Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 02.04.2009, Qupperneq 10
 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR MENNTUN „Ég lýsi undr- un minni á því stefnuleysi sem komið hefur fram af hálfu menntamálaráðu- neytisins og ráðherrans í þessum efnum. Það er engin spurning að ódýr- asta leiðin til að koma til móts við stúdenta við þess- ar aðstæður er að setja upp sumar annir með einhverj- um hætti,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðis flokks og full- trúi í menntamálanefnd Alþingis. Nefndin fund- aði í gær ásamt fulltrúum menntamálaráðuneytis, allra háskólanna og náms- mannahreyfinganna um möguleikann á sumarönn- um fyrir háskólastúdenta. Niðurstöður könnun- ar Stúdentaráðs Háskóla Íslands (HÍ) benda til að tæplega 13.000 stúdent- ar gætu verið án atvinnu í sumar. Einar segir ástandið alvarlegt. „Þetta eru mjög hrollvekjandi tölur. Háskólinn í Reykja- vík og Bifröst munu bjóða upp á sumarnámskeið, en ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hversu skammt á veg þessi mál eru komin hjá HÍ og Háskólanum á Akureyri.“ Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, sagði í samtali við Frétta- blaðið á mánudag að skólinn væri aðþrengdur fjárhagslega vegna mikillar fjölgunar nem- enda og minnkandi fjár- veitinga, en fundað verður um málið hjá Háskólaráði í dag. Einar telur nauðsyn- legt að skólayfirvöld leggi að fundi loknum fyrir stjórnvöld hvort þau séu tilbúin að koma til móts við skólann með fjárhags- legum stuðningi. Hildur Björnsdóttir, for- maður Stúdentaráðs HÍ, segir helstu kröfu ráðs- ins þá að boðið verði upp á fjarnám í sumar og próf í haust. Kostnaður við slíkt sé um 10 til 15 milljónir, samkvæmt sérfræðingum innan HÍ. Það sé svo verk- efni stjórnvalda að útvega fjármagn vegna aukinna útgjalda LÍN, sem óhjá- kvæmilega myndu fylgja slíkri tilhögun. Einar Már Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar og formaður menntamála- nefndar, segir nefndina hafa óskað eftir minnis- blaði menntamálaráðu- neytisins um málið. Í kjölfarið verði framhald- ið metið. „Það er ljóst að hvorki samfélagið né þess- ir ágætu stúdentar hafa efni á að sumrinu þeirra sé eytt í eitthvað annað en að vinna og læra,“ segir Einar Már. Ekki náð- ist í Katrínu Jakobsdóttur mennta- málaráðherra vegna málsins. kjartan@frettabladid.is Atvinnuhorf- ur stúdenta hrollvekjandi Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir stefnuleysi ríkj- andi í atvinnumálum háskólastúdenta. Háskólaráð krefst þess að boðið verði upp á fjarnám í sumar. Fundað verður um sumarannir í Háskólaráði í dag. STÚDENTAR Fulltrúar í menntamálanefnd segja ástandið í atvinnumálum stúdenta grafalvarlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN EINAR K. GUÐFINNSSON EINAR MÁR SIGURÐSSON HILDUR BJÖRNSDÓTTIR Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hemlar Fermingargjöf sem gefur Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið fær skeytið eða bréfið í hendurnar en andvirðið rennur til jafnaldra fermingarbarnsins sem býr við fátækt. Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr. Þú færð skeytin og gjafabréfin á www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út, sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt. Óskalistinn minn: Rúm Myndavél Svefnpoki iPod Vefmyndavél Handklæði Teppi Orðabók Hálsmen Svo væri gaman að fá pening og „Gjöf sem gefur“. Mig langar til að einhver sem er ekki eins heppinn og ég fái að njóta með mér. www.gjofsemgefur.is Við systkinin erum munaðarlaus. 1.990 kr. fermingarskeyti á Íslandi dugar fyrir 4 hænum. Þær gefa okkur fullt af eggjum. Eða við gætum fengið sparhlóðir. Þá færi ekki allur dagurinn í að leita að eldsneyti og við hefðum meiri tíma til að læra. 5.000 kr. gjafabréf á Íslandi myndi gefa okkur 2 geitur. Namm! Mjólk og kjöt, ekki lengur bara maísgrautur! Eða kannski reiðhjól. Þá kæmist ég á markað með uppskeruna okkar og við fengjum pening fyrir ýmsu sem okkur vantar. Óskalistinn minn: Fjölmiðlafræði Heimskautaréttur Hjúkrunarfræði Iðjuþjálfunarfræði Kennarafræði ækni Lögfræði HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ VERÐA? KYNNTU ÞÉR NÁM VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI Nútímafræði Samfélags- og hagþróunarfræði Sálfræði Sjávarútvegsfræði mhver s- og orkufræði Viðskiptafræði Þjóðfélagsfræði Opnað hefur verið fyrir umsóknir, frestur til að sækja um er til 5. júní. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á www.haskolanam.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.