Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.03.1984, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 1984 9 Alþingi ■ Jón Helgason landbúnaðarráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um ræktun nytjaskóga. Hér fer á eftir meginhluti framsögu- ræðu hans. Saga skipulegrar skógræktar á íslandi nær nú yfir 85 ár. Upphaf skógræktar er almennt miðað við árið 1899, en það ár fékk Daninn Karl Grúter leyfi landsstjórnarinnar til að koma upp trjáreit á Þingvöllum. Reitur þessi er í brekkunum austan Almannagjár skammt frá Öxarárfossi minnir okkur nú á starf frumherja skógræktar hér á landi. Með samþykkt laga nr. 54 22. nóv. 1907 um skógrækt og varnir gegn upp- blæstri lands var af hálfu hins opinbera hafið skipulegt starf að skógræktarmál- um. Markmið þess starfs hafa jafnan verið þau hin sömu og lýst var í 1. gr. áðurnefndra laga, en þar segir: Skógrækt skal hefja með því markmiði að friða og bæta skóga þá og skógaleifar, sem enn eru hér á landi, rækta nýja skóga og leiðbeina landsmönnum í meðferð skóg- og gróðursetningu. Að þessu verkefni hafa skógræktarstjóri og Skógrækt ríkis- ins unnið en hlutur skógræktarfélaga og einstaklinga er einnig stór. Þættir skóg- ræktarstarfsins, sem mest áhersla hefur verið lögð á eru verndun skógarleifa og ræktun nýrra skóga til að bæta og fegra landið. Reynslan hefur líka sýnt, að á ýmsum stöðum landsins má rækta skóg til viðarframleiðslu. Horfa menn þar m.e. til þess árangurs, sem náðst hefur í Fljótsdal í Norður Múlasýslu, en á árinu 1969 veitti Alþingi 500 þús. kr. fjárveit- ingu til framkvæmda við sérstaka áætlun um skógrækt á bújörðum þar. Skógrækt- argirðingar sakv. Fljótsdalsáætlun eru nú á 12 jörðum og ná um yfir um 450 hektara. Fyrst var plantað þarna 1970 og hafa hæstu lerkitrén þegar náð 5 metra hæð. Mikiil og vaxandi áhugi er nú fyrir því meðal forvígismanna skógræktar- mála að hafist verði handa um enn frekari skógrækt í þeim tilgangi að koma upp nytjaskógum á bújörðum og leggja þannig grunninn að nýrri búgrein hér á Iandi. Er fyrirhugað að unnið verði að slíkri ræktun með skipulegum hætti og á grundvelli sérstakra áætlana um nytja- skóga. Með ræktun nýtjaskóga er verið að leggja í sjóð fyrir framtíðina. Slík fjárfesting fer oftast ekki að skila tekjum fyrr en eftir 25-30 ár og er því talið nauðsynlegt og eðlilegt að hið opinbera stuðli að því að þessi nýja búgrein geti orðið að raunveruleika líka hér á landi. Því er þetta frumvarp flutt. Með frv. er lagt til, að inn í skógrækt- arlögin komi nýr kafli, IV, kafli undir fyrirsögninni „Um ræktun nytjaskóga á bújörðum“ og eru meinatriði frumvarps- ins þessi: 1. Ríkissjóður styrkir ræktun nytja- skóga á bújörðum í þeim héruðum landsins, þar sem skógræktarskilyrði eru vænleg eftir því sem fé er veitt til á fjárlögum hverju sinni. 2. Styrkur ríkissjóðs má nema allt að 80% við stofnun undirbúnings skógrækt- ar landsins. 3.Sett eru ýmis skilyrði fyrir styrkveit- ingunni, svo sem að gerð hafi verið skógræktaráætlun fyrir viðkomandi sviði og fyrir liggi samningur milli Skógræktar ríkisins og viðkomandi bónda um skóg- ræktarlandið og framkvæmdir. 4. Settar eru reglur um meðferð skógræktarlandsins. Aðilaskipti að rétt- indum yfir því og umr. Skógræktar ríkisins sé út af brugðið. Er þessum ákvæðum ætlað að tryggja, að framlög ríkins til ræktunar nytjaskóga nýtist til þess verkefnis. Ræktun nytjaskóga tekur langan tíma og því er nauðsynlegt, að frá upphafi séu til staðar skýrar og ótvíræðar reglur um það land, sem ráðstafað hefur verið til slíkrar skóg- ræktan. 