Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 58

Fréttablaðið - 02.04.2009, Page 58
34 2. apríl 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Jæja? Hefurðu einhverja hugmynd um hvaða hraða þú varst á? Tja... kannski 90? Kannski 90? Geturðu verið nákvæmari? Er það lokasvar þitt? Eh... 92? Já! Nálægt! Rétt svar er 94! En þú færð tvo kaffipoka! Jæja, það er alls ekki slæmt! Næst reynirðu við lamba- lærið! Ég geri mitt besta! Einn cappu- ccino. Takk Fríða. Hvað hefur þú verið að gera í sumar? Fyrir utan að vinna fulla vinnuviku hér tók ég nokkra kúrsa í sumar- skóla, var aðstoðar maður á leikskóla og tryggði mér einkaleyfi á þremur uppfinningum mínum. En þú? Bara svipað. Eða ekki. Stjáni týndi er að byggja örk! Já herra Lalli, ég tek tvö eintök af hverri dýrategund með mér. Ég ætla að halda mig frá termítunum og trjáormunum. Tígra. Nei, sebra. Tígra. Tígra. Sebra. Sebra. Tígra. Sebra. NÓG KOMIÐ! BURT! Annaðhvort verð ég að gera eitthvað í þessum slitförum eða klæða mig á baðherberginu. Mér sýnist að þetta þýði „Múmíugerð fyrir venjulegt fólk“. Sett upp í samstarfi við „Ég skemmti mér konungle ga“ MK, Morgunbla ðið Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is Þegar einum of margir vinir manns virðast helteknir af spelt-æði og fá sér brokkolí heilsusjeik í morgunsárið er það með ákveðnum trega sem maður horfir til ákveðinna íslenskra matarhefða. MSG og transfitusýrufíklar eiga varla athvarf lengur þar sem þriðja kryddið og Aromat er komið úr matarhillum stórverslana og meira að segja KFC auglýsir grimmt að Satansfitan sé úr sögunni. Auðvitað er þetta gott og blessað en að sama skapi er ákveðinn húmor farinn úr matnum líka. Það er eitthvað svo beisik við t.d. amerísk- ar ostasósur sem maður getur sprautað og innihalda engan ost og ommelettu- mixtúrur úr pakka þar sem stendur skýrum stöfum „contains no egg“. Það er einn „retro“-matur sem á sér sérlega upprisu á þessum tíma árs og manni þykir vænt um á sinn undarlega hátt: brauðterturnar ógur- legu. Það er engin fermingarveisla án þess að borðið svigni undan þessari blöndu af fransbrauði, majonesi, skinku og aspas úr dós. Gamall vinur lýsti brauðtertureynslu sinni í nýyfirstaðinni fermingarveislu sem löngu „ferðalagi“, dreyminn á svip. Hvað er betra en að uppgötva alltaf nýja og nýja matartegund eftir því sem maður kemst lengra inn í endalaus majoneslögin? Allt í einu birtist rauð paprika, næst skinka, því næst væn snæð af mexíkóosti. Og þegar heilt egg birtist í botninum hlýtur svo toppnum að vera náð. Þvílíkt hugvit hjá Íslendingum að uppgötva dásemdir dósa- grænmetis. Aspas úr dós er auðvitað ómiss- andi herramannsmatur líkt og dósaananas, dósasveppir og Gunnars majones sem vellur á milli allra þessara dýrðlegu laga eins og guðlegur nektar. Ég ætla að minnsta kosti að banna spínat og spelt um páskana og fara að halda fyndin matarboð á ný. Meiri húmor í matinn, takk NOKKUR ORÐ Anna Margrét Björnsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.