Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 41
NÁTTÚRUFRÆ.ÐINGURINN 87 Ólafur Jónsson: Frá Kverkfjölíum Kverkfjöll rísa þverbrött og hjarni þakin úr norðurbrún Vatna- jökuls, og klofnar jökulbreiðan, sem sígur frá hájöklinum norður á hásléttuna, um þau, svo þar verður djúpt vik inn í jökulinn. Norð- austur frá Kverkfjöllum gengur hálendi, raðir af fellum og fjalla- hryggir með mörgum tindurn og skörðum, Kverkfjallaraninn, og ná liæstu tindarnir upp í 1300—1400 m hæð, en hæstu nibbur Kverk- fjallanna eru yfir 1900 m liáar. Suðvestur af fjöllunum gengur líka hálendishryggur undir jöklinum, Kverkfjallahryggur, allt suðvestur til Bárðarbungu. Allt virðist þetta einn samhangandi fjallgarður, og eru Kverkfjöll vafalaust markverðasti hluti hans. Það er ekki ætlun mín, að rita hér nákvæma lýsingu á Kverkfjöll- urn. Hana er að finna í bók minni, Ódáðahraun, og þar er einnig rakin l'erð mín í fjöllin 1941. Mætti ætla, að engu teljandi'væri þar við að bæta. Þó er það svo, að ein ferð í Kverkfjöll getur ekki, jafn- vel þótt heppnin sé með, veitt tæmandi þekkingu á fjöllunum, og svo eru breytingarnar all-hraðstígar þar í ríki elds og ísa, svo sú lýs- ing, sem var í fullu gildi í gær, er það ef til vill tæplega í'dag og alls ekki á morgun. í þessari grein verður aðallega rætt um, hvaða breytingar hafa orðið á aðaljarðhitasvæðinu í Kverkfjöllum, frá því að eg skoðaði það í byrjun ágúst 1941 og þar til eg konr þar annað sinn 9—10. júlí í sumar, svo og urn, livað ný.tt eg sá í Kverkfjöllum og nágrenni þeirra í þessari síðari ferð minni. Kverkfjöll eru stundum aðgreind í Austur- og Vesturfjöll, og skilur Kverkin, hamrahlið norðan í fjöllunum, sem skriðjökull fellur fram um, á nrilli þeirra. Kverkin er vafalaust sprunga eða gjá, er liggur sem djúp lægð suðvestur gegnum fjöllin og klífur norðvesturhlið þeirra frá meginfjöllununr. í þessari norðvesturhlið, sem oft er kölluð Vesturfjöllin, er aðal jarðlritinn, þótt lrans verði líka vart aíistan við Kverkina og norðaustur af fjöllununr, senr síðar verður vikið að. Aðal jarðhitasvæðið í Kverkfjöllunr er í sprungu eða öllu heldur sprengidal, sem liggur eftir mest allri norðvesturhliðinni, skammt neðan við fjallsbrúnir. Franrhald sprungu þessarar liggur norður Kverkfjallaranann vestanverðan. Nyrsti hluti jarðhitasvæðisins er

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.