Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1944, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 1944, Síða 4
58 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN ungunum ánamaðka á hverjum clegi, og svo mikla vináttu og traust sýndi móðirin þeim, að hún hætti að l'ljúga aí ungunum þegar börnin komu. Þessi maríuerla var auðþekkt, hún hafði hvítan l)lelt eins og fingraför á bakinu. Vináttan hélzt um mörg ár og í augum harnanna myndaðist helgisögn um fugl hinnar heilögu Maríu. Fingrafarið varð sönnun j)ess, að erlan litla hefði lilotið hlessun j)ess, er engum gleymir. Og það var eins og vorið kæmi ekki fyrr en hún kom. Svo einn dag eyðilagði framandi maður hreiðrið, óvarl þó. Maríuerlan sást aldrei framar. í hjörtum harnanna ríkti sorg, og ef til vill átti endurminningin um þennan æskuvin dýpri rætur en j)au grunaði sjálf. Skógarþröstur er algengur. Hann er einn hezti söngfugl, er við eigum. Frændi lians svarlþrösturinn sést hér helzt að hausti til. Annar frændi hans og miklu sjaldgæfari í Borgarfirði er gráþrösturinn. Veit ég aðeins einu sinni til að hann liafi sézt liér. Gestur á Hreðavatni í Norðurárdal hefir sagl mér að að gull- þröstur hafi dvalið j)ar að sumri til oftar en einu sinni. Stein- (le.pill algengur. Músarrindill sést í lágsveituip Borgarfjarðar og er all algengur í liinum skógivöxnu hraunum, svo sem í Norður- árdal og Hvítársíðu. Aldrei veil ég lil að egg hans hafi fundizl. Hann er svo söngelskur að hann syngúr allt árið. Á sólarlausum skammdegisdögum ómar söngur hans fagur og hreinn yl'ir enda- lausa snjóbreiðuna. Svölur sjást við og við. Einu sinni 20—30 í hóp. Sennilegast er j)að oftast landsvala. Á síðustu 20—25 árum hafa uglur orðið all algengar um Borg- arfjörð. Er það hranduglan. Endrum og eins koma hingað aðr- ar uglutegundir. Snæuglu hefi ég séð tvisvar, og höl'ðum við Þorvaldur hróðir minn næstum veitt aðra i rjúpnasnöru, héld- um að þar kúrðu tvær rjúpur. Öðru sinni sá ég hana um vor. Eyruglu (Asio otus) sá ég vorið 1936. Komst ég alveg að lienni og athugaði góða stund. Það var á sólhjörtum degi og virtisl hún sjá afar illa. Ekki vildi ég skjóla hana, j)ó hyssan væri við hendina, enda var ég alveg viss um að þetta væri eyrugla og hér sjaldgæfur gestur. Runólfur i Norðlungu sagði mér að eyr- ugla hefði verið skotin J)ar í skóginum og höfðu verið tvær saman. fíranduglan liefir orpið hér j)risvar svo ég viti. Við Grímsá nálægt Þingnesi, og Kletli i Reykholtsdal og í flóanum á milli Langholts og Stafholtseyrar 1935. í j)ví hreiðri voru 7 egg.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.