Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 3 fréttir Stendur uppstokkun Lánasjóds námsmanna fyrir dyrum? HLLOGUR UM AD BREYTA NAMS- lAnunum í fjárfestingariAn ■ Mcnntamálaráðherra hcfur nú undir höndum rekstrarútekt á vanda Lána- sjóös íslenskra námsmanna þar sem gert er ráð fyrir að kippa með öllu úr sambandi því tekjutryggingakerfi sem námsmenn hafi búið við undanfarið ár. Samkvxmt áreiðanlegum upplýsingum Tímans er gert ráð fyrir að ekkert tillit verði tekið til félagslegra aðstæðna námsmanna, engin lán verði til fyrsta árs nema á haustmisseri, kröfur um náms- afköst auknar og upphæð lánsins ekki lengur miðuð við framfærslu heldur einhvern ákveðinn tekjuhóp í landinu. Ennfremur er áætlað að endurgreiðslur lánanna verði eins varið og endur- greiðslum venjulegra bankalána þannig að lántakendur verði ekki aðrir en þeir sem sjá fram á að námið borgi sig fjárhagslega. Úttekt þessi er gerð að beiðni ráðherra og er enn trúnaðarmál í höndum embættismanna. Þær breytingar sem í úttektinni er talið að gera megi strax með breyttum úthlutunarreglum og breytingu á túlkun á lögum um námslán og námsstyrki eru í fyrsta lagi að ekkert tillit verði tekið til félagslegra aðstæðna. Þetta þýðir að kröfum námsmanna um aukið lán vegna barneigna, veikinda og þess háttar verð- ur vísað til tryggingakerfisins í landinu. Sömuleiðis yrði í engu slakað á kröfum um endurgreiðslur lánanna þrátt fyrir atvinnuleysi að námi loknu, né heldur veikinda eða dauða lánþega, eins og nú er gertv Annað atriði er að kröfur um náms- afköst verða auknar og engin lán veitt þeim sem ekki skila fullum afköstum. Jafnframt verði lokað fyrir víxillán til fyrsta árs nema sem ekki hafa tekið fyrstu próf. Þá er gert ráð fyrir að losna við allar deilur um upphæð lánsins með því að upphæð þess verði miðuð við ákveðinn launataxta í landinu. Má í því sambandi benda á að undanfarna mán- uði hefur upphæð lánsins verið nokkru ofan við lægstu laun. Sem langtímalausn er meðal annars gert ráð fyrir að lánin verði ekki lengur niðurgreidd eins og það er orðað í skýrslunni. Er þá átt við að lánin verði að skila sér að fullu til baka auk vaxta sem nægi fyrir kostnaði við lánveitinguna og nokkurrar þóknunar til ríkissjóðs fyrir veitingu lánsins. Með því að í dag er tekið tillit til félagslegra aðstæðna við endurgreiðslur lánanna er ekki vitað við útlán hvers láns hvenær það hefur að fullu skilað sér til baka. Auk þess ber ríkissjóður allan kostnað af rekstri lánasjóðsins sem er að mati þeirrásem úttektina gera alltof dýr og opinn möguleiki að bankakerfið taki þann rekstur yfir. Með þessum hertu kröfum um endur- greiðslur lánanna er gert ráð fyrir að þeir einir taki lán sem, eins og heimildamað- ur okkar ber að standi í skýrslunni, eru þess fullvissir að nám þeirra hafi það gildi að geta borið kostnaðinn af náminu. Könnun þessi er unnin af Könnunar- stofunni hf. og var lokið í janúar. Síðan hefur hún legið til umfjöllunar í mennta- málaráðuneytinu en er nýfarin af stað til forystumanna lánasjóðsins. í skýrsl- unni er rakin þróun lánasjóðsins frá 1971 til ársbyrjunar 1984 og bent á hvernig fjárþörf hans hel'ur vaxið hraðar en sem nemur fjölgun lánþega. Meginorsök þess er að fjárþörf ein- stakra lánþega hefur vaxið án þess þó að lög um útreikning fjarþarfar námsmanna hafi breyst. í lokakafla skýrslunnar er vikið að þeim afleiðingum sem þessar breytingar á rekstri sjóðsins gætu haft og talið að sá stóri hópursem nýturfyrirgreiðslusjóðs- ins geti verið „hávær" eins og heimilda- maður okkar orðaði það. ■ Skæruverkföll Dagsbrúnarmanna: „Getum ekki unað slíkri lögleysu” — segir forstjóri VSI, Magnús Gunnarsson ■ „Kaupkröfur Dagsbrún- ar svara til