Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 136

Andvari - 01.01.1991, Blaðsíða 136
134 BOLLI GÚSTAVSSON ANDVARI vel, það sem hann las upphátt fyrir aðra og mér gekk vel að fylgjast með því, sem hann las. En ef hann las bækur „með sjálfum sér“ eins og stundum var sagt, þá las hann mjög hratt og átti erfitt með að leggja frá sér bókina, fyrr en hann hafði lesið hana til enda og kynnt sér söguþráðinn, efni og anda sögunn- ar og sögulokin. Stundum endurlas hann bækur, ef þær vöktu áhuga hans, en ef honum geðjaðist bókin ekki, lagði hann hana oft fljótt frá sér. Faðir minn hafði á þessum árum mikinn áhuga fyrir bókum og hafði ýmsa útvegi til að afla þeirra. Samband hans við Benedikt á Auðnum er mörgum kunnugt og ekki ætla ég að ræða um það hér, en ég held hann hafi einnig haft samband við einhverja á Akureyri og dettur þá einkum í hug Oddur Björnsson prent- smiðjustjóri og Sigurgeir á Stóruvöllum eftir að hann fluttist til Akureyrar“.2) Áskell Sigurjónsson lætur þess getið, að mótbýlisfólk foreldra hans á Ein- arsstöðum hafi ekki haft áhuga fyrir þessum lestri föður hans, „nema Ásrún og e.t.v. dætur hennar; og stundum kom það fyrir að þau, faðir minn og Ás- rún ræddu saman um bækur og efni þeirra, því þau áttu mjög auðvelt með að ræðast við, náðu vel saman og umræða þeirra var aldrei þrætur, ekki á „lágu plani“, eins og nú er oft sagt. Ég minnist þess einnig að faðir minn hafði gaman af því að gefa bækur. Ég man hann gaf mér bækur, þegar hann kom úr kaupstað, meðan ég var barn eða drengur; og ég man hann gaf systur minni, Unni, í afmælisgjöf bókina Á Guðsvegum eftir Bj. Björnson, nýútkomna í íslenskri þýðingu. Bókinni fylgdi áritað afmæliskvæði til systur minnar. Þótti mér kvæðið fagurt og ekki var laust við, að ég öfundaði systur mína og fann þó, að hún verðskuldaði kvæðið og gjöfina. Þetta ljóð föður míns mun ekki vera til á prenti, og ekki veit eg hvort bókin er enn til, en líklegt tel ég það. En það var önnur bók, sem mig langar að segja frá og komst í mínar hendur úr hendi föður míns. Ekki get ég sagt, að mér væri gefin bókin, en faðir minn kom með þessa bók til mín og bað mig að varðveita hana, og gat þess um leið, að sér þætti bókin fögur, en bókin var þó lítið kver, óbundið og dálítið velkt og ekki ásjálegt útlits. Þessa bók þekkti ég vel; vissi að faðir minn hafði átt hana lengi og hafði miklar mætur á henni. Oft hafði ég litið í bókina, og þótti hún nokkuð sérstæð vegna þess, hvað allt var sagt í fáum og hnitmiðuðum orðum. í þessari litlu bók var talað um „frumdjúpið“ og sagt, „að tilvistarlaust væri það upphaf himins og jarðar“, og í tilvist væri það móðir allra hluta. Þar var einnig rætt um Alvald, sem allsstaðar væri að starfi í djúpri kyrrð og er eldra en guð, og þó skilst manni að guð og alvaldið sé eitt og hið sama eins og tilveruleysið og tilveran er innst inni eitt og hið sama, en ólíkt að framkomu og nafni. Bókin um veginn hét þetta litla kver, kennt við Lao-Tse, kínverskan speking, sem á að hafa verið á dögum um 6 öldum fyrir fæðingu Krists. Bókin var prentuð í Reykjavík 1921“. Áskell kveðst ekki geta tilgreint hvaða ár það var, sem faðir hans afhenti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.