Tíminn - 03.06.1993, Qupperneq 7
Fimmtudagur 3. júní 1993
Tíminn 7
Skáksamband íslands:
Guómundur G.
Þórarinsson
endurkjörinn
Cuðmundur G. Þórarinsson var
endurkjörinn forseti Skáksambands
íslands á aðalfundi sambandsins á
dögunum.
í aðalstjóm voru kjömir þeir Andri
Hrólfsson, Guðmundur Benedikts-
son, Haraldur Baldursson, Margeir
Pétursson, Pétur Eiríksson og Þrá-
inn Guðmundsson. í varastjóm
hlutu kosningu þeir Ólafur H. Ólafs-
son, Gunnar Bjömsson, Halldór G.
Einarsson og Kristján Guðmunds-
son.
Þá var Jóhann Þórir Jónsson kjör-
inn heiðursfélagi Skáksambands ís-
lands. Hann hefur m.a. gefið út
tímaritið Skák í 30 ár. GS.
Nýr Veiðiflakkari kominn út
Nýr og stærrí Veiðiflakkari er kominn út. Þetta er í fjóröa sinn
sem þessi aðgengilega veiðihandbók er gefin út, en hún leit
fýrst dagsins Ijós áríð 1988.
I nýja Veiðiflakkaranum em
upplýsingar um rúmlega 65
veiðisvæði og em það allt að því
helmingi fleiri svæði en í síðustu
útgáfu. Lögð hefur verið sérstök
áhersla á að bæta við upplýsing-
um um silungsveiðiár og sil-
ungsveiðisvæði í laxveiðiám, en
fyrri útgáfur fjölluðu aðallega
um silungsveiðivötn.
í Veiðiflakkaranum em ítarleg-
ar upplýsingar um hvert veiði-
svæði. Sagt er frá því hvar veiði-
leyfi em fáanleg í viðkomandi
vatn eða á, hvar veiðisvæðið er
staðsett og hvaða þjónustu gisti-
staðir í grennd við það hafa á
boðstólum. Þá em í bókinni ná-
kvæmar upplýsingar um sjálft
veiðisvæðið, hvað veiðist, hvar
veiðivon svæðisins sé, hver sé al-
gengasta stærð fisksins á veiði-
svæðinu, hvaða beita sé hentug
og hvenær veiðitímabil viðkom-
andi svæðis hefjist og ljúki. Síð-
ast en ekki síst er kort af veiði-
svæðinu og nánasta umhverfi
þess. Ferðaþjónusta bænda gef-
ur Veiðiflakkarann út. Hann fæst
í veiðiverslunum, bókaverslun-
um, hjá ferðaskrifstofúm og víð-
ar.
Hulda Eiríksdóttir
Fædd 17. júlí 1938
Dáin 27. maí 1993
í dag, fimmtudag 3. júní, kveðjum
við mágkonu mína Huldu hinstu
kveðju. Hún lést eftir mjög skömm
veikindi á Borgarspítalanum.
Hulda fæddist á Þingeyri við Dýra-
fiörð, dóttir hjónanna önnu Guð-
mundsdóttur frá Syðra-Lóni við
Þórshöfn og Eiríks Þorsteinssonar,
f.v. kaupfélagsstjóra og alþingis-
manns frá Surtsstöðum í Jökulsár-
hlíð.
Hulda ólst upp í stórum systkina-
hóp, þriðja af átta systkinum. Oft var
gestkvæmt á heimili Önnu og Eiríks
og fengu böm þeirra innsýn í ís-
lenskt atvinnu- og menningarlíf.
Að bamaskólanámi loknu fór Hulda
í Héraðsskólann á Núpi í Dýrafirði og
síðan í Menntaskólann á Akureyri og
útskrifaðist stúdent þaðan. Seinna
lauk hún kennaraprófi frá Kennara-
skóla íslands.
Að námi loknu vann hún skrifstofu-
störf og þá aðallega við bókhald, sem
hún var efdrsótt í. Þar nýttust reikn-
ingsgáfur hennar vel.
Arið 1967 giftist Hulda eftirlifandi
eiginmanni sínum, Hreini Sveins-
syni. Þau eignuðust soninn Hlyn,
viðskiptafræðinema, fæddan 4.1. ‘69.
Á fyrstu búskaparárum sínum
bjuggu þau í Reykjavík, en árið 1973
var Hreinn ráðinn skattstjóri á ísa-
firði og bjuggu þau þar til ársins
1984. Þá fluttust þau til Hellu þar
sem Hreinn tók við skattstjóraemb-
ættinu þar. Það var kærkomið fyrir
þau hjón að flytjast aftur suður og
komast í nálægð vina og vanda-
manna. Eftir að Hlynur fór í fram-
haldsskóla í Reykjavík voru margar
ferðimar famar í bæinn til að geta
verið í návist hans.
Vandvirkni og ósérhlífni einkenndu
Huldu. Allt, sem hún tók sér fyrir
hendur, vann hún af alúð og vand-
virkni. Ekkert var fjær henni en
sýndarmennska. Við gátum öll treyst
því, að Hulda var aldrei annað en
sönn og heil. Minnisstætt er af hve
mikilli alúð og smekkvfsi hún valdi
þær gjafir, sem hún gladdi fjölskyld-
una með. Ekkert var of gott fyrir okk-
ur hin.
Eftir að henni var ljóst að hún gengi
með illvígan sjúkdóm fékk hún
nokkra daga. Það var alveg í hennar
anda að vinna, sárlasin, faglega og af
þekkingu, við að afla meðala og
gagna til að byrja bardagann. Til
þessa bardaga kom aldrei.
