Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 23
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 23 Heilsa›u vetri me› íslenskri kjötsúpu Ger›u fla› a› hef› a› elda kjötsúpu á fyrsta vetrardag. Kjötsúpa er réttur sem treystir fjölskyldu- og vinabönd. Elda›u kjötsúpu í stórum potti og hóa›u í vini og vandamenn. Heilsa›u vetri me› ilmandi kjötsúpu. Margir eiga uppskrift a› kjötsúpu frá mömmu e›a ömmu en svo er hægt a› fá uppskrift á www.lambakjot.is. E N N E M M / S ÍA / N M 2 19 9 9 THOMAS Perls er sérfræðingur í öldrun, sérstaklega fólks sem er orðið hundrað ára eða eldra. Í Bandaríkjunum eru um 50.000 manns tíræðir eða eldri. Perls, sem er 46 ára gamall, er aðstoð- arprófessor í öldrunarlækningum við læknamiðstöðina í Boston. Hann hefur ásamt öðrum unnið að rannsókn á tíræðu fólki, og þykir rannsóknin marka ákveðin þátta- skil. Perls kynnir í viðtali við JSOnline sex skref til þess að ná svo háum aldri.  Viðhorf Það er gott að hafa já- kvætt viðhorf gagnvart öldr- uninni og til að geta höndlað stress sem henni fylgir á já- kvæðan hátt.  Erfðafræði Gott er að skoða hvort eldri fjölskyldumeðlimir hafa verið langlífir. Ef þeir hafa orðið 90 ára eða eldri eru það góðar fréttir, en viðvör- unarbjöllur klingja ef þeir hafa látist milli sextugs og sjötugs.  Hreyfing Eftir því sem fólk eldist eykst mikilvægi hreyf- ingar. Rétt er að leggja áherslu á styrktaræfingar meðfram al- mennri hreyfingu. Þær eru ekki eins erfiðar fyrir líkamann en skila jafnvel meiru.  Áhugi Það þarf að þjálfa heil- ann eins og líkamann. Gott er að framkvæma nýja hluti og flókna. Það getur seinkað Alz- heimer og öðrum minn- issjúkdómum.  Næring Mikilvægi fjölbreyttrar næringar er óumdeilt. Miða skal mataræðið við að halda kjör- þyngd.  Ekki reykja Auðvitað á enginn að reykja. Jafnframt skal forð- ast að elta einhverjar kerl- ingabækur á netinu um það hvernig koma má í veg fyrir öldrun. Perls var í framhaldi spurður nokkurra spurninga varðandi öldr- un. Sú fyrsta var hvort og þá hvaða takmörk væru fyrir því hversu gamall maðurinn, sem teg- und, getur orðið. „Jeanne Calment varð 122 ára,“ svaraði Perls. „Hún lést árið 1997 og það má eiginlega segja að aldur hennar skilgreini aldursmörk mannsins. Ég býst þó við að innan 30–40 ára geti ein- hverjir einstaklingar náð hærri aldri.“ Um það hvað kveikti áhuga Perls á að rannsaka fólk sem kom- ið er yfir tíræðisaldur segir hann. „Ég fékk tækifæri til að annast um fólk, sem orðið var hundrað ára og var í einstaklega góðu formi, í tengslum við starf mitt sem öldr- unarlæknir. Það opnaði augu mín fyrir því að til er fólk sem eldist í raun allt öðruvísi en við hin.“ Á vefnum www.livingto100.com er reiknivél sem spáir lífslíkum einstaklinga. Perl var að lokum spurður hvernig hann sjálfur hefði komið út og hvar hann myndi fagna 100. afmælisdeginum ef hann næði að lifa hann. „Ég verð 96 ára gamall skv. nýjustu tölum,“ svaraði hann. „Og ef ég yrði hundrað ára myndi ég, eftir að vera kominn á eftirlaun, starfa við heilbrigðisþjónustu indíána í suð- vesturríkjum Bandaríkjanna. Mitt álit er að maður eigi að gera eitt- hvað allt annað þegar maður kemst á eftirlaun í kringum sex- tugsaldurinn.“ Viltu verða hundrað ára? Reuters Elli Það er gott að hafa jákvætt viðhorf gagnvart öldruninni og líklega hefur hún Maria de Jesus sem býr í Portú- gal haft það að leiðarljósi en hún varð 113 ára í síðasta mánuði og er elsta manneskja sem nú er uppi í Evrópu. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.