Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT NURSULTAN Nazarbayev, forseti Kasakstans, hefur látið reisa píramídalaga byggingu fyrir ým- iskonar starfsemi sem á að stuðla að trúarlegu umburðarlyndi og sátt milli trúarhópa. Forsetinn kveðst þannig vilja beita sér fyrir friði og stöð- ugleika í allri heimsbyggðinni. Byggingin hefur verið kölluð Höll friðar og sátta. Undir glerþaki hennar er stór salur, sem þykir minna á geimskip, þar sem fulltrúar músl- íma, kristinna manna, gyðinga, búddhatrúar- manna og fleiri trúarhópa eiga að koma saman reglulega til að ræða trúfrelsi og umburðarlyndi. Umræðan í höllinni hefur einkum snúist um málefni Mið-Austurlanda, að því er fram kom á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Nazarbayjev forseti átti hugmyndina að frið- arhöllinni. Hann lýsir landi sínu sem fyrirmynd í öryggismálum og dæmi um land þar sem trúar- legt umburðarlyndi sé haft í hávegum. Andstæðingar forsetans eru ekki á sama máli. Þeir segja að þótt trúarlega umburðarlyndið sé meira í Kasakstan en í öðrum löndum Mið-Asíu sé farið að bera á því að trúfrelsið sé skert. Múslímahreyfingar, sem lúta ekki stjórn rík- isins, og hópar á borð við Hare Khrisna hafa einn- ig kvartað yfir áreitni yfirvalda. Andstæðingar Nazarbayev segja að megin- markmið hans sé því ekki í raun að stuðla að friði og trúfrelsi í heiminum, heldur að kynna land sitt og auka vægi þess á alþjóðavettvangi. Nazarbayev vill að pólitískt vægi Kasakstans aukist á alþjóðavettvangi í samræmi við mikinn efnahagsuppgang sem hefur verið þar vegna mik- illa olíu- og úranauðlinda. Efasemdir hafa vaknað um hvort lýðræði og mannréttindi séu höfð í heiðri í Kasakstan. 8?-:@A:B;;                          !"#     !             $   % #     &'( %)  *   *(+ *      '   !  !" ,   ' *- +  .  ! "#" / (  * 0  *#' ++   1 %&-   ++ *  ! $%%&'#"() *++",#" '#"-."/.0'11,. " "2 +"1*"#3"3++3"1)44/5#4()"11 621"+'% "# +4#%""#&'#'() *++4//'%%'+7"86-"8'/ '1 2'+2+'11 (/"1 ( +8"11"#'8$%%'1" 2   * 0%     3) * 4    -+4   %   %     5 0 #4 %     4-    *   6 *-    0 *   % 4  ++( 0(   ! .!- (+ *4 4  %4   *1'4  !    , % *  (+ *  * 4 4 *   %  (+  % /# 0% 7(+  "   !   0%8     9#    (      " : ! 9:     ;<; : : =:  >  ? >< :@     +.4/ '( #      -'&  (+ *! ;  &# 4  -   % 4 *   &%   *  0 #       <%:4  %  <%: *  !  *  4 %    %* !   4  *        &  ! ;   #  0#   *   &  0% 4  %  =% ! *      %*( ! Beitir sér fyrir heimsfriði og sátt milli trúarhópa ÞÚSUNDIR dalíta, stéttlausra hindúa á Indlandi, snerust til búddhatrúar eða kristni um helgina til að mótmæla lögum sem hafa verið sett í nokkrum ind- verskum ríkjum til að torvelda trúskipti. Prestur skírir hér dalíta í borginni Nagpur þar sem hundr- uð manna snerust til kristinnar trúar. Um 3.000 manns úr röðum dal- íta snerust til búddhatrúar í bæn- um Gulbarga í Karnataka-héraði. Trúskiptiathafnirnar voru liður í mótmælum gegn misrétti sem dalítar, eða „hinir ósnertanlegu“, hafa verið beittir. Með trúskiptum geta dalítar losnað við fordóma og viðjar sem þeir hafa mátt þola í indverska erfðastéttakerfinu. Athafnirnar fóru fram í tilefni af því að hálf öld er liðin frá því að fræðimaðurinn Bhimrao Ramji Ambedkar snerist til búddahatrú- ar. Hann var fyrsti þekkti dalítinn sem hvatti stéttleysingjana til að taka búddhatrú í þessum tilgangi. Reuters Trúskipti til að losna við kúgun Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu hafa mótmælt ályktun