Minningarnar eru margar. Heim-
sóknir til Isafjarðar og allar ferðimar
austur á Hellu, þar sem gestrisni og
vinátta var í fyrirrúmi. Farið út í
garðinn og fjölbreyttur gróðurinn
skoðaður. Kvöldin enduðu oftast við
briddsborðið og við Hulda spiluðum
saman gegnum árin.
Kæru Hreinn og Hlynur. Okkur er
öllum ljóst hvað mikið þið missið.
Guð gefi ykkur styrk.
Við erum þakklát fyrir að hafa átt
hana að.
Sigurður Kristjánsson
Elsku systir!
Það er erfitt að sætta sig við það, að
þú skulir fallin frá tæplega 55 ára
gömul.
Það leiðir hugann að því, hve lífið er
hverfult og við fáum ekki við neitt
ráðið. Eða eins og segir í kvæðinu
„Úr Rúbajjat" eftir Omar Khajjam:
„Sjá tímirm — hann er fugl sem
flýgur hratt,
harm flýgur máski úr augsýn þér í
kveld!“
Skelfing verður maður vanmáttug-
ur, þegar maður stendur frammi fyr-
ir dauðanum.
Þegar upp kom sú staðreynd, að þú
bærir þann illkynja sjúkdóm, sem
tók þig svo skyndilega frá okkur, þá
minnist ég þess, þegar við sátum
heima fyrir u.þ.b. mánuði og röbbuð-
um saman. Þú sagðir mér þá, að eftir
að þú gekkst í gegnum erfitt tímabil
fyrir 12 til 13 árum og komst yfir það,
að þú hefðir eftir 10 árin frá þeim
tíma algjörlega afskrifað að þú fengir
nokkum tíma aftur krabbamein.
Þetta lýsti þér vel. Það var eins og þú
hugsaðir: einu sinni — búið — aldr-
ei aftur.
Þú varst svo skynsöm og fórst aldrei
geyst í hlutina. Þú gafst þér alltaf
tíma til að skoða hlutina vel og kynna
þér staðreyndir, áður en þú tókst
ákvarðanir. En okkur grunaði áreið-
anlega hvomga þá, að svo fljótt drægi
fyrir sólu og þú værir öll mánuði síð-
ar.
En systir góð! Minningin um þig lif-
ir.
Þegar við bjuggum fyrir vestan átt-
um við oft góðar stundir saman. Þú
varst mér líka oft hjálpleg, þegar ég
þurfti á hjálp að halda. Þú varst svo
dugleg og hafðir svo næmt auga fyrir
hinu smáa. Bömin mín mátu þig líka
mikils. Við söknum þín, elsku systir.
Ég bið til Guðs:
„Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alfoðurskaut“
(Mattfa. Joch.)
og að Hann sendi Hreini og Hlyni
styrk í þeirra sorg og missi.
Far vel á Guðs vegum og hafðu
hjartans þökk fyrir allt og allt.
Tóta
Brautskráfllr nemendur úr Fjölbrautaskóla Suðumesja.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
Margir fá verðlaun
Sjötíu og sex nemendur hlutu
brautskráningarskírteini frá Fjöl-
brautaskóla Suðumesja á dögun-
um.
Skólinn brautskráði einn sjúkra-
liða, tvo skiptinema, tvo af bók-
námsbrautum, 22 af tæknisviði, 13
úr meistaraskóla og 36 stúdenta.
Óvenju margir nemendur hlutu
verðlaun að þessu sinni. Bestum
námsárangri náðu Daníel Guð-
bjartsson og Rúnar Gísli Valdimars-
son og sópuðu þeir félagar til sín
verðlaunum. Rúnar Gísli setti nýtt
met, en hann brautskráðist með 221
einingu.
A þriðja hundrað
reyklausir bekkir
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
og Tóbaksvamanefnd höfðu
samvinnu um það síðastliðinn
vetur að verðlauna nokkra
reyklausa 8., 9. og 10. bekki í
grunnskólum landsins. Stað-
fest yfirlýsing um reykleysi
barst frá samtals 217 bekkjar-
deildum, þar af 120 áttundu
bekkjum, 56 níundu bekkjum
og 41 tíunda bekk. Allir þessir
bekkir fengu viðurkenningar-
skjöl.
Flestir vom bekkimir í
Reykjanesumdæmi, 52 að tölu,
en 42 í Reykjavík, 33 á Norður-
landi eystra, 28 á Vesturlandi,
21 á Austurlandi, 18 á Vest-
fjörðum, 15 á Suðurlandi og 8 á
Norðurlandi vestra.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
Opiö hús aö Hverfisgötu 25 alia þríöjudaga kl. 20.30.
Komið og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö.
Framsóknartéíðgln
Kópavogur—
Framsóknarvist
Spilum aö Digranesvegi 12 fimmtudaginn 3. júnl kl. 20.30. Góö verölaun og
kaffiveitingar.
Freyfa, fétag frrnnsóknartrmnna
Ingibjörg
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Borgamess
veröur haldinn I húsi félagsins fimmtudaginn 3. júnl Id.
20.30.
Ingibjörg Pálmadóttir alþingismaöur ræöir stjómmálaviö-
horfiö.
Sydmái
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 17. maf veröur skrifstofa Framsóknarflokksins I Hafnarstræti 20, III hæö, op-
in frá kl. 8.00 til 16.00 frá mánudegi til föstudags.
Veriö velkomin Framsóknarflokkurinn