5. Samkvæmt frumvarpinu skal nefnd heimamanna vera Skógrækt ríkisins til aðstoðar við undirbúning og framkvæmd skógræktaráætlunar, en yfirumsjón með ræktun nytjaskóga verður í höndum Skógræktar ríkisins. TeEið er fram að Alþingi skuli árlega skipta því fé sent veitt er til ræktunar nytjaskóga milli hinna einstöku skógræktaráætlana. Eins og áður sagði er frv. þessu ætlað að vera grundvöllur nýrrar búgreinar hér á landi, en þessi búgrein verður ekki stunduð hvar sem er á landinu svo náttúrleg skilyrði til Skógræktar á íslandi eru mjög misjöfn eftir landshlutum, svo og svæðum innan landshluta. Samkvæmt frumvarpinu er það skilyrði styrkveiting- ar að skógræktarskilyrði séu vænleg í Skógrækt ríkisins valið á milli þess að endurkrefja landeiganda um hinn upp- haflega styrk eða leysa til sín skógræktar- landið að fengnu samþykki tilgreindra aðila. Þá hefur Skógrækt ríkisins jafnan forkaupsrétt að skógræktarlandinu næst á eftir lögboðnum forkaupsréttarhöfum, þ.e. ábúenda og sveitarstjórn en for- kaupsréttur verður þó ekki virkur þegar jörðinni í heild er ráðstafað til skyld- menna sem tilgreind eru í 21. til 26. gr. jarðalaga nr. 65/31. maí 1976. í frv. eru einnig sérstakar reglur um ákvörðun kaupverðs þegar forkaupsrétti eða inn- kaupsrétti er beitt og er þá tekið tillit til framlags ríkisins í upphafi. J>á er í frv. lagt til að 20. gr. skógrækt- arlaganna frá 1955 verði felld niður, en skv. henni er heimilt að styrkja rætun barrskóga á jörðum og jarðaskikum og þó tilgangur þeirrar ræktunar hafi ekki eingöngu verið beint fjárhagslegar nytjar er talið eðlilegra að festa þessa heimild niður samfara upptöku ákvæða um rækt- un nytjaskóga. Einnig er lagt til að 23. gr. skógræktarlaganna verði breytt í þá veru að orða greiðslu sem heimild miðað við það fé, sem veitt er til þessa verkefnis á fjárlögum hverju sinni. Fyrir nokkrum árum var hafist handa við að endurskoða skógræktarlögin frá 1953 í heild, en nefndsú sem unniðhefur að því verkefni hefurekki lokiðstörfum. Ég taldi hins vegar ekki rétt að láta lagasetningu um ræktun nytjaskóga á bújörðum bíða hugsanlegrar endur- skoðunar skógræktarlaganna í heild. Ég nefndi hér fyrr að áhugi bænda og skógræktarinnar á því að hefjast handa um ræktun nytjaskóga er mikill. Þannig hafa 40 bændur í Eyjafirði lýst sig reiðubúna til að hefja slíka skógrækt á 900 hekturum lands. Hópur bænda í Árnessýslu er einnig tilbúinn til að hefjast handa og í Suður-Þingeyjarsýslu og Borgarfirði hefur verið unnið að könnun á möguleikum ræktunar nytja- skóga. Á öllum þessum stöðum hafa búnaðarsamböndin og skógræktarfélög- in unnið að málinu í samráði við Skóg- rækt ríkisins. Alþingi hefur líka þegar í verki sýnt áhuga sinn á framgangi þessa máls með 500 þús. kr. framlagi til ræktunar nytjaskóga við afgreiðslu fjár- lagafyrirárið 1984. Þaðerþví mikilvægt, að þetta frv. hljóti afgreiðslu á þessu þingi, þannig að unnt verði að hefjast handa á komandi vori. Vil ég því biðja þá nefnd, sem fær þetta til meðferðar að reyna að vinna þannig að meðferð málsins að slíkt megi takast. Með ræktun nytjaskóga er lagt í sjóð fyrir framtíðina ■ Jón Helgason landbúnaðarráðherra ur, að ræktendur þurfi ekki sjálfir að leggja fram verulegt eigið fé í upphafi, heldur geti hann með eigin vinnufram- lagi að mestu greitt sinn hlut. Mikilvægt er líka, að bændur og fólkið í sveitum vinni að þessu skógræktarstarfi undir handleiðslu kunnáttumanna og þekking á þessari nýju búgrein dreifist út í sveitunum og verði grundvöllur aukinna atvinnutækifæra þar, en ræktandinn verður sjálfur að annast viðhald og hirðingu skógarins og girðingar eftir að plöntun er lokið og bera kostnað af því. Þá er rétt að undirstrika, að frumvarp- ið