Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 15

Náttúrufræðingurinn - 1946, Side 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 61 nærri. Gagnvart neutrónum verkar kjarninn því seni liola, sem neutrónurnar geta f'allið ofan í. Með tilraunum hefir verið sýnt að vídcl holunnar, þ. e. þvermál kjarnanna, eru mjög mismunandi fyrir ólíka kjarna og ennfremur að þvermálin eru breytileg hjá sömu kjörnum eftir því hver er hraði neutrónanna, þvermálin eru ntjög stór ef hraðarnir eru litlir, en lítil ef hraðarnir eru miklir. Hægfleyg- ar neutrónur lenda því auðveldlega innan í kjörnunum en lirað- fleygar miklu síðar. Kemur þetta t. d. fram í því, að hægar neutrónur valda margvíslegum kjarnbreytingum, en þær hraðfleygu sjaldnast. ftalski eðlisfræðingurinn Enrico Fermi varð fyrstur til þess að hag- nýta þessi skeyti til kjarnbreytinga og það þótt hann að menntun og starfi væri fyrst og fremst stærðfræðilegur (teoretiskur) eðlisfræðing- nr en ekki tilraunaeðlisfræðingur (experimental-eðlisfræðingur). Rutherford lét þess getið eitt sinn er tilraunir Fermi’s voru á döf- inni, að sýnilega helði Fermi umbreytzt úr stærðfræðilegum eðlis- fræðingi ylir í tilraunaeðlisfræðing, og væri þetta enn eitt dænti þess, sem skeð gæti á sviði atómabreytinganna. Jafnhliða því, sem kjarnarnir senda frá sér ýmsar agnir, senda þeir einnig oft frá sér mjög bylgjustutta geislun, gamma-geisla. Sú geisl- un er til orðin við það að frumagnir kjarnanna skipa sér niður á nýj- an hátt innan kjarnanna eftir að agnirnar hafa senzt úr þeim. Losn- ar þá oft orka, sem birtist sem gamma-geislun. Einna vandasamast virðist það ætla að verða að finna viðunandi eðlisfræðilega skýringu á því hvernig beta-geislunin — hraðfleygar elektrónur — er til orðin, en kjarnar þungu frumefnanna eiga það oft til að geisla þeim frá sér. Hins vegar geta kjarnar léttu frumefn- anna sent frá sér livort tveggja, bæði elektrónur og pósítrónur. Ýrnsir hal'a bent á að hugsanlegt væri, að neutrónan sé samsett tir einni prótrónu og einni elektrónu. Til þess gæti bent það, að þungi neu- trónunnar (1.0090) er aðeins meiri en þungi prótónunnar (1.0081) og að hleðsla neutrónunnar er engin. Myndi þá útgeislun beta-geilsa

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.