Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 22
áhugamál 22 MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Þ ær hafa ekki lengur tölu á öllum verðlaunapen- ingunum og bikurunum sem þær hafa landað á öllum sundmótunum sem þær hafa tekið þátt í, en lík- lega er tala verðlaunapeninga kom- in vel á annað þúsundið auk fjöl- margra eignarbikara. Áhugamál systranna fjögurra snýst um sund og aftur sund enda má segja að mestöllum frítímanum sé varið í lauginni. Foreldrar með dómararéttindi Systurnar fjórar eru allar miklar vinkonur enda deila þær sama áhugamálinu og hafa allar náð því að vera afrekskonur í sundi. For- eldrarnir, Gústaf Adólf Hjaltason og Guðrún Gerða Sigurþórsdóttir, eru dyggir stuðningsmenn og eru oftar en ekki á sundlaugarbakk- anum að hvetja stelpurnar sínar áfram eða eru í hlutverki dómara á mótum, en bæði eru þau með dóm- araréttindi. Gústaf er yfirdómari og hefur verið formaður sundfélagsins Ægis undanfarin þrjú ár, en félagið er fjölmennasta sundfélag landsins með 220 syndandi félagsmenn. Foreldrarnir þvertaka fyrir það að vera sjálf með sundfit, en séu þeim mun duglegri í félagsstússinu í kringum sundið. „Við erum á öll- um mótum enda þarf 50–60 manna lið í kringum hvern hluta í stór- móti, þar af 25–27 dómara. Í tilefni af 80 ára afmæli sundfélagsins Æg- is á næsta ári er áformað að halda stórmót hér í janúar og kemur þá fjöldi erlendra gesta hingað til lands til að taka þátt í því.“ Heimavinnandi bílstjóri Sundæfingar hafa fylgt fjölskyld- unni undanfarin tólf ár, en upphafið má rekja til þess að móðirin Guð- rún Gerða fór með elstu stelpurnar á æfingu í Breiðholtslaug, bara til að prófa svona í fyrstu atrennu. „Þeim fór að ganga vel mjög fljótt og síðan hafa þær ekki stoppað. Ég vildi ekki setja þær í boltaíþróttir sem skemmdu hné, axlir og oln- boga og því varð sundið fyrir val- inu. Ég var nefnilega sjálf í hand- boltanum í gamla daga á árunum 1969–1979, spilaði með Ármanni og var í landsliðinu og vildi forða þeim frá þeim meiðslum sem margir glíma við í boltaíþróttunum í ljósi eigin reynslu,“ segir Guðrún Gerða. Óhætt er að segja að það þurfi að vera gott skipulag á heimili fjöl- skyldunnar í Seljahverfinu í Breið- holti og því hefur móðirin verið að heita má heimavinnandi húsmóðir eftir að börnin komu til sögunnar. „Fyrir utan hæfileikana, þá er sú staðreynd að móðir stelpnanna hef- ur verið heima fyrir þær lykillinn að velgengninni,“ segir pabbinn Gústaf Adólf og eiginkonan Guðrún Gerða tekur undir það að einhver hafi þurft að vera til staðar til að halda utan um allt saman því reynslan sýni að þau börn, sem fá stuðning og athygli heima fyrir, ná árangri og flosna síður upp. Drjúg- ur tími hefur svo farið í að keyra og sækja á æfingar. „Á tímabili þurfti að keyra í þrjár sundlaugar sama daginn, en nú hefur aðeins hægst á strætó-vaktinni hjá mér þar sem tvær þær eldri eru komnar með bílpróf. Svo þarf auðvitað að huga að kjarngóðum mat því nær- ingin skiptir miklu máli í öllu þessi ferli,“ segir Guðrún og bætir við að loksins þegar fjölskyldumeðlimir nái að hittast við matarborðið eftir kvöldsundæfingarnar vilji umræðu- efnið nú ansi oft snúast um sundið eða félagsstúss á vegum Ægis. „Við erum alveg svakalega stolt af sundstelpunum okkar,“ segir Gústaf Adólf. Elsta dóttirin, Krist- rún, sem er 21 árs nemi við Kenn- araháskóla Íslands, var að æfa sund til 14 ára aldurs, en hefur síð- an verið að þjálfa sundfólk hjá Ægi. „Ég er mjög sátt við það sem ég er að gera þótt ég fái stundum sund- fiðring á stórmótum, en þjálfunin er það skemmtilegasta sem ég geri.