Tíminn - 31.10.1989, Síða 3
' 1 (
- l f r • •
Þriöjudagur 31. öktóber 1989
Tíminn 3
Meðalævi íslendinga aftur farin að styttast:
Meðalævi íslendinga að
styttast vegna reykinga
Reiknuð meðalævi íslendinga er aftur farin að styttast, eftir
að hafa stöðugt verið að lengjast undanfarin ár og áratugi.
Hagstofan hefur í rúman áratug reiknað út eftir dánartíðni
meðal ævOengdartöflur fyrir tveggja ára tímabU, hið síðasta
1987-88. Meðalævi kvenna varð hæst 80,38 ár 1985-86 og
karla 75,11 ár 1986-87. Síðan hefur meðalævin styst á ný um
rúmlega hálft ár. í Hagtíðindum segir m.a., að meðalævi
íslendinga og Japana hafí styst árið 1988 af sömu ástæðu, þ.e.
óvenjulega mikilli dánartíðni af öndunarfærasjúkdómum,
lungnabólgu og inflúensu.
Eftirlifendatala kvenna 1850-1988
af 100 fæddum
Ævilíkur mismunandi kynslóða kvenna koma fram á þessari mynd. Af þeim
sem fæddust á fyrstu árum aldarinnar náði um 6. hver ekki fimm ára aldri
og aðeins helmingurinn 65 ára aldri. Af stúlkum fæddum sl. tvö ár er hins
vegar reiknað með að um 82% nái sjötugu, að í kringum helmingur nái 83
ára aldri og að hátt í fjórðungur haldi upp á 90 ára afmæli sitt á árunum
2077-2078, það er að segja ef meðalævin fer ekki að styttast frekar á næstu
árum.
Tíminn spurði Ólaf Ólafsson land-
lækni um hugsanlega skýringu þessa.
Er hámarks langlífi þjóðarinnar
hugsanlega náð og aftur farið að
halla undan fæti?
„Það geta auðvitað alltaf komið
sveiflur í svona tölur. Hins vegar er
það svo alveg staðreynd, að alda-
mótakynslóðin er nú að hverfa og
röðin að koma að þeim sem hafa
reykt. Þetta getur farið að hafa
aukin áhrif, því reykingar byrjuðu
hér löngu fyrir stríð og sjálfsagt í
Japan líka. Það er a.m.k. staðreynd
að öndunarfærasjúkdómar hafa auk-
ist. Ástæða þess er bara mengun -
og stærsti mengunarvaldurinn eru
auðvitað sígarettur. Þær eru hættu-
legri heldur en t.d. öll önnur
mengun, t.d. verksmiðjumengun".
Ólafur segir þessa þróun í raun
ekki koma á óvart. Það mundi
heldur ekki koma á óvart þótt tíðni
öndunarfærasjúkdóma ætti ennþá
eftir að aukast á næstu árum, því
margt reykingafólk sé nú komið á
eða að nálgast efri ár. „En vonandi
á þetta síðan eftir að breytast á ný,
því nú er aftur farið að draga úr
reykingum. Reykingar ungs fólks
hafa t.d. minnkað um helming",
sagði Ólafur.
Reiknuð meðalævi hefur breyst
þannig á umliðnum árum:
Meðalævi fslendinga________________
Karlar: Konur:
1902-10 48,3 ár 53,1 ár
1931-40___________60,9 ár 65,6ár
1961-65 70,8 ár 76,2 ár
1971-75 71,6 ár 77,5 ár
1976-80 73,5 ár 79,5 ár
1981-85 74,1 ár 79,9 ár
1983-84 74,0 ár 80,2 ár
1984-85 74,4 ár 80,2 ár
1985-86 75,0ár 80,4 ár
1986-87 75,1 ár 80,0 ár
1987-88 74,6 ár 79,7 ár
Þessar tölur miðast við meðalævi-
líkur við fæðingu, þannig að minnk-
un ungbarnadauða hefur m.a. haft
töluverð áhrif, einkum framan af
öldinni.
Tölur sem nefndar eru í Hagtíð-
indum um meðalævi kvenna í þeim
löndum þar sem hún er yfir 79 ár
gætu gefið til kynna að konur þar séu
að komast fram úr íslendingum, en
þeir hafa á undanförnum árum trón-
að á toppnum ásamt með Japönum.
Japan (1988) 81,3ár
Sviss (86-87) 80,5 ár
Frakkland (1985) 80,3 ár
Svíþjóð (1987) 80,2 ár
Holland (86-87) 79,9 ár
Færeyjar (81-85) 79,6 ár
Noregur (1987) 79,6 ár
Hongkong (1985) 79,2 ár
Þessar tölur eru ekki alveg sam-
bærilegar þar sem töluvert munar á
viðmiðunarárum. Hár meðalaldur
hjá grönnum okkar í Færeyjum er
m.a. athygliverður í ljósi frétta um
mun meiri ungbarnadauða þar en á
hinum Norðurlandanna. Væri og
fróðlegt að vita hver þróunin hefur
þar frá því á fyrri helmingi áratugar-
ins. - HEI
Tekin hefur verið í notkun nýr flughermir, sem er í eigu Flugtaks hf., sem rekur bæði leiguflug og flugskóla. Þetta
er fullkomnasti flughermir hér á landi, en til var einn fyrir sem er í eigu Flugleiða hf., hann er hins vegar kominn
nokkuð til ára sinna og ekki eins fullkominn og hermir Flugtaks.