gerir ekki ráð fyrir sjálfvirku framlagi ríkisins til nytjaskóga, hcldur þarf Al- þingi hverju sinni við afgreiðslu fjárlaga að ákveða hversu miklu fé verði varið til þessa málaflokks. Ég rek hér ekki efni einstakra ákvæða frumvarpsins en vil þó vekja sérstaka athygli á þeim ákvæðum þess, sem lúta að meðferð á því landi sem ráðstafað hefur verið til ræktunar nytjaskóga. í sumum tilvikum eru þetta ströng ákvæði og leggja kvaðir á skóg- ræktarlandið og eiganda þess. Slíkt er hins vegar nauðsynlegt með tilliti til þess langa tíma sem ræktun nytjaskóga tekur og framlags samfélagsins sem heildar við upphaf ræktunarinnar. Sinni eigandi skógræktarlandsins ekki skyldum sínum varðandi hirðingu og viðhald er Skóg- rækt ríkisins skv. frv. heimilt að gera nauðsynlegar aðgerðir á kostnað land- eiganda og sé um ítrekaðar vanefndir að ræða eða brotið er gegn ákvæðum laga um meðferð skógræktarlands, getur viðkomandi héraði og verður við gerð skógræktaráætlana að leggja mat á þetta atriði. f greinargerð frumvrpsins eru nefnd 5 svæði sem vænlegust þykja til skógræktar með viðarframleiðslu að markmiði, en önnur svæði kunna þar einnig að koma til greina. Gerð sérstakra skógræktar- áætlana skv. frv. á að tryggja, aö íramlög til ræktunar nýjaskóga verði veitt til þeirra staða þar sem árangur af skóg- ræktinni er sem öruggastur hvað varðar náttúruleg skilyrði og veðurfar. Erlendis hefur víða verið farin sú leið á þeim stöðum þar sem skilyrði til skógræktar eru áþekk því sem hér gerist, að hið opinbera hefur með sérstökum framlögum styrkt menn til að koma upp skógi. Horfa menn þá ekki síst til þeirra jákvæðu áhrifa, sem skógræktin hefur á umhverfi sitt og þess að langur tími mun líða þar til skógræktin fer að skila viðkomandi skógareigendum tekjum. 1 flestum tilvikum er ræktandinn að leggja í sjóð fyrir komandi kynslóðir. Hann friðar land sitt og leggur í kostnað við skógræktina og umhirðu skógarins. I þessu frv. er lagt til að ríkið veiti sérstök framlög er geti numið allt að 80% af stofnkostnaði við ræktun nytjaskóga. Frá Norður-Noregi og Norður-Svíþjóð höfum við dæmi um að slík framlög nemi alit að 90%. Eins og framkemur í fylgiskjali með frv. er kostnaður við að koma upp nytjaskógi umtalsverður. Þar eru plöntu- kaup stærsti kostnaðarliðurinn eða rúm' 50% af stofnkostnaði. Sú viðmiðun frv. að framlag ríkisins geti numið allt að 80% af stofnkostnaði er við það miðað- Úrbætur í húsnæðis- málum námsmanna ■ 'Stefán Guðmundsson hefur mæit fyrir þingsályktunartiilögu um húsnæðis- mál námsmanna, sem hann lagði fram ásamt fimm öðrum þingmönnum Fram- sóknarfiokksins, þeim Davíð Aðal- steinssyni, Olafi Þ. Þórðarsyni, Guð- mundi Bjarnasvni, Páli Péturssyni og Þórarni Sigurjónssyni. I tillögunni er lagt til að kannað verði sérstaklega á hvern hátt megi bæta úr þeim mikla húsnæðisvanda sem náms- menn utan Reykjavíkur og nágrennis búa við vegna staðsetningar Háskóla íslands og flestra sérskóla. í framsöguræðu sinni sagði Stefán Guðmundsson: Stærstu árgangar ís- landssögunnar eru það æskufólk sem nú er á aldrinum 18-25 ára. Menntun og þá sérstaklega framhaldsmenntun, er orðin mun algengari en nokkru sinni fyrr. Menntastofnanir framhalds og sérnáms eru aðallega staðsettar á Reykjavíkur- svæðinu eins og öllum er ljóst. Námsfólk utan af landsbyggðinni leitar því í miklum mæli til höfuðborgarinnar eftir menntun sinni. Þannig hefur skólakerfið verið byggt upp. Á undangengnum árum hafa verið settir á stofn fjölbrauta- og menntaskólar víða um landið auk menntaskólanna sem voru fyrir. Á skólaárinu 1982-1983 voru 5733 nemendur utan Reykjavíkur í þessum skólum, þar með