Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.10.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. OKTÓBER 2006 27 EF TIL vill gerðu fáir eða engir sér nógu glögga grein fyrir því fyr- irfram hve miklar og afgerandi breytingar áttu sér í raun stað í Sjálfstæðisflokknum þegar Geir H. Haarde tók við formennsku hans á Landsfundinum í Laugardalshöllinni í október í fyrra. Stjórnunarstíll fyrr- verandi formanns var þá orðinn viss byrði á Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni og dagarnir og vikurnar sem tóku við eftir formanns- skiptin einkenndust öðru fremur af létti – bæði hjá flokks- mönnum sjálfum og öðrum Íslend- ingum. Langvarandi upplifun örygg- isleysis breyttist svo í öryggistilfinn- ingu hjá borgurum landsins þegar Geir tók við embætti forsætisráð- herra átta mánuðum síðar og þeir gátu varpað öndinni léttar. Kjölfest- umaður var kominn í brúna. Allir urðu varir við það, jafnt sam- herjar hans sem andstæðingar – að öllum öðrum ólöstuðum. Hógværð og gáfur Geirs Yfirburðir Geirs H. Haarde for- manns Sjálfstæðisflokksins og for- sætisráðherra felast ekki síst í hátt- vísi hans og hógværð. En líka í gáfum hans og heilindum. Geir lætur sjaldan raska ró sinni. Yfirvegun hans, hlýja og auðmýkt eru einlæg og hann kemur til dyranna alveg eins og hann er klæddur. Geir er mjög sanngjarn stjórnmálamaður með óvenju skýra og umburðarlynda dómgreind og uppbyggjandi viðhorf til lífsins og fólks almennt. Enda fá nú allir sem vilja að njóta sín í Sjálf- stæðisflokknum og í þjóðfélaginu öllu. Geir er alveg samkvæmur sjálf- um sér og kristilegt siðgæði, traust og heiðarleiki marka persónu hans alla. Vald hans er virðulegt og hönd hans sterk en mildi og manngæska einkenna hvorutveggja. Kurteisi og kímni Vilhjálms Allra fyrstu orð Vil- hjálms Þ. Vilhjálms- sonar, borgarstjóra Reykjavíkur, í embætti 12. júní síðastliðinn í pontu í sal borg- arstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur voru á þá leið að hann ætlaði fyrst og fremst að sýna fólki kurteisi og tillitssemi í störfum sínum. Meiri háttprýði og reisn get- ur stjórnmálamaður varla sýnt við embættistöku. Og á þann hátt mark- aði Vilhjálmur skýrt framhald á stjórnunarstíl sínum í áraraðir og studdi líka á afgerandi hátt þá stefnu sem Geir H. Haarde lagði sjálfkrafa og áreynslulaust sem formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð- herra. Samt er Vilhjálmur afar sjálf- stæður í sínu borgarstjórasæti og fer eigin leiðir ef nauðsyn krefur. Enda er hann hæfur og vandaður fagmaður sem hefur þá alúð, kæti og kímni sem er mjög sjaldgæf hjá dugnaðarforkum eins og honum. Góðar fyrirmyndir Ef einhvern tíma voru til góðir og gegnir sjálfstæðismenn af gamla skólanum í seinni tíð samkvæmt beztu merkingu þeirra orða eru Geir H. Haarde og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson báðir ljóslifandi dæmi um þá göfugu mannkosti sem í þessu fel- ast. Þeir leyna báðir á sér og undir prúðmannlegri ásjónu þeirra beggja býr miklu meiri þekking, hæfni og geta til að móta veruleika okkar til góðs en blasað gæti við í fyrstu. Slagorðin stétt með stétt og frelsi og mannúð eru ekki bara slagorð í huga þessara manna heldur raunveruleiki í úrlausnarefnum hvers einasta dags. Sem betur fer eru þeir báðir geðríkir menn en þeir kunna að hemja skap sitt vel og báðir kunna mörgum mönnum betur þá siðprýði sem er Íslendingum góð fyrirmynd nú á tímum hnignandi siðgæðis – ólíkt