Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ferðalög Þjónusta Klúbbar og félagasamtök Skipuleggjum sérferðir til Barcelona, Bayern, Búdapest, Ítalíu, London, Rínardals, Skotlands, Slóveníu, Svartaskógar og Utah. Hjólaferðir, hallargistingar, gönguferðir, golf, vínsmökkun, skíðaferðir, jólamarkaðir og bjórmenning - bara gaman! Nánar á www.isafoldtravel.is. Ferðaskrifstofan Ísafold, sími 544-8866. Nýjar vörur í Maddömunum Nýtt í búðinni frá Danmörku og Svíþjóð, m.a. íkon frá Rússlandi - dúkkuvagn - dúkkur - Rosenborg o.fl. o.fl. www.maddomurnar.com. Langur laugardagur 1. des. Antík Sumarhús Hlutur í 41 feta skútu á Majorku Til sölu 1/6 eignarhluti í seglskútu, Perlan 2496,sem liggur í Alcudia á Majorku. Þetta er Dehler 41CR byggður 2001 og með öllum tækjum og búnaði.Samhentur eigendahópur. Hagstæð erlend lán geta fylgt. Upplýsingar veittar í síma 822 1201 eða tölvupósti sigurdur@svth.is Námskeið Bátar PMC Silfurleir Búið til módelskartgripi úr silfri – Grunnnám helgina 8 og 9 des.- Tilvalin jólagjöf, falleg gjafakort í öskju. Skráning hafin fyrir janúar og febrúar. Uppl. í síma 6950405 og www.listnam.is Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Hanna og smíða stiga. Fást á ýmsum byggingarstigum. Sérlausnir í þrengslum. 25 ára reynsla. Upplýsingar í síma 894 0431. Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Smáauglýsingar MIKIÐ verður um að vera í Jólaþorpinu í Hafnarfirði um helgina. Á laugardag verður maraþonsöngur frá morgni til kvölds í Hafnarborg á Syngjandi jólum en þar koma fram nær allir kórar og söng- hópar í Hafnarfirði. Í litlu jólahúsunum verður boðið upp á fjölbreyttan varning og á jólasviðinu á laugardaginn skemmta m.a. Birgitta Haukdal, Regína Ósk og Kvennakór Hafn- arfjarðar auk þess sem boðið er upp á glænýtt jólaleikrit og Grýla kemur í heimsókn. Á sunnudaginn sjá Gunni og Felix um að slá upp jóla- balli. Þar verður dansað í kringum jólatréð og gestir geta hrist í sig hita við hressi- legan hókí pókí. Ljósin verða tendruð á jólatrénu við Flensborgarhöfnina á sunnu- dag og hefst sú dagskrá kl. 16. Eftir að tendrað hefur verið á trénu, sem er gjöf frá vinabæ Hafnarfjarðar Cuxhaven, mun leikskólakór Víðivalla syngja og Tóti tann- álfur ásamt Hurðaskelli skemmta börnum, segir í fréttatilkynningu. Jólaþorp í Hafnarfirði MAC, snyrtivörufyrirtæki, mun afhenda Íslensku alnæm- issamtökunum ávísun í MAC Debenhams – Smáralind laug- ardaginn 1. desember. Í fréttatilkynningu segir m.a. að þjóðþekktir Íslend- ingar muni mæta á svæðið á milli kl. 15 og 17 til þess að leggja málefninu lið. Þau munu safna pening á staðnum til styrktar Íslensku alnæm- issamtökunum með því að selja rauða borðann og taka á móti frjálsum framlögum ein- staklinga. Kl. 16.30 mun Björg Al- freðsdóttir, verslunarstjóri MAC Debenhams, afhenda Birnu Þórðardóttur, fráfar- andi framkvæmdastjóra sam- takanna og núverandi verk- efnastjóra hjá Alnæmissamtökunum, ávísun að upphæð 600.000 kr. Íslensku alnæmissamtökin hafa hlotið styrk frá MAC undanfarin ár og hefur sá styrkur verið eyrnamerktur Forvarnarverkefni félagsins þar sem fræðsla hefur farið fram í öllum grunnskólum landsins. Styrkir Alnæmis- samtökin JÓLAHÁTÍÐ verður á