Nýi flughermirinn verður notaður bæði sem kennslutæki fyrir nema og eins ætlaður þeim sem vilja halda sér í
þjálfun, og nýtist þannig einnig flugmönnum. Flughermirinn er eftirlíking af stjómborði minni tveggja hreyfla
flugvéla, sem notaðar era til farþegaflutninga innanlands. - AG
Sameiginleg tónaafmælisveisla tveggja
jazzleikara á Kjarvalsstööum i kvöld:
Tveir Guðmundar
110 ára gamlir
Jazzleikararnir og nafnarnir Guð-
mundur Steingrímsson trommari og
Guðmundur Ingólfsson píanóleikari
halda upp á sameiginlegt 110 ára
afmæli sitt að Kjarvalsstöðum í
kvöld kl. 21.
í afmælisveislunni munu þeir
nafnarnir leika saman ásamt Gunn-
ari Hrafnssyni bassaleikara en auk
þess munu taka lagið með þeim
söngvararnir Andrea Gylfadóttir,
Bubbi Morthens og Megas, Björn
Thoroddsen gítarleikari, Helgi
Guðmundsson munnhörpuleikari,
saxófónleikararnir Rúnar Georgs-
son og Stefán Stefánsson. Auk þess
mun Steingrímur sonur Guðmundar
Steingríms leika á trommur og tabla.
Guðmundarnir báðir eiga að baki
langan feril sem hljómlistarmenn.
Steingrímsson lék um ellefu ára
skeið með KK sextettinum sem
margir muna sem eina bestu alhliða
skemmtihljómsveit á íslandi fyrr og
síðar. Steingrímssonurinn lék með
Hauki Morthens eftir að KK sextett-
inn var lagður niður árið 1962 og fór
meðal annars fræga ferð með hljóm-
sveit hans á heimsmót æskunnar í
Leningrad þar sem hljómsveitin
vann til verðlauna. Hann hefur leik-
ið á fjölda hljómplatna með innlend-
um og erlendum hljómlistarmönn-
um.
Ingólfssonurinn var á sínum tíma
talinn undrabarn á píanó og lærði á
hljóðfærið frá sex ára aldri hjá
ýmsum kennurum, þar á meðal
Rögnvaldi Sigurjónssyni og Axel
Arnfjörð í Kaupmannahöfn. Hann
hefur stjórnað og/eða leikið í fjölda
hljómsveita hér heima og erlendis,
einkum í Noregi og með fjölda
þekktra jazzleikara, meðal annarra
Dexter Gordon, Bob Magnusson og
Buddy Rich. Þá hefur hann gefið út
þrjár eigin hljómplötur og leikið inn
á plötur fjölda annarra. -sá
Keflavík:
ANDVAKA VEGNA
ÓLÁTA UNGMENNA
Flestum bæjarbúum Keflavfkur
og Njarðvíkur kom ekki dúr á auga
aðfararnótt sunnudags vegna óláta
unglinga. Keyrðu ungmennin um
bæinn og þeyttu bílflautur til að
mótmæla lokun Hafnargötunnar í
Keflavík en þar er keyrður svokall-
aður rúntur.
Ungmenni víða af Suðurnesjum
söfnuðust saman í hundraðatali
fyrir utan lögreglustöðina í Kefla-
vík til að mótmæla fyrmefndum
aðgerðum lögreglunnar. Mikill
fjöldi safnaðist einnig fyrir utan
heimili bæjarstjóra og lögreglu-
stjóra og þeyttu bílflauturnar í um
það bil hálfa klukkustund. Keyrðu
bílalestir um íbúðahverfi og
framhjá sjúkrahúsinu og dvalar-
heimili aldraðra með miklum lát-
um og gauragangi þannig að fæstir
bæjarbúar fengu svefnfrið.
Ákveðið var að loka Hafnargöt--
unni eftir miðnætti um helgar
vegna þess að mikill fjöldi ung-
menna hefur safnast þar saman og
nokkuð hefur borið á rúðubrotum.
Til dæmis voru rúður brotnar fyrir
þrjú hundruð þúsund krónur fyrir
tveimur vikum síðan.
Bæjaryfirvöld leita leiða til að
finna lausn á þessu máli en enginn
skemmtistaður er á Suðurnesjum
fyrir fólk undir tvítugu fyrir utan
skólaböll Fjölbrautaskólans. SSH
Guðmundur
fimmtugur
Guðmundur G. Þórarinsson 10.
þingmaður Reykjavíkur var fimmt-
ugur s.l. sunnudag. Guðmundur er
sonur Þórarins B. Ólafssonar og
Aðalheiðar S. Guðmundsdóttur.
Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1959,
fyrrihlutaprófi frá Háskóla íslands
1963 og prófi í byggingaverkfræði
við Tækniháskólann í Kaupmanna-
höfn 1966.
Hann var þingmaður Reykvíkinga
1979-1983 og síðan aftur 1987 til
dagsins í dag. Auk þess hefur Guð-
mundur gengt fjölda trúnaðarstarfa,
bæði fyrir Framsóknarflokkinn og.
aðra. Guðmundur var erlendis á
afmælisdaginn. - ÁG