ýmsum öðrum fyrrverandi og núverandi stjórnmálamönnum. Og það merkilega er að það eru einmitt þessi gömlu og góðu, heiðarlegu og nærgætnu gildi sem verða aðall sjálfstæðisstefnu framtíðarinnar. Ekki sízt þess vegna mun Sjálfstæð- isflokkurinn halda áfram að vera eina kjölfestan í íslenzkum stjórn- málum. Tveir sjálfstæðismenn framtíðarinnar Ragnar Halldórsson fjallar um þá eiginleika sem helst prýða góða stjórnmálamenn »… það eru einmittþessi gömlu og góðu, heiðarlegu og nær- gætnu gildi sem verða aðall sjálfstæðisstefnu framtíðarinnar. Ragnar Halldórsson Höfundur er kvikmyndagerð- armaður. Sagt var: Um eitthvað slíkt samkomulag er að ræða. RÉTT VÆRI: Um eitthvert slíkt samkomulag … Gætum tungunnar Dóra Hjálmarsdóttir: Áhættu- mati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ekki ábótavant. Oddur Benediktsson: Áhættu- mati fyrir Kárahnjúkavirkjun er ábótavant Páll Jóhann Einarsson skrifar um trú og vísindi. Gunnar Jóhannesson skrifar um trú og vísindi. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar EFTIR lestur Morg- unblaðsins föstudaginn 22. sept. sl.varð mér hugsað til máltækisins, sem er yfirskrift þess- arar greinar. Þar lýsir Ómar Ragn- arsson fréttamaður yfir andstöðu sinni við Kára- hnjúkavirkjun ekki mik- il frétt fannst mér. En öfgarnar sem hafðar eru þar eftir Ómari og hefur komið fram hjá honum síðan ríða ekki við ein- teyming. „Koma í veg fyrir mestu mögulegu um- kverfisspjöll sögunnar á Íslandi“, hvað á mað- urinn við? Var betra að virkja Gullfoss, Geysi- ssvæðið, og fleiri slíka staði? Milljónir ófæddra Íslendinga munu ekki fyrirgefa okkur að safna vatni í Hálslón, segir Ómar. Ég álít að ókomn- ar kynslóðir eigi mikið frekar eftir að ásaka okkur fyrir sóun á orkulindum sem ekki eru ótæmanlegar eins og olíu- lindir og kolanámur sem auk þess valda mengun andrúmslofts. Fer ekki mengun á höfuðborgar svæðinu æ oft- ar yfir hættumörk? Umhugsunarefni fyrir þá sem vilja kalla sig sérstaka um- hverfissinna. Ekki er Ómar lengi að finna peninga til að mæta skaðabótakröfum frá ál- verinu á Reyðarfirði vegna vanefnda á raforkusamningi, bændur eiga að taka það á sig , ekki lengi að finna breiðu bökin. Hann fer nú reyndar ákaflega frjálslega með tölur í því sambandi og tvöfaldar þá upphæð sem er stuðn- ingur ríkisins við bændur, sem sagt ekkert mál að leggja landbúnað niður á Íslandi og útrýma nautgripum og kind- um. Ómari hefur reyndar lengi verið í nöp við sauðkindina, hefur fengið þá flugu í höfuðið að sauðkindin hafi búið til auðnirnar á hálendinu, veðurfar og öskuföll hafi þar engin áhrif. Ómar Ragnarsson á annars miklar þakkir skildar fyrir að hafa sýnt okkur margar náttúruperlur bæði út í nátt- úrunni og ekki síður í mannlegu eðli í sínum frábæru Stiklu þáttum. Ég vildi sjá hann halda áfram á þeim vettvangi, af nógu er af að taka ég gæti sýnt hon- um nokkrar. Þar á meðal foss sem fáir hafa séð, en hann mundi áreiðanlega hrífast af, en engum hef- ur dottið í hug að bæta aðgengi að honum, enda ekki á virkjanaáætlun. Við þá sem hæst láta um umhverfismál vil ég segja þetta: Komið út af malbikinu, þar er mikið verk að vinna, bæta aðgengi að náttúruperlum landsins, þær eru margar óþekkt- ar vegna slæms aðgengis, ræktið skóg, græðið land, ég hef trú á að bændur muni hjálpa ykkur með ráðum og dáð. Hættið að eyða orkunni í málæði og göngur í menguninni á höfuðborgarsvæðinu, takið til hendi og látið verkin tala. Landsvirkjun hefur verið