útgjaldaauka sem nemur tugum prósenta, mis- munandi eftir starfsgreinum en mest fyrir þá, sem hæstar hafa tekjurnar. Jafnframt er gerð krafa um samning til tæpra þriggja mánaða. Þess- um kröfum hefur verið fylgt eftir með ólöglegum vinnu- stöðvunum, sem beinast að 7 —-- yy,-- einstökum fyrirtækjum. Þessi vinnubrögð eru ný- lunda hér á landi þar sem forysta Dagsbrúnar felur sig á bak við óbreytta félags- menn. Slíkri lögleysu getum við ekki unað,“ sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasam- bands íslands, þegar Tíminn ræddi við hann um verkföll Dagsbrúnarmanna í Sunda- höfn í gær. Magnús benti á, að verkalýðsfélög með yfir 30 þúsund félagsmönnum hefðu þegar samþykkt kjarasamning ASÍ og VSÍ, semgerðurvarfyrirtveimurvikum. Dagsbrún hefði hins vegar hafnað þeirri heildarlausn kjaramála sem í samningn- um fólst og kom einkum þeim með lökustu kjörin til góða. í ályktun frá sambandsstjórn VSÍ, sem samþykkt var á fundi hennar í gær, segir meðal annars, að ekki geti komið til samninga við einstök verkalýðsfélög um hærri laun en ASÍ og VSÍ geri ráð fyrir. Frávik væri ekki einasta svik við þá 30 þúsund launþega er staðfest hafa samninginn, heldur í beinni andstöðu við meginmarkmið hans, að tryggja aðstöðu þeirra, sem við kröppust kjör búa. Slíkir samningar væru aðeins ávísun á atvinnuleysi ogóðaverðbólgu. Þá segir að sambandsstjórnin muni áfram vinna að undirbúningi þeirra varnaraðgerða sem tiltæk væru að lögum. -Sjó ■ F.vrarfoss beið fulllcstaður eftir hafnarverkamönnunum í gær. Útlit er fyrir að áætlun hans raskist nokkuð í kjölfar verkfallsins. Dagsbrúnarmenn hjá Eimskip við Sundahöfn: A ANNAÐ HUNDRAÐ VERKA- MENN í SKÆRUVERKFALU Tímamynd Árni Sæberg ■ Hátt í tvö hundruö hafnarverkamenn hjá Eimskip vid Sundahöfn voru í verkfalli eftir hádegi í gær. Verkamennirnir eru allir félagar í Dagsbrún og eru þeir með þessum aðgerðum meðal annars að mótmæla þeirri stefnu, sem Vinnuveitendasambandið hefur tekið gagnvart þeim stéttarfélögum, sem fellt hafa samkomulag ASÍ og VSÍ. Athafnasvæði Eimskipafélagsins var nánast eins og dauðs manns gröf þegar Tímamenn voru þar á ferð í gær. Enginn verkamaður var sjáanlegur og lyftarar, kranar og önnur verkfæri stóðu ónotuð inni í skemmum. Á kaffistofu verka- mannanna var heldur cngan niann að finna svo að þátttakan í þessum verfalls- aðgeröum virðist hafa verið algjör. Aðeins eitt skip Eimskipafélagsins, Eyrarfoss, var í höfninni, en það kom til landsins rétt fyrir hádegi í gær fulllestað gánium og stykkjavöru, meðal annars cinum 30 farartækjum. Útlit er fyrir að áætlun skipsins, sem er mjög nákvæm, truflist eitthvað í kjölfar verkfallsins, . sem þýðir að það verður ekki á tilsettum tíma í höfnum erlendis, í næstu ferð og jafnvel ferðum. Eftir því sem næst varð komist átti verkfallið aðeins að standa eftir hádegið í dag og var búist við að verkamennirnir hæfu vinnu að nýju á venjulegum tíma í dag. -Sjó Læknar fá sömu hlutfallshækk- un og ASÍ-menn ■ Kjarasamningar fjármálaráðuneytisins við lækna er samkvæmt heimildum T(mans nú í burðarliðnum. og mun samkomulagið mjög svo bera keim af ASl-VSÍ samkomu- laginu. Fjármálaráðherra mun hafa kynnt samkomulagsdrög á ríkisstjómarfundi í gærmorgun, jafnframt því sem hann upp- lýsti að læknar hefðu algjörlega hafnað því að fá lægri prósentuhækkun en ASl sam- komulagið gerir ráð fyrir. Fjármálaráð- herra lagði þessi drög fyrir ríkisstjórnina til samþykktar og var engin athugascmd gerð ■ við það, þar sem upplýst var að læknar væru ekki til viðtals um lægri hækkanir en ASÍ hefur samiö um, og cf reyna ælti þá leiö, yrði henni mætt af fullri hörku af læknum. -AB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.