sem öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardag og kveður á um refsiað- gerðir gegn landinu vegna deilunnar um kjarnorkutilraun Norður-Kóreu- manna. Ályktunin var samþykkt einróma og ráðamenn í flestum ríkjum heims hafa fagnað henni. Ágreiningur er hins vegar um hvernig fylgja eigi ályktuninni eftir og ljóst er því að eftirleikurinn verð- ur ekki auðveldur. Einkum er deilt um ákvæði í ályktuninni þess efnis að ríki heims láti skoða farma farskipa á leið frá eða til Norður-Kóreu til að koma í veg fyrir að þau flytji efni í gereyð- ingarvopn eða eldflaugar. Kínverjar segjast hafa samþykkt ályktunina með „fyrirvara“ um eft- irlitið með norður-kóreskum skip- um. Ráðamenn í Rússlandi sögðu að ekki ætti að líta svo á að refsiaðgerð- irnar yrðu til frambúðar. Kínverjar og Rússar hafa áhyggj- ur af því að eftirlit með flutninga- skipunum geti leitt til átaka við norð- ur-kóresk herskip. Stjórnvöld í Japan og Ástralíu sögðust á hinn bóginn ætla að fylgja öllum ákvæðum ályktunar öryggis- ráðsins eftir þegar í stað og sögðust vera að íhuga að grípa til harðari refsiaðgerða. Suður-Kóreustjórn kvaðst einnig ætla að fylgja viðskiptabanninu eftir en sagði ekkert um hvernig það yrði gert. George W. Bush Bandaríkjafor- seti fagnaði ályktuninni og sagði að öryggisráðið hefði gripið til „skjótra og harðra aðgerða“ í því skyni að sýna að það væri staðráðið í að sjá til þess að engin kjarnavopn yrðu á Kóreuskaga. Óttast hungursneyð Sendiherra Norður-Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum mótmælti hins vegar ályktuninni og sagði að örygg- isráðið hefði hegðað sér eins og „glæpahringur“. Litið yrði á frekari þrýsting af hálfu Bandaríkjastjórnar sem „stríðsyfirlýsingu“. Hjálparstofnanir sögðust hafa áhyggjur af því að refsiaðgerðirnar gætu komið niður á almenningi í Norður-Kóreu sem rambar á barmi hungursneyðar. Talsmaður suður- kóresku hjálparsamtakanna Góðir vinir sagði að blikur væru á lofti um að ástandið yrði álíka slæmt í vetur og í hörmungunum sem gengu yfir landið á síðasta áratug. Deilt um eftirlit með farskipum N-Kóreu Kínverjar samþykktu ályktun öryggisráðsins með fyrirvara Í HNOTSKURN » Í ályktun öryggisráðs SÞer þess krafist að Norður- Kóreumenn eyði öllum kjarna- vopnum sínum en tekið er fram að ekki komi til greina að svo stöddu að hefja hernað gegn landinu. » Öllum aðildarlöndum SÞer skipað að koma í veg fyrir inn- eða útflutning N-Kóreumanna á efnum í ger- eyðingarvopn eða eldflaugar. » Ríkjunum ber og að frystaeignir manna eða fyrir- tækja, sem tengjast óleyfilegri vopnaframleiðslu Norður- Kóreu, og banna þessum mönnum að ferðast þangað. Lancaster. AP. | Ekkja manns, sem skaut fimm Amish-stúlkur til bana í skóla í Pennsylvaníu í Bandaríkj- unum, hefur þakkað Amish-fólkinu fyrir að sýna henni stuðning og um- hyggju. Ekkjan, Marie Roberts, segir fjöl- skyldu sína agndofa yfir því hversu fúst Amish-fólkið sé til að fyrirgefa og sýna miskunn eftir skotárás mannsins í barnaskóla 2. október sl. Morðinginn, Charles Robert, fyr- irfór sér eftir að hafa myrt stúlk- urnar og sært fimm til viðbótar al- varlega. Amish-fólkið hefur fyrirgefið honum verknaðinn og stofnað sérstakan styrktarsjóð handa fjölskyldu Roberts. Marie Roberts skrifaði Amish- fólkinu bréf þar sem hún þakkaði því fyrir að sýna fjölskyldu sinni stuðning og umhyggju. Ekkjan þakkar Amish-fólkinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.