Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1944, Síða 6

Náttúrufræðingurinn - 1944, Síða 6
60 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN veru minnir samlíf þeirra mjög á lítið þjóðfélag, þar sem allir þegnarnir verða að inna af liendi vandasöm störf, cn ráðin eru i höndum þeirra, sem elzlir og vitrastir eru, og fullan þroska hafa fengið. Gæsirnar fara að koma hingað í Borgarfjörð um miðjan apríl og stundum eitthvað fyrr, og fara sjaldan að öllu leyti fyrr en i októberlok. Stóra grágæs var skotin á Hvílá 2(i. jan. 1935, og mun það vera afar sjaldgæft að gæsir sjáist á þeim tíma árs. Þær gæsategundir, er ég veit að liafi sézl liér eru: Stóra grágæs algeng. Akurgæs sennilega sjaldgæf. Heiðagæs nokkuð algeng. Stórahlesgæs algeng. Litlu blesgæs liefi ég skotið einu sinni 1933, og 1935 skaut Þorbj. Ölafss. á Hvítárvöllum eina. Helsingi sést bér ekki oft, en margir villasl á honuni og öðr- um gæsategundum. Margæs algeng. Álfl er algeng. Skáldin hafa sungið henni lof í ljóðum sinum, og vissulega er söngur Iiennar oft töfrandi fagur. En það er eins með svanasönginn og fjöllin, fjarlægðin gerir hann fegurri og varpar yfir hann töfrablæ ófæddra æfinlýra. Svanasöngur kemur víða við. Áslin á þar sterkan streng, sem elskendum er gott að hlusta á. Þar má heyra gleði þegar góðum vinum er fagnað og Iofsöng til móður moldar, sem öllum er góð. En feg- urstu tóriana á þar þó sorgin. Þar má heyra stundargrát barns- ins, sem ofl gleymist fljótt. Og sorg hins fullvaxna, sem streym- ir eins og lifandi elfur um æðar og bjarta unz öllu líkur. Stokkönd er algeng og dvelur að einhverju lévti allt árið hér í Borgarfirði, en jafnan er þó lang minnst um liana um háveturinn. Stokkönd leggur sér lil munns flest, sem æll er. Um hásumarið þegar kornsúra og sfararfræ eru þroskuð lifir bún mikið á þeim ásamt spírum vatnajurta. En þegar haustar að og grös fara að sölna eru rælur og rótablutar forðabúr fjölæru jurtanna. Þetta veit stokköndin vel og bergir af þeim mikla nægtabrunni, en aðalfæða bennar á öllum limum árs eru þó ýms smádýr. í leðjunni felast þau oft og því er vissast að láta tunguna skera úr bvort svo er, og gerir þá ekkert til þó eittbvað af leðjunni fari með lil smekkbætis. Ungarnir lifa framan af eingöngu af flugum og smá skordýrum, og dauðinn verður blutskipti þeirra ef þá björg þrýtur. Á vetrum er oft bart í búi bjá stokköndinni þegar tjarnir og flestir lækir frjósa, og margar leita þá lil sjávar og senni- lega til annarra landa. En þegar isa leysir og fjötrar vetrarins fara að rofna, kemur stokköndin aftur og dreifir sér um „breið- au Borgarfjörð.“

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.