stórtækast á seinni árum að gera fólki kleift að komast á marga staði sem ekki var hægt að komast á áður nema með utanvegarakstri. En frágangur við virkjanir er til fyr- irmyndar þannig að maður tekur varla eftir þeim. Mér finnst Blöndulón fallegt heiðarvatn ég geri ráð fyrir að Hálslón verði það líka, nú er Blanda orðin verð- mæt laxveiði á eftir virkjun. Það er nú svo að þar sem vatn er á hálendinu er gróður líka, rakinn í jörðu hefur mikið að segja að gróður þrífist. Ég tel að við Íslendingar megum vera stoltir af því að geta framleitt orku sem ekki er mengandi og eigum að nýta hana sem mest og best okkur til hagsbóta. Í lokin nokkrar vangaveltur. Hvað starfa margir við fjölmiðlun hér á landi? Hver er veltan á auglýsingarmark- aðnum? Það er vitað að allir fjölmiðlar lifa meira og minna á auglýsingum, það skyldi þó ekki vera að hár auglýs- ingakostnaður ætti verulegan þátt í háu verði á vöru og þjónustu hér á landi. Maður, líttu þér nær Ragnar Gunnlaugsson skrifar um umhverfis- og samfélagsmál Ragnar Gunnlaugsson » ...nú erBlanda orðin verðmæt lax- veiði á eftir virkjun. Höfundur er fyrrverandi bóndi. Í ÞÆTTI Egils Helgasonar í gær staðhæfði frambjóðandi Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi, Árni Páll Árnason, að hann hefði sem starfsmaður íslensku utanríkisþjónustunnar haft ástæðu til þess að ætla að sími hans hefði verið hleraður af innlendum aðilum árið 1995. „Mér var gert viðvart um að það væri fylgst með mér,“ sagði frambjóðandinn og þetta gerðist að hans sögn ekki einu sinni heldur í tvígang. Hann var þá starfsmaður varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins og bjó yfir margvíslegum trúnaðar- upplýsingum. Þrátt fyrir að ítrekað hafi verið gengið eftir því bæði af þáttarstjórnanda og öðrum þátttakendum í um- ræðunni kvaðst Árni Páll ekki geta brotið trúnað sinn við þann sem hefði varað hann við, enda byggjum við í þjóðfélagi þar sem mönnum væri hegnt fyrir að skrifa smásögur. Þessi umræða kemur í kjölfar yfirlýsinga fv. utanríkisráðherra og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, þar sem hann ber fyrir sig ónafn- greindan heimildamann sem sönnun þess að sími hans hafi verið hleraður í embættistíð hans sem utanríkisráðherra. Ég er fyrrverandi starfs- maður utanríkisráðuneytisins, starfaði sem aðstoðarmaður ut- anríkisráðherra frá september 2005 til júní 2006. Ég er núver- andi aðstoðarmaður forsætisráð- herra og átti sæti í viðræðu- nefnd Íslands um varnarmál. Ég bý yfir talsvert miklum trún- aðarupplýsingum vegna starfa minna, engu síður en Árni Páll Árnason gerði á sínum tíma í ut- anríkisráðuneytinu. Ég hef ekki haft ástæðu til þess að ætla að sími minn sé hleraður eða að „fylgst sé með mér“, svo orð frambjóðandans séu notuð. Og enginn hefur séð ástæðu til þess að vara mig við því. Í ljósi þessa fer ég nú fram á það bæði við Árna Pál Árnason og Jón Bald- vin Hannibalsson að þeir gefi okkur hinum, sem gætum átt von á því að vera í sömu stöðu, upplýsingar um heimildarmenn sína. Það er ekki þeirra einka- mál ef í ljós kemur að símar embættismanna og ráðherra séu eða hafi verið hleraðir – það er háalvarlegt mál. Þar til heimild- armennirnir tveir gefa sig fram lít ég svo á að þetta séu ekkert annað en tilhæfulausar dylgjur sem ekki er mark á takandi. Ragnheiður Elín Árnadóttir Er síminn minn hleraður Árni Páll? Höfundur er aðstoðarmaður forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.