Hálsatorgi í Kópavogi og í nærliggjandi menning- arstofnunum laugardaginn 1. desember. Hátíðin hefst kl. 13 og stendur til kl. 17. Tendrað verður á jólatrénu kl. 16. Kópavogsbúum og öðrum gestum er meðal annars boð- ið að taka þátt í laufa- brauðsbakstri í Gjábakka kl. 13, hlusta á jólasöngva, fræð- ast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinabæj- arjólatré Kópavogsbúa. Skólakór Kársness býður gestum og gangandi upp á syngjandi kakó og pip- arkökur. Gerðarsafn verður opið kl. 11-17. Nánari upplýsingar á vefnum www.gerdarsafn.is. Í Salnum verða Tíbrár- tónleikar: Söngtónleikar – Sönglög Jóns Ásgeirssonar, nánar á vefnum www.sal- urinn.is. Jólahátíð í Kópavogi BASARINN, nytjamarkaður Kristniboðssambandsins, verður opnaður laugardaginn 1. desember á Grensásvegi 7, 2. hæð. Þar verða til sölu vel með farnar og vandaðar vörur, bæði nýjar og notaðar, s.s. bækur, búsáhöld, skraut- munir, lítil húsgögn og leik- föng. Einnig verða til sölu bæk- ur Salts og fleiri kristilegar bækur og geisladiskar, bæði íslenskir og erlendir. Góð til- boð verða í gangi fyrir jólin. Afríkuhorn verður á mark- aðnum með hálsfestar, slæð- ur, skálar o.fl. frá Afríku. Jólavörur, jólapappír og jóla- kort verða einnig fáanleg. Allur ágóði af markaðnum rennur til kristniboðs og þró- unar- og hjálparstarfs í Afr- íku þar sem Kristniboðs- sambandið starfar. Skrifstofur Kristniboðs- sambandsins verða á sama stað. Basarinn verður opinn mán.-föst. kl. 12-18 og laug- ardaga kl. 12-16. Á sama tíma verður tekið á móti vörum á markaðinn ef einhver vill gefa vandaða hluti til að selja. Síminn er 533-4900. Nytjamarkaður Kristniboðs- sambandsins MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Eðalvörum: „Vegna kæru Neytenda- samtakanna á vörusvikum varðandi sölu á rauðu gin- sengi vilja Eðalvörur taka eft- irfarandi fram: Eðalvörur hafa í yfir 20 ár haft með höndum innflutning og sölu á rauðu eðalginsengi frá Kóreu og verða því að teljast meðal brautryðjenda á þessu sviði. Allan þennan tíma hefur var- an notið einstakrar velvildar tryggra neytenda og vilja Eð- alvörur nota þetta tækifæri til að þakka það. En ósvikið rautt ginseng í hæsta gæðaflokki er dýrt og því má, því miður, allt- af búast við því að óprúttnir aðilar reyni að næla sér í skjótfenginn gróða með svik- inni vöru. Upphaf þessa máls má rekja til þess að gamalgró- in heildsala lét hanna umbúðir með rautt eðalginseng sem fyrirmynd og afritaði nánast innihaldslýsingu vörunnar þótt vara sú sem hún hugðist selja væri annars eðlis, þ.e. hvítt ginseng í hylkjum. Þetta endaði 27. mars sl. með því að fyrirtækinu var bannað af Neytendastofu að líkja eftir umbúðum rauðs eð- alginsengs, sjá: http:// www.neytendastofa.is. Þar sem úrskurðinum var ekki áfrýjað breytti heildsal- an umbúðunum en hélt áfram með innihaldslýsingu sem að mestu var fengin að láni af umbúðum rauðs eðalgin- sengs. Ekkert eftirlit er með innihaldi fæðubótarefna á Ís- landi að öðru leyti en því að lesa á umbúðir og treysta á heiðarleik framleiðenda og innflytjenda enda yrði annað óviðráðanlegt fjárhagslega. Eðalvörur fagna lofsverðu frumkvæði Neytendasamtak- anna, www.ns.is Ljóst er að frjáls félagasamtök hafa ekki bolmagn til að halda uppi virku eftirliti en í svona að- gerð felst fælingarmáttur sem ekki var til staðar. Eðalvörur vilja að lokum hvetja fyrir- tæki og neytendur til að efla Neytendasamtökin til að þau geti staðið vörð um heilbrigða viðskiptahætti.