Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 36

Fréttablaðið - 02.04.2009, Side 36
 2. APRÍL 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● brúðkaup ● DEMANTUR HANDA TENGDÓ Ýmis hjátrú og siðir fylgja brúðkaupum. Til dæmis er sagt að brúðurin megi ekki sauma brúðarkjólinn sinn sjálf því þá verði tár hennar í hjónabandinu jafnmörg saumsporunum. En til að lifa hamingjuríku hjónabandi er einnig mikilvægt að halda friðinn við tengdaforeldrana. Sagt er að ef brúðguminn gefi tilvonandi tengdamóður sinni demant um leið og hann gefur framtíðarbrúði sinni trúlofunarhringinn muni hann njóta farsæls sambands við tengda- foreldra sína. Sjá www.brudkaupsvefur.is Giftingarhringum fylgir loforð um framtíðina, eilífa ást og samstöðu í gegnum þykkt og þunnt. Því er mikilvægt að velja þá vel. Giftingarhringar eru táknrænir skartgripir. Þeir fela í sér vonir, langanir og fagrar fyrirætlanir. Þar sem markmiðið er að bera þá um aldur og ævi er mikil- vægt að hið ástfangna par velji hringa sem falla að smekk beggja. Sem betur fer er úrvalið mikið og auðvelt að finna fallega hringa bæði fyrir þá sem kjósa látlausa og einfalda hringa og þá sem vilja glamúr og glæsileika. - eö 14 karata gullhringar með hvítagullshjarta innan í. 78.900 krónur. Jens. 14 karata gullhringar. Klassískir einbaugar með óreglulegum baug sem hægt er að fá hvort heldur í gulli eða hvítagulli. 109.500 krónur. Jens. 6 mm gullhringar með einum 20p demant í miðju í dömuhring. Í kringum 250.000 kr ónur. Sigga og Timo. Hvítagullshringar með gullrönd beggja megin, 7 mm á breidd, demantar allan hringinn í dömuhring og 3 demantar í herra- hring. Smíðaðir eftir sérpöntun og er gert tilboð í hverja og eina smíði. Sigga og Timo. 14 karata, 6 mm hand- smíðaðir gullhringar með 6 demöntum. 158.700 krónur. Sigga og Timo. Mjög þykkir og veglegir hring- ar úr hvítagulli. Handgrafin nöfn beggja í Höfðaletri utan á allan hringinn. Breidd 7,5mm. Demantur í dömuhring 0,05ct. 197.300 krónur. Jón og Óskar. Hvítagullshringar með 12x0,01ct demöntum í dömuhring. 156.000 krónur. Jón og Óskar. Gulagullshringar, munstraðir með bræddum kanti. Verð frá 56.000 krónum. Jón og Óskar. Hvítagullshringar. Allianz hringur með demöntum allan hringinn á 290.000 krónur og 6 mm breiður einbaugur kúptur að innan og utan á 65.000 kr. Sigga og Timo. Tákn um eilífa ást og endalausa tryggð Brúðkaupstertan trónir jafnan eins og kóróna á borði brúðkaups- veislunnar. Oft er mikið í hana lagt og tertan gjarnan á mörgum hæðum, blómum skreytt og girni- leg. Val á tertu getur þó flækst fyrir verðandi brúðhjónum. Þá er snið- ugt og skemmtilegt að fara nokkru fyrir brúðkaupsdaginn milli bakaría og fá að skoða og smakka. Samkvæmt hefð- inni skera brúðhjónin fyrstu sneiðina saman og leggur þá brúðgum- inn hönd á hönd konu sinnar um leið og hún sker tertuna. Hjátrúin segir þennan sið eiga að tryggja getn- að og barnalán hjónanna. - rat Blómum skreyttar tertur Gaman getur verið að láta hugmyndaflugið ráða við skreyt- ingar og nota til dæmis kex. N O RD IC PH O TO S/ G ET TY Hvít, klassísk og róman- tísk brúð- kaupsterta á alltaf við. GJAFAKORT KAUPÞINGS Gefðu möguleika í brúðkaupsgjöf - kortið sem hægt er að nota alls staðar Gjafakort Kaupþings er ... allt sem þau þurfa Kynntu þér Gjafakortið á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444 7000 eða komdu við í næsta útibúi Kaupþings. ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 55 64 0 3/ 09 Blómlegar tertur fyrir sumar- brúðkaupið. Skemmtileg form og glað - legar lita- samsetning- ar geta gefið veislunni hressi legan blæ. Súkkulaðiterta er ekki algeng sem brúðarterta en stendur fyrir sínu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.