Fálkinn


Fálkinn - 14.02.1962, Blaðsíða 23

Fálkinn - 14.02.1962, Blaðsíða 23
YFIRLIT: Eftir margra ára í'jarveru snýr Bettina aftur til fæðingarbæjar sins, Tiibingen. Á ytra borði er ástæðan til heimkomunnar sú, að maður hennar, Julian Brandt apótekari, sækir um skilnað, til þess að gifta sig aftur. Þrjú börn Bettinu, Albert, Doris og Wolfgang hafa alizt upp í þeirri trú, að rnóðir þeirra sé Iátin. Börnin mótmæla ákaft áætlun föður síns um að giftast aftur Gabrielu Holthuys, ungri konu, sem Albert fullyrðir að sé léttúðardrós. Hið sanna er, að Gabriela átti barn í Iausaleik og stóð ein uppi. Hún bjó með ríkum manni og fékk slæmt orð á sig af því. Albert hefur hitt móður sína, án þess að vita hver hún er. Minna gamla, sem alið hefur börnin upp, grátbænir Bettinu að fara aftur, en þegar hún neitar því segist hún ætla að sýna henni mynd af Doris annars vegar og Hohenperch prins hinsvegar, en hann var ástæðan til þess að Bettina hvarf að heiman. — Bettina lcemur heim öllum á óvörum og hittir fyrst Doris, síðan Wolf- gang og loks kemur Minna gamla. Heimkoman veldur miklum vonbrigðum. Minna sýnir henni myndirnar, en í þeim svifum ltemur Cecilia frænka, og sér hvers kyns er. Hún fer eftir snarpar orðræður, — beint til Hohenperch prins. — Wolfgang kemur að máli við föður sinn og biður hann að segja sér allt af létta um Bettinu. Julian gerir það, og það kemur í Ijós, að Julian hefur alltaf vitað hver er faðir Dorisar. — Á gistihúsinu hittast þau Hohenperch og Bettina og prinsinn vill endurnýja kunningsskap þeirra. Sú ósk hans fer út um þúfur, því að Bettina segir honum rækilega til syndanna. — Albert fer á fund Gabrielu og ætlar að gera úrslitatilraun til þess að koma í veg fyrir, að hún giftist föður hans. Þeirra viðskiptum lyktar með því, að Gabriela vísar honum á dyr. Sam- tímis mæta þau hjá lögfræðingum sínum Bettina og Julian. Bettina hefur allt í einu skipt um skoðun: Hún ætlar að svipta Julian öllum réttindum til apóteksins. . Hann gaf mér upp nafnið á gistihúsi þínu í Túbingen. Ég hringdi þangað og fékk að vita, að þú hefðir farið til Par- ísar. Og nú er ég sem sagt kominn hing- að! — Það var sem sagt þú, sem komst því í kring, að mér var boðið hingað í kvöld? Don Filipe kinkaði kolli. — Við getum sagt, að ég hafi gefið viðkomandi aðilum ofurlitla bendingu, sagði hann. — Hefurðu gengið fullkom- lega frá skilnaði þínum? Bettina kinkaði kolli án þess að segja nokkuð. — Guði sé lof. Þá ertu frjáls og frí. Hann beygði sig áfram og greip hönd hennar. — Nú geturðu þá loksins gifzt mér, bætti hann við. Brosið hvarf af vörum Bettinu. — Þú veizt vel, kæri Felipe, að mér geðjast ekki að því, að flana að neinu. Ég verð að fá nægan tíma til að átta mig. Ég þarf að koma geysimörgu í kring í Þýzkalandi, áður en ég get far- ið að hugsa um sjálfa mig. Don Felipe brosti eilítið biturlega. — Tíma? Þú hefur haft fimmtán ár til þess að hugsa um þetta, er það ekki? Veiztu hvers ég iðrast mest í lífi mínu? Að ég skyldi ekki kvænast þér, áður en ég tók þig með til Mexico. Bettina starði niður í gólfið. — En þá gazt þú ekki gifzt aftur, sagði hún. — Ef þú hefðir viljað, hefði ég með góðu móti fengið frelsi mitt aftur, sagði hann. — Það veizt þú, Bettina. Bettina tók nú að gerast óþolinmóð. — Við skulum ekki tala um fortíðina, Felipe, Við skulum líta fram á við. Við erum þó ekki orðin svo gömul enn þá. •— Þú hefur rétt fyrir þér, svaraði Don Felipe. — Það væri heimskulegt af okkur að eyðileggja þetta dásamlega kvöld með Því að rifja upp óþægileg at- vik úr fortíðinni. Við skulum heldur tala um hana dóttur þína. Hún er sann- arlega falleg ung stúlka! Rödd Bettinu var dálítið kuldaleg, þegar hún sváraði: — Það er ekki að spyrja að því, þegar kvenfólk er annars vegar. Þá hefur þú augun á réttum stað. Felipe. En ég er sammála þér í þessu. Doris er fögur og aðlaðandi stúlka. Ég vona innilega, að ég komizt heim með hana héðan, áður en hún verður ástfangin! Einmitt í þessu sáu þau gegnum opna hurðina hvar Doris og Pedro svifu í dansinum. Þau voru að dansa cha cha cha og augu hans viku ekki frá andliti hennar . .. Skyndilega rann upp Ijós fyrir Bett- inu. Hún herpti varirnar saman og opn- aði óstyrkum höndum veski sitt og tók upp sígarettupakka. Don Felipe kveikti í fyrir hana. Hún andaði reyknum djúpt að sér aft- ur og aftur . . . FÁLKINN 23

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.