Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 5

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 51 8. mynd. Frunu-fnabreyting lyftis nteð alfageisla skothríð. Lyftið verður fyrst að óstöðugu fluori en hreytist síðan érv&stur Sa yyiTWKÍ UYyimynJu>i í ildi og prótónu. tímalengd, sem til þess þarf, að helmingur tiltekins magns frumefnis umbreytist og verði að nýju frumefni. Til dæmis líða 1600 ár áður en helmingur atómanna í ákveðnu magni af radiumi er orðinn að radoni. Síðan þarf önnur 1600 ár til þess að helmingur afgangsins breytist, og svo koll af kolli. Samkvæmt þessu er því „hálf æfilengd" radíums 1600 ár. Kunn eru þrjú frumefni, sem eru geislavirk af náttúrunnar hendi, en af hverju þeirra sprettur lieil fjölskylda geislavirkra atóma, því að venjulega eru hin nýmynduðu efni að sínu leyti geislavirk og gengur þetta koll af kolli, þar til keðjunni lýkur með frumefni, sem ekki er geislavirkt. Hin þrjú geislavirku frumefni eru úraníum, thóríum og prótóaktíníum. Með tilraun þeirri, sem minnzt var á í upphafi þessa kafla, tókst Rutherford að valda kjarnbreytingum á öðrum frumefnum en þeim þremur, sem áður getur. Gerði hann það með jreim hætti, að láta hraðfleyga alfa-geisla rekast á lyftiskjarna. Áreksturinn á milli þess- ara agna getur orðið með jieiin hætti, að um stundarsakir renni alfa- geislinn og lyftiskjarninn saman og úr verði nýr kjarni, með sætis- tölunni 9 og atómuþunganum 18, en það er kjarni með sömu sætis- tölu og frumefnið flúor. Þessi nýi flúorkjarni er óstöðugur, að vörmu spori klofnar hann og sendir frá sér prótónu með hleðslunni -)-1 og atómuþunganum 1, en eftir verður kjarni með sætistölunni 8 og atómuþunganum 17, en það er atómuafbrigði frumefnisins ildis, eins og sjá má af frumefnakerfinu. Hjá flestum frumefnum finnast fleiri eða færri atómu-afbrigði (ísótópur), en það eru atómur eins og sama frumefnis, sem hafa mismunandi atómuþunga, en allar sömu sætistölu, enda ákvarðar sætistalan efnafræðilega eiginleika atómanna miklu fremur en atómuþunginn. Atómuþungar Jreir, sem efnafræðin notar, eru því meðaltalsþungar atómuafbrigðanna. Slík fyrirbrigði sem Jrau, er tveir stöðugir kjarnar renna saman um stundarsakir en rof'na síðan og verða að tveimur nýjum kjörn- en grcinilega talan tiíknar atórauþnngann. Á dökka borðanum til vinstri eða hægri við láknbókstafina eru drcgnir hlutar af clektrónubrautunum, og þær merktar hókstöfum og töluin, scm gefa til kynna elektrónufjöldann á hverri braut. Auk ofangreindra at- iiða eru ýmsar fleiri upplýsingar á uppdrættinum, en ekki er ástæða til að rekja þær. 4*

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.