Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 6

Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 6
6 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Skíðabogar Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hjólafestingar SPÁNN Samkomulag um óform- legt minnihlutastjórnarsamstarf í Baskalandi á Norður-Spáni var formlega undirritað þar í gær. Miðju-vinstriflokkurinn PSOE samdi við PP, flokk hægrimanna, um að PSOE fari með völdin en PP verji stjórnina falli. Þetta eru tveir stærstu flokkar Spánar, en í sjálfstjórnarhérað- inu Baskalandi hefur PNV, flokkur baskneskra þjóðernis- sinna sem fer rólega í sakirnar í sjálfstæðiskröfum, verið stærstur og farið með völdin í ein þrjátíu ár. Forsætisráðherra Spánar er einnig í PSOE-flokknum. - kóþ Þrjátíu ára valdatíð á enda: Minnihlutinn stýrir Böskum LÖGREGLUMÁL Kynferðisbrota- deild lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu rannsakar enn fimm nauðgunarkærur, sem Frétta- blaðið greindi frá um síðustu helgi. Í einu tilvikanna kærði ung kona fjóra karlmenn af erlendum uppruna fyrir nauðgun eða mis- beitingu. Það atvik átti sér stað í heimahúsi aðfaranótt laugardags- ins 21. mars eftir að konan hafði verið á skemmtistað. Kærurnar fimm bárust til kyn- ferðisbrotadeildar í síðustu viku. Atvikin áttu sér stað á höfuð- borgarsvæðinu. Konurnar sem kærðu eru á aldrinum átján ára til fimmtugs. Samkvæmt upplýsi ngum Fréttablaðsins áttu hinar kærðu nauðganir sér stað á veitingahús- um og í gleðskap í heimahúsum eftir veru á skemmtistöðum. Í fjórum tilvikum er einn ger- andi kærður en í einu tilviki eru fjórir kærðir, eins og áður sagði. Einn karlmaður hefur verið yfir- heyrður vegna síðastnefnda málsins en neitaði staðfastlega sök. Enginn er í varðhaldi vegna rannsóknar þess. Í síðastnefnda málinu er jafnframt um að ræða grun um misneytingu sem þýðir að til dæmis getur verið um að ræða ölvunarástand eða ann- marka sem gera það að verkum að þolandi getur ekki spornað við verknaðinum. - jss Nauðgunarkærurnar fimm enn til rannsóknar hjá kynferðisbrotadeild: Hópnauðgunin í heimahúsi FIMM NAUÐGANIR Fimm nauðgunarmál eru til rannsóknar hjá kynferðisbrota- deild. SKIPULAGSMÁL Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur samþykkt breytingar á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir að sjóstangveiðifyrirtækið Kjarnabúð reisi 25 veiðihús við hafnarsvæðið og er gert ráð fyrir að skipulagsstofnun afgreiði málið á næstu vikum eða dögum. En framkvæmdir eru enn í óvissu. Málið olli nokkrum deilum í Bolungarvík en Kjarnabúðar- mönnum þótti bæjarfélagið svifa- seint við afgreiðslu málsins og setti það samning fyrirtækisins við þýsku ferðaskrifstofuna King- fischer Reisen sem hljóðar upp á hundruð milljóna í uppnám. En nú þegar lausn þeirrar deilu er í sjón- máli hefur efnahagskreppan hins vegar sett strik í reikninginn. „Þegar við vorum með allt fjármagnið klárt stopp- uðu þeir [Bolungarvíkurkaupstaður] okkur af með óskiljanlegum hætti þannig að við gátum ekki farið af stað í fyrra,“ segir Haukur Vagnsson frá Kjarna- búð. „En nú samþykkja þeir þetta þegar allt er komið í kalda kol í fjármálum landsins með þeim afleiðingum að Ísland nýtur ekki trausts erlendis svo að við erum í algjörri óvissu með fjármagn sem við töldum okkur áður hafa tryggt okkur í Þýskalandi en þar virðast menn vera að kippa að sér höndum þar sem þeir taka ekki neinar banka- ábyrgðir gildar frá íslenskum banka. Við förum lík- legast þá leið að fá fleiri fjárfesta inn í þetta með okkur og við erum í þeirri vinnu núna.