taldar fram- haldsdeildir grunnskólanna. í grg. eru taldir upp 19 framhaldsskólar sem stað- settir eru á höfuðborgarsvæðinu, sem um 1800-2000 landsbyggðarnemendur sækja. Sem dæmi um hlutfall nemenda í þessum skólum má nefna að í einum skóla sem telur um 400 nemendur eru 168 af landsbyggðinni. í öðrum skóla eru nemendurnir alls 285, þar af 125 utan höfuðborgarsvæðisins. Einnig þekkjum við hlutfallið (80:4), 84:50,44:29, einnig 230:100, svo að aðeins nokkuð sé nefnt. en það segir okkur samt sína sögu. Í Háskóla íslands munu skráðir nem- endur nú vera um 4013, þar af utan höfuðborgarsvæðisins 923 nemendur. Það er hins vegar alveg ljóst að fjöldi landsbyggðarnemenda er í raun miklu hærri en þessar tölur gefa til kynna þar sem mikill fjöldi þeirra hefur flutt lög- heimili sitt til Reykjavíkur meðan á náminu stendur. Öllum er ljóst að hús- næði er ein af forsendum þess að hægt sé að stunda nám hér í Reykjavík. Álitið er að um 5500-6000 íbúðir séu til leigu í Reykjavík. Ásókn í þær er gífurleg sbr. umfjöllun Leigjendasamtakanna svo og skýrslur sem Félagsmálastofnun stúd- enta frá árinu 1982 lét gera um húsnæðis- aðstöðu háskólastúdenta sem er mjög fróðleg skýrsla. Samkeppni um of fáar íbúðir gerir það að verkum, að mikil fyrirframgreiðsla og tiltölulega há húsa- leiga er oft forsenda fyrir því að íbúðir fáist á leigu. Þetta eykur mjög allan tilkostnað landsbyggðarnemenda við öflun menntunar í Reykjavík og mis- munar þess vegna fólki vegna búsetu sinnar. Stór hluti þeirra 5733 nemenda sem nú stunda undirbúningsnám utan höfuðborgarsvæðisins á eftir að leita á þennan þrönga húsnæðismarkað. Ég sé ekki ástæðu hér við framsögu málsins að nefna hugsanlegar leiðir til úrbóta. Þar koma sjálfsagt nokkrir kostir til greina. Ég veit að skólastjórar viðkomandi skóla hafa velt þessu máli mjög fyrir sér og sumir þeirra hafa nokkuð ákveðnar skoðanir þar um. Með tillöguflutningi þessum ef sam- þykkt verður treysti ég á skilning og vilja núv. ríkisstj. til að bregða skjótt við og leita sem skynsamlegastra leiða til úr- bóta. Það er ástæða að fagna því alveg sérstaklega að í því frumvarpi um Hús- næðisstofnun ríkisins sem félagsmála- ráðherra hefur lagt fram. er farið inn á þá athyglisverðu braut að opna náms- mönnum leið inn í húsnæðislánakerfið vegna félagslegra íbúðabygginga. Eftir að hafa átt viðræður við marga skóla- menn og fjölda nemenda er þessi mál snerta, er mér ljósara en áður hversu brýnt það er að hefjast nú handa um úrbætur. Það er sorgleg staðreynd að á hverju ári verður nokkur hópur nem- enda að hverfa frá námi vegna þess ástands sem nú er ríkjandi í húsnæðis- málum námsmanna. Hér verður að sporna gegn þeirri óheillaþróun. Það eru í dag sjálfsögð mannréttindi að hafa sem jafnasta aðstöðu til mennta og við það ■ Stefán Guðmundsson alþingismaður verður að sjálfsögðu að standa. Efnahag- ur nemenda og/eða þeirra er þeim næst standa á ekki að geta skipt sköpum um möguleika víðkomandi nemenda til framhaldsmenntunar. Ég geri mér ljósa grein fyrir því að margir telja að nú sé ekki efni til mikilla átaka í þessum málum. Minnkandi þjóð- artekjur blasa við sem þýðir minni framkvæmdagetu þess opinbera. Árang-_ ur breyttrar stefnu efnahagsmála hefur þó þegar skilað jákvæðum árangri. Því hefur ástandið í þjóðfélaginu nú um skeið verið á nokkuð annan og betri veg en fyrr. Því tel ég, að nú sé lag til að hugsa og kanna á hvern hátt megi hér best að vinna. Með flutningi þessarar till. til þál. er reynt að vekja til umr. og leita leiða til að bæta úr því slæma ástandi, sem nú ríkir og búa betur í haginn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.