“ Ásbjörg, sem er 20 ára, útskrif- ast sem stúdent frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti í vor. Jóhanna Gerða, sem er 16, var að byrja í FB nú í haust og örverpið Eygló Ósk er í sjötta bekk Ölduselsskóla. Systurnar gæta þess að fara snemma í háttinn, ekki seinna en klukkan tíu á kvöldin, því klukkan á heimilinu hringir stundvíslega kl. 4.20 hjá Ásbjörgu og Jóhönnu Gerðu því tveggja tíma morg- unsundæfingar byrja stundvíslega kl. 5.30. Þær æfa sund níu sinnum í viku, tvo tíma í senn, og fara auk þess fjórum sinnum í viku í þrekæf- ingar í World Class. Eygló Ósk er enn ekki byrjuð á morgunæfingum, en er fimm sinnum í viku á sundæf- ingum og vikulega í frjálsum íþrótt- um. „Þetta er alltaf jafn skemmti- legt,“ segir Ásbjörg. „En stundum koma tímabil sem maður fær svolít- ið ógeð,“ bætir Jóhanna Gerða við. Systurnar þrjár, sem enn eru að æfa af kappi, setja stefnuna hátt og tala um að gaman væri að komast á ólympíuleika, en þegar spurt er hvað þær ætli að taka sér fyrir hendur á fullorðinsárum vilja þær allar þjálfa sundfólk þegar keppn- isferlinum lýkur. Ásbjörg hefur auk þess hug á að læra líffræði. Jó- hanna segist enn vera óákveðin og kennarastarfið heillar Eygló svolít- ið. Systurnar eiga einn eldri bróður, Sigurþór Hjalta, sem þær segja að kunni varla bringusund. „Hann tók einu sinni þátt í fjölskyldusundi. Það var hræðileg uppákoma,“ segja þær og flissa. Meistarar og mikil efni „Systurnar eru mjög efnilegar og fjölhæfar stelpur og margfaldir meistarar bæði hérlendis og erlend- is,“ segir Eyleifur Jóhannesson, yf- irsundþjálfari hjá Ægi. „Sú yngsta, Eygló Ósk, er eitt albesta efnið, sem fram hefur komið á Íslandi til þessa. Hún er margfaldur aldurs- flokkameistari, setti mótsmet á al- þjóðlegu stórmóti í Esbjerg í Dan- mörku í vor og kom þaðan heim með fjórar medalíur. Við ölum hana upp sem fjórsundskonu. Það þarf bara að halda henni svolítið niðri án þess að henni leiðist þar sem hún er með miklu meiri getu en jafn- aldrarnir.“ Til að ná árangri í sundi á heims- mælikvarða þarf metnaðarfulla ein- staklinga, sem eru tilbúnir í mikið úthald. „Við æfum í tuttugu klukkutíma á hverri viku og setjum markið á að synda 50 km, sem ger- ir fimm til átta km á hverri æfingu. Einkenni ofþjálfunar koma ekki fram vegna of mikilla æfinga held- ur fara þau miklu fremur að gera vart við sig ef menn sofa ekki nóg eða borða ekki rétt. Sundfólk þarf að vera á mjög kolvetnaríku fæði. Menn kæmust því ekki langt í laug- inni á danska kúrnum,“ segir Ey- leifur að lokum. Morgunblaðið/Sverrir Fjölskyldan Foreldrarnir Gústaf Adólf Hjaltason og Guðrún Gerða Sigurþórsdóttir fylgja dætrum sínum Jóhönnu Gerðu, Ásbjörgu, Kristrúnu og Eygló Ósk vel eftir með því að hvetja og styðja. Stolt af sundstelpunum sínum Morgunblaðið/Sverrir Sundsystur Þær deila allar sama áhugamálinu og eru miklar vinkonur. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Verðlaun Eygló Ósk og verðlaunapeningarnir sem þær systur hafa hlotið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.