“ Yfirlýsing frá Eðalvörum JÓLASÝNING Árbæjarsafns verður sunnudagana 2. og 9. desember kl. 13-17, en sýn- ingin hefur notið mikilla vin- sælda undanfarin ár og hlotið fastan sess í menningarlífi höfuðborgarinnar á aðvent- unni, segir í fréttatilkynningu. Kl. 14 verður guðsþjónusta í safnkirkjunni. Prestur er séra Kristinn Ágúst Frið- finnsson og organisti er Sig- rún Steingrímsdóttir. Kl. 15 hefst jólatrés- skemmtun á torginu. Þar verða sungin jólalög og dans- að í kringum jólatréð. Jólasveinar, þessir gömlu íslensku, verða á vappi um safnsvæðið frá kl. 14 til 16, hrekkjóttir og stríðnir að vanda og taka þeir þátt í dans- inum kringum jólatréð. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður spunnið og prjónað, þar verður einnig skreytt jólatré. Í Lækjargötu fá börn og fullorðnir að föndra, búa til músastiga, jólapoka og sitt hvað fleira. Krambúðin verður með kram- arhús, konfekt og ýmsan jóla- varning til sölu. Jólahald heldra fólks við upphaf síðustu aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og þar verður einnig sýning gull- smiðs. Í Landakoti verður sögustund fyrir börn og hefst lesturinn kl. 14. Í Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að bragða á nýsoðnu keti en í stofunni er sýndur útskurður. Í Efstabæ er jólaundirbún- ingurinn kominn á fullan skrið og skatan komin í pott- inn. Í hesthúsinu frá Garða- stræti er sýnt hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í gamla daga. Dillonshús býður upp á ljúffengar veitingar, heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti. Þjóðlegt Jólasýning Árbæjarsafns hefur hlotið fastan sess í menningarlífinu á aðventu. Jólasýning Árbæjarsafns Úr Jólablaði Morgunblaðsins Rangt farið með titil Guðrún Hrund Sigurðar- dóttir var sögð aðstoðarrit- stjóri Gestgjafans. Hið rétta er að hún er annar tveggja ritstjóra blaðsins. Beðist er velvirðingar á þessum mis- tökum. Höfundur aðventusmásögu Það láðist að geta höfundar aðventusmásögunnar en hann er Hrund Hauksdóttir. Ruglingur í fyrirsögn Í viðtali við Láru Sveinsdóttir leikkonu er hún sögð leika móður Jesú Krists. Hið rétta er að hún leikur Maríu Magdalenu í söngleiknum Jesus Christ Superstar. Beð- ist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT BASAR verður haldinn í Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a, Kópavogi, sunnudaginn 2. desember kl. 13-17. Í fréttatilkynningu segir að á basarnum verði happdrætti fyrir börn og fullorðna með vinningum á öllum miðum. Margs konar vörur verða á boðstólum, heimabakaðar kökur, handverk, fallegar gjafavörur, bækur og margt annað. Veit- ingar verða til sölu, rjómavöfflur og annað góðgæti og hægt verður að njóta þeirra undir lifandi hátíðartónlist sem hljómsveit hússins leikur. Einnig mun Oddur C. Thorarensen flytja nokkur lög kl. 14 og Karlakór Kópavogs kemur fram kl. 15. Allir vel- komnir. Basar og happdrætti í Fríkirkjunni Kefas FRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.