Tíminn - 21.02.1986, Blaðsíða 9

Tíminn - 21.02.1986, Blaðsíða 9
Föstudagur 21. febrúar 1986 KVIKMYNDIR Tíminn 9 Norrænar- og mánudagsmyndir Kvikmyndaklúbburinn Norður- ljós og Háskólabíó/Regnboginn hafa séð kvikmyndaáhugamönnum fyrir „öðru vísi kvikmyndum" á milli kvikmyndahátíða Listahátíð- ar. Næsta mynd Norðurljóss er sænska myndin Keisarinn. Myndin var gerð 1979 af Jösta Hagelbáck eftir sögu Birgittu Trotzing „Sjuk- domen” og lýsir lífinu í litlu þorpi á Skáni á kreppuárunum eftir 1930. Aðalpersóna myndarinnar, Elje, er skotspónn þorpsbúa, sem finnst hann vera furðufugl. Elje og faðir hans búa einir saman, móðirin er löngu úr sögunni, þegar myndin hefst, en hún er þó enn bráðlifandi í hugarheimi Elje. Móðirin hafði verið pólsk og ekki fallið inn í þorpssamfélagið á sínum tíma, fremur en sonur hennar nú. Mynd- in lýsir því, hvernig Elje sveiflast milli ömurlegs veruleikans og hug- arheims síns, þar sem móðirin er aðalpersónan. Hann ætlar sér að finna móður sína og sýna þorpsbú- um..... Aðalhlutverk eru í höndum Anders Áberg, Bo Lindström, Rune Ek. Katarina Strandmark o.fl. Næsta sýning kvikmyndaklúbbs- ins verður laugardaginn 1. mars kl. 17.00 og verður þá sýnd myndin EINS DAUÐI....... sænsk mynd gerð af Stellan Olsson árið 1980. KEISARINN verður sem fyrr segir sýnd í Norræna húsinu laugar- daginn 22. febrúar kl. 14.30, hálfþrjú. Háskólabíó heldur áfram að kalla mánudagsmyndirnar mánu- dagsmyndir þar til valið verður úr 400 tillögum sem hafa borist um nýtt nafn á fyrirbrigðið. Þegar franska myndin Bolero hefur runnið sitt skeið tekur við ný mynd eftir sama leikstjóra, Claude Leloch og heitir hún „Viva la Vive“ og mun kallast „Maður og kona hverfa" á íslensku. Hér er um að ræða spennandi og dularfulla mynd, sem fjallar um dularfullt hvarf manns og konu. Mynd númer 2 verður svo Italska myndin „Passione D'Amore" eftir leikstjórann Ettore Scola. Þessi mynd mun heita á íslensku „Ástar- eldur". Fjallar mynd þessi um ung- Úr sænsku myndinni Keisarinn eftir Jösta Hagelbáck sem kvikmyndaklúbb- urinn Norðurljós sýnir á laugardaginn. an liðsforingja sem verður ástfang- inn af tveimur konum. Mynd núrner 3 er mynd eftir meistarann Jean- Luc Godard. Godard vann eftirsóttustu verð- launin - Gullna ljónið - fyrir þessa mynd í Feneyjum 1983 auk sér- stakra verðlauna fyrir besta hljóð og myndtöku. Heitir þessi mynd „Prenourn Carnten" eða „Fornafn Carmen". Segja má að mynd þessi sé tímamót hjá Godard, þar sem hann hafði ekki framleitt neina mynd í allmörg ár. Af öðrum myndum verða þessar sýndar: „Max Haveláár", Hollensk- Indo- nesisk eftir Fons Rademarker, „Alsino og Kondórinn", frá Nicar- agua, Kúbu Mexico og Costa Rica eftir Miguel Littin, „Og skipið sigl- ir (E la nave va)“, ítölsk - Frönsk eftir Fredrico Fellini, „Bakvið lok- aðar dyr (Oltra la porta)“, ítölsk eftir Liliana Cavani. Hver mynd er áætlað að sýna í 7- 10 daga eftir aðsókn. 