“ Elías Jónatansson bæjarstjóri segir að bæjar- stjórnin hafi reynt að vinna að málinu eftir bestu getu en ferlið taki óneitanlega langan tíma. - jse Bolungarvíkurkaupstaður samþykkir 25 veiðihús Kjarnabúðar við höfnina: Framkvæmdir í mikilli óvissu TEIKNINGAR FYRIR VEIÐIHÚSIN Eitthvað á þessa leið mun svæðið líta út, ef Skipulagsstofnun samþykkir og peningar fást. HAUKUR VAGNSSON Á Fjármálaeftirlitið að halda heimildum til að taka yfir stjórn fjármálafyrirtækja? Já 86,9% Nei 13,1% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hljópst þú apríl í ár? Segðu þína skoðun á visir.is SJÁVARÚTVEGUR Ef næsta ríkisstjórn fer þá leið sem núverandi stjórnar- flokkar boða og fyrnir veiðiheim- ildir verða útgerðir landsins gjald- þrota á fáum árum og í kjölfarið verður nýreist bankakerfi landsins gjaldþrota. Þar með legðust skuld- ir sjávarútvegsins, sem Seðla- bankanum reiknast til að séu um 500 milljarðar króna, á íslenskan almenning. Þetta er niðurstaða úttekt- ar sem Sigur- geir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmda- stjóri Vinnslu- stöðvarinnar í Vestmannaeyj- um sem einnig á sæti í stjórn Landssam- bands íslenskra útgerðarmanna, hefur gert. Hann segir að miðað við núver- andi aðstæður verði 1,9 krón- ur af hverju þorskígildi eftir hjá útgerðarfyrirtækjunum þegar allur kostnaður hefur verið greidd- ur. „Það er nú allt og sumt,“ segir Sigurgeir Brynjar. „Og þarna á víst að vera gullnáman sem ýmsir stjórnmálamenn, meðal annars landsfundarfulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, telja að sé til staðar í sjávarútveginum og hægt sé að ná sér í hnefa til að stoppa í fjárlagagöt og fleira.“ Hann segir enn fremur að sömu hugmyndir um fyrrningar- leið hafi verið í umræðunni fyrir kosningarnar 2003. „Og þá fékk Vinnslustöðin endurskoðunar- fyrirtækið Deloitte til þess að meta áhrif hennar á fyrirtækið. Þar var miðað við að félagið leigði af rík- inu þann kvóta sem það hefði misst vegna fyrningarinnar. Félagið stóð þá, líkt og nú, þokkalega miðað við það sem gerist í greininni. Niður- staðan var hins vegar sú að það hefði orðið gjaldþrota á sex árum að því gefnu að leiguverð aflaheim- ilda frá ríkinu væri helmingi lægra en markaðsverð á leigumarkaði.“ Hann segir brýna þörf vera nú á raunsærri aðgerðum. „Stjórn- málamenn hafa oft áður komið fram með svipaðar „reddingar“ með hörmulegum aðgerðum,“ segir hann. „Lausnin átti einhvern tímann að felast í því að setja skuttogara í hvert pláss, loðdýra- rækt á hvern bæ, fiskeldi hvar sem komið var, dot-com fyrirtæki og nú síðast gengu draumóramenn um í leiðslu fagnaðarerindis um Ísland sem fjármálamiðstöð veraldarinn- ar. Við verðum hreinlega að koma okkur á jörðina.“ Við úttektina notaði hann árs- reikninga fimmtán til átján stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins frá árinu 2001 til 2007 en þau hafa haft yfir að ráða 52 til 62 prósentum allra aflaheimilda við landið. jse@frettabladid.is Segir fyrningarleið ávísun á gjaldþrot Fyrning aflaheimilda sem stjórnarflokkarnir hafa boðað myndi þýða að skuld- ir sjávarútvegsins upp á 500 milljarða lentu á bönkunum og knésettu þá. Þetta er niðurstaða úttektar sem útgerðarmaður gerði á áhrifum fyrningarleiðar. SIGURGEIR BRYNJAR KRISTGEIRSSON FRÁ LANDSFUNDI SAMFYLKINGARINNAR Stefna Samfylkingar og Vinstri grænna í sjávarútvegsmálum veldur framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar ugg. Útreikningar hans gefa til kynna að sé henni fylgt fari útgerðin og bankarnir á hausinn innan fárra ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.