Tíminn - 31.10.1989, Page 16
• SUÐ- VESTURLAND
RtQSSiOP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
Rekstarvandi Fiskiöjunnar á Suðureyri:
Hlutafjársjóður
bjargar Freyju
Stjórn Hlutafjársjóðs Byggða-
stofnunar hefur ákveðið að beita sér
fyrir fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu Fiskiðiunnar Freyju hf. á
Suðureyri. Ákvörðun stjórnarinnar
er tekin í kjölfar jákvæðra undir-
tekta stærstu lánadrottna hlutafé-
lagsins.
Stjórnin hefur fallist á að bjóða
fram nýtt hlutafé til félagsins að
upphæð 96.5 milljónir króna sem
greiðist með því að sjóðurinn tekur
við skuldum hjá lánadrottnum fyrir-
tækisins. Sala hlutdeildarskírteina í
þessu skyni hefur verið tryggð.
Samþykkt sjóðsins er þó meðal
annars bundin þeim skilyrðum að
viðunandi samningar náist við ýmsa
smærri kröfuhafa og að nýtt hlutafé
að upphæð 55 milljónir króna safnist
fyrir 6. nóvember næstkomandi frá
öðrum en Hlutafjársjóði. SSH
Vindlareykur setti
brunaboðaí gang
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að út tvívegis í gær, en í bæði skiptin
var um að ræða að brunaboðar fóru
í gang án þess að um eld væri að
ræða. í fyrra skiptið komu boð frá
viðvörunarkerfinu á Minni-Grund
um klukkan elleftu í gærmorgun en
í síðara skiptið komu boð frá Hótel
Esju um hálf sjö síðdegis. í báðum
tilfellu er talið að vindlingareykur
hafi orðið þess valdandi að bruna-
kerfin fóru í gang. -ABÓ
Slippstöðin segir
upp starfsfólki
Slippstöðin á Akureyri sagði upp
öllum starfsmönnum sínum í gær
vegna óvissu um verkefni á næsta
ári. Um er að ræða 210 starfsmenn
og taka flestar uppsagnir gildi fyrsta
febrúar, nk. en nokkrar þeirra taka
gildi um áramótin.
Nota á næstu vikur til að kanna
rekstur slippstöðvarinnar, ná í verk-
efni og endurráða starfsmenn sem
aðstæður leyfa. -ABÓ
LYFJUM STOLID
Brotist var inn í bát í Slippstöðinni hús í Keflavík og þaðan stolið 10
í Njarðvík aðfaranótt mánudags og þúsund krónum. Málin eru í
þaðan stolið lyfjakassa bátsins. Þá rannsókn. -ABÓ
var ennfremur brotist inn í íbúðar-
Fóstrur afhentu forsætisráðherra undirskriftahsta í gær.
Tímamynd: Árni Bjaraa
Fóstrur mótmæla
Fjöldi fóstra og barna gekk á
fund Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra í gær og afhenti
undirskriftir 1800 einstaklinga þar
sem því er mótmælt að yfirstjórn
dagvistarmála verði færð úr
menntamálaráðuneyti í félags-
málaráðuneyti eins og gert er ráð
fyrir í frumvarpi til laga um félags-
þjónustu sveitarfélaga.
Fóstrur héldu fjölmennan fund á
Austurvelli í gær þar sem meðal
annars kom fram að Kennarasam-
tökin styðja fóstrur í mótmælum
þeirra.
Steingrímur Hermannsson sagð-
ist hafa rætt þetta mál við félags-
málaráðherra og að hann myndi
fljótlega ræða það við mennta-
málaráðherra. Sagðist hann vera
bjartsýnn á að lausn finndist sem
fóstrur gætu sætt sig við. SSH
680001 — 686300
J
Leigjum út sali fyrir
fundi og einkasamkvæmi
og aðra mannfagnaði
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
9
Tímiiin
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
Hornafjörður:
Til varnar gegn sandi
Fyrir um þremur vikum síðan
var varnargarður reistur á Austur-
fjörutanga við Hornafjarðarós.
Um er að ræða tilraun til að koma
í veg fyrir að sjórinn beri sand inn
í innsiglinguna sem hefur valdið
því að hún mjókkar og grynnkar.
Ástæðan fyrir því að ráðist var í
gerð varnargarðsins er sú að fyrir
um mánuði síðan gerði vont veður
og þá fór hluti af svokölluðu Há-
barði, á garðurinn að koma í veg
fyrir að sjórinn beri með sér af-
ganginn af barðinu. Sjömílna-
straumur er í inn- og útfalli við
ósinn og berst sandurinn sitt á hvað
með straumnum. Fer það eftir
ríkjandi átt hvar hann safnast fyrir
og hefur þetta valið miklum erfið-
leikum í innsiglingunni.
Stefnt er að því að leysa þetta
vandamál með varanlegri hætti og
er það verkefni á höndum Vita- og
hafnarmálastofnunar. SSH
Varnargarðurinn við Austurfjörutanga sem er gerður úr saltpokum sem fylltir eru af sandi og bundnir saman.
Tímamynd: Sverrir Aðalsteinsson
TVÍSKÖHUN MÓTMÆLT
Á aðalfundi Sambands almennra
lífeyrissjóða sem haldinn var í gær
var samþykkt ályktun þar sem for-
dæmdar eru þær hugmyndir sem
hreyfðar hafa verið að láta lífeyris-
greiðslur lífeyrissjóðanna skerða
grunnlífeyri almannatrygginga. Með
þeim hætti væri grundvöllur lífeyris-
sjóðanna brostinn, því ávinningur af
áratuga sparnaði væri þá að engu
orðinn.
Jafnframt mótmælti fundurinn
þeirri tvísköttun sem felst í að ið-
gjaldagreiðslur launþega eru að fullu
skattlagðar og jafnframt er sama fé
skattlagt aftur við töku lífeyris.
„Þetta er óþolandi misrétti og því
svartara, þar sem stórir hópar laun-
þega njóta margfaldra lífeyrisrétt-
inda, án þess að mismunurinn sé
skattlagður með sama hætti,“ segir í
ályktuninni. Þá er þess krafist að
frumvarp um starfsemi lífeyrissjóða
verði lagt fram og afgreitt á þessu
þingi.
Gunnar J. Friðriksson var kosinn
formaður til næstu tveggja ára.