14. mars n.k. hefst þýsk kvikmyndavika í sam- vinnu við Germaniu verða sýndar nýbylgjukvikmyndir síðustu ára. MYNDLIST Kínversk myndlist Sýning á hefðbundinni kínverskri myndlist var opnuð á Kjarvalsstöð- um um síðustu helgi. Á sýning- unni eru um 80 myndir eftir 11 nú- lifandi listamenn, en hún kemur hingað frá Shaanxi-fylki og eru flest- ir listamennirnir, sem sumir hverjir eru í hópi þekktustu listamanna Kín- verja í dag, tengdir Myndlistarstofn- un Shaanxi f Xian, höfuðborg fylkis- ins og hinni fornu höfuðborg Kína- veldis. Myndirnar, sem lýsa fólki og landslagi, blómum og fuglum eru í hefðbundnum stíl og þar beitt æva- fornri tækni. Menn hafa ástæðu til að ætla, að málaralistin sé jafngömul kínverskri menningu, og þegar fyrir um 6000 árum voru menn þar í landi farnir að skreyta keröld og önnur búsáhöld manna- og dýramyndum. Nýlega hafa og fundist dæmi um myndir málaðar á silki á 5.-3. öld f. Kínverska sýningin á Kjarvalsstöðum stendur fram á sunnudagskvöld 23. febr. Krist. Á þriðju til sjöttu öld eftir Krist þróaðist málaralistin mikið. Manna- myndir, sem eru elsta form hinnar fornu kínversku myndlistar, tóku nú skýrum breytingum og fengu skarp- ari og tjáningarfyllri svip, en jafn- framt fór að bera á landslagsmynd- um. Á sama tíma fóru menn að þróa með sér listagagnrýni. Litlu síðar komust svo blóma- og fuglamyndir í tísku. Þessi hefð hefur verið óslitin síðan og hafa Kínverjar átt marga meistara á þessu sviði. Flestir hafa málað á silki eða Xuan-pappír, en önnur grein þessarar listar voru veggmynd- ir, einkum í höllum og hofum og sóttu efni í rit taoista og budda- trúarmanna. Nákvæm eftirlíking náttúrunnar og fyrirbrigða hennar var aldrei lokatakmark þessara listamanna. Það er andi og kraftur þess sem lýst er, sem skiptir máli, innri einkenni hlutanna ekki síður en auðlegð þess sem augað sér. Hér er um háþróaða listgrein að ræða og margvíslegri tækni þurfa málararnir að ná valdi á, áður en þeir geta komi „mynd á skáldskapinn og skáldskap í myndina", eins og skáld- ið og málarinn Su Dongpo á Song- tímabilinu komst að orði. Oft renna líka skáldskapur, myndlist og skrautritun saman í einu og sama verki. Síðan Kínverska alþýðulýðveldið var stofnað, hefur verið lögð mikil rækt við þessa gömlu listgrein, bæði að halda henni við og leita nýrra leiða. I myndlistarstofnuninni í Kína er hún kennd eigi síður en nýrri að- ferðir til myndsköpunar og hefur á síðustu árum náð nýju blómaskeiði, og er sú sýning sem hingað er komin til marks um það. Sýningin er á ferð um Norðurlönd og var síðast í Ráðhúsinu í Kaup- mannahöfn. Sýningunni lýkur núna um helgina. Steinþór Sigurðsson myndlistarmaður hefur séð um upp- setningu hennar hér. BÓKMENNTIR is Beautiful“ „Small Hallberg Hallmundsson: Spjaldvísur - stutt Ijóð, Fjölvaútgáfan, 1985. LesendurTímanseiga trúlega fulla heimtingu á því að ég biðji þá af- sökunar á þessari ensku fyrirsögn hér að ofan. Ég viðurkenni enda að þeir eiga sanngjarna kröfu á því að fá blaðið sitt skrifað á því ástkæra og yl- hýra. En sannleikurinn er sá að þetta enska orðtak leitaði mjög sterkt á huga minn meðan ég var að lesa þessa bók Hallbergs Hallmundsson- ar, og ég er á því að það gæti vel stað- ið sem eins konar mottó yfir henni. Þetta eru tæpar hundrað síður af ljóðum, eitt á hverri og öll örstutt. Útskýringu á nafni bókarinnargefur höfundur á síðustu síðu, í ljóði sem heitir Til skýringar: Flest voru framanskráð vers ífyrstu mynd sinni hripuð niður á skrárspjöld í skrifstofu minni. Þar afnafn þessa kvers. Það eru að vísu ekki