
rikisstjórn i Huambo. sem er á
yfirráðasvæði UNITA-hreyf-
ingarinnar. Ekkert riki hefur
enn viðurkennt þessa stjórn.
Siðan nýlendustjórn Portú-
gala lauk. hafa ekki átt sér
stað neinir stórárekstrar i
Angola. enda stendur nú vfir
regntiminn þar. Báðar
stjórnirnar búa sig undir
meiri átök. þegar honum lýk-
ur.
Siðan tilraun sjálfstæðis-
hreyfinganna til að m.ynda
sameiginlega rikisstjórn, fór
út um þúfur á siðastl. vetri.
hafa stórveldin aukið stuðning
sinn við þær. en áður veittu
þau þeim tiltölulega litla að-
stoð. Yfirleitt halda banda-
riskir fjölmiðlar þvi fram. að
Bandarikin hafi átt frum-
kvæðið. en Rússar fylgt i kjöl-
fariðogþá veitt mun meiri að-
stoð, einkum i formi her-
gagna. Talið er, að Banda-
rikjastjórn hafi aukið aðstoð
sina fyrir tilmæli rikisstjórna
Zaire og Zambiu. sem eru
mótfallnar MPLA. Sagt er, að
margir sérfræðingar banda-
riska utanrikisráðuneytisins
hafi verið andvigir þvi. að
Bandarikin veittu þessa að-
stoð, en Kissinger hafi knúið
hana fram. Einkum er þó tal-
ið, að sérfræðingarnir hafi
verið mótfallnir þessari að-
stoð eftir að Suður-Afrika
• skarst i leikinn og sendi herlið
inn i Angola til stuðnings
FNLA og UNITA. Þessi ihlut-
un Suður-Afriku hefur mælzt
mjög illa fyrir i Afriku.en hún
rekur rætur til þess, að st jóm
Suður-Afriku óttast stuðning
við skæruliða i Namibiu (Suð-
vestur-Afriku). ef MPLA fær
völdin i Angola. Stjórn Kúbu.
sem jafnan hefur stutt MPLA.
hefur notað innrás Suð-
ur-Afrikumanna til að réttlæta
það, að hún hefur sent herlið
til Angola til stuðnings MPLA.
Allar tölur um Ijölda her-
manna frá Kúbu og Suð-
ur-Afriku i Angola eru mjög á
reiki og sama gildir um
vopnasendingar Sovétrikj-
anna og Bandarikjanna þang-
að. Hvor aðilinn um sig virðist
ýkja verulega frásagnir um
þetta.
EINS OG áður segir. eru
Afrikurikin klofin t afstöðu
sinni til sjálfstæðishrevfing-
anna i Angola. meðal annars
Tanzania. sem styður stjóni-
ina i Luanda. og Zambia. seni
styður stjórnina i Huambo
Annars ernáin samvinna milli
Tanzaniu og Zambiu. likleg-
asta leiðin til samkomulags
virðist sú. að Einingarsamtök
Afriku skori á öll erlend riki að
hætta allri hernaðaraðstoð við
- stjórnirnar i Angola og hvetja
þær jafnframt til að reyna að
mynda sameiginlega stjórn.
Það væri vissuiega ánægju-
legast. að Afrikumenn levstu
þannig þessa deilu sjálfir og
fari svo. hefur áðurnefnd
ályktun öldungadeildar
Bandarikjaþings átt merkan
þ;itt i þvi. Þ.Þ.