Fréttablaðið - 17.02.2008, Page 32
ATVINNA
17. febrúar 2008 SUNNUDAGUR168
Starf óskast
Kona á besta aldri óskar eftir atvinnu. Hef tölvu- &
skrifstofunám. Er vön almennum þjónustustörfum.
Get hafið störf fljótlega.
Áhugasamir sendið póst á netfangið
box@frett.is merkt „starf óskast“.
Tölvunarfræðingar
LINUX / AIX umhverfi
Flugstoðir ohf. óska eftir að ráða öfluga einstaklinga í störf
tölvunarfræðinga hjá kerfisdeild fyrirtækisins.
Starfssvið
Kerfisdeild sér um rekstur tölvukerfa í flugstjórnarmiðstöðinni í
Reykjavík. Deildin sér einnig um þjálfunarumhverfi. Tölvukerfi
flugstjórnarmiðstöðvarinnar eru m.a. fluggagnakerfi og ratsjárkerfi.
Bæði þessi kerfi eru með rauntímaupplýsingar um flugumferð á Íslandi
og Norður Atlantshafi.
Helstu verkefni felast m.a. í uppsetningu, eftirliti og viðhaldi kerfa. Í
starfinu felst einnig fyrirbyggjandi viðhald, greining bilana og ákvörðun
viðbragða við þeim. Viðkomandi mun einnig koma að forritun vegna
viðhalds kerfa í notkun, þarfagreiningu vegna nýrra verkefna, gerð
kerfislýsinga vegna áætlanagerðar og mati á umfangi verkefna,
uppsetningu og prófunar á hugbúnaði og fleiri spennandi verkefnum.
Starfið er ýmist unnið á dagvöktum eða á virkum dögum.
Hæfniskröfur
Við gerum kröfu um háskólapróf í tölvunarfræði eða sambærilega
menntun. Reynsla af LINUX og TCP/IP netumhverfi er æskileg.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri og enskri
tungu. Einnig er nauðsynlegt að viðkomandi hafi frumkvæði í starfi,
góða samskiptahæfileika, sé skipulagður í verkum sínum og geti unnið
undir álagi.
Umsóknir
Frekari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Hauksson, deildarstjóri og
Ingunn Ólafsdóttir starfsmannastjóri síma 424-4000.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Skriflegar umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist starfsmannahaldi Flugstoða ohf.,Turni,
Reykjavíkurflugvelli, 101 Reykjavík, fyrir 25. febrúar nk., eða í
tölvupósti á shard@flugstodir.is.
Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Flugstoða
ohf., www.flugstodir.is
Öllum umsóknum verður svarað.
SKAPANDI STARF, ÍÞRÓTTIR, ÚTIVIST OG SAMSKIPTI
VIÐ BÖRN Í SKEMMTILEGU STARFSUMHVERFI
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1
Sími 411 5000 • Bréfsími 411 5009 • www.itr.is • itr@itr.is
Frístundamiðstöðin Gufunesbær í Grafarvogi leitar eftir jákvæðu, duglegu og áhugasömu starfsfólki
á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn til starfa á frístundaheimilum fyrir 6-9 ára börn og í frístundaklúbbi
fyrir 10-16 ára börn og unglinga með fötlun.
Starfsmenn Gufunesbæjar vinna á sviði íþrótta og tómstunda og eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta
flokks þjónustu. Frístundamiðstöðin Gufunesbær leggur áherslu á að starfsfólki líði vel og að það þróist í starfi.
Umsækjendur þurfa að
geta hafið störf sem fyrst
Hægt er að sækja um á heimasíðu ÍTR, www
.itr.is,
nánari upplýsingar veitir deildarstjóri barnast
arfs,
Þóra Melsted thora.melsted@reykjavik.is s. 520
2300. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar
við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.
Regnbogaland við Foldaskóla sími: 695-5192
Simbað sæfari við Hamraskóla sími: 695-5193
Tígrisbær við Rimaskóla sími: 695-5196
Ævintýraland við Korpuskóla sími: 695-5191
Frístundaklúbburinn Höllin sími: 695-5189
Í boði eru almenn störf og stuðningsstörf
með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi
á eftirtöldum stöðum:
Iceland Excursions Allrahanda óskar eftir að ráða bifeiðastjóra
með rútupróf til aksturs hópferðabifreiða og strætisvagna:
Við hvetjum konur jafnt sem karla á öllum aldri að sækja um!
Um framtíðarstörf er að ræða.
Allar nánari upplýsingar eru í síma:
540 1303 / 660 1303
Eða netfang:
runar@ruta.is
Einnig má sækja um á:
www.ruta.is/atvinnuumsókn
Iceland Excursions Allrahanda er alhliða ferðaþjónustufyrirtæki
og ferðaskrifstofa í örum vexti. Fyrirtækið kappkostar að veita
góða og persónulega þjónustu við ferðamenn á Íslandi.
Við leitum að drífandi einstaklingum sem vilja verða hluti af
skemmtilegum hóp í góðu starfsumhverfi.