allir svo heppnir að geta samið bækur í vinnu- tímanum, en skáldið gefur einnig eins konar stefnuyfirlýsingu í upp- hafsljóðinu, Um inntak þcssarar bókar: Éghef eins ogflestir sem yrkja Ijóð á íslandi ekkert markvert að segja. Og margoft hefur skáldgyðjan komið í hlustir mér hvíslandi: - Hœtlu sœmra er að þegja. Ég hvœsi að henni úrillur (við hortittina sýslandi): - Hver bað þig orð til hneigja? Þessi tvö ljóð gefa að mínu viti nokkuð góða hugmynd um innihald þessarar bókar. Þarna er á ferðinni míníatúrismi, aðdáun á hinu fín- gerða og smáa, þetta eru örstuttar smámyndir og það ljóðform er rækt- að bókina í gegn. Efnið er raunar þeirrar ættar að til skamms tíma hefðu íslensk skáld valið því lausa- vísnaformið og sent bók af þessu tagi út sem vísnasafn. Hallberg Hall- mundsson er hins vegar meira nú- tímaskáld en svo að hann beiti slík- um aðferðum. í stað þess að yrkja vísur að hefðbundnum sið og binda þær í rím og stuðla þá notar hann frjálsara form. Bragarhættir hans eru ýmissa ætta, en þeir eiga það sameiginlegt að tilheyra nútímalegu og frjálsu formi þar sem hrynjandin gegnir stærra hlutverki en rímviðj- arnar. Yrkisefnin þarna eru ótalmörg og eiga sér fátt sameiginlegt annað en að vera flest sótt í daglega lífið. Þarna eru Ijóð um staði, fólk, hughrif, skopljóð, jafnvel erfiljóð. Þó er áberandi að létt og fimleg gam- ansemi kemur víða fram. Orðaleikj- um er nokkuð beitt, til dæmis í ljóði sem nefnist Ein vísa í leit að mein- ingu: Hann kom til dyra klœddur engu ogsjá kona sú er hafði að dyrum barið kvað slíka háttu alveg af ogfrá og óðar tók af mannkertinu skarið. Þá er nokkuð frumleg ástarjátning í Ijóðinu f hálfkæringi: Ó að ég mœtti aftur finna unaðshlýju brjósta þinna sœtum rúnum gamans ginna og gera þig móður barna minna. Líka er þarna nokkuð hnyttið ljóð sem heitir Gambrarinn og þyrfti raunar ekki að hnika nema litlu til svo að það væri orðið að dæmigerðri íslenskri lausavísu eftir fornum forskriftum: Það er sama hvað hann segir: hann segir aldrei neitt. En þá sjaldan liann þegir er því athygli veitt. Enn eitt dæmi um hnitmiðun efn- isins er ljóð sem heitir Gegnum hljóðmúrinn: höggmynd og er ort um alkunna mynd Ásmundar Sveinssonar. Storknaður hraði steinrunninn eins og nátttröll kveðið korríró. Hér er barinn saman í þrjár línur kjarni sem önnur skáld á öðrum tím- um hefðu trúlega ort um langt kvæði. Með öðrum orðum þá er nýjungin í þessart bók að mínu mati sú hvað hún er nútímaleg að formi. Hér er tekist á við margvísleg yrkisefni sem öll eru þeirrar ættar sem íslendingar hafa um margar aldir dundað við að binda í lausavísur. Hallberg Hallmundsson skiparsér ekki í hóp stórskálda með þessari bók sinni. Hér eru engin átök og eng- ar stórsviptingar sem skapa afburða- verk. Þetta er létt og lipur gaman- semi með margs konar boðskap í formi skyndiathugasemda. En lausa- vísnahefðin hefur vafalaust átt sér einhverjar skýringar á sínum tíma og svarað einhverri þörf hjá þjóðinni. Kannski er þessi þörf enn fyrir hendi. Og þá má vel vera að eitthvað sé í nútímaþjóðfélaginu hjá okkur sem krefjist þess að þessari þörf sé enn svarað og í lausbundnara formi en áður. Eysteinn Sigurðsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.