Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 18

Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 18
64 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN atómuþunga afbrigðisins, en þau eru: U-234, U-235 og U-238. Er þeir létu þau verða fyrir neutrónuskothríð, kom í I jós það, sem Bohr og Wheeler höfðu áður sagt fyrir, að einungis varð afbrigðið U-235 fyrir kjarnklofnun og það aðeins fyrir tilstilli hægfleygra neutróna. Hins vegar reyndist U-238 albrigðið vera fært um að innbyrða bæði hægar og hraðfleygar neutrónur, og varð við það að geislavirku af- brigði ^92 ff, sem á skömmum tínta breyttist yi'ir í frumefni með sætistiilunni 93 og 94, við það að geisla frá sér elektrónum í tveim lotum. Um afbrigðið U-234 er það að segja, að svo lítið er til at því, að áhrifa verkana þess gætir ekki. í venjulegu úraníumi er aðeins 0.7 al' hundraði U-235, og verður að aðgreina það frá U-238 afbrigð- inu, til þess að geta hagnýtt það til orkuvinnslu eða í atómsprengjur. Var talið árið 1940, að með þeim tækjum og aðferðum, senr þá þekktust, myndi þurfa 75000 ár tíl þess að einangra hálft kíló af U- 235, en með bættum aðferðum og aukningu vinnslustöðvanna hefir aðgreiningin tekizt öllum vonum framar, og verður vikið að því síðar. Líkurnar fyrir klofnun á U-235 kjörnum verða langsamlega mest- ar, ef notaðar eru hægfleygar neutrónur. Þó hefir það einnig komið í ljós, að hraðfleygar neutrónur geta valdið klofnun U-235 kjarn- anna, og er þar með fullnægt einu meginskilyrði þess, að klofnun Iireins U-235 geti farið fram það hratt, ið sprenging verði að, því að eins og 18. mynd ber með sér, losna fleiri eða færri neutrónur við hverja kjarnklofnun, og geta þær valdið nýjum klofnunum. Eru þetta kallaðar keðjuverkanir, og er talið, að innan atómsprengjanna komist jrær í kring á milljónustu pörtum úr sekúndu, og því muni hægfara neutrónur jrar ekki konta til greina. Þess var áður getið, að hegðun U-238 væri sú, að það gæti bæði innbyrt hraðfleygar og hægar neutrónur, án Jress að kjarnklofna, og skal nú víkja nánar að því. Efnabreytingum þeim, sem Jrá verða, má lýsa með jöfnum, eins og áður hefir verið gert. í fyrstu jöfnunum er því lýst, að úraníum innbyrðir neutrónu og verður að nýju úraníumafbrigði, en auk þessa losnar gamma-geislun: 238 , 1 239tt U + o11------> t)9 U + gamma-geislar. Þetta nýja úraníumafbrigði er geislavirkt og geislar frá sér einni elektrónu, og er ,,hálfæfilengdin“ 23 mínútur. Við útgeislun elektr- ónunnar (táknuð með úr kjarnanum, eykst kjarnahleðslan um eina einingu, og þar með einnig sætistalan, og verður því úranítimið við útgeislun jiessa að nýju frumefni, með sætistölunni 93, og verður

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.